Morgunblaðið - 26.06.1976, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUC'.ARDAGUR 26. JUNI 1976
Yfirlitssýning
á verkum Bar-
W
böru Arnason
I DAG, laugardag, kl. 20.00
verður opnuð yfirlitssýning á
Kjarvalsstöðum á verkum Bar-
böru Árnason. Það er maður
hennar, Magnús Á. Árnason, og
sonur þeirra, Vífill, sem hafa
sett upp þessa sýningu til minn-
ingar um listakonuna.
Á þessari yfirgripsmiklú sýn-
ingu eru um 190 verk, grafik,
Unnið að uppsetningu sýning-
arinnar að Kjarvalsstöðum I
gær.
vatnslitamyndir, landslags-
myndir, vefnaður og aðrir grip-
ir eftir Barböru.
Flestar myndirnar eru í
einkaeign og hafa 77 einstakl-
ingar lánað verk á sýninguna
en þó munu nokkrar myndir
vera tii sölu.
Að sögn Magnúsar eru verk
frá síðustu sýningu Barböru
ekki á þessari, því þeir feðgar
vildu ekki sýna sömu myndirn-
ar með of stuttu millibili.
Barbara stundaði nám í und-
irbúningsskóla í Winsester og
lauk síðan námi frá Royal Coll-
ege of Art, en alla sína ævi
starfaði hún hér á landi. Hún
var yngsti félagsmaður í Graf-
íkfélaginu brezka og í marz s.l.
hélt það félag minningarsýn-
ingu um hina látnu listakonu,
þar sem nýjustu tilraunir henn-
ar í grafíklist, vatnslitaþrykk,
vöktu mikla athygli meðal
kunnáttumanna.
I sýningaskrá sem gefin er út
i tilefni sýningarinnar segir Að-
alsteinn Ingólfsson:
„Alveg frá upphafi einkenn-
ast verk Barböru af fínlegum
en markvissum hrynjandi og
umfjöllun hennar er I senn
Feðgarnir Magnús og Vífill við málverk af Barböru, sem Magnús málaði 1937.
ljóðræn og innileg. Hið volduga
og stórkostlega höfðaði ekki til
hennar, heldur var það hið smá-
gerva, saklausa og uppruna-
lega, sem jafnan dró fram hið
bezta í Barböru, t.a.m. börn,
dýr og gróður. Og allt var þetta
túlkað af nærfærni og elsku,
sem á ekkert skylt við grátlega
viðkvæmni, — virðing er lík-
lega lykilorðið hér, virðing fyr-
ir öllu sem lifir.“
Eins og áður sagði verður
opnunin á laugardag, en fyrir
almenning verður sýningin
opnuð á sunnudag kl. 14.00.
Sýningin verður síðan opin
fram til 20. júlí alla daga frá
16.00—22.00, nema sunnudaga
frá 14.00—22.00.
Nokkur verkanna á sýningunni.
HeildaroUusalan minnk-
aði um 13 þús. tonn
Að þessu sinni útskrifast 48 nýstúdentar frá Menntaskólanum í
Laugarvatni. Ljósm. V. Sigurgeirsson.
48 nýstúdentar útskrif-
ast frá Laugarvatni
HEILDARSALA olíufélag-
a <na á bensíni og
b’ennsluolíum minnkaði á
s ári um rúm 13 þúsund
l 'nn eða um 2,53% frá ár-
inu á undan. í fyrra nam
salan samtals 574 þúsund
íonnum.
Samkvæmt fréttablaði Olíufé-
lagsins Skeljungs eru nokkur at-
hyglisverðustu einkenni markað-
arins á sl. ári þau, að þrátt fyrir
aukna bifreiðaeign stóð bensin-
sala að mestu I stað svo að það
svaraði til a.m.k. 10% samdráttar
i notkun.
Gasolia til húsahitunar héit
áfram að dragast saman meðan
gasolíusala til islenzkra fiskiskipa
hefur aukizt aílverulega og nam
Hér sést hvernig útsöluverðið á
bensfni miðað við 6. maf sl. skipt-
ist prósentulega f kostnaðarþætti,
og sést þar að innkaupsverðið er
rétt um þriðjungur af útsöluverð-
inu.
um 36% af gasolíunotkuninni í
fyrra. Þá hélt flugvélaeldsneytis-
sala til erlendra flugfélaga áfram
að dragast saman. Nam saian um
18.490 tonnum og minnkaði um
rúm 27 % frá árinu á undan.
Heildarveita í olíuverzluninni
jókst úr 12.829 millj. árið 1974 í
20.125 millj. á sl. ári eða um 57%.
Hefur velta þessarar verzlunar-
greinar nær fimmfaldast frá ár-
inu 1972.
Yfir 1000 nýir
félagar í Garðyrkju-
félagi Islands
GARÐYRKJURITIÐ 1976 — árs-
rit Garðyrkjufélags Islands — er
komið út og er yfir 200 bls. að
stærð.
I ritinu er fjöldi greina og ann-
ar fróðleikur er varðar garðrækt.
Meðal höfunda eru Ólafur B. Guð-
mundsson, Ingólfur Davíðsson,
Einar I. Siggeirsson, Hermann
Lundholm og Agúst Þorvaldsson.
— í ritinu er og skýrsla stjórnar
Garðyrkjufélags íslands 1975 og
fréttir frá deildum úti á landi. I
skýrslunni kemur m.a. fram að
félagar í Garðyrkjufélaginu er nú
3900 og bættust yfir 1000 nýir
félagar við á árinu þannig að mik-
il gróska er i starfseminni. Skrá
er yfir alla nýju félagana í ritinu.
Ólafur B. Guðmundsson er rit-
stjóri Garðyrkjuritsins, en í rit-
nefnd eru Óli Valur Hansson og
Einar I. Siggeirsson.
MENNTASKÓLANUM á Laugar-
vatni var slitið 13. júnl sl. og voru
þá brautskráðir frá skólanum 48
nýstúdentar. Alls stunduðu nám
við skólann I vetur 184 nemendur
19 bekkjardeildum.
Nýstúdentarnir 48 voru úr
þremur deildum, 24 úr máladeild,
11 úr eðlisfræðideild og 13 úr
náttúrufræðideild. Hæstu eink-
unn úr máladeild hlaut Magnús
Sigurðsson, Reykjum í Lundar-
reykjadal, Borgarfirði, 9,18. I eðl-
isfræðideild hlutu hæstu ein-
kunnir Bergný Marvinsdóttir,
Selfossi, 8,22 og Árni Páll ög-
mundsson, Stóru-Sandvik í Sand-
vikurhreppi 8,06. Af nemum í
náttúrufræðideild hlaut hæstu
einkunn á stúdentsprófi Sigurður
V. Guðjónsson frá Neskaupsstað,
8,06.
I skólaslitaræðu Kristins Krist-
mundssonar skólameistara kom
m.a. fram að um þgssar mundir er
verið að ljúka frágangi á íbúðar-
húsi með tveimur íbúðum fyrir
kennara skólans og enn er ólokið
að ganga að fullu frá kennslustof-
um og lóð skólans. Skólameistari
tók fram að enn vantaði bæði við-
bótarkennsluhúsnæði og fleiri
kennaraíbúðir. Námsárangur
nemenda í neðri bekkjum skólans
er góður en aðsókn að skólanum
hefur verið góð á síðustu árum og
er þegar fullskipað í skólann á
næsta vetri. Félagslíf nemenda
hefur I vetur verið með fjölbreytt-
asta móti. Fastráðnir kennarar
við skóiann í vetur voru 9 auk
skólameistara.
Við skólaslitin töluðu fulltrúar
afmælisárganga. Jóhann Gunn-
arsson talaði fyrir hönd 20 ára
stúdenta og þeir færðu skólanum
að gjöf veglega bókargjöf. Fyrir
hönd 10 ára stúdenta talaði
Jóhann Briem en 10 ára stúdentar
gáfu skólanum vönduð hljóm-
flutningstæki. Jóhann Hannes-
son, fyrrverandi skólameistari,
ávarpaði viðstadda og færði skól-
anum að gjöf Þjóðhátíðarútgáfu
af Landnámu. Fjölmenni var við
skólaslitin og þágu viðstaddir
kaffiveitingar á staðnum.