Morgunblaðið - 27.06.1976, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
137. tbl. 63. árg.
SUNNUDAGUR 27. JUNÍ 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ljósmynd Ol.K.M.
Lfklega eru það ekki áhyggjur af versnandi heimi, sem hrjá þennan unga tslending. Okkur dettur f hug
að hann gæti verið að taka tennur eða þá bara að tilkynna að hann vilji pelann sinn og engar refjar.
6 vikna eldflauga-
æfingar Rússa á
Barentshafi
Moskvu 26. júnf. NTB.
SOVÉTMENN munu á ný halda
eidflaugaæfingar f Barentshafi f
sumar. Eiga æfingarnar að standa
f um 6 vikur frá 1. júlí til 10.
ágúst og verða á sama svæði og
æfingarnar, sem haldnar voru f
fyrra frá 16. til 27. september.
Svæðið er afmarkað af 73. gráðu
norðlægrar lengdar og 35. gráðu
austlægrar breiddar og er um 40
sjómflur f radfus. Það er um 300
mflur fyrir norðan Murmansk og
er á 155 þúsund ferkflómetra
svæðinu, sem liggur á milli þeirra
svæða, sem Norðmenn og Rússar
gera kröfu til yfirráða yfir skv.
200 mflna reglunni.
í tilkynningunni um æfingarn-
ar, sem birt var í Moskvu í gær,
eru ríkisstjórnir annarra landa
beðnar um að sjá til þess að engin
skip verði á ferðinni á þessum
tíma í námunda við æfingasvæð-
ið. Ekkert var látið uppi um
hverskonar eldflaugar gera á til-
raunir með.
Eanes sigur-
stranglegastur
Azevedo skipað að
taka sér 6 mán. hvíld
Lissahon 26. júní Reuter.
LÆKNAR fyrirskipuðu í dag
Jose Pinheiro de Azevedo forsæt-
isráðherra Portúgals að taka sér
algera hvfld f 6 mánuði eftir hið
alvarlega hjártaáfall, sem ráð-
herrann varð fyrir í sl. viku. Aze-
vedo, sem er óháður frambjóð-
andi f forsetakosningunum, sem
fram faraj landinu á morgun, var
talinn hafa möguleika á að sigra
Antonio Ramalho Eanes hers-
höfðingja, þrátt fyrir að Azevedo
njóti ekki stuðnings þriggja
stærstu stjórnmálaflokka lands-
ins, jafnaðarmanna, miðdemó-
krata og alþýðudemókrata. Talið
er nú næsta ólíklegt að Azevedo
eigi möguleika á sigri.
Eanes hershöfðingi lauk kosn-
ingabaráttu sinni í Port de Setu-
bal í gærkvöldi eftir að átök
höfðu orðið milli lögreglumanna
og herskárra vinstri sinna, sem
gerðu aðsúg og vörpuðu grjóti að
10 þúsund fundarmönnum á úti-
fundi Eanesar. Kosningabaráttu
Framhald á bls. 47.
Þrír myrtir í
árás í Belfast
Belfast. 26. júní. NTB.
Pólska stjórnin er í erfiðri
aðstöðu gagnvart bændum
Varsjá26. júní. Reuter.
PÓLSKA stjórnin, sem f gær féll
frá ákvörðun sinni um að stór-
hækka verð á matvælum í land-
inu eftir rúmlega 5 ára verðstöðv-
un, átti í dag við mikið vandamál
að strfða f kjölfar atburðanna f
gær. Stjórnin þarf nú að finna
leiðir til að fá 6 milljón bændur f
landinu tii að sætta sig við að
F ord forseti
kominn með
1001 kjörmann
New York 26. júní. AP.
FORD Bandarfkjaforseti hefur
nú tryggt sér stuðning 1001 full-
trúa á flokksþingi repúblfkana,
sem velur forsetaefni flokksins f
ágúst nk. Forsetinn hlaut stuðn-
ing 17 af 18 fulltrúum repúblfk-
ana f Minnesota í atkvæða-
greiðslu, sem fram fór á lands-
fundi repúblfkanaflokks Minne-
sota f morgun. Ronald Reagan
fékk aðeins 1 stuðningsmann og
hefur nú 927. 1130 atkvæði þarf
til að hljóta útnefningu á flokks-
þinginu.
verða af verðhækkunum á land-
búnaðarafurðum, sem áttu að
nema 20—50% til bænda, en að
meðaltali hefði það þýtt 60%
hækkun til neytenda.
Pitro Freszewicz forsætisráð-
herra landsins tilkynnti I gær-
kvöldi að stjórnin hefði fallið
frá verðhækkununum, eftir
að verkamenn víða um land-
ið höfðu lagt niður vinnu í
mótmælaskyni. Alvarlegasta at-
vikið var, er verkamenn við
dráttarvélaverksmiðju í út-
jaðri Varsjár rifu upp járn-
brautarteina og stöðvuðu hrað-
lestina milji Varsjár og París-
ar. Ekki kom til neinna átaka
vegna verkfallanna og lögreglu-
menn í landinu höfðust ekki að
gagnvart verkfallsmönnum. Var
stjórnvöldum landsins ofarlega i
huga hinar blóðugu óeirðir, sem
urðu í landinu f desember 1970 i
sambandi við mótmælaaðgerðir
út af matvælaverði, en þá létu 44
lifið og hundruð særðust i átökum
verkamanna og lögreglu- og her-
manna. Þær óeirðir leiddu til falls
stjórnar Gomúlku.
Allt var með kyrritm kjörum í
Póllandi í dag og liftð gekk sinn
vanagang, en verkafólk fagnaði
sigri á hljóðlátan hátt. Rikis-
stjórnin aflýsti i morgun fundi i
þingi landsins, þar sem afgreiða
átti endanlega verðhækkunarlög-
in. Dagblað pólska kommúnista-
flokksins, Trybuna Ludu, sagði i
morgun, að verðhækkunartillög-
ur ríkisstjórnarinnar hefðu miðað
að því að ná fram réttlátari skipt-
ingu innan efnahagskerfisins og
skoraði á verkamenn að stefna að
jafnri og reglulegri framleiðslu.
31aðið sagði að umræður um mál-
in væru góðar fyrir þjóðina, en að
þáð væri ekki hægt að halda þjóð-
félaginu gangandi nema með því
að fólkið héldi áfram að vinna.
I verðhækkunarlögunum var
Framhald á bls. 47.
TVEIR vopnaðir menn réðust inn
f veitingarhús f kaþólsku hverfi f
Belfast f gærkvöldi og skutu i
allar áttir. Þrfr biðu bana og
margir gestanna særðust, einn
þeirra alvarlega.
Sprengja sprakk í öðru veit-
ingahúsi fyrr um kvöldið og 28
særðust. Tveir lögreglumenn
særðust þegar þeir rannsökuðu
sprenginguna.
Önnur sprengja sprakk skammt
frá kirkjugarði í Anderstown í
Vestur-Belfast. Sprengjan var af
gerð sem írski lýðveldisherinn
(IRA) notar og átti sennilega að
hæfa herbúðir rétt hjá.
30 hafa verið myrtir á Norður-
írlandi í júní.
Þorskstofninn er í
hættu á Barentshafi
Ósló. 26. júnl. NTB.
Hætta er á að sóknin f þorsk-
stofninn og aðra fiskistofna á
Barentshafi aukist á næstunni
að sögn Aftenpostensídag. I' m
300 erlendir togarar eru að
veiðum á svæðinu milli Finn-
merkur og Bjarnareyjar og það
samrýmist engum alþjóðlegum
kvótareglum segir blaðið.
Blaðið segir að Portúgalar og
Spánverjar hafi greinilega gert
sig seka um gróf brot á kvóta-
reglum, en athyglin beinist f
vaxandi mæli að veiðum Rússa,
sem búi við matvælaskort og
verði að fá eggjahvftuefni úr
hafinu, hvort sem þau fáist
samkvæmt kvótareglum eða
ekki.
„Við erum í engum vafa um
að Rússar stunda verulega of-
veiði,“ segir talsmaður brezka
togarasambandsins, John
Davis, I samtali við blaðið.
Margir leggja áherzlu á að að-
eins Norðmenn og Bretar virði
kvóta. Norskir togarar hafa
hætt veiðum og hefja þær ekki
að nýju fyrr en i ágúst-
september. Neyðarástand ríkir
i mörgum fiskvinnslustöðvum í
Norður-Noregi, en búizt er við
undanþáguheimildum.
Um 100 togarar eru rétt við
12 milna mörkin undan Finn-
mörku og á nálægum miðum og
einnig er fjöldi togara á svæð-
Framhald á bls. 47.