Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 12
^ 2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNÍ 1976
Með Óðni,
Agli og
Auðhumlu
—á samnorrænu leikbrúðu
námskeiði í Reykholti
0 — „Hér er sköpunargleð-
in í hámarki og hendur látnar
standa fram úr ermum" —
sagði Jónína Kristjánsdóttir,
formaður Bandalags ísl. leik
félaga, þegar Morgunblaðs-
menn litu við í Reykholti í
sl. viku. Jónína sveiflaði i
kringum sig stórum skærum
og klippti strigapjötlur á báða
bóga. Tjáði hún Mbl., að
striginn væri ómissandi efni
við leikgrimu- og leikbrúðu-
gerð ásamt mörgum öðrum
efnum s.s. gömlum Morgun-
blöðum, ullarlögðum, birki-
hríslum, krækiberjalyngi og
steinvölum. Allt í kring lágu
leikbrúður af öllum gerðum
og stærðum og mátti þar
greina fyrirbæri eins og
þursa, tröll, alls konar furðu-
dýr og griðarstór konubrjóst
sem að sögn Jóninu tilheyrðu
frjósemisgyðjunni Freyju.
£ í Reykholti hefur að undan-
förnu staðið yfir námskeið í
leikbrúðugerð og leiktækni í
brúðuleikhúsi. Er námskeiðið
haldið á vegum Bandalags
norrænna áhugaleikara sem
Bandalag ísl. leikfélaga er aðili
að. Þátttakendur eru alls 51,
frá öllum Norðurlöndunum, og
eru leiðbeinendur allir þekktir
menn á sínu sviði: Henning
Nielsen sem er aðalskipuleggj-
andi námskeiðsins, Erik Sör-
ensen sem þekktur er fyrir leik-
brúðugerð sína fyrir danska
sjónvarpið, Erwin Piplits, ungur
Austurríkismaður, sem þekktur
er víða um Evrópu fyrir frjóar
hugmyndir í leikbrúðugerð og
túlkunaraðferðir í brúðuleikhúsi
og Jón E. Guðmundsson sem
óþarfi er að kynna, en hann
hefur um árabil veríð burðarás í
islenzku brúðuleikhúsi.
Þetta er í þriðja skiptið sem
norræna bandalagið gengst
fyrir námskeiði sem þessu en
áður hafa verið tekin fyrir við-
fangsefnin „Götuleikhúsið" og
„Trúðurinn i nútímaleikhúsi. Að
þessu sinni er það „Leik-
brúðan" og sagði Arne
Aabenhus, formaður vinnu-
nefndarinnar, að meginmark-
miðið væri að vikka svið leik-
brúðunnar í leikhúslífi almennt
og sýna fram á þá miklu mögu-
leika sem brúðan býður upp á í
leikhúsinu. Sagði Arne, að því
færi víðs fjarri, að leikbrúður
væru einungis fyrir börn, —
hér væri um sjálfstæða listgrein
að ræða sem ætti ekki síður
erindi til fullorðinna.
Helga Hjörvar, framkvæmda-
stjóri Bandalags ísl. leikfélaga,
gekk með Morgunblaðsmönn-
um um staðinn og útskýrði það
sem fyrir augu bar. Sagði hún,
að koma norrænu gestanna
hingað væri afar þýðingarmikil
fyrir íslenzkt áhugafólk um leik-
list og þá ekki sízt fyrir íslenzkt
brúðuleikhús, Þeir væru búnir
að þróa með sér ákveðnar
aðferðir í þessum efnum sem
víð gætum margt lært af.
Helga sagði að I byrjun hefðu
þátttakendur fengið að þreifa
sig áfram að eigin vild, —
fengið tilfinningu fyrir við-
fangsefninu. Síðan hefðu
ákveðnar hugmyndir um efnis-
val þróazt og hefði þá verið
ákveðið að taka fyrir persónur
úr Snorra-Eddu, Þrymskviðu
og Egilssögu.
Námskeiðinu lauk í gaer
með magnþrunginni sýningu
þar sem fram komu jötnar,
guðir og menn, þ. á m. Ymir
jötunn, kýrin Auðhumla, Loki,
Oðinn og Freyja og að sjálf-
sögðu Egill karlinn Skallagríms-
son. Má segja að viðfangs-
efnið hafi verið vel við hæfi á
þessu fornfræga höfuðbóli
Snorra Sturlusonar.
Solveig Carr frá Svíþjóð önnum
kafin við að fullgera Egil Skalla-
grfmsson.
Erwin Piplits með sköpunarverk sitt, kúna Auðhumiu.
Jón E. Guðmundsson ásamt nokkrum þátttakenda úr stangarbrúðudeildinni.
Henning Nielsen leiðbeinir Anne Helga Hjörvar útskýrir hvernig
Gullestad frá Noregi. notast má við einfalda hluti við
leikbrúðugerðina s.s. ullarlagða,
birkihrfslur og krækiberjalyng.
Jónfna Kristjánsdóttir með brjóstin af Freyju. Á bak við hana eru
tveir þátttakcnda, þær Sigrún Jónsdóttir frá Drangsnesi og Margrét
Gfsladóttir úr Grindavfk.