Morgunblaðið - 27.06.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNt 1976
13
Ekkert
ákveðið um
viðræður
EINS og kunnugt er fór Éfna-
hagsbandalag Evrópu fram á það
í orðsendingu, sem það sendi
utanríkirráðherra Islands, að
bandalagið og tsland hæfu
könnunarviðræður um gagn-
kvæm fiskveiðiréttindi innan
fiskveiðilögsögu íslands og EBE-
landanna fyrir lok júlímánaðar.
Samkvæmt upplýsingum Henriks
Sv. Björnssonar, ráðuneytisstjóra
í utanríkisráðuneytinu, hefur
ríkisstjórn Islands enn ekki tekið
afstöðu til þessarar óskar.
eigi áttræðisafmæli. I kringum
Hönnu og Stefán er sérstakt and-
rúmsloft, einhver kynjablanda
sælu og saknaðar, sem oft umlyk-
ur nýtrúlofað fólk, sem elskar
lika listir. En hjá Stefáni og
Hönnu er ekki komið að tómum
kofunum. Þar angar allt af list og
lifi, hver fersentímeter mettaður
félagsanda, mannlegri ástúð og
æðri tilgangi.
Stefán Kristinsson' er að upp-
lagi strangur vísihdamaður, þar
sem hverjum hlut og hverri hugs-
un er ætlaður afmarkaður staður,
unz auga og eyra fundu enga mis-
fellu. Slumpareikningur var og er
bannorð á heimili hjónanna.
Stefán Kristinsson er einn af
stofnendum Tónlistarfélagsins
fyrir 45 árum, og hefur hann alla
tíð tekið lifandi þátt í starfi þess.
Hefur félaginu verið mikill og
vaxandi styrkur að þekkingu
hans, reynslu og brennandi
áhuga.
Það hefur alltaf verið fjöl-
mennt á heimili Stefáns og
Hönnu, börnin mörg, félagslynd
og þorstlát á andlegt fóður,
menntaþrá herjað eins og leysing
hugi þessa gáfaða og sjálfstæða
ungviðis.
En Stefán og Hanna fluttu ekki
þunga fjársjóði í bú sitt að ganga i
þegar illa áraði. Þeirra eini vara-
sjóður var eigið þrek og örugg
lifstrú. Hafi ég einhverntíma séð
það sannað með lifandi vitnum,
að Guð hjálpi þeim sem hjálpa sér
sjálfir, þá hefur það verið hér.
Þreyta og lífsleiði eru rauna-
lega útbreiddir kvillar, með nú-
tíma fólki. Heímili Stefáns og
Hönnu hefur aldrei smitazt af
þessum illkynjaða sjúkdómi. Það
var ekki nema sjálfsagður hlutur
að þræla baki brotnu þangað til
fæturnir neituðu kalli heilans —
síminn lokaður. Þar er ekki held-
ur til siðs að láta klukkuna
skammta vinnustundirnar. Það
var algild regla að dagurinn end-
aði er verkum var lokið — ekki
fyrr.
Ragnar Jónsson.
Áttrœður:
Stefán Kristinsson
Kvöldgestum Erlends í Unu-
húsi var ekkert mannlegt óvið-
komandi. En þó að hús hans stæði
öllum opið, áttu tæplega aðrir
beint erindi þangað en þeir, sem
lumuðu á einhverju í farangri sín-
Fjölmargir
hættustaðir
á vegum í
Biskupstungum
FJÖLMENNUR sveitarfundur í
Biskupstungnahreppi var haldinn
i Aratungu þann 14. júní s.l. Á
fundinum var m.a. rætt um vega-
mál og var sérstaklega vakin
athygli á slæmu ástandi og fjöl-
mörgum hættustöðum án viðvar-
ana í vegakerfi sveitarinnar. Þá
var bent á að augljóst væri, að
flutningaleiðum væri ekki haldið
við til jafns við ferðamannaleiðir,
s.s. með heflun. Fundurinn taldi
ástandið algerlega óviðunandi og
krafðist þess, að úr þessu yrði
bætt á komandi sumri.
um, heimilisföður og gestum
hússins til fróðleiks og upplyft-
ingar: Nýtt heimsádeiluverk, for-
síðufrétt i París og Róm; Negra-
ópera frumsýnd á fjölum Carnegí-
hallar, New York frétt. Höfuð-
snillingurinn Matiss endurborinn
í Tategallarii i Lundúnum.
I Unuhúsi voru aðeins heims-
fréttir teknar gildar. Erlendur
var alla tíð staðráðinn í að kveða
niður ,,frummanninn“ i íslend-
ingum, og hreinsa til í smáborg-
aralegum fletum hans.
Meðal kærustu gesta í Unuhúsi
og einkavinir húsbóndans voru
þau Hanna og Stefán Kristinsson.
Þau voru alla daga nýtrúlofuð, og
eru enn i dag, þó eiginmaðurinn
Akureyri:
Umfangsmikill
rekstur
göðtemplara
STUKURNAR Isafold-Fjallkonan
og Brynja á Akureyri standa fyrir
umfangsmiklum rekstri þar í
sambandi við ferðaþjónustu og
fleira, en fyrirtæki I.O.G.T. á Ak-
ureyri eru Hótel Varðborg, Borg-
arbíó, Flugkaffi á flugvellinum
og Friðbjarnarhús. Samkvæmt
upplýsingum Arnfinns Arnfinns-
sonar framkvæmdastjóra fyrir-
tækjanna starfa nær 30 manns við
þau.
10 ára nemend-
ur mæta drukkn-
ir í skólana
í Danmörku ...
NOKKUR undanfarin ár hefur
átt sér stað stöðug aukning áfeng-
isneyzlu meðal unglinga og barna.
Greinilegast hefir þetta komið I
ljós í Danmörku, þar sem menn
hafa lengi vel ekki viljað viður-
kenna þetta mikla vandamál. Nú
biðja Danir um hjálp frá Svium
og Norðmönnum til að snúa við á
óheillabrautinni.
Það eru dönsk skólayfirvöld
sem berjast gegn því m.a., að
börnum sé heimilt að kaupa
áfengt öl eða bjór.
Ofneyzla bjórs nær til barna úr
öllum stéttum þjóðfélagsins. Það
gerist ósjaldan, að nemendur,
jafnvel aðeins 10 ára, komi
drukknir í skólann eða drekki sig
fulla á skólatíma af sterkum bjór.
Sjötíu sinnum
iviku
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferð, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið
ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það
þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost.
Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga með
langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á íslandi.
500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum
okkar í 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis.
Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki
þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur
framhaldið í samvinnu við flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundið flug, og fjölda hótela.
Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu að það er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo
mætti verða.
fwcfélac L0FTLEIDIR
ÍSLAJVDS
Félög með þjálfað starfsliö í þjónustu við þig