Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1976 Sambýli borgarbúa og þéttbýlis og ósnertrar F'eikning, sem sýnir afstöðuna á Sundahafnarsvæðinu og útivistar- væðinu í Elliðaárdal. Austan megin i Elliðavogi eru þegar sem- ents- og sandflutningar á sjð og vestan megin fyrirhuguð aðstaða fyrir skipaviðgerðir utan Gelgjutanga og hafnarbakki SlS þar fvrir utan, en smábátahöfn kæmi i endann á útivistarsvæðinu, fremst á nesið vestan megin með siglingarennu með landinu þeim megin. Lengst til hægri er Korpúlfsstaðafjaran, sem verður friðuð. BJARTAR sumarnætur eru það, sem við hér á Islandi höf- um umfram flesta aðra jarðar- búa. Á þeirra árstima sækja Reykvíkingar hvað mest út í náttúrulegt umhverfi og m.a. í útivistarsvæðin, sem enn eru í útjaðri byggðarinnar. Um likt leyti og þeir fá sér göngu með ströndinni og upp Elliðaárdal- inn, er fyrsti laxinn að halda upp árnar. Þá er eðlilega ofar- lega á baugi umræða um sam- býli höfuðborgarbúa og laxins, vaxandi þéttbýlis og ósnertrar náttúru. Þegar nú er fram komin i skipulagstillögu hug- mynd um höfn fyrir smábáta í tilhúna hólmanum, er gengur út í Elliðavoginn, er auðvitað í brennidepli hvort bátar, lax og vaxandi umferð og umsvif geti unað í sambýli. Nýlega tók umhverfismála- ráð borgarinnar málið til um- fjöllunar enn einu sinni og taldi nauðsynlegt að efla rann- sóknir á gönguferli laxins og áhrifum umferðar og hávaða á ferðir hans úti á voginum. Litið sé um haldgöðar upplýsingar um laxinn áður en hann heldur upp í árnar, þó meira sé vitaö um laxagöngur í Elliðaárnar sjálfar en nokkrar aðrar íslenzkar ár. Og þar sem vitað er, að 80% af heildargöngunni fer fram í júlímánuði, þá lýsti umhverfismálaráð sig fylgjandi tíllögum borgarverkfræðings þess efnis, að heimilt yrði að takmarka fyrirvaralaust notkun smábátahafnar í sam- ráði við fiskra’ktarfulitrúa á meðan laxinn gengur ef ákvörð- un verður tekin um höfnina. Taldi ráðið sjálfsagt að fara þar af mikilli gát, og ieit svo á. að rannsóknir þær, sem fyrr eru nefndar, verði að teljast undir- staða víðeigandi aðgerða gagn- vart umferð smábáta og stærri skipa, og forsenda þess, að hvort tveggja geti þróazt á sva'ðinu, laxveiði og umferð skipa og báta um Elliðavog í vaxandi þéttbýli. A hínn bög- inn var talið að smábátahöfn í Reykjavik geti orðið mikil- væ'gur þáttur í lífi borgarbúa og geti bátahöfnin farið vel við aðra útivist á Elliðaársvæðinu 0 Vaxandi þéttbýli — stærri höfn Þarna er á ferðinni mál, sem kallar á rækilega umfjöllun og umhugsun, og nær í rauninni langt út yfir þann umræðu- ramma, sem það er í. Ég hefi oft verið spurð að undanförnu uin viðhorfið í þessu efní og gefur það nú tilefni til að ræða ofurlítið málið í heild. Ég hefi löngu gert mér grein fyrir þvi, að það er rétt eins og að ganga á streng og haida þar jafnvægi að reyna að marka stefnu í um- hverfismálum i vaxandi borg. Möguleikarnir á að detta út af linunni öðrum hvorum megin eru geysimiklir. En á undan- förnum árum hefi ég eðlilega, sem formaður náttúruverndar- nefndar og síðan umhverfis- málaráðs í Reykjavík þróað og markað mér sjálfri nokkurs konar undirstöðu stefnu til eig- in brúks. í þessu efni verður að taka mið af nokkrum stað- reyndum. Reykjavík hefur alllanga strandlengju og góð hafnarskil- yrði. Raunar væri hún varia höfuðborg Islands, ef svo væri ekki. Og Reykjavík verður að nýta þá aðstöðu. Vegna þess ma;...fjölda, sem þegar býr í borginni og lifir á starfseminni. er þar fer fram, er ekki aðeins æskilegt, heldur nauðsynlegt, að höfnin geti stækkað með vaxandi ibúafjölda — og það mun meir í framtíðinni en nú er. Og höfn verður vart flutt upp á hæ'ðirnar, hvaða höfn sem það er. Augljóst er, að höfn fyrir smábáta er orðin mjög brýn nauðsyn i Reykjavík. Um 200 smábátar með vél af ýmsum gerðum, trillur og skemmti- bátar, eru þegar á hrakhólum. Og ég tel það af hinu góða, að Reykvíkingar geti, ef þeir vilja, haft smábát sér til ánægju. Þetta er tömstundasport, sem öll fjölskyldan getur stundað i sameiningu. Og slíkt tóm- stundagaman tel ég að beri að uppörva, eins og annað sem ungir og gamlir njóta í félagi, svo sem hestamennska og skíða- íþróttir í Bláfjöllum. Að mínum dómi, er það æskilegra, ef hægt er, en að skapa aðstöðu fyrir afmarkaða aldurshópa. Og vil hlynna sérstaklega að slíku al- menningsviðfangi. 1 þeim aðalskipulagstillögum til næstu 20 ára, sem nú eru í burðarliðnum, er gert ráð fyrir því að litlu seglbátarnir fái að vera áfram í Skerjafirðinum, þeir stærri fái aðstöðu við Geldinganes, en vélbátarnir inni í Elliðavogi. Þetta er í sam- ræmi við þá meginstefnu, sem ég frá umhverfissjónarmiði hefi smám saman hallazt að, enda hafa forstöðumaður Þróunarstofnunar og borgar- verkfræðingur sýnt okkur í um- hverfismálaráði hugmyndir sínar meðan þær voru í vinnslu og við rætt þær. Þarna hlýtur að verða um val milli kosta að ræða. Ég hefi stefnt að þeim valkosti, að verja einkum þá fjöru, sem enn er ósnortin og óskemmd, þ.e. innan við Geldingnesið og neðan Korpúlfsstaða, enda líf- ríki þar gróskumikið og ennþá selir og æðarfugl. Sú fjara verð- ur alveg friðuð og bátaumferð fyrir utan. Ég tel æskilegt að hleypa hafnarstarfsemi sem minnst inn fyrir Gufunes. Þar fyrir utan er þegar meira og minna komin höfn og umferð, eftir að Sundahöfn var ákveðin og byrjað á henni. Og rétt er að geta þess um leið, að ég er andvig því að nokkur tegund af oliuflutningum eða oliugeymsl- um fari inn á sundin og mundi t.d. standa gegn því að slík starfsemi yrði i Geldinganesi. Og vona, að þegar þarf að sjá fyrir olíuflutningum um höfn- ina, og i Iengri framtíð að stækka Reykjavíkurhöfn enn meir, þá verði það gert með uppfyllíngum út við Örfirisey og jafnvel út í Engey, þannig að olíuflutningur færist ekki inn á sundin. Én góða höfn og olíu- flutninga verður Reykjavík sýnilega að hafa, til að sjá íbú- um sinum fyrir atvinnu og tekj- um. 0 í endanum á útivistar- svæðinu Sundahöfn er komin inn að Elliðavogi nú þegar og raunar inn á vóginn. Og fyrir endanum á honum skagar fram tilbúið grænt nes, þar sem áður var fjara og leirur, sem flestir sjá nú eftir. Þó var það ástand ekki varanlegt, því framburður Elliðaánna var þegar að fylla þar upp og raunar er ekki jarðsögulega langt síðan vogur- inn var grynnri og upp úr stóðu eyjar. Rétt er þó að taka fram, að hefðí þetta tilbúna nes ekki verið komið þarna þá hefði ég ekki viljað fallast á að sú upp- fylling væri gerð. En það er gert og leirurnar koma ekki aftur. Þá skoðun staðfesti Arnþór Garðarsson, sem kom á fund Umhverfismálaráðs, til að skýra fyrir okkur sérfræðilega umsögn sína um Grafarvoginn. En þetta stóra grasi gróna nes er tilvalinn endir á útivistar- svæðinu í Elliðaárdalnum og nýtist væntanlega enn betur, ef fólk getur sér til ánægju gengið út eftir því og niður að smábátahöfninni. En í áætlun um umhverfi og útivist i borg- inni er Elliðaársvæðið mið- punktar ýmiss konar útivistar fyrir borgarbúa, enda eru nú þegar allt um kring stór íbúðarhverfi, í Langholti, Breiðholti, Bústaðahverfi og Árbæjarhverfi. í fyrrnefndri umsögn Umhverfismálaráðs borgarinnar segir: „Leitazt hefur verið við að tryggja með áætluninni að svæðið varð- veitist og nýtist á sem fjöl- breytilegastan hátt í sambýli við veiðiskap í ánni. Utivistar- svæðið nær frá ósum ánna og allt til Heiðmerkur." Til að verja Elliðárnar austan við þetta nes, eru í tillögunni um bátahöfn áform um að hækka uppfyllinguna þar með- fram í aflangan hæðarhrygg, sem um leið veitti skjól vestan við. Vikin vestan við nesið helzt opin, svo þar gæti sjávarfalla, og þess að sjálfsögðu gætt að Háubakkar, þar sem lesa má í bökkunum jarðlögin undir Reykjavík, haldist ósnertir. Eftir Elínu Pálmadóttur £ Áhrif umferðar á laxinn Þá erum við komin að því viðkvæmasta í ákvarðanatöku um smábátahöfnina, og raunar framtið Sundahafnar í Elliða- vogi í heild og framhald Reykjavíkurhafnar, þegar borgin stækkar enn meir. Það eru áhrif umferðar skipa og smábátahafnar á laxinn, sem gengur upp i Elliðaárnar. En úr hafnarkjafti smábátahafnar- innar og yfir í mynni ánna, yrðu um 200 metrar. Hafa kom- ið fram efasemdir um að um- ferð báta utan við ósa Elliða- ánna kynni að styggja laxinn á göngu hans í árnar. Veiði- og fiskiræktarráð í borginni hefur samþykkt neikvæða umsögn, og tillaga þess að gerð smábáta- hafnar hefjis* alls ekki fyrr en fullsannað sé, að hún hafi eng- in áhrif á laxagengd i Elliðaár eða niðurgöngu seiða, og talið að gera þurfi nákvæmar rann- sóknir og athuganir á íaxa- gengd i Elliðaár og niðurgöngu seiða með tilliti til aukinna um- svifa við voginn. Borgarverkfræðingur hafði i upphafi leitað til þeirra tveggja sérfræðinga, sem hann taldi bezta i þessu efni, Jóns Kristjánssonar, fiskifraéðings

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.