Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNÍ 1976 fttotgifitlrlii&ife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Bjöm Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10100 Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Bersýnilegt er að þessi mikli munur hefur vakið athygli þeirra aðila í Portúgal, sem fjalla um utanríkisviðskipti. Fyrir nokkru var hér á ferð verzlunarfulltrúi frá Portúgal, sem ræddi við stjórnvöld um möguleika á því að jafna þennan óhag- stæða viðskiptajöfnuð milli landanna. í viðtali við Morgunblaðið sagði portúgalski verzlunarfull- Viðskiptin við Portúgal Portúgal hefur vax- andi þýðingu sem eitt helzta viðskiptaland okkar. Það er að sjálfsögðu fyrst og fremst saltfiskur, sem við seljum til Portúgals, en eins og vikið var að í Morgunblaðinu fyrir skömmu hefur hlutdeild saltfisks í útflutningi sjávarafurða aukizt, en þýðing saltfisks þó enn meir fyrir afkomu fisk- vinnslufyrirtækjanna vegna þess að saltfiskur hefur verið í háu verði á sama tíma og frystar fisk- afurðir féllu í verði. Nú bendir hins vegar margt til þess, að við getum stofnað saltfiskmarkaði okkar í Portúgal í hættu vegna þess hve lítil gagnkvæm viðskipti eru milli landanna. Á árinu 1973 keyptum við íslendingar frá Portú- gal sem svaraði 9,5% af útflutningi okkar til Portúgals Á árinu 1974 lækkaði þetta hlutfall í 6,4% og á árinu 1975 lækkaði það enn í 6,1% og á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs nam hlutfallió 4,3%. Á þessu tímabili í ár seldum við til Portúgals afurðir fyrir 1353 milljónir króna en keyptum af þeim vörur fyrir 58 milljónir króna. trúinn m.a.: „Portúgalar vilja áfram kaupa íslenzkan saltfisk en við teljum brýna nauðsyn bera til að jöfnuður náist í við- skiptum landanna. . . Ef ekki tekst að ná þessu nauðsynlega jafnvægi blas- ir sú staðreynd við að Portúgalar neyðist til að draga úr þeim kaupurn." Bersýnilegt er, að for- svarsmenn viðskiptaráðu- neytisins eru vakandi fyrir þessu vandamáli og í við- tali við Morgunblaðið sl. föstudag sagði Ólafur Jóhannesson viðskiptaráð- herra, að leitazt yrði við aö auka innflutning frá Portúgal. Er ýmislegt í at- hugun í því sambandi. Útflutningur á saltfiski til Portúgals hefur svo mikla þýðingu fyrir okkur íslend- inga, að Morgunblaðið sér sérstaka ástæðu til að vekja athygli á því vanda- máli, sem þarna kann að vera í uppsiglingu. Þjóð sem lifir á útflutningi eins og við verður að rækta vel samskipti við þær þjóðir sem mestu skipta i út- flutningi okkar. Portúgal- ar eru í hópi þeirra þjóða. Sovézk hlustunardufl Fyrir nokkrum dögum fannst sovézkt hlustun- ardufl við Krísuvíkur- bjarg. Er þetta sjöunda sovézka hlustunarduflið, sem finnst hér við land á tveimur árum. Á síðasta ári fundust 5 slík dufl og eitt á árinu 1974. Að mati Raunvísindastofnunar Há- skólans eru dufl þessi bæði notuð til hlustunar og sendingar og er talið, að þau séu notuð til þess að senda hljóðmerki og taka á móti þeim. Þá er einnig talið hugsanlegt, að dufl þessi séu tjóðruð viö hafs- botn á 400 metra dýpi. Þegar dufl þessi fundust hér við land í fyrsta skipti voru ýmsar getgátur um, að þau kynni að hafa rekið til íslands langt að. En nú hafa sjö slík dufl fundizt hér við land og getur það naumast verið tilviljun. Enginn vafi getur leikið á því lengur, að duflin eru staðsett í námunda við ís- land og að fleiri slík dufl er að finna á hafsbotni í nám- unda við landið. Það hefur einnig verið sannað óve- fengjanlega, að dufl þessi eru af sovézkri gerð. Og þá vaknar þessi spurning: á hvað eru Sovétmenn að hlusta? Og hvað eru þeir að senda? Fullt tilefni er til þess, að sovézka sendiráðið í Reykjavík sé spurt þessara spurninga, og óskað eftir skýrum svörum. Það er mikill munur á því at- hafnafrelsi, sem við veitum Sovétmönnum á íslandi og við ísland og því, sem þeir veita okkur í Sovétríkjun- um. Sendimenn okkar í Mosvku verða að sæta tak- mörkun ferðafrelsis og margskonar öðrum höml- unum. Hér er hins vegar geysilega fjölmennt sov- ézkt sendiráð, sovézkir vís- indaleiðangrar flæða yfir landið, sovézk njósnatæki finnast í Kleifarvatni án þess að orð sé á því haft og girðing sovézkra hlustun- ardufla sýnist vera á hafs- botni í námunda við landið. Er ekki nóg komið? Rey kj av íkurbréf Laugardagur 26. júní Góðtemplara- reglan í landi okkar hafa sprottið upp ýmsar öflugar félagsmálahreyf- ingar, sem markað hafa djúp spor í samtíma sinn. Meðal þeirra er Góðtemplarareglan, sem minntist 90 ára afmælis Stórstúku íslands, sambands góðtemplara, sl. fimmtudag. í grein í Morgunblað- inu þann dag lýsir Einar Hannes- son aðstæðum í áfengismálum, þegar Stórstúkan var stofnuð með svofelldum hætti: „Þegar Stór- stúkan var stofnuð var ástand áfengismála hér á landi afar slæmt. Á nítjándu öld hafði drykkjuskapur aukizt mjög, en sú öld var líka vakningartími ábyrgra og hugsandi manna, sem gerðu sér grein fyrir því hvað drykkjuskapur var orðinn þjóð- inni dýrkeyptur. Á árunum 1881—1885 var meðaltai neyzlu áfengis á hvern íbúa 2,38 litrar af hreinum vínanda. Fyrrgreindir aðilar stóðu m.a. fyrir söfnun undirskrifta um áskorun á stjórn- völd að hindra og draga úr áfengisflóðinu og stofnuð voru mörg hófsemdar- og bindindis- félög, en félög þessi urðu skamm- líf. En með tilkomu góðtemplara reglunnar og stofnun Stórstúk- unnar kemst verulegur skriður á málin til betri vegar, eins og að var stefnt." Drykkjuskapur hefur alla tíð verið mikill á íslandi og raunar er það eftirtektarvert, að fólk, sem býr á norðurhveii jarðar virðist neyta áfengra drykkja með öðrum og ofsafengnari hætti, en t.d. þær þjóðir, sem byggja suðlægari lönd. Við tslendingar þekkjum sjálfir okkar eigin dryk-kjusiði, en þurfum ekki annað en heimsækja frændur okkar í Noregi, fara til Finnlands og jafnvel Rússlands til þess að sjá, að drykkjusiðir okkar eru ekkert einsdæmi meðal norðlægra þjóða. Enda er það svo, að bæði hér og þó ekki síður í Noregi hefur risið upp mjög öflug bindindishreyfing og er sérstaklega athyglisvert að sjá, hvað hún hefur náð sterkri fót- festu í Noregi, þar sem segja má, að í norska stórþinginu sé starf- andi sérstakur bindindisflokkur, sem bindindissinnaðir þingmenn úr öllum flokkum geta gengið í og gera og sameinast þar um að spyrna gegn áfengisneyzlu með ýmsum hætti. Þótt bindindis- menn og bindindissinnaðir menn hafi ekki með jafn skipulegum hætti starfað saman á Alþingi Is- lendinga er auðvitað ljóst, að slík- ur flokkur verður jafnan til, þegar til umræðu koma tillögur um sölu á sterkum bjór hér og þá hefur komið í Ijós að bindindis- hreyfingin er býsna sterk á Al- þingi. Hvort sem menn aðhyllast algert bindindi eða ekki, og hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á því baráttumáli Góðtemplara að setja á algert vinbann ættu þó allir að geta sameinast um þá nið- urstöðu, að áfengi, eins og það er notað hér í okkar landi er böl. Um það er óþarft að deila. Ætli sú fjölskylda sé til á íslandi, sem ekki hefur á einhvern máta kom- izt í kast við áfengisbölið? Áfengið hefur eyðilagt líf margra mætra manna, sem ekki hafa haft viljastyrk til að hafna því. Áfengið hefur lagt heimili í rúst. Áfengið hefur gert líf barna og unglinga, hin áhyggjulausu æsku- ár, sem öllum ætti að verða til gleði, að óbærilegri kvöl. Allt eru þetta staðreyndir, sem óþarft er að deila um og sjálfsagt eru þessar afleiðingar áfengisneyzlu víðtækari og umfangsmeiri í okk- ar samfélagi en nokkur gerir sér í hugarlund. Þegar þetta er haft í huga ættu menn að spara sér brosið, eða háðsglottið, þegar talað er um starf bindindismanna. Þar er á ferðinni eitthvert merk- asta líknar- og mannúðarstarf, sem unnið er í okkar samfélagi, því að ofneyzla áfengis er sjúk- dómur — sjúkdómur, sem afar erfitt er að lækna. Og þjóðin öll stendur í ómældri þakkarskuld við bindindishreyfinguna, hvort sem um er að ræða Góðtemplara eða önnur félagasamtök, sem vinna að áfengismálum, fyrir hvern þann einstakling, sem þess- um aðilum hefur tekizt að bjarga frá böli áfengisneyzlunnar. Stundum er því haldið fram, að starfsemi samtaka á borð við Góð- templararegluna sé orðin úrelt. Nútímaþjóðfélag kalli á aðra starfshætti. Þetta er eintóm vit- leysa. Að sjálfsögðu hljóta slík félagasamtök að aðlaga starfsemi sína breyttum aðstæðum en hitt er ljóst, að nú er ekki síður þörf fyrir starf bindindismanna en var fyrir 90 árum. Svo virðist, sem áfengisneyzlan verði stöðugt al- gengari meðal ungs fólks og nái sífellt til yngri og yngri aldurs- flokka. Mörgum hefur orðið að umhugsunarefni ein þeirra úti- skemmtana, sem efnt var til í Reykjavík á 17. júní, vegna al- mennrar ölvunar unglinga, jafn- vel ótrúlega ungra. Og þeim, sem vilja kynna sér áfengisneyzlu unglinga á Islandi í dag, er bent á að gista svo sem eina nótt á tjald- stæði á fjölmennum samkomu- stöðum úti á landi að sumarlagi. Varla mun sá þroskaður maður til, sem ekki ofbýður það, sem fyrir augu ber. Til viðbótar þessari almennu áfengisneyzlu ungs fólks, bætist nú að þvi er virðist óhugnanlega útbreidd notkun eiturlyfja, sem smyglað er til landsins. Það er ægileg tilhugsun, ef verulegur hluti íslenzks æskufólks er að ánetjast notkun eiturlyfja með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Og það er óskaplegt til þess að hugsa, að svo stór hluti æskufólks, sem raun ber vitni um sé tilbúinn til þess að eyðileggja líf sitt með aðild að og þátttöku i stórfelldum smygltilraunum á eiturlyfjum. Þessi viðhorf í áfengismálum og eiturlyfjaneyzlu valda því, að nú á 90 ára afmæli Stórstúku íslands er ástæða til að hvetja til stórefl- ingar á starfsemi hennar og ann- arra þeirra félagasamtaka, sem berjast gegn því böli, sem leiðir af áfengisneyzlu og eiturlyfjanotk- un. Reynslan hefur sýnt, að slik starfsemi frjálsra félagasamtaka er vænleg til árangurs og full ástæða er til að rikisvaldið veiti þann stuðning, sem það má og nauðsynlegutf er til þess að starf þessara félaga verði, sem árang- ursríkast. Þjóð á faraldsfæti Sumarið er sá timi ársins, sem við Islendingar notum aðallega til ferðalaga. Þó er þetta að breytast. Fleiri og fleiri taka sér stutt frí yfir vetrartímann og leita til suð- lægra sólarlanda. 1 raun og veru Gengið niður Kverkjökul. Dyngjujt er ástæða til að ýta undir þá þró- un. Bæði er, að skammdegið leggst þungt á þjóðina og þess vegna er beinlínis heilsusamlegt fyrir fólk að fá tilbreytingu í mesta skammdeginu en hitt er líka staðreynd, að sumarleyfistím- inn verður stöðugt erfiðari og kostnaðarmeiri fyrir atvinnufyr- irtæki landsmanna og það er áreiðanlega atvinnullfinu í hag,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.