Morgunblaðið - 27.06.1976, Síða 25

Morgunblaðið - 27.06.1976, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1976 25 Jóhann Hjálmarsson ALLUR NASH ÞEIR sem fylgst hafa með frétt- um af ólíklegustu uppákomum (happenings) Jörgens Nash ef- ast ef til vill um alvöru hans sem skálds og listamanns. En til þess að kynnast skáldskap Jörg- ens Nash geta menn nú flett viðamikilli bók: Jörgen Nash: HER ER JEG. Samlede digte 1942—75. Illusteret af digteren og Asger Jorn. Utg. Hernovs forlag Kaupmannahöfn 1975. Hér eru öll ljóð skáldsins frá fyrstu bókinni Daggry (1942) — Guldboken Dixi (1975). Síð- arnefnda bókin er á sænsku, enda hefur Jörgen Nash verið búsettur lengi i Svíþjóð ásamt konu sinni danskri, listakon- unni Lis Zwick. Þau búa á gömlu sveitasetri í Suður- Svíþjóð og nefnist það Draka- bygget. Jörgen Nash hefur unun af að segja frá uppákomum sín- um. Sumar þeirra haf a orðið til í samvihnu við kvikmyndaleik stjórann Jens Jórgen Thorsen sem hrellt hefur Dani með hug- myndum síriúm um kynferðislíf Krists. Annað umræðuefni sem er Jörgen Nash mjög kærkomið er bróðir hans, málarinn Asger Jorn, sem nú er látinn. 1 Her er jeg eru margar myndskreyting- ar eftir Jorn. Sjálfur hefur Nash helgað sig myndlist síðari árin og eru fjölmargar myndir eftir hann i bókinni. Draka- bygget hefur orðið menningar- miðstöð þar sem skáld, lista- menn og uppreisnarmenn frá ýmsum löndum hittast. En nú hafa þau hjón, Nash og Zwick, dregið sig að nokkru í hlé til þess að geta unnið að eigin list- sköpun. Sá tími er liðinn að Drakabygget var vettvangur fyrir uppákomur og iögreglan birtist skyndilega um nætur í leit að félögum i Bader- Meinhof hópnum. Þar er nú unnið að listsköpun, kvikfjár- rækt stunduð og húsbóndinn skrifar endurminningar sínar. I þeim verður að likindum margt forvitnilegt, m.a. hefur Nash lofað að segja sannleikann um þann atburð þegar hausinn var sagaður af Hafmeyjunni litlu á Löngulínu í Kaupmannahöfn. Nash er grunaður um að hafa i verið vorsprakki þeirra að- gerða. Með sumum uppákom- um Nash er aftur á móti hægt að hafa samúð eins og til dæmis þegar hann hleypti upp fundi hinnar háalvarlegu Dönsku akademíu ásamt Jens Jörgen Thorsen 1974. Uppákomur eru áhrifamesta leiðin til að koma skoðunum sínum á framfæri, segir Jörgen Nash. Og hann hlær hjartanlega af ringulreið- inni sem þær hafa valdið í dönsku þjóðlífi. Fyrstu ljóðabækur Jörgens Nash eru dæmigerðar fyrir formbyltinguna í danskri ljóð- list. Þessi ljóð bera lífsþorsta vitni. Það er ort af ástríðu um vorið og um ástir. Hámarki nær skáldið með Atom-Elegien (1946), löngu ljóði um kynslóð í skugga stríðsins, ráðvillt fólk sem óttast framtiðina. Leve liv- et (1948) er einkennandi bóka- titill fyrir Jörgen Nash. Þessi bók er óður um lífshamingjuna, en lika áminning eins og Vred- ens sange (1951). 1 Solen (1956) eru margar þýðingar á ljóðum eftir velska skáldið Dyl- an Thomas og í Hanegal (1961) eru þýðingar á ljóðum Frakk- ans Jacques Prévert. Þessi skáld eiga það sameiginlegt með Jörgen Nash að vera söngvarar lífsnautna og hafa auga fyrir táknrænu gildi smá- atvika daglegs lífs. Eftir þessar bækur gerist Jörgen Nash, með fáeinum undantekningum þó, tilrauna- STIKUR maður. Verk hans eru á mörk- um skáldskapar og myndlistar. Hann tjáir sig með klippmynd- um og teikningum og tekst oft að ná einkennilegum áhrifum. Hann verður hugmyndasmiður og verkunum er ætlað að vekja fólk til umhugsunar, fá það til að taka afstöðu. Stundum eru þessi verk pólitisk, mið er tekið af atburðum liðandi stundar. Lagt er til atlögu við pólitiskt vald, deilt á velferðarþjóðfélag- ið sem býður þegnum sínum upp á innantóma gleði og varað við mengun náttúrunnar. Sum þessara verka eru í eðli sínu leikur. Jörgen Nash tileinkar sér gálgahúmor og svifst einsk- is þegar hann iýsir andúð sinni og fyrirlitningu. Hann boðar frelsun mannsins undan hvers kyns oki, frið og frjálsar ástir. Kynferðislegir órar eru áber- andi. Jeg er en ting gjort af kærlighed og kaos— yrkir Jörgen Nash i Salvi Dylvo (1945). En þrátt fyrir alla þá Framhald á bls, 47 ikull og TröIIadyngja í baksýn ef hægt er að dreifa fríum starfs- manna yfir stærri hluta ársins. Með sama hætti og margir leita til sólarlanda að vetrarlagi nú orð- ið, verður líka æ fleirum ljóst, að þótt veðráttan sé erfið að vetri til, getum við samt hagnýtt landið okkar til hollrar útivistar að vetr- arlagi. Nú er skíðaíþróttin í tízku, ef svo má að orði komast og þótt þeim tízkufaraldri fylgi ýmislegt spaugilegt, sem marka má af lita- dýrðinni i skíðabrekkunum er fyllsta ástæða til að ýta undir almenning að iðka vetraríþróttir og þá ekki sízt skíðaferðir. Það stuðlar að heilbrigði þjóðarinnar um leið, og það dregur fólk frá óhollri tómstundaiðju á borð við þá, sem vikið var að hér að fram- an. Síðustu vikur hafa farið fram fróðlegar umræður um ferðamál og ferðavenjur. Guðmundur Sig- valdason skrifaði grein hér í Morgunblaðið, sem mikla athygli vakti og leiddi til nauðsynlegra umræðna um hálendissvæðin og umgengnishætti þar. Sannleikur- inn er sá, að það er í rauninni afar furðulegt að ferðast um öræfi ís- lands. Það er nánast óhætt að fullyrða, að þar eru önnur tungu- mál meira töluð en íslenzká. Al- veg sérstaklega virðist þýzka út- breidd á þessum slóðum. Það er ekkert óeðlilegt, að mönnum verði þetta ihugunarefni. Það þarf að koma í veg fyrir, að „menningin“ haldi innreið sína í íslenzku öræfin. Ferðafélag ís- lands og ferðafélög í einstökum landshlutum hafa unnið ómetan- legt starf við byggingu sæluhúsa víðsvegar um öræfin. En þar á líka að láta staðar numið. Við verðum að gæta þess að koma ekki upp hvers kyns „þjónustu- starfsemi". við ferðamenn á há- lendinu. Þeir, sem þar kjósa að ferðast hljóta að verða án þeirrar þjónustu. Öræfin eru heillandi hluti af landi okkar. Þau láta eng- an ósnortinn, sem þeim kynnist. En við skulum verja þau fyrir áhrifum nútíma „menningar" og öllu því, sem henni fylgir. Við getum ekki lokað þeim eða öðrum hjutum landsins, fyrir útlending- um. Við viljum fá að ferðast um önnur lönd að vild og hljótum þá að veita þegnum annarra þjóða sama rétt í okkar landi. En þær umræður, sem Guðmundur Sig- valdason vakti verða áreiðanlega til gagns. Þær stuðla að betri um- gengnisháttum þeirra, sem um ör- æfin ferðast og hafa þegar orðið hvatning til þess að reynt verði að vernda og hlúa að ýmsum gróður- vinjum á hálendinu. Bifreiðin hefur rutt sér til rúms á síðustu áratugum hér á landi og kannski er ekki við öðru að búast en að sú nýjung hafi verið ofnot- uð um skeið. A.m.k. er ljóst, að um tíma hafa ferðavenjur íslend- inga i eigin landi mótast af þvi að þeysa um landið eftir rykugum moldarvegum á milli áningar- staða. En nú er þetta að breytast. Hesturinn er aftur að verða þýðingarmikill þáttur í þjóðlífi okkar. Menn sjá landið með öðr- um hætti er þeir ferðastá hestum, heldur en þegar ferðast er i bíl. Þess vegnaerfýilstaástæðatil að ýta undir hestamennsku. Hún gerir hvoru tveggja i senn að veita tækifæri til að sjá landið í nýju Ijósi og njóta hollrar útivist- ar og um leið gerir hún borgar- búanum kleift að komast i sam- band við náttúruna og umgangast dýr, en allir, sem til þekkja vita hver lífsfylling er í því fólgin. Það er svo líka sérstakt fagnaðarefni, að Islendingar eru byrjaðir að ganga á ný. Fyrr á tímum ferðuðust menn um landið ýmist á hestum eða fótgangandi. Bíllinn — flugvélin — ýttu þess- um ferðamáta til hliðar um skeið. En með sama hætti og hesturinn er að koma aftur eru menn teknir að ganga á ný. Gönguferðir, hvort sem er í nágrenni þéttbýlis, eða um fjöll og firnindi, gera okkur kleift að kynnast landinu okkar betur en ella, um leið og þær stuðla að aukinni heilbrigði þjóðarinnar — og hamla gegn ýmiskonar sjúkdómum, sem sýnast fylgja velferðarþjóðfélag- inu og streitu þess. Eftirhreytur listahátíðar Listahátið er afstaðin — að mestu. Hún var kærkomin til- breyting að loknum erfiðum vetri, er þjóðin hafði mánuðum saman verið heltekin af þorska- striðinu við Breta, svo mjög að ekkert annað komst að. Þjóðin hafði þörf fyrir andlega næringu að lokinni þeirri orrahríð — og fékk hana. Þótt Vladimir Ashkenazy kæmi ekki fram á þessari listahátíð ber ekki sízt að þakka honum að listahátiðir hafa komizt á fót og gefizt svo vel, sem raun ber vitni. Ashkenazy er einn þeirra manna, sem hafa stækkað Island, hann hefur veitt hingað erlendum menningar- straumum, því bezta úr heimslist- inni,sem ella hefði farið hjá garði. Helgi Tómasson sýnir þjóð sinni ræktarsemi, sem ber að meta. Hann er nú einn fremsti listdansari heims og raunar sér- stætt, að slíkur listamaður skuli spretta úr íslenzkum jarðvegi, þar sem listdans hefur i raun ekki verið til. En komur Helga Tómas- sonar hingað til lands hafa örvað áhuga almennings á listdansi og þar með stuðlað að starfsemi ís- lenzka dansflokksins, sem er nýgræðingur i okkar menningar- lífi sem við eigum að hlúa að eins og kostur er. Annar íslenzkur listamaður, sem getið hefur sér orð i hin- um stóra heimi er listmálar- inn Erró. Hann hefur svo lengi dvalið með erlendum þjóð- um að hann og list hans eru tiltölulega lítt kunn hér. Síðustu sýningar Errós hér voru haldnar fyrir tæpum tveimur áratugum og flestar þær myndir( sem til eru eftir hann hér á landi eru frá þeim tima. Það er ekki vanza- laust, að Islendingar þekki svo lítið til þess íslenzks list- málara, sem nú er þekktastur um heimsbyggðina. Á siðustu misser- um sjást þess merki, að list Errós er að koma til Islands á ný. Mynd- ir eftir hann hafa verið á sýning- um hér, nú síðast á Kjarvals- stöðum á listahátið. Við höfum ekki sýnt þessum merka lista- manni þá ræktarsemi, sem skyldi, og hljótum að bæta úr því. Með því auðgum við íslenzka menningu. Þorskastrið er af- staðið. Listahátíð er lokið. Sumarið fer i hönd. Þjóðin þarf að beina huga sinum i aðrar áttir og takast síðan endurnærð á við hin þjóðfélagslegu vandamál, þegar hausta tekur. Pólitiskar deilur hafa tröllriðið þjóðfélagi okkar undanfarna mánuði og raunar misseri. Við skulum ekki að sinni vekja upp óþarfar deilur um ný málefni — en nota sumarið til uppbyggilegri verkefna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.