Morgunblaðið - 27.06.1976, Side 31

Morgunblaðið - 27.06.1976, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNÍ 1976 31 Stórstúkumenn taka á áfengisvandamálinu Á þingi Stórstúku tslands, sem nú stendur yfir f Templarahöllinni, hafa mörg mál verið til umræðu, en flest fjalla þau um áfengis- vandamálið f landinu og áfengis- mál almennt. Hér fara á eftir nokkur atriði sem þingfulltrúar hafa haft til umræðu: Nýtt afgreiðslu- fyrirkomulag áfengis. Áfengislaganefnd Stór- stúkunnar skorar á Alþingi í til- lögu sinni að samþykkja tillögu nefndar sem skipuð var til að gera úttekt á stöðu áfengismála, en nefndin lagði til að sérstök skírteini þurfi til áfengiskaupa. Stórstúkuþing leggur áherzlu á að samþykkt verði að öll áfengis- kaup skuli skráð á nafn. Þá telur þingið áfengiskaupaskírteini ekki heppilega lausn, heldur útfilli viðskiptavinir sjálfir afgreiðslu- seðil og sýni nafnskírteini. Aukning á ölvun við akstur. Stórstúkuþing ræðir nú i dag um viðurlög við ölvun við akstur en í tillögu þarað lútandi frá áfengislaganefnd segir að viður- lög við ölvun við akstur séú ekki í samræmi við það glæpsamlega at- hæfi, sem slíkur verknaður er. Beinir þingið því til stjórnvalda að viðurlög verði hert verulega. Er á það bent að með auknu eftir- liti síðustu mánuði í þessum málum hafi komið í ljós að mjög mikil aukning er á brotum i þessu sambandi. „Vafasamt fordæmi Þjóðleikhússins í vínveit- ingum“ Þá hefur m.a. verið rætt um það að áfengislögum sé ekki fram- fy lgt i ýmsum greinum sem skyldi. Nærtækasta dæmið sem bent er á eru vínveitingar í Þjóð- leikhúsinu, en þar er á almennum sýningum opinn bar, en börn og unglingar eru oft í meirihluta á þessum sömu sýningum. Telja Stórstúkumenn að Þjóðleikhúsið sýiii þarna vafasamt fordæmi um leið og það gangi í berhögg við áfengislög. Einnig bendir Stór- stúkuþing á það i fréttatil- kynningu að sama sé að segja um vínveitingar félagasamtaka í ágóðaskyni. Butler’s Tray borð komin aftur Kaj Pind Grettisgötu 46. Sími 22584 Vínveitingaeftirlitið: 2 í stað 20? Áfengislaganefnd Stórstúku- þings lagði fram tillögu á þingi góðtemplara í gær þar sem þvi er beint til dómsmálaráðherra að eftirlitsmönnum með vínveitinga- húsum verði fjölgað í réttu hlut- falli við þá fjölgun vínveitinga- húsa sem orðið hefur frá því áfengislög voru sett 1954. Síðan þá hafa eftirlistmenn í Reykjavík verið tveir, en miðað við fjölgun þessara staða ættu þeir að vera 15—20. Stöðunum hefur stórlega fjölgað, en eftirlitið hefur verið óbreytt i 22 ár. Vilja stöðva bruggtækjasölu. Á þinginu var á föstudag rætt um áskorun til viðskiptaráðherra um að fella niður heimild til inn- flutnings á ölgerðarefni og brugg- tækjum sem beinlínis eru fram- leidd með gerð sterks öls i huga. AIGLYSINGA- SÍMINN ER: NORÐUR-NOREGUR - LAPPLAND - SVÍÞJÓÐ 0G FINNLAND 5.—11. júlí. Verð frá kr. 34.500.- Flogið til BODÖ í Noröur-Noregi. Ekið um Tromsö, Finnmörk, byggðir Lappa, Noröur-Svíþjóð og Finnland. Flogið heim frá Bodö. . Islenzkur fararstjóri. •1\v P' u'llfil!'!" ii/n »1^7/////,w ýf/ ttJUIIIi m lí FERÐASKRIFSTOFAN SUHHfl. UEKJARGÖTU 2. SÍIHI116400 -12070 Ný Alafossbúð f lytur í gamla Bryggjuhúsið (VESTURGATA 2) Við höfum flutt verslun okkar úr Þingholtsstræti í gamla Bryggjuhúsið (Vesturgötu 2) þar sem við getum boðið viðskiptavinum okkar uppá enn betri þjónustu en fyrr. Atafoss

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.