Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNÍ 1976 unni þannig að Hays hafi boðið sér út að borða, síðan hafi þau farið heim í íbúð hennar, átt nótt- ina saman, og hann svo boðið henni vinnu með orðunum: „Komdu i vinnuna á morgun, hafði þig hæga og vertu til reiðu fyrir mig, og ég skal greiða þér 11 þúsund dollara árslaun. Ef þú get- ur eitthvað unnið, hækka ég laun- in í 12 þúsund." Þetta kveðst Liz hafa gert, og látið að vilja hans að jafnaöi tvisvar i viku eftir þetta. Hays var kvæntur, en í janúar s.I. skildu þau hjónin eftir 38 ára hjónaband. 1 apríl kvæntist Hays á ný, en Liz var ekki boðið í brúð kaupið, og þá lét hún verða af því að hefja ritsmíð i samvinnu við Yvonne Dunleavy rithöfund og starfsstúlku hjá Dell útgáfufélag- inu. Árangurinn varð 172 blað- síðna bók, sem nefnist „The Washington Fringe Benefit", og lauslega þýtt mætti kalla hlunn- indi í Washington. Ekki mun bók- in ýkja vel skrifuö, en þar koma við sögu margir þingmenn undir dulnefnum, og má búast við að hún seljist vel i Washington, því höfuðborgarbúa langar sjálfsagt til að reyna að ráða í það hver sé hver í bókinni. Upplýsingar Liz leiddu til þess meðal annars að Wayne Hays neyddist til að láta af formennsku i stjórnunarnefnd Fulltrúadeild- arinnar, sem undir forustu hans hefur orðið ein af áhrifameiri nefndum þingsins. Hvort svo það var viljandi eða óviljandi, þá var Hays lagður inn í sjúkrahús 10. júní eftir að hafa tekið alltof stór- an skammt af svefnlyfi. Lá hann átta daga í sjúkrahúsinu áður en honum var sleppt. Þá er komið að Colleen Gardn- er, sem hlýtur að vera í sérflokki. Hún skýrir svo frá að hún hafi þegiö 26.000 dollara árslaun hjá ríkinu sem starfsmaður í skrif- stofu John Youngs þingmanns, þótt hún hafi aðeins unnið hálfan Colleen Gardner ásamt lögfræðingi sfnum í Washington. ríkislaunum ÞAÐ upphófst allt seint í maí þegar Elizabeth nokkur Ray, fyrrum skrifstofu- stúlka hjá Wayne Hays þingmanni í Full- trúadeild Bandaríkjaþings, skýrði fjölmiðl- um frá því að hún hefði aðallega þegið laun sín fyrir að vera húsbónda sínum undirgefin, en ekki fyrir störf í þágu þingsins. Ekki leið á löngu þar til önnur skrifstofustúlka, frú Colleen Gardner kom fram með svipaða sögu um samband sitt við þingmanninn John Young frá Texas, og fleiri þingmenn flæktust í málið. Ekki bætti það svo úr skák þegar tveir þingmenn voru sakaðir um að falast eftir viðskiptum við vændiskonur á götum úti, annar í Salt Lake City, hinn í Washington. Elizabeth Ray. daginu á stundum. Utan skrifstof- unnar, og jafnvel stundum í einkaskrifstofu Youngs, segist Colleen jafnan hafa átt að vera til taks, þegar löngunin greip þing- manninn, og einnig kveðst hún hafa þjónað ýmsum vinum hans. 1 viðtali við blaðið New York Times segir Colleen meðal annars: „Það hefði ekki verið svo slæmt að sænga með honum, ef hann hefði leyft mér að starfa eitthvað. En þaö vildi hann ekki. Hann vildi að ég va'ri til taks hvena'r sem hon- um þóknaðist." Hvorki Hays né Young hafa neitað því að hafa átt mök við þessar starfsstúlkur sínar. Það var Colleen Gardner, sem blandaði fleiri þingmönnum inn í frásögn Liz Ray. Skýrði Colleen svo frá að 10. ágúst 1972 hafi hún óvart orðið vitni að því er Liz Ray átti mök við öldungadeildarþing- manninn Mike Gravel um borð i skemmtibáti Kenneths Grays þingmanns, þáverandi húsbónda Liz. Við rannsókn þess máls sagði Liz að Gray hefði skipað sér að láta vel að Gravel, en um þessar mundir var Gray að reyna að koma einu af áhugamálum sinum gegnum þingið, og er gefið í skyn að Liz hafi verið notuð til að hafa áhrif á Gravel í málinu. Colleen hefur skýrt svo frá að hún og Liz séu ekki þær einu, sem ráðnar séu eða hafi verið ráðnar til starfa hjá þingmönnum i ann- arlegum tilgangi. Hún segir að meira að segja karlmenn hafi orð- ið að sætta sig við hómósexual sambönd til að halda vinnunni. Þá kveðst hún eiga segulbands- spdlur með yfirlýsingum annarra starfskvenna þingsins um svipuð sambönd þeirra við húsbændur sína og vini þeirra. Frásagnir þessara tveggja kvenna hafa leitt til þess að allt, sem varðar kynlíf þingmanna, þykir nú tiðindum sæta. Þessvegna er það að tveir Wayne Hays þingmaður Eins og gefur að skilja hafa öll þessi mál verið helzta um- ræðuefni í samkvæmum Wash- ingtonborgar undanfarinn mán- uð. Sagt er að fleiri þingmenn séu með óhreinan skjöld, og margir kviðnir frekari uppljóstrunum. Elizabeth Ray er 33 ára, og kom til Washington fyrir um 12 árum til að hefja störf sem afgreiðslu- stúlka I veitingahúsi. Arið 1972 fékk hún atvinnu hjá Kenneth Gray þáverandi þingmanni, aðal- lega við að taka á móti gestum, sem komu í skrifstofu þingmanns- ins. Sjálf segir hún að fleira hafi falizt í starfinu, og það utan þingsins, meðal annars um borð í skemmtibáti Grays. Gray segir að Elizabeth hafi einnig verið vélrit- ari, en hún segist aldrei hafa get- að lært á ritvél. Þegar Gray hvarf af þingi fyrir tveimur og hálfu ári, réðst Eliza- beth, eða Liz eins og hún cr köll- uð, til Wavne Hays, sem um margra ára skeið hefur verið einn áhrifamesti þingmaður Fulltrúa- deildarinnar. Liz lýsír ráðning- Með hjákonur á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.