Morgunblaðið - 27.06.1976, Side 33

Morgunblaðið - 27.06.1976, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNI 1976 33 'vr., T!^ÆT^ jt- John Young þingmaður. þingmenn til viðbótar hafa komizt í blöðin, í þetta skipti fyrir sam- skipti við lögreglukonur, dulbún- ar sem vændiskonur. Þingmenn- irnir eru þeir Joe Waggonner frá Louisianaog Allan Howe frá Utah. Báðir eru sagðir hafa falazt eftir blíðu þessara dulbúnu lögreglu- kvenna gegn peningagreiðslu, en það er refsivert framferði i Bandarikjunum. Báðir hafa neit- að, og Howe heldur því fram að hann hafi verið tældur í gildru lögreglunnar, en alls ekki reynt að kupa sér blíðu neinnar konu. Eins og gefur áð skilja eru þing- menn mjög varir um sig þessa dagana í Washington. Sem dæmi nefnir vikuritið Time að fyrir nokkru hafi Liz Ray komið til baka til Washington eftir ferð til Englands, þar sem hún var að auglýsa bókina sína. Þegar Liz kom inn í veitingahús í höfuð- borginni, ruku um 20 menn upp úr sætum sínum og læddust út um bakdyrnar af ótta við að hún kynni að bera kennsl á þá. (Heimildir: Times Newsweek, Daily American) llú mú sleppa honum lausum út í frumskúg umferúarinnar. Nú sleppum við Allegro lausum - kraftmiklu "dýri” af þeirri tegund, sem fer lipurlega um frumskóg umferðarirnar. Með þjálu framhjóladrifi smýgur hann í beygjurnar og hefur gott tak á veginum, jafn- vel á hálum vetrarbrautum. Undir vélarhlífinni leynist kraftmikil þverliggjandi vél. Auk þess er fimm stiga gírkassi (1500-gerðin) og fádæma góð vökvafjöðrun, Hydragas, sem tryggir að "dýrið” þitt er ávallt tryggilega með öll hjólin á veginum. Sérstaldega styrktir diskahemlar á framhjól- um veita þér einnig aukið öryggi og tryggingu; þú snarhemlað ef nauðsyn krefur. Og í þessum nýja Combi er farangursrými, sem gæti rúmað 1320 lítra af vatni. En það sem kannski vekur hvað mesta athygli við Allegro er hve neyzlugrannt ”dýr” hann er. Hann eyðir litlu benzini, hóf- legt verð er á varahlutum. Það er ótrúlega ódýrt að eignast þetta "hlaupadýr”. ® P. STEFANSSON HF. ^ HVERFISGÖTU103 REYKJAVÍK SÍMI 26911 PÓSTHOLF 5092

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.