Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNI 1976
39
Wilma í Wjómleika- og
laxveiðitúr um landið
SÖNGKONAN Wilma Reading,
sem er Islendingum að góðu
kunn, er nú væntanleg til
landsins f f jórða sinn. Mun hún
halda hijómleika vfða um land
á milli þess sem hún hyggst
bregða sér f lax. Með Wilmu f
hljómleikaförinni verður
hljómsveitin Galdrakarlar og
útsetjari Wilmu, annaðhvort
John Hawkins sem áður hefur
komið hingað með henni eða S.
Hill, sem einnig hefur annast
hljómsveitarstjórn fyrir hana
um nokkurt skeið.
Wilma kemur hingað um mán
aðamótin næstu og mun hún
fyrst koma fram á hátíðar-
hljómleikum á Keflavíkurflug-
velii sem haldnir verða í tilefni
200 ára afmælis Bandaríkjanna
4. júlí. Þá um kvöldið mun hún
svo koma fram í Glæsibæ, en
Halldór Júlíusson veitingamað-
ur þar hefur haft milligöngu
um komu hennar hingað nú
eins og áður. Mánudagskvöldið
5. júlí munu Wilma og Galdra-
karlar skemmta á hótelinu á
Akranesi, þriðjudagskvöldið í
Félagsheimilinu í Stykkis-
hólmi, miðvikudagskvöld i
Hnifsdal og á fimmtudag verða
tvennir hljómleikar i Sjálfstæð-
ishúsinu á Akureyri. Á laugar-
dagskvöldið verða svo hljóm-
WILMA READING
leikar í Árnesi og lýkur hljóm-
leikaförinni i Glæsibæ kvöldið
eftir, sunnudaginn 11. júlí.
Hljómsveitin Galdrakarlar
hefur það fram yfir flestar ísl.
hljómsveitir af léttara taginu
að meðlimir hennar lesa nótur
og gerir það samstarf við hljóm-
sveitarstjóra Wilmu auðveld-
ara. Á hljómleikunum munu
Galdrakarlar leika fyrst eigið
efni og siðan nokkur lög með
útsetjara Wilmu. Eftir hlé mun
Wilma svo syngja i u.þ.b. 45
mín.
Eins og áður segir hefur
Wilma í hyggju að bregða sér í
laxveiðar en bakteríuna fékk
hún er hún renndi fyrir lax i
Elliðaánum í fyrstu ferð sinni
hingað haustið 1972.
94% sætanýting hjá
Leikfélaginu í vetur
LEIKÁRI lauk í Iðnó hjá Leik-
félagi Reykjavikur um síðustu
helgi með „Sögunni af dátanum“.
Sýningar félagsins urðu alls 248 í
vetur og áhorfendur að þeim 63
þúsund. — Átta verkefni voru
sýnd á vegum félagsins i vetur,
þar af eitt i Austurbæjarbiói. Auk
þess tók leikhúsið á móti þremur
gestaleikjum Sætanýting á sýn-
íngunum varð mjög góð í vetur
eða um 94%.
Hópur leikara frá Leikfélaginu
er nú á leikferðalagi um landið og
sýnir „Saumastofuna" eftir Kjart-
an Ragnarsson í öllum helztu sam-
komuhúsum á Vestur- og Norður-
landi. Auk þess mun Leikfélagið
fara í leikför til Færeyja i end-
aðan ágúst og sýna þar „Skjald-
hamra" eftir Jónas Árnason fimm
sinnum i boði Sjónleikarafélags-
ins í Þórshöfn.
Æfingar hófust i vor á tveimur
næstu verkefnum Leikfélagsins,
gamanleiknum „Stórlöxum" eftir
ungverska skáldið Ferenc Molnár
og nýju verki eftir Svövu Jakobs-
dóttur. Þessi verk verða bæði
frumsýnd fljótlega í haust.
Leikfélagið á 80 ára afmæli
næsta vetur. Leikhúsið mun af
þvi tiiefni helga krafta sina
íslenzkum verkum og stefnir að
þvi að frumsýna þrjú eða fjögur
ný islenzk verk á næsta leikári.
Leikfélagið hefur þegar fengið
tvo höfunda til þess að skrifa verk
af þessu tilefni, auk þess sem
þegar er byrjað að æfa. Þessir
höfundar eru Jökull Jakobsson og
Birgir Sigurðsson, en þeir unnu
báðir til verðlauna í leikritasam-
keppni, sem haldin var vegna 75
ára afmælis félagsins, en Leik-
félagið áformar að ráða þriðja
höfundinn til starfa næsta vetur
til þess að semja verk í tilefni
þessara tímamóta í sögu leikhúss-
ins.
Leikflokkurinn frá Iðnó sem fer með Saumastofuna um Vestur- og
Norðurland
I frumskógi umferðarinnur ereinn,
sem hetur sig litlu skiptn, þbtt hnnn furi um mnlnruegi.
Yfir stokka og steina fer sá hinn trausti Allegro. Hann er lipurt og sterkt ”dýr” af þeirri tegund, sem
spjarar sig við ótrúlega erfiðar aðstæður, án þess að missa "fótfestu”.
"Hydragas”, er eindæma góð vökvafjöðrun, sem tryggir að hjólbarðarnir hafa stöðugt og öruggt tak
á veginum. Það er þess vegna ástæðulaust að hristast og skakast á holóttum malarvegum landsins.
Um Allegro má segja hetta: Hann er með framhjóiadrif, sem tryggir liprar beygjur um leið og hjólbarð-
arnir hafa öruggt tak á véginum, jafnvel á erfiðum vetrarbrautum. Undir vélarhlífinni
malar þverliggjandi vél með hitastýrðri kæliviftu (hún er sterk, en drynur ekki). Rmm a
stiga gírkassi (1500-gerðin) eykur sparneytni og ánaegju viö akstur. *
"Tannstangar” stýring tryggir öruggar og liprar hreyfingar. Sérstak-
lega styrktir diskahemlar á framhjólum auðvelda snögga hemlun,
ef nauðsyn krefur.
bað eina, sem sparað hefur verið í Allegro, er
reksturskostnaðurinn. Varahlutir fást fyrir hóflegt
verð; sama má segja um viðgerðaþjónustu og
Allegro lætur sér nægja tæplega
8 litra á hverja 100 kílómetra.
Fáir gætu trúað að óreyndu,
hve þetta hlaupadýr er ódýrt.
^■nusnn
HIIECRO
® P. STEFANSSON HF. EE
'•mES HVERFISGÖTU 103 REYKJAVÍK SÍMI 26911 PÓSTHOLF 5092