Morgunblaðið - 27.06.1976, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNl 1976
47
Inoki lá allan tímann
í gólfinu, Ali formælti
og dansaði húla húla
Tókió 26. júni AP.
MUHAMMED Ali tókst med
naumindum að tryggja sér
jafntefli f bardaga sfnum við
japanska f jölbragðaglfmu-
manninn Antonio Inoki eftir 15
lotu viðureign. Fréttaritarar
segja að viðureignin hafi verið
hundleiðinleg og endaði með
þvf að 14000 áhorfendur köst-
uðu alls kyns drasli inn f hring-
inn meðan beðið var eftir úr-
skurði dómara. AIi kom aðeins
2 höggum á mótherja sinn allan
tfmann, en Inoki lá á bakinu á
gólfinu nær allar loturnar og
sparkaði f átt til AIis. Var
viðureignin hin einkennileg-
— Húsavík — Síbrota-
pilturinn
asta bland af hnefaleikum og
fjölbragðaglfmu.
14000 áhorfendur greiddu frá
3000 kr. upp í 185 þús. kr. f
aðgangseyri og héldu þeir flest-
ir að Inoki hefði sigrað því að
hann hefði verið f sókn á sinn
sérkennilega hátt. Ali hélt því
hins vegar fram að hann hefði
verið f sókn, en dómarinn sagði
að Ali hefði verið góður f vörn.
AIi sagði að hann hefði ómögu-
lega getað verið að berja liggj-
andi mann. Fréttamenn segja
að eina sóknin, sem Ali hafi
verið f, hafi verið munnleg, þvf
að hann jós formælingum án
afláts yfir andstæðing sinn,
sem minnti helzt á krabba þar
sem hann lá á gólfinu og sprikl-
aði með öllum öngum. AIi gekk
svo langt að reka út úr sér
tunguna og brá stundum á húla
húla dans, en allt kom fyrir
ekki, honum tókst ekki að fá
andstæðing sinn nema tvisvar
inn fyrir höggradfus sinn.
Bandarfski dómarinn sagði
jafntefli, japanski hnefaleika-
dómarinn sagði að Inoki hefði
sigrað og Bandarfski fjöl-
bragðaglfmudómarinn sagði að
AIi hefði unnið. Ut úr þessari
blöndu kom svo jafntefli. Ali
sigraði f peningalotunni, hann
fékk 6,1 milljón dollara f sinn
hlut en Inoki aðeins 4 milljón-
ir.
Framhald af bls. 48
aukningu á vatnskaupum taldi
hann samninginn hagkvæmann
fyrir Húsavík. Hann kvað við-
skiptin koma verst út ef vatns-
notkunin væri lítil.
Bæjarstjórinn sagðist telja að
kyndingarkostnaður hjá not-
endum Hitaveitu Húsavíkur væri
um 40% af kyndingarkostnaði
þeirra, sem kyntu hús sín með
olíu — þrátt fyrir þessar
hækkanir. Þó kvað hann ekki gott
að bera þetta saman, þar sem
salan færi fram í mínútulítrum.
Kvað hann Hitaveitu fteykjavíkur
rétt komna með slíkt verð einnig
og væri verðið mjög sambærilegt
hjá þessum tveimur fyrirtækjum
eða 1,155 krónur fyrir míhútu-
lítrann á mánuði. Hann kvað það
þó ef til vill ekki segja alla
söguna, því að hann kvaðst ekki
viss um að samræmi væri i
minúutlítragjaldi og tonnagjaldi í
Reykjavík. Hann sagði að vægi
heildsöluverðs í smásöluverðinu
hefði sveiflazt á bilinu frá 5 til
6% og upp í það að vera rúmlega
10%. Hefur það því hækkað um
meir en helming frá því er það
var hagkvæmast fyrir Hitaveitu
Húsavíkur. Þannig hefur olíu-
verðið haft áhrif á verðið.
— Eanes sigur
Framhald af bls. 1
hins róttæka vinstrimanns Otelo
Carvalhos májors lauk í Lissabon
með 30 þúsund manna útifundi og
kom stjórnmálafréttariturum
mjög á óvart hve góð fundarsókn-
in var.
Brldge
Frá Ásunum:
Urslit'1 á sfðasta keppnis-
kvöldi okkar urðu þau að hjón-
in Ester Jakobsdóttir og Þor-
finnur Karlsson endurtóku
fyrri leik sinn og sigruðu á ný,
að vfsu með minni mun nú.
Röð efstu para varð þessi:
1. Ester — Þorfinnur 182 stig.
2. Ármann J. Lárusson — Vig-
fús Pálsson 180 stig.
3. Júlíus Snorrason — Finnur
Magnússon 173 stig.
4. Guðlaugur Karlsson — Sig-
urður Steingrímsson 162 stig.
5. Guðmundur Þórðarson —
Magnús Sverrisson 160 stig.
6. Hrólfur Hjaltason — Sigurð-
ur Sigurjónsson 158 stig.
(Meðalskor var 156 stig.
Þátttaka var allgóð, 14 pör.
Næst verður spilað mánudag-
inn kemur, og eru menn hvattir
til að mæta og vera með. Náms-
menn fá sem fyrr helmingsaf-
slátt.
Framhald af bls. 48
þá i ljós, að pilturinn var með
nokkrar sparisjóðsbækur á sér,
allar stolnar, og ætlaði hann
einmitt að fara að taka út úr einni
þeirra. Auk þess var hann með
stolið ávísanahefti á sér og hafði
notað nokkur blöð. Var hann tek-
inn á staðnum og síðan úrskurðað-
ur i enn eitt gæzluvarðhaldið,
eins og að framan sagði.
— STIKUR
Framhald af bls. 25
óreiðu sem hann gerir sér mat
úr getur hann enn ort ljóð sem
að listrænni reisn minna á
Atom-Elegien og bestu ljóð
hans frá fimmta og sjötta ára-
tugnum. Billedmagernes konge
er död. Broderdigt til Asger
Jorn er merkilegt harmljóð um
látinn bróður. Það lýsir ævi
Asger Jorn frá fæðingu til
dauða. Sameiginlegar minning-
ar þeirra bræðra eru rifjaðar
upp. Ljóðið er í raunsæisstil,
opið, mælskt. I þvi er mikill
sannleikur um líf listamanns,
gleði og sársauka. Það endar á
þessa leið:
Det er længe siden vi drak kaffe
i Heerups have.
Livet er underligt, særskilt döden.
Hvedekornet má i jorden og dö for at leve.
Dödens farve har altid været pá din palet.
Nu fylder den hele billedet.
Efter den förste död er der ingen anden.
Döden er underlig, særskilt livet.
De kalte dig havörn.
De sagde du var frisk som en havörn.
Annað ljóð, ort á sænsku, er
dæmigert fyrir ljóðstíl sem
Jörgen Nash grípur stundum
til. Þetta ljóð nefnist Johan
Johansson, en vanlig jobbare
og fjallar um vinnumann sem
er trúr uppruna sínum og deyr
á eldhússbekknum þar sem
hann var búinn til:
Á honum var hann búinn til.
Á honum fæddist hann.
Á honm hefur hann sofið.
Á honum hefur hann setið
og étið skammtinn sinn.
Á honum hefur hann
drukkið brennivfnið sitt.
1 þessu ljóði kallar Jörgen
Nash Sviþjóð „Fátækrasvíþjóð
velferðinnar". Bókin sem ljóðið
birtist í Guldboken Dixi, hefur
undirtitilinn „osvenska dikt-
er“. í Sviþjóð eru um 800.000
innflytjendur og Jörgen Nash
telur sig málsvara þeirra. Hon-
um er ljóst að kynþáttafordóm-
ar eru ekki óþekkt fyrirbrigði
meðal Svía frekar en annarra
þjóða. Jafnvel nágrannar eru
litnir óhýru auga á sænskum
vinnumarkaði. Hinn alþjóðlegi
listamaður og skáld Jörgen
Nash birtir kjörorð sitt með eft-
irfarandi orðum á sænsku:
Vi törstar efter humor och
poesi.
Jörgen Nash er trúr þeirri
frjóu hefð sem dadaistarnir og
siðar súrealistarnir eiga heiður-
inn að. Þess vegna bíða margir
þess með eftirvæntingu sem
kemur frá Drakabygget.
— Þorskstofninn
Framhald af bls. 1
inu út af landamærum Noregs
og Sovétríkjanna. Togararnir
eru 1000 til 7000 tonn og frá
7—8 löndum. Yfirmaður fisk-
veiðieftirlitsins Reidar Stolpe-
stad, segir ógerlegt að hafa eft-
irlit með veiðum erlendu togar-
anna, en ljóst sé að allar kvóta-
reglur séu þverbrotnar ef tog-
ararnir veiði eftir getu.
Knut Vartdal fiskimálastjóri
segir að Norðmenn vilji fá að
hafa eftirlit með allri sókninni í
norska þorskinn og ástandið
mun lagast smám saman eftir
útfærslu landhelginnár í 200
mílur. Veiðitakmarkanir verði
einnig ræddar á fundi Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar í Lissabon í júlí.
Jafnframt segir Hallstein
Rasmussen aðstoðarfiskimála-
stjóri að veiðitakmarkanir inn-
an 200 mílna Bandaríkjanna og
Kanada muni hafa víðtæk áhrif
á fiskveiðar Norðmanna. Á
fundi Norðvestur-
Atlantshafsfiskveiðinefndar-
innar í Montreal var þorskkvóti
Norðmanna minnkaður úr
10.000 lestum á þessu ári í 3.200
á næsta ári. Við Vestur-
Grænland mega Norðmenn
veiða 2.500 lestir af þorski á
þessu ári, en nýr þorskkvóti
verður ákveðinn á fundi nefnd-
arinnar í desember, svo og
rækjukvóti.
Rasmussen segir að ástandið
sé alvarlegt þar sem Norðmenn
geti ekki veitt á öðrum miðum.
Loðnukvótinn hefur verið
minnkaður úr 60.000 lestum í
56.000 á syðri miðunum. Aðeins
Kanadamenn og Rússar hafa
veitt loðnu á nyrðri miðunum
og nú fá aðrar þjóðir að veiða
allt að 10.000 lestir þar, en ef
eitthvert land notar ekki kvóta
sinn verður honum skipt milli
annarra landa 1978, sagði Ras-
mussen.
— sus
Framhald af bls. 2
öryggi landsins ekki lengur nauð-
synleg."
Jafnframt er ástæða til að vekja
athygli á svofelldri ályktun, sem
samþykkt var á flokksráðsfundi
Sjálfstæðisflokksins á sl. ári en
flokksráð fer með æðsta vald i
málefnum flokksins milli lands-
funda.:
„Flokksráð sjálfstæðismanna
leggur áherzlu á nauðsyn þess að
tryggja öryggi landsins með aðild
að varnarsamtökum vestrænna
þjóða.
Telur flokksráðið að nýta beri
Atlantshafsbandalagið sem vett-
vang til þess að skýra málstað
íslands í landhelgismálinu og
koma í veg fyrir áframhaldandi
ólögmæta valdbeitingu Breta í
íslenzkri fiskveiðilögsögu.
Flokksráðið ítrekar þá stefnu
Sjálfstæðisflokksins, að ekki
komi til greina að æskja endur-
gjalds fyrir varnaraðstöðu þá,
sem látin er í té í landinu.
Afstaðan til varnarsamstarfsins
og varnarstöðvanna hlýtur að
mótast af öryggishagsmunum
landsins á hverjum tima.“
— Pólska
Framhald af bls. 1
gert ráð fyrir því að bændur
fengju hærra verð fyrir afurðir
sínar og bónusgreiðslur fyrir
aukna framleiðslu. Ymsir telja að
þar sem frá þessu hefur verið
fallið muni bændur seinka
afgreiðslu afurða sinna. Þróunin í
landinu hefur verið sú að bilið
milli greiðslugetu hins opinbera
og einkaaðila hefur sífellt farið
vaxandi og því er mjög mikill
hluti matvæla I landinu seldur á
svörtum markaði. Þá á það einnig
sinn þátt I málinu, að kornupp-
skera í landinu var mjög léleg sl.
2 ár, en nú er hins vegar útlit
fyrir mjög göða uppskeru.
KJORDÆMAFUNDIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
Geir Hallgrímsson, forsætisrádherra
flytur ræöu og svarar
fyrirspurnum fundargesta
Takið þátt í fundum
forsaetisráðherra