Morgunblaðið - 14.08.1976, Page 3

Morgunblaðið - 14.08.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. ÁGUST 1976 3 Fjallvegir teppast sökum vatnavaxta Ekkert ákveðið með flugvélakaup Flugleiða — ÞAÐ hefur hlaupið mik- ill vöxtur í allar ár og læki á Suður- og Suðvesturlandi og af þeim sökum eru nokkrir fjallvegir ófærir eöa illfærir sem stendur, sagði Sverrir Kristjánsson vegaeftirlitsmaður í sam- tali við Morgunblaðið í gær. ^ Aö sögn Sverris er Sandá á Kjalvegi enn ófær. Langferðabíl- ar frá Norðurleið lögðu af stað frá Reykjavík í Kerlingarfjöll. Ekki var vitað hvernig langferðabílun- um myndi ganga að komast yfir ána, en stór fjallabíll hélt frá Kerlingarfjöllum niður að Sandá til móts við bílana. Þá sagði Sverrir, að vegagerðin væri að reyna að opna veginn yfir Uxahryggi við Tröllháls, en það væri hreinlega ekki hægt vegna vatnavaxta og það væri með naumindum að jeppar gætu brölt veginn. — Við teljum einnig að Fjalla- baksleið syðri sé orðin ófær og sú nyrðri illfær, sagði Sverrir. Að lokum sagði hann, að enn væri sömu sögu að segja af Norð- Austurlandi og suður með Aust- fjörðum, þar sem vegheflar stæðu nú aðgerðarlausir vegna þess, að vegir eru svo þurrir að tennur heflanna vinna ekki á þeim. SEM KUNNUGT er eru Flugleiðir að athuga kaup á nýjum þotum til að mæta auknum flutningum félagsins. Að sögn Sveins Sæmundssonar blaðafulltrúa hafa nokkrir starfs- menn félagsins verið í Bandaríkj- unum að undanförnu til að afla upplýsinga um þær gerðir sem helzt koma til greina. Heimsækja þeir risana þrjá, Boeing, Mcdonn- el Douglas og Lockheed. Þá sagði Sveinn að sölumenn frá þessum þrem verksmiðjum kæmu reglu- lega til Islands og kynntu vélar þær, sem Flugleiðir hefur auga- stað á, en eins og komið hefur fram í fréttum eru það Lockheed Tri-Star, Boeing 727 og Douglas DC-10, en allt eru þetta breiðþot- ur. Varasamir seðl- ar í umferð... HINN 11. þessa mánaðar voru vörur, sem keyptar voru 1 búð einni hér 1 borginni, greiddar með peningaseðli, sem prentað er framan á svohljóðandi texti: „Thc Japaneses Government promises to pay the bearer on demand Ten Ilollars MP“. Er þetta grænleitur seðill og fylgir Ijósrit af honum þessari frétt. Sá, sem greiddi með seðlinum, sagði að hann væri jafnvirði 10 Bandaríkjadala, og var hann tek- inn á því gengi. Seðill þessi er hins vegar einsk- is virði og þar sem gera má ráð fyrir, að reynt verði að setja fleiri - slíka seðla í umferð, er fólk hér með varað við að taka þá og beðið að láta rannsóknarlögregluna í Reykjavik vita um, ef það verður vart við slíka seðla. Reykjavíkurskák- mótið fullmannað REYKJAVlKURMÓTlÐ í skák er nú fullskipað, en eins og fram kom 1 fréttum, gekk erfiðlega að fá á það erlenda skákmenn. Verða þátttakendur 16 að tölu, 8 útlend- ingar og 8 fslenzkir skákmenn. Sfðasti skákmaðurinn var ákveð- inn f gær, Gunnar Gunnarsson fyrrverandi Islandsmeistari. Mót- ið fer fram dagana 24. ágúst til 14. september f Hagaskólanum f Reykjavfk. Tefldar verð 15 um- ferðir og hefjast þær venjulega klukkan 17.30. Þátttakendur i mótinu eru eftirtaldir skákmenn. I sviga aft- an við nöfn þei’rra er styrkleika- tala viðkomandi samkvæmt Eló- stigakerfinu: Friðrik Ólafsson (2550) Timman, Hollandi (2550) Guðmundur Sigurjónsson (2530) Najdorf, Argentinu (5 2510) Tukmakov, Rússlandi (2490) Vukcevic, Bandaríkjunum (2490) Westerinen. Finnlandi (2485) Keene, Bretlandi (2460) Antosin, Rússlandi (2460) Matera, Bandarfkjunum (2420) Björn Þorsteinsson (2415) Haukur Angantýsson (2400) Ingi R. Jóhannsson (2395) Margeir Pétursson (2390) Helgi Ólafsson (2370) Gunnar Gunnarsson (2310) Sjö af þessum skákmönnum eru stórmeistarar, Friðrik, Timman, Guðmundur, Najdorf, Tukmakov, Westerinen Þóroddur E. Jóns- son látinn ÞÓRODDUR E. Jónsson stórkaup- maður andaðist i Borgarspítalan- um í Reykjavfk í fyrrinótt. Hann var 71 árs að aldri. Þóroddur var algjör brautryðj- andi í skreiðarútflutningi, og tíð- ur gestur skreiðarkaupmanna í Suður-Evrópu og Afríku undan- farinn aldarfjórðung, auk þess sem hann stundaði útflutning á gærum, skinnum og húðum. Áður en hann sneri sér að útflutnings- verzlun rak Þóroddur heildsölu í höfuðborginni, og verzlaði þá einkum með vefnaðarvöru. Þóroddur fæddist 6. maí 1905 á Þóroddsstöðum í ölfusi, þar sem Jón Jónsson, faðir hans bjó. Hann brautskráðist frá Verzlunarskóla Islands vorið 1928, og stundaði um skeið framhaldsnám í Vinar- borg. Eftir heimkomuna stofnaði hann svo heildsölu sína árið 1930. Eftirlifandi kona '• Þórodds er Sigrún Júlíusdóttir, og varð þeim þriggja barna auðið. Hátalarar sem slá í gegn KLH eru bandarískir hátalarar í gæðaflokki. KLH hátalarar fyrir heimahús, skemmtistaði og þar sem krafist er hljómgæða. ENGIN ORÐ FA LYST KLH HATOLURUM. KOMIÐ OG HLUSTIÐ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.