Morgunblaðið - 14.08.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. ÁGUST 1976
13
Frændi Carters hlýt-
ur áverka í fangelsi
Vacaville — 13. ágúst — AP
SYSTURSONUR Jimmy
Carters, William Carter Spann,
afblánar dóm fvrir rán f rfkis-
fangelsinu f Kalifornfu um
þessar mundir. Hann hefur
hlotið áverka á öxl, og segja
fangelsisyfirvöld, að ekki sé
Ijóst, hvort hann hefur hlotið
hann fyrir tilverknað sjálfs sfn
eða annarra.
Fulltrúi fangelsisyfirvalda
sagði I gær, að sárið væri eftir
,,vopn“, sem fundizt hefði, og
væri þar um að ræða tvo tafl-
menn úr plasti, sem hefðu v-erið
bræddir saman, en harla ólík-
legt væri að ráðizt hefði verið á
Spann, þar eð hann væri í ein-
angrunarklefa. Hann sagði enn-
fremur, að ekki væri óvenju-
legt, að fangar veittu sjálfum
sér áverka í þvi skyni að vekja
samúð eða vera jafnvel fluttir í
sjúkrahús, en tók fram um leið,
að ekki væri verið að gefa í
skyn að þetta ætti við um
William Carter Spann, en málið
væri r rannsókn.
Fyrir skömmu sendi William
Carter Spann bréf til blaðsins
Oakland Tribune, og birtist það
í blaðinu. Þar sagðist Spann
hafa verið stunginn tvívegis,
auk þess sem honum hefði ver-
ið hrint, og hefði annar fangi,
sem reyndi að koma honum til
hjálpar einnig orðið fyrir árás.
Segir hann að skyldleikinn við
Jimmy Carter gerði hann að
vinsælum skotspæni í fangels-
inu.
Spann afplánar 10 ára dóm
fyrir tvö rán, sem hann framdi í
San Francisco snemma á þessu
ári, og er hann hafður í sér-
stakri öryggisgæzlu vegna
morðhótana, sem honum bárust
vegna vitnisburðar hans fyrir
dómstólum.
Bætt sambúð
Kína og Formósu?
Washington —13. ágúst
— Reuter.
KlNVERJAR hafa látið f ljós
óskir um viðræður og viðskipti
við stjórnina á Formósu, að því
er bandarfski öldungadeildar-
þingmaðurinn Hugh Scott
sagði f dag, en hann er nýkom-
inn úr ferðalagi til Kfna þar
sem hann ræddi við kfnverska
ráðamenn.
í skýrslu Scotts til öldunga-
deildarinnar segir, að Kínverj-
ar hafi tjáð honum, að þeir séu
fúsir til að hefja slíkar viðræð-
ur hvenær sem er.
Þingmaðurinn telur ósenni-
legt, að Pekingstjórnin muni
freista þess að ná Formósu með
hervaldi, einkum vegna þess að
þá yrðu þeir að slaka verulega á
vigbúnaði sínum við landamær-
in, sem liggja að Sovétrfkjun-
um.
Kínverjar halda því fram, að
Formósa sé á yfirráðasvæði
þeirra, og hafa ekki haft nein
samskipti við stjórn þjóðernis-
sinna á eyjunni. Samkvæmt
samningi, sem gerður var í
Shanghai árið 1972, hétu
Bandaríkjamenn að stefna að
því að binda enda á skuldbing-
ingar sinar við Formósu-
stjórnina og koma á eðlilegu
sambandi við Peking-stjórnina.
Seveso:
Fóstureyðingar vegna
eitrunar hafnar
Mílanó — 13. ágúst — Reuter
ÞRÁTT fyrir áköf mótmæli
Vatikansins er hafinn undir-
} búningur að fóstureyðingum á
konum, sem talið er að orðið
hafi fyrir eitrun af völdum
gassins í Seveso.
Sjö konur hafa sótt um fóst-
ureyðingu, en um 110 konur i
Seveso og nágrenni eru svo
stutt gengnar með aó hætta er á
að börn þeirra fæðist vansköp-
uð. Dómsmálaráðherra ítaliu
hefur heimilað fóstureyðingar
vegna eitrunarinnar, en sér-
fræðingar hafa úrskurðað að
eitrunin geti valdið vansköpun.
Nýlega fæddist barn mánuði
fyrir tímann i Milanó. Barnið
fæddist andvana og er það mál
manna, að þar hafi verið um að
ræða fyrsta fórnarlamb
eitrunarinnar. Heilbrigðisyfir-
völd hafa fyrirskipað
krufningu en halda þvi fram,
að þetta tilvik standi ekki í sam-
bandi við eitrunina.
Noregur:
Sex létust - 40 slös-
uðust 1 bílslysi
Björgvin — 13. ágúst —
Reuter
— NTB
LANGFERÐABIFREIÐ valt út
af veginum við Kinsarvik á
vesturströnd Noregs i dag.
Bifreiðin hrapaði fram af kletti
og stöðvaðist ekki fyrr en í f jör-
unni fyrir neðan. 1 henni voru
46 farþegar. Sex létu lffið.
Fjörutiu slösuðust, þar af tutt-
ugu alvarlega. Fólkið var flutt í
sjúkrahús i nágrenninu með
þyrlum og sjúkrabifreiðum.
Bifreiðin var á vegum dönsku
ferðaskrifstofunnar Tjære-
borg. I bílnum voru 29 Danir,
14 Norðmenn, cinn Svíi og tiu
Þjóðverjar. t kvöld hafði aðeins
tekizt að bera kennsl á þrjá
þeirra sem létust, en talið var
nær öruggt að einn hinna látnu
væri Norðmaður.
ERLENT
r«*
ATBURÐIR af þessu tagi eru ekki sjaldséðir i Belfast þessa dagana. Vopnaður
IRA-liði liggur í leyni, en er tilbúinn að hverfa í fjöldann ef öryggisverðir gera
vartviðsig. (AP-mynd)
Sadat:
Kennir Khadafy um
flugránið í Úganda
Kairó 13.ág. AP.
MOHAMMED Khadafy, forseti
Lfbýu, skipulagði sjálfur og meö
aðstoð forystumanns Palestínu-
skæruliða, George Habash, ránið
á frönsku farþegavélinni, sem
hafnaði sfðast á Entebbe-
flugvellinum f (Jganda, sagði
Anwar Sadat Egyptalandsforseti f
dag. Hann sagði að Khadafv hefði
greitt kostnað skæruliðanna og
vopnunum hefði verið smyglað til
Aþenu f lfbýskum diplomatapósti
og afhent þar skæruiiðum.
Sadat sagði þetta I viðtali við A1
Siessa, sem er kuwaiskt blað, og
var viðtalið birt i dag. Kveðst
Sadat telja það hörmulegt að nafn
Khadafys sé aðeins nefnt í sam-
bandi við sprengingar og eyði-
leggingu. Segir hann að libýsk
sendiráð um allan heim séu mið-
stöðvar vopnasmygls og hvar-
vetna sé vitanlega niðurrifsstarf-
semi og hryðjuverk markmiðið.
Egyptar hafa áður ásakað
Khadafy fyrir að senda launmorð-
lárnbraut-
arslys í
Lissabon
Lissabon 13. ág. Reuter. NTB.
í KVÖLD hermdu fréttir að þríi
hefðu farizt og milli þrjátiu og
fjörutíu slasazt f járnbrautarslysi
er varð skammt fyrir utan Lissa-
bon nokkru áður. Slysið varð þeg-
ar umferð var hvað mest er vinnu
var að ljúka. Lest hlaðin farþeg-
um var að koma frá Figueira de
Foz og hafði numið staðar í Ama-
dora, er önnur farþegalest kom á
fullri ferð og rakst á hana. Með
öllu er ókunnugt um hvernig at-
burður þessi mátti gerast og I
kvöld voru allar fréttir af slysinu
óljósar.
Kleber Haedens látinn
París 13. ág. Reuter.
FRANSKI skáldsagnahöfundur-
inn og bókmenntagagnrýnandinn
Kleber Haedens lézt hér í dag.
Hann var 63 ára og hafði átt við
langvinn veikindi að stríða.
Frægasta bók hans er „Sumrinu
lýkur undir linditrjánum" sem
kom út fyrir tiu árum. Hann var
helztur bókmenntagagnrýnenda
við Journal du Dimanche.
ingja til Egyptalands til að myróa
framámenn í stjórnmálum og
einnig hafa Egyptar iðulega
kennt Lfbýumönnum um
sprengjutilræði, í Egyptalandi
meðal annars eitt sem varð í
stjórnarbyggingu I Kairó, þar sem
fjórtán slösuðust.
Khadafy hefur einnig verið bor-
inn þeim sökum að hann hafi
staðið að baki uppreisninni i
Súdan i fyrra mánuði, sem miðaði
að því að steypa stjórninni i
Khartoum af stóli.
Var Sadat mjög harðorður i við-
talinu og sagði að Khadafy myndi
ekki sleppa úr greipum sér í þetta
sinn, eins og hann orðaði það.
Grunsemdir um nýja
mannskæða farsótt
Toronto — 13. ágúst — Reuter.
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD hafa
gert varúðarráðstafanir vegna
þess að komið er upp tilfelli af
svonefndri Lassa-sótt f Toronto.
Lassa-sótt er skaðræðissjúk-
dómur og hlutfall þeirra, sem
taka veikina og andast af völdum
hennar, er talið vera mifli 30 og
50 af hundraði. Fyrst varð
uppvfst um sjúkdóm þennan í
Lassa í Vestur-Afrfku árið 1969,
en hingað til hefur hans ekki gætt
utan Afrfku.
2. ágúst s.l. kom Olga Kameckey
heim úr sumarleyfi sínu í Evrópu.
Skömmu síðar veiktist hún og var
flutt í sjúkrahús í Toronto. Grun-
semdir um að hún væri haldin
Lassa-sótt vöknuðu fljótlega og
hefur það starfsfólk, sem stund-
aði hana í sjúkrahúsinu, verið sett
I einangrun á heimilum sinum til
að varna þvi að sjúkdómurinn
berist út. Endanleg staðfesting á
þvi að konan sé haldin Lassa-sótt
er væntanleg nú um helgi a en
blóð- og þvagsýni konunna- sem
eru til rannsóknar i Sóttvarna-
stofnun Bandarikjanna i Atlanta.
benda til þess að hún hafi gengið
með sjúkdóminn um nokkurn
tima áður en hún veiktist. Olga
Kameckey hafði viðkomu I
Hollandi, Þýzkalandi, ítaliu og
Bretlandi á ferðalagi sínu, en í
Evrópu varð nýlega vart við til-
felli af sjúkdómnum. Sá
sjúklingur hefur nú náð sér, en
sannað þótti að hann hefði borið
sjúkdóminn með sér frá Afriku.
Heilbrigðisyfirvöld í Toronto
vinna nú að því að ná sambandi
við um 400 manns, sem voru sam-
ferða Olgu Kameckey frá Evrópu
þannig að hægt sé að gera frekari
varúðarráðstafanir.
Ef í ljós kemur, að hún er
haldin Lassa-sótt er þetta í fyrsta
sinn, sem sjúkdómurinn kemur
upp utan Afriku.
10 ára syni Voikhans-
kayu haldið í Sovét
Lundúnum — 13. ágúst —
Reuter
THE London Times segir frá þvf f
dag, að sovézk yfirvöld standi f
vegi fyrir þvf að 10 ára drengur
flytjist frá Rússlandi til móður
sinnar, Marinu Voikhanskaya,
sem fluttist úr landi f aprfl f
fyrra. Marina Voikhanskaya er
geðlæknir. Hún starfaði f sjúkra-
húsi f Leningrad þar til hún lenti
f útistöðum við yfiryöld, vegna
þess að hún neitaði að gefa fólki,
sem haldið er á geðveikrahælum
vegna stjórnmálaskoðana, skað-
vænleg Iyf.
Hún fékk leyfi til að flytjast úr
landi, en faðir drengsins og fyrr-
verandi eiginmaður hennar hefur
lýst því yfir að hann hafi ekkert
við það að athuga að drengurinn
fylgi móður sinni.
The Times segir, að sovézk yfir-
völd hafi I hyggju að svipta
Voikhanskayu forræði drengsins.
Hann dvelst hjá ömmu sinni, en
hefur sjálfur látið í ljós ósk um að
fara til móður sinnar. Blaðið
telur, að örlög drengsins verði á
svipaða lund og annarra barna
fólks, sem flyzt frá Sovétríkjun-
Framhald á bls. 16