Morgunblaðið - 14.08.1976, Side 17
MORC.UNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14. AGUST 1976
17
Pétur Guðmundsson
Kjarri — Minning
Pétur Guðmundsson, Kjarri í
Ölfusi, andaðist í sjúkrahúsinu á
Selfossi þ. 7. ágúst eftir langa og
erfiða sjúkdómslegu.
Hann fæddist i Kollafirði 3.
febrúar 1896, foreldrar hans voru
hjónin Margrét Kolbeinsdóttir og
Guðmundur Pétursson frá Grjót-
eyri í Kjós. Við Kollafjörð og dvöl-
ina hjá afa sínum voru tengd kær-
ustu bernsku- og unglingsminn-
ingar hans, minningar sem voru
honum kærar til hinstu stundar.
Árið 1899 fluttist hann með for-
eldrum sinum að Nýlendugötu 15
i Reykjavík og þar naut hann
þeirrar skólamenntunar er entist
honum til æviloka, undir hand-
leiðslu Mortens Hansen skóla-
stjóra. Síðar aflaði hann sér
sjálfsmenntunar í reikningi og
tungumálum, hann var ágætur í
hugarreikningi og talaði Norður-
landamálin og þýsku sér til fullra
nota.
Systkini hans voru sex en að-
eins þrjú komust til fullorðins
ára, sjálfur fékk hann taugaveiki
sem barn og var talinn af oftar en
einu sinni af þeim læknum er
stunduðu hann. Þrátt fyrir veik-
indi og kröpp kjör í uppvexti var
Pétur ríflega meðalmaður á hæð,
þrekvaxinn og hinn vörpulegasti
álitum.
Á uppvaxtarárum var sumar-
vinnan ávallt hjá afa í Kollafirði,
frá sauðburði og fram yfir réttir,
þar aflaði hann sér þeirrar ástar
og þekkingar á húsdýrum, móður-
moldinni og öllu lifi í jörðu og á,
er endist honum alla ævi og varð
til þess að hann gerðist bóndi.
Meðan hann dvaldist i Reykja-
vík vann hann á ýmsum stöðum
þar til hann stofnaði fyrirtækið
„Málarann" 1925, en árið 1948
festi hann kaup á jörðinni Þóru-
stöðum í Ölfusi.
Jörðin var þá lítt húsuð, íbúðar-
húsið var lítið og lágreist, 3 her-
bergi og eldhús, útihúsin voru
stór hlaða og við hana fjárhús
fyrir um 150 kindur. Túnið var
lítið en mýrarflákar breiddu úr
sér umhverfis það. Fyrstu tvö ár-
in notaði Pétur til þess að endur-
byggja jörðina og hefja þar fram-
kvæmdir að ræktun túnsins, þá
lét hann einnig byggja veg af
þjóðveginum og heim að bænum.
Ég kynntist Pétri ekki fyrr en
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
SIGURJÓN JÓNSSON
fyrrv. yfirvélstjóri
andaðist í Altona Krankenhaus. Hamhorg, fimmtudaginn 12 ágúst
Útförin verður tilkynnt síðar
Sofffa Jónsdóttir
Gylfi Sigurjónsson Valgerður Ólafsdóttir
og barnabörn
t
Út för eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður.
MAGNÚSAR SKAFTFJELDS
Skólavörðustíg 28
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 1 6 ágúst kl 1 3 30
Steinunn Kristjánsdóttir
Halldór Magnússon Jóhanna Guðmundsdóttir
Sigrfður Magnúsdóttir Hörður Ágústsson
Magnús Magnússon Helga V. Magnússon
t
Móðir okkar
SUMARRÓS KRISTÍN EINARSDÓTTIR
Hringbraut 92B, Keflavik
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju i dag laugardaginn 14 þ m kl 2
Sólveig Guðmundsdóttir
og systkini
t
Eiginmaður minn
ÞORODDUR E. JONSSON
stórkaupmaður
Hávallagötu 1
andaðist á Borgarspítalanum aðfararnótt 13 þessa mánaðar
Fyrir fiónd barna okkar
Sigrún Júlfusdóttir
+ Eiginmaður minn
BIRGIR KJARAN
hagf ræðingur Ásvallagötu 4, R
lézt fimmtudaginn 12 ágúst
Fyrir mina hönd, dætra minna. tengdasona og barnabarna
Sveinbjorg Kjaran
t
PÉTUR GUÐMUNDSSON
Kjarri, Ölfusi
andaðist 7 ágúst. Útför hans var gerð frá Lágafellskirkju 13. ágúst og
fór fram i kyrrþey að ósk hins látna
Ragna Sigurðardóttir, Kjarri
og born hins látna
hann fluttist hingað austur og hóf
búskapinn á Þórustöðum með sið-
ari konu sinni, Rögnu Sigurðar-
dóttur búnaðarmálastjóra árið
1951.
Á Þórustöðum bjuggu þau í 13
ár, en á þeim árum breyttist jörð-
in úr kotbýli i stórbýli. Nýtt og
myndarlegt íbúðarhús var byggt
við húsið sem fyrir var, gott fjós
fyrir 45 kýr ásamt kálfastíum og
bás fyrír naut staðarins, stórt
svinahús sem rúmaði á annað
hundrað svina, hesthús, geymslu-
hús og votheysturn. Túnið var
margfaldað að stærð, framræslu-
skurðir gerðir til þess að túnið
gæti sprottið og gefið gott gras,
skurðir grafnir fyrir framtíðar-
stækkun tímans, ræktað var skjól-
belti til skjóls fyrir kýrnar i
haustrigningunum. Trjá- og
blómagarður ræktaður við íbúðar-
húsið. Auk alls þessa var hafist
handa við ræktun garðyrkjustöðv-
ar við norðurjaðar hússins og þar
reist geymsluhús og hús undir
gleri.
Um rekstur búsins og allar
framkvæmdir voru þau Ragna og
Pétur mjög samhent, til alls var
vandað svo sem best mátti verða,
bæði til þess er viðkom ræktun
landsins, endurbótum og bygg-
ingu húsanna og kynbótum og
vali á góðum gripum. Þau voru
hjúasæl, bjuggu lengst af með
tveim norskum, tryggum og góð-
um starfsmönnum sem báðir eru
nú búsettir hérlendis, annar sem
bóndi á Eyrarbakka en hinn sem
garðyrkjubóndi i Biskupstungum.
Báðir eru þeir til fyrirmyndar
sem mannkosta- og dugnaðar-
menn og bera sínum fyrri hús-
bónda fagurt vitni.
Vorið 1964 seldu þau Ragna og
Pétur meginhluta jarðarinnar
ásamt gripunum og vinnuvélum
og reistu sér nýtt heimili i garð-
yrkjustöðinni, sem áður hefur
verið minnst á, þar byggðu þau
snoturt lítið íbúðarhús og héldu
áfram að rækta og prýða landið,
er það nú eitt hið fegursta býli á
öllu landinu. Þetta býli sitt
nefndu þau Kjarr.
Eftir að kynni okkar hófust
tengdumst við og heimili okkar
vináttuböndum sem urðu nánari
eftir að Pétur fluttist að Kjarri og
búinn að fá útrás fyrir athafna-
semi sína við búskapinn á Þóru-
stöðum. Hann var hinn mesti
drengskaparmaður, greiðvíkinn
og hjálpsamur við alla sem voru
hjálpar þurfi, greindur vel, við-
sýnn og viðræðugóður. Dugnaður
hans og athafnasemi var lands-
þekkt. Fjöldi fólks úr öllum stétt-
um þekkti iðnrekandann og kaup-
manninn Pétur f Málaranum og
Pétur bónda á Þórustöðum, en
um ókomna framtíð munu ungir
og óbornir kynnast garðyrkju-
bóndanum og skógræktarmannin-
um Pétri í Kjarri, sem hinum
smekkvísa og framtakssama rækt-
unarmanni.
Ég bið Guð að blessa minningu
þessa mæta manns. Eiginkonu
hans, ættingjum og vinum sendi
ég samúðarkveðju mína og fjöl-
skyldu minnar.
Jón Pálsson.
Kveöja
En fullið er tæmt. — hevrið feigðarsvan.
Fastar og nær koma vængjablökin.
Ástin er dauð. Sjáum man eftir man
að moldarsvæflunum hallast á bökin.
í gær, föstudaginn 13. ágúst,
var minn kæri vinur Pétur Guð-
mundsson lagður i moldu að Lága-
felli í Mosfellssveit. Hann var
einn af aldamótamönnunum í
þess orðs fyllstu merkingu, ruddi
hinn grýtta veg fyrir okkur, sem á
eftir komum og í dag fleytum
rjómann af verkum hans. Hann
hafði vilja og kjark til að fram-
kvæma langanir sínar, þekkti ei
hik eða efa og í verkum þessum
hefur hann reist sér varanlegan
bautastein. Mig „hefur þú ungan
alið og aldrei valið nema bezta
fóður“. Hann treysti mér og trúði
fyrir fyrirtæki sinu, og ekkert er
ungum manni eins gott veganesti
og traust, sem honum er sýnt af
húsbónda hans.
Þetta á ekki að vera minningar-
grein, hcldur hinzta kveðja til
hans, sem ég mat svo mikils. Með-
fylgjandi hendingar skáldsins,
sem eru það bezta sem ég kann,
eiga að styrkja min fátæklegu
orð. Far heill.
Synduga hönd, — þú varst sigrandi sterk,
en sóaðir kröftum á smáu tökin; —
að skiljast við ævinnar æðsta verk
f annars hönd, það er dauðasökin.
E.B.
Eggert Kristinsson.
Timinn hefir nú talið spor son-
ar síns, áfanga er náð, lífsleið á
enda runnin, Pétur Guðmundsson
í Kjarri er nú allur, áttræður að
aldri.
Mín kynni af Pétri eru ekki
löng én þó mjög minnisstæð, bæði
sem vinar og sjúklings. Skaphöfn
hans gerði hann að sérstæðum
persónuleika, sem hlaut að draga
að sér athygli hvar sem hann var
og verkaði.
íslendingar eru taldir menn
sérhyggju og sjálfstæðis og munu
þeir vera það öðrum þjóðum
fremur miðað við grannfólk okk-
ar.
Sá, sem sker sig úr skara íslend-
inga um sjálfstæði, kjark og kraft.
hlýtur þvi að vera að nokkru
óvenjulegur maður, en sú var
raunin á um Pétur i Kjarri.
Menntun hlaut hann litla og var
því maður leikur allt sitt líf. En
hann kunni ekki síður tök á verk-
efnum sínum en lærðir menn á
öðrum vettvöngum, því að vöggu-
gjafir hlaut hann góðar. Þegar ég
sat á tali við Pétur vakti athygli
hans og athugun á mönnum og
málefnuúi alltaf sérstakt viðbragð
mitt.
Orðræða hans einkenndist af
sannsögli, gagnrýni og krafti. Fyr-
irlitning hans á smjaðri, flá-
hyggju og fagurgala varð ekki
dulin, enda ætlaði hann sér aldrei
að yrkja akur stjórnmála eða lýð-
hylli.
En hann var þó engan veginn
áhugalaus um félagsmál og
stjórnmál, heldur brunnu þau
honum oft svo á skinni að hann
átti vart tiltæk lýsingarorð, svo að
sagt yrði sem hugur bauð. Hann
var ekki maður orðsins heldur
orfsins og verkanna.
Pétur kom víða við á starfsferli
sinum og bera athafnir hans þeim
orðum sem framan eru skráð
órækt vitni. Hann var verslunar-
maður og framleiðandi og um leið
Framhald á bls. 21
Gísli Þorleifsson
Selfossi — Kveðja
Fæddur 11. nóvember 1918
Dáinn 8. ágúst 1976.
Mér er bæði ljúft og skylt að
minnast tengdaföður míns með
nokkrum fátæklegum orðum.
Efst er mér i huga þakklæti til
hans sem var mér alltaf svo góð-
ur, bæði sem tengdafaðir og vin-
ur. Hugprúðari mann en hann
þekki ég ekki. Hann sagði mein-
ingu sina, svo ekki duldist, og
hafði sjálfstæða hugsun. Hógværð
var honum í blóð borin. Hann var
gæddur góðum gáfum, bæði til
orðs og handa, kunni mikinn fróð-
leik utanbókar og sagði vel frá.
Ræktunarmál voru Gísla alltaf
hugleikin og þau hjónin ræktuðu
fagran trjá- og blómagarð,*sem
örvaði fólk sem á horfði til að
gera umhverfi sitt fagurt. Feg-
urðarskyn hafði hann afburða-
gott, og auga fyrir öllu fallegu.
Þegar heilsa hans bilaði lét hann
sig ekkert muna um að sauma út i
nokkra gullfallega púða eða
klukkustreng, og nokkrar peys-
urnar var hnn búinn að prjóna i
t
Bróðir okkar
SIGURVIN JÚLÍUSSON
andaðist 1 2 ágúst Jarðarförin auglýst siðar
Systkinin
vetur. Konan hans og dætur
treystu smekkvísi hans til að velja
og kaupa efni í kjólinn sinn fyrir
eitthvert tækifærið i bæjarferð-
inni.
Ég þakka tengdaföður minum
fyrir allar ánægjustundirnar sem
við áttum saman. Vegna okkar
stuttu kynna læt ég ætt hans og
starfssögu ósagða. Ég veit að
hann fékk að þeirra tíma sið
strangt uppeldi sem krafðist mik-
illar vinnu og skyldurækni. Sam-
starfsmenn Gisla i mjólkurbúinu
treystu honum og virtu.
Blessuð sé minning hans.
S. J.
+ Hjartkær sonur okkar og bróðir
JÓN ORVAR
læknir
lést á Spáni af slysförum þann 1 2 ágúst Geir G. Jónsson Sólveig Jónsdóttir Maria Sjofn Geirsdóttir
+
Þokkum af alhug auðsýnda sarn
úð og vmarhug vegna andláts og
'útfarar foður okkar oy tengda
föður
ÓLAFS SVEINS
SVEINSSONAR
Syðra-Velli
Börn og tengdaborn