Morgunblaðið - 14.08.1976, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAC.UR 14. AGUST 1976
19
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Bátavél fr3 mgr
til sölu, dexil gír og 1 2 volta ;
startari. S. 51404 — j
15401.
Hjón með eitt barn
óska eftir 2ja til 3ja herb
ibúð Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Uppl. í síma
16216.
Stúlka vön
afgreiðslustörfum
óskast i matvöruverzlun hálf-
an daginn. Tilboð sendist
blainu fyrir 20. þ.m. merkt:
Áreiðanleg — 2501.
Góð stúlka eða kona
óskast til heimilisaðstoðar.
Vinnutími eftir samkomulagi.
Lítil ibúð gæti komið til
greina Uppl. í síma 40565
eftir kl. 20.
3ja til 4ra herb. íbúð
óskast til leigu. Þrennt i
heimili (hann læknanemi á 5.
ári, hún líffræðinemi og 3ja
ára barn). Fyrirframgreiðsla.
'Uppl. i síma 24803.
Milljónir
Vil kaupa 3 herb. íbúð á
Stór-Reykjav.svæðinu. Útb.
2 — 3 millj. Tilboð sendist
Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt:
RÁ — 3000.
Drengur utan af landi
sem er i Flensborg óskar eftir
fæði og herbergi í Hafnar-
firði. Uppl. í sima 37336
eftir kl. 19.
Til sölu í Ólafsvík
einbýlishús ca. 100 fm.
ásamt kjallara og bílskúr.
Nánari uppl. i sima 93-6280
eftir kl. 6 virka daga.
Til sölu
heybindivélasleðar.
Kaupfélagið Þór, Hellu.
Til sölu
100 fm embýlishús i Hvera-
gerði með bílskúrssökkli og
hálf frágenginm lóð. Útb. 5
til 5.5 millj. L>ppl. í sima
99-4304 eða að Kamba-
hrauni 7, Hveragerði.
Mold til sölu
heimkeyrð í lóðir, einnig ýtu-
vinna og jarðvegsskipti.
Uppl. í simum 42001,
40199 og 75091.
Ný glæsileg
nylonteppi
Teppasalan, Hverfisg. 49,
sími 1 9692.
Góð 4ra herbergja
íbúð
i Breiðholti til leigu. Laus
strax
Tilboð sendist í afgreiðslu
blaðsins merkt: íbúð —
6409 fyrir 20. ágúst n.k
Þýzkur Capri 2000
árg. '73 fallegur, blár bill, til
sölu að Álftamýri 10.
K.F.U.M.
| Almenn samkoma sunnu-
dagskvöld kl. 8.30 i húsi
félagsins við Amtmannsstig
2B.
Helgi Hróbjartsson, kristni-
boði, talar. Fóarnarsamkoma.
Allir velkomnir.
SIMAR. 11798 og 19533.
Sunnudagur
15. ágúst kl. 13.00
1. Fjöruganga á Kjalarnesi.
2. Gengið á Tindstaðafjall.
Verð kr. 1000 gr. v/bílmn
Farið frá Umferðarmiðstöð-
inni (að austanverðu).
1 7. — 22. ágúst Langisjór —
Sveinstindur og fl.
19. — 22. ágúst. Berjaferð i
Vatnsfjörð.
26. — 29. ágúst. Norður fyrir
Hofsjökul.
Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni.
Ferðafélag ÍSlands.
ÚTIVISTARFERÐIR
Laugard. 14 / 8 kl. 13
Lyklafell,
fararstj Friðrik Daníelssori
Verð 600 kr
Sunnud. 15/8 kl. 13
Kræklingafjara og
fjöruganga,
fararst| Magna Ólafsdóttir
Meðalfell i Kjós,
fararstj. Emar Þ Guðjohnsen.
Verð 800 kr . friti f born
með fullorðnum Brottfor frá
B.S.Í., vestanverðu
Útivist
Heimatrúboðið
Almenn samkoma á morgun
að Óðinsgötu 6a kl 20.30
Allir velkomnir.
J L.
J L
J L
J L
J L
J L
Vinsamlega birtiS eftirfarándi smáauglýsingu
í Morgunblaðinu þann: .................
Uf—V
..
Athugm
SkrifiS meS prentstöfum og1
setjið aðeins 1 staf í hvern reit.
Áríðandi er að nafn, heimili
°g sími fylgi.
—^A■ | | n
■w-
■7-----v---------V—
..“»"y....V----------y-
■T.Ú AÆ/Æu
ÁTA MCSA J&ÚA Af/UM
O&tiVA. , ,/ M£/A/A./\
PJ’AtJ'.J./W.as.Æ: ,/, ,s//ívt .f.á,0.0,6,
-A A n4i„
-/t 4 ,A
J___I__I___I__I__I___I__I___I__I--1___I__I__I___I__I Fyrirsögn
J I I---1 I I I I I I I I I I I I I I----1--1---L
180 Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum:
J 360
REYKJAVIK:
J I I I I I—L
J__I__I__I_I___I_I__I_I__I__I_I__I__I_I 540
HAFNARFJÖRÐUR:
I I I I I I I I I I L
J I I I I I L
J I I I I L
KJÖTMIÐSTÖÐIISI, Laugaiæk 2, LJÓSMYNDA-
J 720 SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS OG GJAFAVÖRUR
Háaleitisbraut 68, Reykjavikurvegi 64,
111111 i"J........1.1 111111 900 KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, Stigahlí8 45—47. VERZLUN
J I L
J I I I I 1 I I I L
X
X
J L
J I I I L
J I I L
I ,.L
* Hver lína kostar kr. 1 ðO Meðfylgjandi er greiðsla kr.
NAFN: ..............................................
HEIMILI: ...........................................SÍMI:
A.—a 4—* —a. ■■■„■ /V....- A.Á A ....Jl— —L
1080 HÓLAGARÐUR, Lóuhólum 2—6
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Álfheimum 74,
ÁRBÆJARKJÖR,
Rofabæ 9,
ÞÓRÐAR ÞÓROARSONAR,
Suðurgötu 36,
KÓPAVOGUR
ÁSGEIRSBÚO, Hjallabrekku2
BORGARBÚÐIN, Hófgerði 30
Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeifdar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavik.
J^J\-
-A—A..A„.
Flemming
Thorberg
— Kveðja
Fæddur 29. janúar 1933
Dáinn 7. ágúst 1976.
Við hið snögga fráfall Flemm-
ings Thorberg er höggvið djúpt
skarð í raðir okkar Islendinga 1
New York. Hann hefir um langt
árabil verið einn ötulasti og ósér-
hlífnasti starfsmaður i íslend-
ingafélaginu I New York, ætíð
reiðubúinn til að fórna tíma og
kröftum til að vinna að starfsemi
þess félags. Við sem átt höfum
margar samverustundir í gleði og
starfi með Flemming á liðnum
árum litum nú til baka 1 djúpri
sorg. Einn traustasti hlekkurinn í
félagi okkar er brostinn.
Við munum ætíð minnast
Flemmings með söknuði, virðingu
og þökk fyrir allt og allt, sem
hann af svo miklum drengskap og
fórnfýsi lagði af mörkum fyrir
okkur íslendinga sem búsettir er-
um í New York og nágrenni.
Við biðjum guð að blessa minn-
ingu hans og styrkja eftirlifandi
eiginkonu hans og syni sem við
vottum okkar dýpstu samúð.
Stjórn islendingafélagsins
í New York
Laugardagur . kl. 11.30 að
morgni 7. ágúst 1976. Við sitjum
hér við eldhúsborðið heimafólk
op góður gestur, Þórarinn Péturs-
son starfsmaður hjá Loftleiðum,
við kaffisopa og snæðing. Síminn
hringir og beðið er um Þórarinn.
Hann kemur fram eftir nokkrar
mínútur — fölur eins og Iín. Hvað
er að? Hann getur loks stunið
upp: „Hann Flemming er dáinn.“
Það er eiginlega ekki hægt að
lýsa þeim furðulegu tilfinningum,
sem grípa mann við slíkar fréttir
sem þessar — Flemmi fósturson-
ur minn dáinn! — Og ég talaði við
hann í fyrradag kátan og fullan af
bjartsýni. Þau hjónin voru að fara
1 frí yzt út á Long Island og ætl-
uðu að heimsækja mig í förinni.
Ég vissi eiginlega' ekki, hvort ég
ætti að hlæja eða gráta — ég trúði
þessu ekki — en ósköp var mér
órótt innanbrjósts, þegar á daginn
leið og ég var komiú'upp í kamer-
sið minn — reyna að lesa — en
hugurinn kannski ekki við og ég
fór ósjálfrátt að rifja upp endur-
minningar um Flemming litla,
fósturson minn, sem hann alltaf
kallaði sig.
Árið 1951 eða 1952 vann ég við
aðalræðismannsskrifstofuna í
New York. Þangað lágu leiðir
margra Islendinga. Einn góðan
veðurdag bregður þar sér inn fall-
egur unglingur og rekur mé rem-
bingskoss. „Þessi koss er frá
henni móður þinni — ég n.l.
hringdi í hana áður en ég fór út,
því hún er vinkona hennar ömmu
minnar.“ Það tók mig svolítinn
tíma að átta mig á þessum unga
sveini með skínandi falleg, fjör-
leg augu og algjörlega ófeiminn
við einkaritarann. „Og nú vil ég
fá að tala við alræðismanninn,
hann Hannes, — hann er n.l. vin-
ur fósturföður míns.“ Honum var
þar vel tekið. Þannig byrjuðu
okkar kynni fyrir 25 árum og
hélzt vinátta okkar æ siðan.
Flemming lézt af hræðilegum
slysförum í gærmorgun.
Mig langar til að rifja upp
kvöldstund með Flemming. Hann
kom á skrifstofuna og var þá
messadrengur á einu farmskipa
Eimskipafélagsins. Ég var búin
að kaupa í matinn og bauðst
Flemming til að koma með jnér
heim og kokka, enda búinn að
ákveða að gera matreiðslu að ævi-
starfi. Slikur lúxus var nú vel
metinn. Þegar við sátum að snæð-
ingi, er hringt á dyrabjölluna og
var þar sendill með slmskeyti til
mín. Ekkert er mér verr við en
simskeyti og bað ég Flemming að
opna það. Sá ég strax hvað honum
brá. Skeytið var frá mömmu að
tilkynna mér lát Láru móðursyst-
ur minnar, sem ég unni engu síð-
ur en móóur minni. Þetta kvöld
kynntist ég hve hjartagóður þessi
unglingur var. Hann gladdist með
glöðum og hryggðist með hrygg-
um. Ég held hann hafi ekkert
aumt mátt sjá.
Flemming fékk ósk sina upp-
fyllta. Hann lærði matreiðslu og
varð listamaður i sinni grein,
enda fékk hann stöðu hjá einu
bezta veitingahúsi í New York
borg.
Síðustu árin vann hajyi óeigin-
gjarnt starf hjá Islendingafélag-
inu í New York. Hann annaðist
alla matreiðslu af mikilli prýði,
þegar haldin voru landamót. Þá
aðstoðaði kona hans hann alltaf.
— Ég skrapp þá fram í eldhús til
að heilsa upp á húsbóndann og
húsfreyjuna eins og ég nefndi
þau, og þar hömuðust þau kóf-
sveitt, þegar hinir voru að
skemmta sér. En áður en mótinu
lauk, komu þau í hópinn, prúðbú-
in og kát og sáust engin þreytu-
merki. Flemming sparaði ekki
sporin þegar íslendingafélagið
var annars vegar.
Hann leigði hjá okkur Gunnari
Eyjólfssyni i landahúsinu okkar i
Hackensack um nokkurra mánaða
skeið áður en hann giftist stúlk-
unni sinni frá islandi, Systu, sem
starfað hefur hjá Loftleiðum í
mörg ár. Á þessu ári missti hann
móður sína snögglega, konu á
bezta aldri. Þá átti Flemmi minn
bágt. Eg reyndi að endurgjalda
honum kvöldið, sem hann hugg-
aði mig þegar hann var 17 ára.
Hann var ennþá sami litli dreng-
urinn í mínum augum og hann
spurði, hvort hann nia-iti ekki
kalla mig mömmu. Ég átti þó ekki
þann heiðurstitil skilið — nei,
fjarri því.
Á heimili Systu og Flemmings
ríkti mikil gestrisni og þar átti
margur landinn gott athvarf.
Aðalsmerki Flemmings voru
trygglyndi, hjálpfýsi og við-
kvæmni — öll I ríkum mæli.Þegar
ég hripa þessar línur er ég tæp-
lega farin að trúa því, að Flemm-
ing litli, fóstursonur minn, sé far-
inn. En hann var ekkert litill —
hann óx upp hár og glæsilegur
piltur.
Á s.l. ári veiktist Flemming og
gekk undir hættulegan uppskurð
heima á Fróni. Hann talaði oftar
við mig en áður, þegar honum leið
illa og hræddist, að ekki væri um
fullan bata að ræða. Við ræddum
þá um okkar kvilla, en simtalið
endaði alltaf með glensi og grini
frá báðum hliðum.
En tíminn fékk ekki að skera
úr, hvort þessi vinur minn fengi
fullan bata. S.l. laugardagskvöld
kom ökuníðingur í veg fyrir það.
Flemming var að opna bíldyrnar
sinar á heimleið, þegar keyrt var
á hann. Ökuniðingurinn kevrði á
brott, en vinur Flemmings, sem
hann hafði komið við hjá, sá bíl-
númerið og það náðist í manninn
— en það bjargaði ekki lífi þessa
43 ára unga landa okkar.
Ég sendi Systu.drengjunum
þeirra og skyldmennum. innileg-
ar samúðarkveðjur frá systr nn
minum, Tómasi, Ástu og mér.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
landanna hér, að hans verói lengi
minnzt og mikið saknað.
New York, 8. ágúst 1976
Halldóra Rúfsdóttir