Morgunblaðið - 14.08.1976, Side 28
Al'GLÝSINKASÍMINN KR:
22480
ireigptittMii&ifr
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
Jfi*reiwbl«íiil>
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1976
Ráðstöfunarfé líf-
eyrissjóða jókst
um 36% á sl. ári
ÁÆTLAÐ er að ráðstöfun-
arfé lífeyrissjóða hafi á ár-
inu 1975 aukizt um 1.520
milljónir króna frá árinu
1974. Árið 1975 var ráðstöf-
unarfé sjóðanna 5.750
milljónir króna. Á grund-
velli ársfjórðungsúrtaks er
áætlað ráðstöfunarfé líf-
eyrissjóðanna fyrstu 3
mánuöi þessa árs 1.585
milljónir króna, en það var
á sama tíma í fyrra 1.060
milljónir króna.
Þessar upplýsingar koma fram í
fréttabréfi Sambands almennra
lífeyrissjóða, sem nýlega er komið
út. Þar segir ennfremur að at-
hygli veki að á fyrsta ársfjórðungi
1975 hafi útlán og skuldabréfa-
kaup lifeyrissjóðanna til fjárfest-
ingalánasjóða numið 157 milijón-
um króna eða 15% af ráðstöfunar-
fé sjóðanna. Á fyrsta ársfjórðungi
1976 var þessi upphæð hins vegar
539 milljónir króna eða 34% af
ráðstöfunarfénu.
Lézt í umferðarslysi á Spáni
UNGUR læknir frá Akureyri, Jón
örvar Geirsson, beið bana í um-
ferðarsiysi á Spáni sfðdegis á
fimmtudag og tveir ungir tslend-
ingar liggja stórslasaðir á sjúkra-
húsi ytra eftir sama slys. Fjórði
maðurinn, sem f bflnum var,
slapp án verulegra meiðsla. Jón
örvar var 29 ára gamall. Hann
útskrifaðist úr læknadeild Há-
skólans f fyrra og hefur að undan-
förnu starfað við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri og Krist-
neshæli. Hann hafði nýlega feng-
ið veitingu fyrir Fáskrúðsfjarðar-
læknishéraði og átti að taka þar
við störfum hinn 1. október n.k.
Jón Örvar var ókvæntur, en lætur
eftir sig foreldra á Iffi f Reykja-
vfk, Geir G. Jónsson og Sólveigu
Jónsdóttur.
Sem fyrr segir varð slysið síð-
degis á fimmtudag. Voru fjór-
menningarnir í viku sumarleyfi á
Spáni og bjuggu i Benidorm.
Voru þeir á leið þaðan á bllaleigu-
bíl til Valencia þegar slysið varð.
Ók bifreið þeirra á mikilli ferð
aftan á vöruflutningabíl. Jón örv-
ar sat í framsæti við hlið öku-
manns, og lézt hann af meiðslum,
sem hann hlaut í slysinu. öku-
maðurinn og annar farþega í aft-
ursæti stórslösuðust, skárust mik-
ið og hlutu beinbrot, en þeir eru
ekki taldir f lífshættu, samkvæmt
þeim upplýsingum, sem Mbl. fékk
í gær. Liggja þeir á sjúkrahúsi
ytra, en fjórði maðurinn slapp án
verulegra meiðsla og fékk að fara
af sjúkrahúsinu eftir skoðun.
Jón örvar Geirsson var fæddur
2. febrúar 1947.
Vegarkafli
Sverris
opnaður
um helgina
VEGARKAFLI sá er Sverrir Run-
ólfsson vegagerðarmaður lagði á
Kjalarnesi og lauk við fyrir
skömmu verður opnaður um helg-
ina ef veður helzt sæmilega þurrt.
Snæbjörn Jónasson yfirverk-
fræðingur Vegagerðar rfkisins
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að búið væri að tengja veginn
við Þjóðveginn, mikil bleyta væri
í tengiveginum og vart væri hægt
að opna veg Sverris til umferðar
fyrr en upp stytti.
GÁÐ TIL VEÐURS — Gert
er ráð fyrir suðvestlægri
átt á Suðvesturlandi um
helgina. Búast má við að
skýjað verði og rigning af
og til. Á Norður- og Austur-
landi er hins vegar gert ráð
fyrir þurru og hlýju veðri og
ætti sólin að brjótast út á
milli skýjanna af og til. —
Myndina tók Friðþjófur
einn af mörgum rigningar-
dögunum í sumar.
Jón Örvar Geirsson.
Flösku-
skeytið
rak 5,5
km á dag
ÞEGAR skútunni Markon var
siglt frá Englandi til tslands f
vor köstuðu skipverjar út
flöskuskeyti, þegar skútan var
stödd um 330 km. suðaustur af
tslandi. 1 skeytinu stóð, að
hver sá sem fvndi flöskuna
fengi andvirði 10 punda f
fundarlaun.
Þetta var 30. maf s.l. Þann 1.
ágúst sfðastliðinn fann svo ung
stúlka, Auðbjörg Þorsteins-
dóttir, til heimilis að Borg f
Mýrarhreppi f Austur-
Skaftafellssýslu, flöskuna f
fjörunni neðan við Borg. Hafði
hún þegar samband við skip-
verja og lét vita af skeytinu.
Stefán Sæmundsson, einn
þeirra er sigldu skútunni
heim, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að þeir félagar
hefðu alls ekki átt von á þvi að
skeytið kæmist til skila. Það
væri merkilegt hve flöskuna
hefði borið hratt yfir, eða 5.5
kílómetra á dag, sem sýndi að á
þessu svæði væru sterkir
straumar í átt að Islandi.
Sagði Stefán, að nú yrðu þeir
félagar að standa við orð sfn og
senda Auðbjörgu andvirði 10
punda.
Hafa orðið að hætta nýbygg-
ingu vega vegna úrkomu
VEÐURGUÐIRNIR hafa
leikið Vegagerð ríkisins
mjög illa á þessu sumri,
sérstaklega þó á Suður- og
Suðvesturlandi. Svo langt
hefur gengið að Vegagerð
ríkisins hefur orðið að
hætta nýbyggingu vega og
taka til við viðhald.
Snæbjörn Jónasson, yfir-
verkfræðingur Vegagerðar
ríkisins, sagði f samtali við
Morgunblaðið f gær, að
vegagerðin hefði orðið að
hverfa frá nýbyggingu veg-
ar yfir Holtavörðuheiði
vegna gífurlegrar úrkomu
að undanförnu. Sá flokkur
hefði verið settur í viðhald
vega á Vesturlandi.
Ástand vega á Suður- og Vestur-
landi er ákaflega slæmt og fólk
kvartar mikið undan holum af
eðlilegum ástæðum. Vegagerðin
reynir að hefla vegina eftir beztu
getu, en það hrekkur ekki til, um
leið og bílar aka vegina koma
holurnar á ný, sagði Snæbjörn.
Þá sagði Snæbjörn, að fyrir
norðan og austan væri ástand
vega einnig orðið slæmt, ekki
vegna úrkomu heldur vegna
MJÖG alvarlegt umferðarslys
varð á Draghálsi um kl. 18.30 f
gær. Tveir bílar skullu saman á
þurrka. Ekkert þýddi að beita
heflunum á það, því allt fyki af
vegunum. Þá væru vegir vfða
orðnir svo harðir að stór stykki
brotnuðu úr þeim og við það
kæmu slæm hvörf í þá, sem erfitt
væri að gera við í þurrkunum.
veginum. Samtals voru sjö manns
f bflunum og voru allir fluttir á
sjúkrahúsið á Akranesi. Við skoð-
un þar kom f Ijós, að tveir
mannanna voru mjög mikið
meiddir og var annar þeirra
fluttur með þyrlu varnarliðsins
til Reykjavfkur f gærkvöldi. Ekki
var þó talið að mennirnir væru f
Iffshættu, en þeir höfðu hlotið
mikil beinbrot aðrir farþegar f
bflunum munu hafa skorizt og
marizt.
Ekki er nákvæmlega vitað með
hvaða hætti siysið varð, en
bflarnir skullu saman þar sem
þeir mættust á veginum. 1 öðrum
bflnum, sem var jeppi úr Reykja-
vfk, voru fjörir, en f hinum
bflnum, sem var sendiferðabfll úr
Borgarfirði, voru þrfr. Fólkið sem
var f sendiferðabflnum, slasaðist
mest.
Mjög alvarlegt
umferðarslys
á Draghálsi
Einn var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur
Borgin samdi við
verkfræðingana
UM MIÐJA fyrrinótt tók-
ust samningar í kjaradeilu
Verkfræðingafélags ís-
lands og Reykjavíkurborg-
ar, en fundur hafði verið
boðaður hjá sáttasemjara
ríkisins kl. 17 í fyrradag
eftir alllangt viðræðuhlé.
Samninganefnd verkfærð-
inga samþykkti samn-
ingana með fyrirvara um
samþykki félagsfundar, en
samninganefnd borgarinn-
ar samþykkti samningana
með fyrirvara um sam-
þykki borgarráðs.
í samningan'efnd borgarinnar
varð þó klofningur, þar sem tveir
samninganefndarmenn skrifuðu
ekki undir samkomulagið. Aðrir
tveir samninganefndarmenn
skrifuðu þó undir. Samkvæmt
upplýsingum Torfa Hjartarsonar
mun ekki hafa verið djúpstæður
ágreiningur um niðurstöður
samninganna í borgarnefndinni,
en þessir tveir samninganefndar-
menn myndu þó gera sínar at-
hugasemdir.
Torfi Hjartarson vildi ekki
segja neitt um efnisatriði sam-
komulagsins, en hann kvaðst bú-
ast við því að samkomulagið yrði
lagt fyrir fund i Verkfræðingafé-
laginu á mánudag, en fyrir borg-
arráð yrði það lagt á þriðjudag.
13 14 al0!ó ellagrafík