Morgunblaðið - 28.11.1976, Page 12

Morgunblaðið - 28.11.1976, Page 12
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÖVEMBER 1976 Pólitískt leikhús, ed LEIKHÚS og leikhúsferðir er tvímælalaust einn stærsti þátturinn í menningarlífi okkar Íslendinga, sem og margra annarra þjóða. Það er því ekki óeðli- legt að leikhúsið og málefni þess séu ofarlega á baugi í almennum umræðum manna á meðal. Nú um nokkurn tfma hafa ýmsar nýjar hugmyndir verið á lofti hér á landi um gildi og hlutverk leikhúss- ins. Þessar hugmyndir hafa orðið mönnum tilefni til skoðanaskipta og ýmsir velta því fyrir sér, hver staða leikhússins í samfélaginu sé. Er markmið þess fyrst og fremst að þjóna listrænum tilgangi, skemmta fólki eða á það að þjóna póiitískum tilgangi, vera tæki til þjóðfélagshreytinga; eða er hlutverk þess kannski eitthvaðallt annað? í þessu samhandi hefur hugtakið „pólitískt leikhús" skotið upp koilinum og ekki eru allir á eitt sáttir um tilverurétt slíks leikhúss. Einnig virðist menn greina nokkuð á um hvaða merkingu ber að leggja í orðið „pólitískt leikhús“. Sumir segja að „allt leikhús sé í eðli sínu pólitískt", en aðrir halda því fram, að „pólitískt Ieikhús“ verði ávallt á kostnað listarinnar, þ.e.a.s. að listin víki fyrir boðskapnum. Vegna þessa máls sá Morgunhlaðið ástæðu til að leita til nokkurra þjóðkunnra leikara, sem allir hafa haft mikil afskipti af leikhúsmálum, og kynna sér sjónarmið þeirra í þessu efni. Þau fylgja þessum formála. Árni Tryggvason Ætti að eiga fullan rétt á sér, en ... EF hér ætti að vera pólitískt Ieik- hús, yrðu þeir, sem því stjórnuðu, að vera anzi viðsýnir, ef það ætti að þróast til einhvers gengis. Ég hygg að það eigi ekki míkla framtíð fyrir sér hér á landi eins og málum er háttað í flokkapóli- tfkinni. En auðvitað ætti það að eiga fullan rétt á sér. Við lifum jú í lýðfrjálsu landi. Gunnar Eyjólfsson „.. .Þá ráku valdhafarnir mig úr landi" StJ staðreynd að við Islendingar búum við lýðræði, tryggir rétt og tilveru svo þýðingarmikillar stofnunar sem pólitiskt leikhús á að vera. Raunverulegt lýðræði krefst þeirrar gagnrýni, sem felst í póli- tískri leikritun og aðeins lýðræði þolir slíka gagnrýni.' Sérhvert leikhús hefur ákveðið markmið eða á að minnsta kosti að hafa það. Ef taka á pólitískt leikhús alvarlega, hlýtur slíkt leikhús að lýsa yfir tilgangi sinum og móta alla starfsemi sína til þess að ná settu markí. Grimur falla fyrr eða síðar. Leikrit um frelsi er gott ef það leiðir til jafnréttis. Leikrit um jafnrétti er ófullkomið nema það leiði til bræðralags. Allt leikhús er pólitískt en opinberlega styrkt leikhús má aldrei verða flokks- pólitískt Að lokum hugleiðing: Pólitískt leikrit: Ég tók þátt I ritgerðasamkeppni um sögu þjóðar minnar I 1100 ár. Alríkislögreglan skilur ekki mál okkar svo ég hlaut 1. verðlaun. Lystireisu um Eyjahafið Gulag. Ilvíllk fegurð hvít og köld það vaxa villtar frostrósir á túndrunni. Gisting á einnar stjörnu lúxushóteli. Ilerbergin eru tandurhrein og loftkæld. Lýsnar drepast úr kulda nema þær sem hafa vit á að leita skjóls I handakrikum og nárum eða hungri nema þær sem nærast á blóðsvita túristanna. Matseðillinn: allt saman a la carte kartöflusúpa brauð og aqua naturelle Vatnið f sundlauginni hafði frosið til botns rétt áður en ég kom svo ég gekk út á fsinn og sjá: Eg gekk á vatni f 18 ár. Þegar ég kom heim skrifaði ég pólitiskt leikrit. Þá ráku valdhafarnir mig úr landi. Gunnar Eyjólfsson Guðrún Ásmundsdóttir Að ákveða að skipta sér ekki af lífinu sjálfu ÉG SKIL ekki almennilega þessa sérflokkun á leikhúsi, sem kallað er „pólitískt leikhús“, vegna þess að allar sýningar, sem höfða á einhvern hátt til þess samfélags, sem við lifum í, eru pólitískt leik- hús. Margir gefa þá yfirlýsingu í tíma og ótfma „að þeir skipti sér ekki af pólitík". Mér finnst þessi yfirlýsing ekki geta skilizt á annan hátt en að þetta sama fólk hafi ákveðið i eitt skipti fyrir öll að „skipta sér ekki af“ lífinu sjálfu. Leikhús, sem gæfi slíka yfirlýsingu, ætti harla erfitt með val á leikritum. Þvf hvað getur höfundur skrifað um, sem ekkert hefur með pólitík að gera? Um hjónabandið? Hversu margir erfiðleikar hjónabandsins hafa ekki einmitt með samfélagið, for- dóma þess og kröfur að gera? Um einsemdina? Erum við þá ekki einmitt komin á kaf í þetta svo- kallaða „kerfi", sem svo sannar- lega kemur pólitík við, — og þannig mætti lengi telja. Ef við tökum dæmi af þeim leikritum, sem sýnd eru í borg- inni í dag, þá vil ég segja að „Skjaldhamrar" og „Æskuvinir", jafn ólík verk og þau eru, hefðu samt hinn sama pólitfska kjarna, að gefa okkur tslendingum trú á okkar eigin verðmæti, f stað þess að einblfna alltaf á veikleika okkar og smæð gagnvart erlend- um stórveldum. „Nótt ástmeyj- anna“ og „Saumastofan" dæmast lfka pólitískar sýningar með sama vandamál, kvenréttindi. „Vojtsek" tekur fyrir vandamál lítilmagnans I þjóðfélaginu eins og niðurlæging hans getur orðið mest og það gerist reyndar líka í leikriti eins og „Ævintýri á gönguför" (Skrifta-Hans). Ut- koman verður þvf liklega sú, að allt lefkhús sé pólitískt leikhús. Sé átt við þurrt stagl um stefnu- skrá eins flokks, með nafninu „pólitískt leikhús", vil ég meina að slík skrif hafi ekkert með leik- hús að gera, en eigi frekar heima f leiðurum dagblaðanna. Hvað þá að slikt eigi skilið nafnið „póli- tískt leikhús". Herdís Þorvaldsdóttir Umfram allt að vera skemmtilegt ER ekki allt lífið á þessum hnetti okkar pólitík og þar með flest það, sem skrifað er fyrir leikhús? Leikhúsið hefur alltaf verið pólitfskt. Spurningin er ekki um það, heldur hvort það eigi að túlka einlitar flokkspólitískar skoðanir. Það á það ekki að gera, að mfnu áliti, hvorki bláar né rauðar. Það á að túlka ólíkar skoð- anir, hafa breidd. Það á að hafa uppeldislegt gildi og eiga erindi til fólks, kenna og vekja spurn- ingar. En um fram allt má það ekki vera leiðinlegt. Það er hægt að segja hlutina á margan hátt og oft er grin og háð beittara vopn en prédikun. Félagsfræðingar, sálfræðingar og uppeldisfræðingar í Evrópu og Ameríku hafa reynt að kanna áróðursgildi leikhússins f dag og hafa komizt :ð nokkuð svipaðri niðurstöðu, þ.e.a.s. að það sé fremur litið miðað við aðra fjöl- miöla. Þeir álíta að ástæðan sé aðallega sú, að flestir kaupa miða i leikhúsið og vilja láta skemmta sér. Fólkið tekur afstöðu til miðilsins og er á verði. Um leið og þvi leiðist er það orðið andsnúið þvf, sem fram fer. Sjónvarpið og útvarpið er hægt að loka fyrir ef fólki finnst það leiðinlegt, án þess að þvi finnist afnotagjaldinu vera sóað. Bók eða blað hefur oftast meiri áróðurshrif þar sem það stýrist algerlega af vali lesandans. Fyrr á öldum var þessu öðru vfsi farið. Þá var leikhúsið næst- um eini fjölmiðillinn til þess að koma skoðunum sfnum til fólks- ins, sem að mestum hluta var ólæst. Aristophanes, sem var uppi á fjórðu öld fyrir Krist, skrifaði há- pólitisk verk, t.d. „Skýin“, en í því verki er ráðizt heiftarlega á nokkra samtiðarmenn og þeir nefndir réttum nöfnum. Þeirra á meðal var Sókrates, sem var sak- aður um að spilla æskunni. Þvf hefur verið haldið fram, að þetta leikrit hafi átt sinn þátt f því, hvernig ævi hans lauk. Moliére, sem var uppi um miðja 17 öld, skrifaði beitt og háðskt ádeiluverk um samtfðarmenn sína. Má þar nefna Imyndunar- veikina, sem verið er að sýna núna. Þar ræðst Moliére á skottu- lækningar læknastéttarinnar.í þá daga og ádeilan heldur jafnvel gildi sínu enn þann dag í dag. Sum leikrit Moliéres voru bönnuð á hans dögum. Sama má segja úm fleiri höfunda, sem nú eru klass- fskir. Ibsen vakti mikla hneyksl- un og deilur með sfnum verkum, t.d. Brúðuheimilinu og Þjóðníð- ingi, sem var sýnt hér nýlega, en þau vandamál, sem þar er glímt við, valda engri úlfúð í dag. Bertolt Brecht (1898—1956) kom með pólitískar kenningar um hvernig leikhús ætti að vera og þó að hans kenningar værru um- deildar á sínum tíma og séu enn, þá hefur hann haft mikil áhrif á leikhúsið í dag. Að öllu þessu athuguðu er sjálf- sagt að leikhúsið sé leiðandi og taki þátt í samfélagsþróuninni eftir beztu getu, sé hringtorg hinnar pólitfsku umræðu dagsins á lifandi og skemmtilegan hátt. Þar með er það pólitiskt, svo svar- íð verður já. Leikhús á að vera pólitískt. Jón Sigurbjörnsson Flokkspólitískur ræðustóll — aldrei LEIKHUSI, sem nauðar á flokks- pólitískum kennisetningum og áróðri, er ég algjörlega mótfall- inn. Leikhús á að vera viðsýnt. — Það á auðvitað að spegla samtíð- ina. Það á að ráðast að óréttlætinu í þjóðfélaginu hvar sem það kem- ur fram umbúðalaust, ýmist með gríni eða alvöru, en alltaf á list- rænan hátt. — En flokkspólitískur ræðu- stóll — aldrei. Enginn einn flokk- ur á að mínu viti skilið slíkt áróðurstæki. Þeir verða að láta sér nægja æskulýðsfélögin sem uppeldisstöðvar!! Klemenz Jónsson Þar þrífst aldrei sönn list SEGJA má að flest leikhúsverkin séu pólítisk að einhverju leyti ef grannt er skoðað. Pólftikin smeygir sér alls staðar inn í ein- hverri mynd. Ekkert á heldur að vera nútfma leikhúsi óviðkom- andi. Þar á að ríkja lýðræðislegur andi og frjálshyggja. En hóf er bezt á öllum hlutum, einnig I leik- húsinu. Þar sem ákveðin stjórnmálaöfl ná yfirráðum yfir lefkhúsum og túlka einhliða stjórnmálalega skoðun flokki sfnum og stefnu til framdráttar, þar er að mínu mafi voðinn vís. Þess vegna er ég mót- fallinn pólitizku leikhúsi, þar sem listin verður að lfða fyrir pólitískt ofstæki. Þar þrffst sönn list aldrei til lengdar því loftið er lævi blandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.