Morgunblaðið - 28.11.1976, Síða 13

Morgunblaðið - 28.11.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NOVEMBER 1976 53 Róbert Arnfinnsson Listrænn tján- ingarmáttur aðalatriðið I eðli sinu er leíkhús pólitiskt að þvi leyti að þar eru iðulega tekin til flutnings verkefni, sem fela í sér umfjöllun, gagnrýni og af- stöðu til ýmiss konar stjórnmála- legra eða þjóðfélagslegra málefna og vandamála af ýmsu tagi, en það leggur að sjálfsögðu fyrst og fremst áherzlu á listrænan tjáningarmátt sinn í slikum verk- um, ekki siður en öðrum. Þannig hefur gott leikhús alltaf verið og þannig á það að vera í frjálsum löndum. Dæmi um gott pólitískt leikhús- verk er hið frábæra og sigilda leikrit Ibsens, „Þjóðníðingurinn". Hin nútimalega og algengari merking hugtaksins „pólitískt, leikhús“ eins og tíðkast í ein- ræðis- og lögreglurlkjum, svo sem var i Þýzkalandi á tímum nazitanna og er sennilega i flest- um kommúnistarikjum í dag. Slíkt leikhús á, sem betur fer ekki erindi til okkar — og persónulega á ég enga ósk æðri til handa ís- lenzku leikhúsi en að listrænn vegur þess megi sifellt eflast og dafna, en með þvi móti einu auðn- asíítþvi að risa upp úr tímabund- inni flatneskju og um leið að hrista af sér þá flokkspólitisku óværu, sem farin er að valda hvimleiðum kláða í íslenzku nú- timaleikhúsi. Steindór Hjörleifsson „Pólitískt leik- hús" er ekkert lausnarorð syning Leikfélags Reykjavikur á leikritinu „Æskuvinir“ eftir Svövu Jakobsdóttur hefur vakið mikla eftirtekt og orðið gagnrýn- endum og leikhúsgestum tilefni til umræðu um hugtakið „póli- tiskt leikhús“. Á síðari árum hef- ur þessi umræða um pólitiskt og þjóðfélagslet gildi leikhússins vaxið óðum og sú krafa er gerð til þess, að það taki markvissari þátt í þvi að kryfja félagsleg og póli- tisk vandamái sinnar samtiðar, — taki afstöðu og beiti listrænum mætti sínum til að hafa áhrif á skoðanir áhorfenda. Það er kannski engin goðgá að halda því fram að skáld og listamenn séu öðrum næmari á þessi marg- nefndu félagslegu vandamál og pólitísku strauma. Leikverk, sem flytja okkur hagnýtan boðskap og ádeilu, sem sprottin eru úr póli- tiskri umræðu dagsins geta þvi sagt okkur dýrmætan tímabæran sannleika, en þurfa að sjálfsögðu nokkra tímanlega fjarlægð til þess að sanna eða afsanna varan- legt gildi sitt. Aðaltilgangur ádeilu eða „pólitiska" leikhússins er auðvitað að vera innlegg í bar- áttuna hverju sinni. í þeim til- gangi hafa margir höfundar, sem síðar hafa orðið klassiskir, skrifað leikrit sin.. . Ibsen, Shaw, Kaj Munk, Brecht, Odets, Miller — jafnvel Shakespeare, svo örfá nöfn séu nefnd. í langri sögu leik- hússins hafa kóngar, keisarar og kirkja notfært sér það i barátt- unni um völd og áhrif. „Pólitiskt" leikhús er samt ekkert lausnarorð og getur jafnvel orðið „boomer- ang“ og haft þveröfug áhrif við tilganginn, ekki síður en þegar alræði og auður vill meta leikhús- ið sem pólitiskan predikunarstól. Má ég minna á sósíalrealismann í Sovétrikjunum, þar sem Flokkur- inn ákveður hvernig listin á að vera, ljóð, leikrit, málverk, — jafnvel byggingarlist. Og aldrei hef ég átt nöturlegri stund í leik- húsi, en þegar ég horfði á amer- íska sýningu á vegum „Moral Rearmament" hreyfingarinnar, sem átti að sýna hvað Rússarnir væru vondir og hættulegir!!! I greinargerð frá Leikarafélagi Þjóðleikhússins, sem birtist að gefnu tilefni í vetur, sagði svo: „Við lýsum yfir þvi, að það sé ekki aðeins réttur leikhúss i lýð- ræðisriki, heldur beinlínis skylda að taka til meðferðar verk, sem lýsa ólíkum sjónarmiðum og bera vitni þeim andstæðum, sem búa í þvi þjóðfélagi, sem rekur þetta leikhús. Allt leikhús er i eðli sínu pólitiskt. Þjóðleikhúsið má hins vegar aldrei vera flokkspólitískt.“ — Þetta er að minu mati mergur- inn málsins. Ádeilan, sem felst í leikritinu „Æskuvinir", á dvöl er- lends herliðs í landinu og siðspill- andi áhrif þess er engin flokks- pólitik. Andstæðingar herstöðvar- innar eru úr öllum flokkum. Leik- húsmenn hljóta að fagna hverju því leikriti, sem örvar áhorfendur til sjálfstæðrar afstöðu til þeirra mála, sem efst eru á baugi hverju sinni og þetta málefni eru von- andi allir sammála um að sé um- hugsunarvert. L.R. hefur áður flutt leikrit af svipuðum toga, — ég nefni Atóm- stöðina (H. Laxness), Minkana (Erl. Halldórsson) og Skjald- hamra (Jónas Arnason). Sem inn- legg í umræðu um kynþáttafor- dóma (sem fjölmiðlar hafa nýlega fullyrt að hér finnist) má nefna leikritin ,,Hitabylgja“ og „Djúpt liggja rætur“. Þegar það leikrit var frumsýnt, sagði einn gagnrýn- andi, að efni þess væri okkur Is- lendingum framandi og ætti ekki erindi við íslenzka leikhúsgesti. Tveimur dögum seinna var aug- lýst á dyrum eins aðalhótels borgarinnar, að svertingjar fengju ekki aðgang þar. Sagt var að það væri að ósk einhverra amerískra offísera, sem þangað vöndu komu sínar. Þessi maka- lausa auglýsing var reyndar fjar- lægð fljótlega af góðum mönnum. L.R. er sameign Reykvikinga og þarf auðvitað hér eftir sem hing- að til að bjóða þeim upp á sem Framhald á bls. 54 Og hvað verður um vini okkar? Og hvað verður um þig og mig? WOLF BIERMANN NÝTT BRÉF TIL REINERS KUNZE Þetta bréf berst þér varla. En ég sé þig sitja í herbergi þínu í Greiz, blaðið autt í ritvélinni, og myndirnar á veggnum af skáldbræðrum þinum og vinum horfa á þig Þú varar á einum stað Tékkann Jan Skácel við því, (hann sem orti Ijóðið um villigæsirnar), að senda stór póstkort og skrifa of mikið á þau. Þú segir: Ég veit. Pósturinn sem þú yrkir svo oft um kemur að húsinu við Franz-Feustel götu. Við skulum vona að það sé hann, en ekki þeir sem Biermann söng um í Vænstu ekki betri tíma. Þú yrkir á öðrum stað um dauðann: Einn morgun hringir hann dyrabjöllunni í gervi póstsins. Og þú segir við hann: Bíddu þangað til pósturinn hefur komið. Þú hreifst af íslensku frímerkjunum: Húsafellsskógi Ásgríms. Á myndinni sem þú sendir mér brosirðu eins og jafnan. Ef þetta bréf berst þér veistu að ég hugsa um þig og þakka þér fyrir bókina Die wunderbaren Jahre. Hvenær koma þau? Hvenær kemur pósturinn með þau? Þá heldurðu honum hátíð eins og þú hefur lofað og græn frímerki blómstra út í kringum ykkur. Hér er mildur vetur og senn aðventa. í gær fór ég með dætrum mínum til að skoða jólasveinana í gluggum verslananna í Reykjavík. í einum þeirra var trúður. Tákn samvisku okkar? Kannski minnir hann bara á sumarleyfi í útlöndum? Hvað segir dóttir þín, ef þú færð ekkert bréf? JÓHANN HJÁLMARSSON GALANSKOV Júrí Galanskov skáld lézt í Síberíu eftir að honum hafði verið neitað um læknishjálp, en samfangar hans reyndu að skera hann upp. Ég kynntist þér látnum í verki eftir Viktor Sparre, það var vetur á næstu grösum í minni sál og þögnin í myndinni þung og náköld sem stál og þú varst svo óralangt burtu og lifinu fjarri, samt kynntumst við hér og konu sem grét í hljóði og kvöl sem gengur aftur í næsta Ijóði (ég horfði á fjóra fylgja þér einum til grafar, nú fylgir þú skömm vorra tíma í úthelltu blóði þess fórnaða manns sem var fangi og öðrum til tafar). En flugnasuð og gaddavírsrunni sem vex í minningu skálds og fangelsiskuldi og kex eru kveljandi tákn um hættu sem mönnum stafar af þrælabúð þar sem óþekkta stærðin er X. MATTHÍAS JOHANNESSEN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.