Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976
5
Jakob Hafstein
sýnir á Borginni
JAKOB Hafstein hefur opnað
málverkasýningu á Hótel Borg
og mun sýningin standa fram
að Þorláksmessu. Að sögn
Jakobs er þetta í fyrsta sinn,
sem málverkasýning er haldin
á Borginni, en sýningin er á
herbergi 101.
Jakob sýnir að þessu sinni 26
vatnslitamyndir og eru þær
allar frá ýmsum stöðum á
Islandi utan 4, sem eru málaðar
á Mallorca. Þá er á sýningunni
ein mynd, er ber nafnið „Rauða
hættan" og er hluti af seriu,
sem Jakob kvaðst vera að vinna
að um þjóðfélagsleg málefni.
Ekki sagðist Jakob þó hafa
hugsað sér að gerast pólítískur
málari. Myndirnar eru aliar til
sölu og sýningin er opin allan
daginn og fram til kl. 10 að
kvöldinu til.
Siglufjörður:
SR varð að hætta bræðslu
vegna skorts á hráolíu
SlLDARVERKSMIÐJUR rfkisins
á Siglufirði verða að hætta loðnu-
bræðslu f dag vegna skorts á
svartolfu, en f kringum 1000 tonn
af loðnu munu vera f þróm verk-
smiðjunnar. Svartolfa er ekki
væntanleg til Siglufjarðar fyrr en
um helgi og verður þvf ekki byrj-
að að bræða á ný fyrr en eftir jól.
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sildarverksmiðja
ríkisins, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að svartolfa
hefði ekki fengizt flutt til Siglu-
fjarðar vegna skorts á olíuskip-
um. Aðeins eitt olfuskip hefur að
undanförnu verið f olíuflutn-
ingum út á iand, en hin tvö skip-
in, sem þessa flutninga annast,
munu vera í flutningum erlendis.
Að sögn Jóns kemur svartolfa
til SR á Siglufirði ekki fyrr en um
og eftir helgi og þvf yrði loðnan
sem geymd væri í þróm verk-
smiðjunnar vart brædd fyrr en
eftir jól. Sá tfmi væri kominn að
gott væri að geyma hráefnið og
þvf ætti ekki vera neitt verra að
geyma hráefnið nú en á vetrar-
vertfð.
Þá sagði Jón Reynir, að loðnan,
sem borizt hefði til Siglufjarðar
— 2000 lestir komu þangað f fyrra
dag — væri ágætis hráefni, að
vfsu væri loðnan örlftið farin að
missa fitu, en þó væri það mis-
jafnt.
Alviðrumálið:
Gerdarbeidandi
búinn að skila
gögnum í málinu
MORGUNBLAÐIÐ hafði f gær
samband við Eggert Óskarsson,
setudómara f útburðarmáli þvf,
sem kennt er við bæinn Alviðru f
ölfushreppi, og spurði hann um
gang mál.
Sagði eggert að sýslumaður
Árnessýslu og eigendur Alviðru
hefðu á fimmtudaginn lagt fram
gögn til stuðnings þeirri beiðni að
núverandi ábúandi, Helgi
Þórarinsson, yrði borinn út af
jörðinni. Hefur Helga nú verið
veittur frestur fram f janúar til að
skila gögnum.
Grísk fræði
á íslandi
Á AÐALFUNDI Hins íslenzka
bókmenntafélags, sem haldinn
verður f dag, laugardaginn 18.
desember klukkan 14.00 að Hótel
Sögu, flytur Kristján Árnason
menntaskólakennari erindi um
grfsk fræði á Islandi.
Þess má geta, að nýútkomið er
hjá bókmenntafélaginu rit grfska
heimspekingsins Aristotefesar
um skáldskaparlistina, en það er
fyrsta rit hans, sem þýtt hefur
verið á fslenzku.
P. Björnsson G.
Sögur úr dulheimum
„Mér varð litið á fjórðu flösk-
una og sá, að hún var hvað skraut-
legust af þeim öllum. Á flöskunni
var mynd af sérkennilegu kletta-
belti, en út úr berginu steig falfeg
stúlka f skrautklæðum. 1 annarri
hendi hélt hún á bikar, er hún
rétti brosandi að ungum manni,
er stóð þar rétt hjá. A bikarinn
var letrað með gylltum stöfum
Töfradrykkur." Þessi lýsing er úr
einni af sögunum í bókinni „Tfu
sögur úr dulheimum" eftir P.
Björnsson G. frá Rifi sem nýlega
hefur komið út. Eins og nafnið og
kaflinn hér að ofan bera með sér,
segir í bókinni frá ýmsum undar-
legum og dularfullum atburðum
og fólki, sumu framliðnu. Bókin
er 116 blaðsfður og er prentuð f
Víkingsprenti h.f.
Saumavélin sem eerir alla saumavinnu einfalda er
NECCHI
NECCHIL YDIA 3 er fullkomin sjálfvirk saumavél með fríum armi.
NECCHILYDIA 3ersérlega auðveldínotkun. Meðaðeinseinum takkamáveljaum 17mismunandi
sporgerðir.
NECCHILYDIA 3mánotaviðaðsauma, falda, þrceða, festaátölur, gerahnappagötogskrautsaum
auk sauma sem henta öllum nýtízku teygjuefnum.
NECCHI LYDIA 3 vegur aðeins um 11 kg með tösku og fylgihlutum, og er þvíeinkar meðfcerileg í
geymslu og flutningi.
NECCHI LYDIA 3 fylgir fullkominn íslenzkur leiðarvísir. 40 ára reynsla NECCHI á íslenzkum
markaði tryggir góða varahluta- og viðgerðaþjónustu. Góð greiðslukjör -
Fást einnig víða um land. NECCHIL YDIA 3 kostar aðeins kr. 55.875, -
Fálkinn
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
$2
Þl AIGLYSIR LM ALI.T LAND ÞEGAR
Þt' AL'Gl.YSIR I MORGI NBI.AOIM