Morgunblaðið - 18.12.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.12.1976, Blaðsíða 15
Land, sem heitir r Island Plúpp fer til tslands. Saga og myndir: Inga Borg. Þýðing: Jðn Jóhannesson. Almenna bðkafélagið 1976. — PLtJPP er lítill huldusveinn, ósýnilegur mönnum, en ekki dýrum og getur talað við hvaða dýr sem er — Þannig byrjar höfundurinn Inga Borg sögu slna um Plúpp, sem á heima milli hárra fjalla norðarlega I Svíþjóð. Þessi huldusveinn, — Sem ætlar í vorferð til Atlantshafsins —. Gengur fyrst yfir hálendi Noregs og Svíþjóðar, þar til hann kemur að sjávarþorpi sem stendur við fjörð nokkurn. Stóra skipið sem lá við bryggjuna kom frá Islandi. — Hann braut heilann um hvernig land, sem héti tsland, liti út. — Svo hefst ferðasaga litla huldusveinsins til íslands. Skemmtileg og viðburðarik saga, sem útlenskur rithöfundur hefur skrifað um landið okkar. Hún er skrifuð af næmleika og hlýju, sem er vandasamt að ná fram, af þeim er landið hefur ekki alið. Þeim er ekki hefur litl- um fótum stigið I döggvott gras, eða snjóinn, eða átt sínar sorgir og gleði með landinu sínu. Höfundur dregur fram skýrar MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBERJ976 Bókmenntir eftir JENNU JENSDÓTTUR Bðkmenntlr eftir GUÐMUND G. HAGALÍN Björn J. Blöndal Unaðsniður eflunnar hvítu myndir af hinu undarlega sam- blandi landsins, fs og eldi. Byrjar á Surtsey. Máfurinn segir Plúpp hvernig líf tekur smám saman að myndast þar. — Loks reyna agnarlítil blóm að festa hér rætur. Sá dagur kemur að hér verður gróðursæl eyja með blómum og fuglamergð, eins og eyjarnar hér I kring —. Þær eru ekki ýkja margar dýra- tegundirnar á íslandi, sem verða útundan hjá höfundi. ÖIl hafa dýrin sína sögu að segja Plúpp um landið. Það er eftirtektarvert að höfundur sneiðir hjá þéttbýlinu, en reynir að gefa sem gleggsta mynd af margbreytilegri ósnort- inni náttúru landsins, strjál- býlinu og dýralífinu. Landið kemur því hreint og ómengað fyrir sjónir þeirra er lesa bókina. Texti og sérlega vel gerðar myndir 'eru oft svo samofin að gaman er að. Með þessum bakgrunni sýnir höfundur ljóslega hve næmt auga hans hefur ráðið frásögninni. Þessi bók er góð kynning á landinu okkar um leið og hún er vel úr garði gerð. Við getum verið þakklát höfundi sem kynnir það ungum lesendum lands síns. Og Almenna bókafélagið á þakkir fyrir að gefa hana út á islensku. Björn J. Blöndal: SVANASÖNGUR Setberg, Reykjavfk 1976. BJÖRN J. Blöndal bregður sér I dulbúning i þessari bók sinni. Hann lætur sem hann rýni í guln- uð blöð látins hollvinar og búi þau undir prentun. Vinurinn hét Sig- urður. Hann hafði veikzt og feng- ið það ráð hjá lækni sfnum að fara vel með sig í hálft annað ár. Hann var allvel fjáður, hafði dottið i lukkupott dansks happdrættis, og svo settist hann þá að í litlu veiði- húsi, sem hann átti við elfu eina mikla, sem auðsjáanlega er engin önnur en Hvítá i Borgarfirði. Þar dvaldi hann einn, en til hans kom með matföng frá næsta bæ gömul kona, Guðrún að nafni, tvisvar, þrisvar f viku, og kemur hún mik- ið við sögu, enda var hún ekki aðeins fróð um margt af sögusögn annarra og það, sem allir fengu séð, heldur og á sitthvað, sem annarra augum var dulið. En fleiri komu í veiðihúsið. Sumir voru ýmissa erinda, en stöku mað- ur fékk að stunda þarna laxveiði með Sigurði. Allir kunna þeir frá ýmsu að segja, af veiðiskap og öðrum athöfnum þeirra, sem þeir eru f tengslum við eða haf a sagnir af, og koma þarna við sögu er- lendir menn, sem voru að ýmsu sérlegir. Af þeim, sem Sigurður leyfði að veiða, nefnir hann einn þjóðkunnan mann og bregður upp eftirminnilegri mynd af honum. Sá maður er Stefán Eiríksson, hinn frábæri tréskurðarmeistari, sem var ekki aðeins manna skurð- hagastur heldur og sérstæður persónuleiki, söguglaður og með afbrigðum áhugasamur um veiði- skap. En hvort sem Gunna gamla, sem annast vistaflutning í veiði- húsið, er hugarsmið bókarhöfund- ar eða hefur raunverulega verið til, þá er hún honum næsta þörf sem fulltrúi alþýðunnar frá lið- 15 . inni tíð, þess fólks, sem fátt eitt hafði lært á bók, en margt af munni karla og kvenna, sem fróð voru í alþýðlegum fræðum og sem raunar hún sjálf læs á það, sem skráð var f öndverðu á lögmáls- töflur náttúrunnar, sumt skýru letri en annað dulrúnum. Hún hefur og ánægju af að segja frá, og um frásagnarhátt orðfæri og skipskyn sver hún sig vissulega i ætt Björns Blöndals! Svo sem þegar hefur verið get- ið, stundar Sigurður eingöngu laxveiði og þá fyrst og fremst sér til hressingar og heilsubótar, og þvf verður veiðiskapur hans all- rúmfrekur f bókinni. Hann er ær- ið glöggur og þjálfaður veiðimað- ur, og þess vegna er þarna margt að læra um hinn fagra fisk og þær aðferðir og þau viðbrögð, sem henta við hinar ýmsu og stundum óvæntu aðstæður. Almennur lesandi mun þó njóta best þess, sem fram kemur i sam- tölum Sigurðar við Gunnu og suma aðra gesti, enda kennir þar margra grasa. En ekki uni ég mér sfzt með „Sigurði" þar sem hann við unaðsnið elfurinnar hvitu nýt- ur dásemda náttúrunnar, er hann lýsir með látlausu og heillandi tungutaki. Fyrsti kafli bókarinnar hefst þannig: „Fyrstu geislar vorsólarinnar roða fjallatindana í austri. Fljót- lega vekja þeir djúpa dali og vfðar sveitir. Næturdöggin þung og höf- ug beygir stráin til jarðar. Það var heitur dagur f gær. Og nú er vor. Andvari lfður yfir landið og deyr. Það er kveðja næturinnar. Síðasta ljóð. Ég geng eftir grænni jörðinni og hlusta á morgunsöng fuglanna. Hann er alltaf nýr og eldist ekki. Svo mun það verða að hinzta degi.“ Svo er þá kvöldið: „Ég sezt á þúfu á árbakkanum. Horfi á strauminn, og sál mín fer með honum inn á lönd kyrrðar og fegurðar. Þar er allt, sem menn- irnir þrá. Þá hverfur það, sem angrar og særir. Jafnvel er hægt að heyra fótatak Guðs, er hann blessar jörðina á þessu góða vori.“ JÓN AUDUNS LlF OG UFSVIÐHORF «»««< Séra Jón Auðuns, frjálshyggju- maður í trúmálum, orðsnjall í ræðu sem riti, rekur hér æviþráð sinn.Hann segir frá uppvaxtar- og námsárum, afstöðu til guðfræði- kenninga, kynnum af skáldum og menntamönnum og öðru stór- brotnu fólki og hversdagsmann- eskjum, sem mótuðu lífsviðhorf hans og skoðanir. E4ÐIR/V1INN SKiPSTJÖPiNN Fjórtán þættir um fiskimenn og farmenn, skráðir af börnum þeirra. Þeir voru kjarnakarlar, þessirskipstjórar,allir þióðkunnir menn, virtir og dáðir fyrir kraft og dugnað, farsælir í störfum og urðu flestir þjóðsagnapersónur þegar í lifanda lífi. - Ósvikin og saltmenguð sjómannabók. ÞÖliODDUIÍ «a D>UM>SM*\ HÚSFREYJAN A SANOI Fagur óður um móðurást og makalausa umhyggju, gagnmerk saga stórbrotinnar og andlega sterkrar og mikilhæfrar alþýðu- konu, saga mikilla andstæðna og harðrar en heillandi lífsbaráttu, þar sem togaðist á skáldskapur og veruleiki, því Guðrún Oddsdóttir vai eiginkona skáldbóndans Guð- mundar á Sandi. GL.ITRAR GUL.L.ÍO Hfemrittlnar c-g oojf'k.'Mf J-Qi,' or tiir Opinskáar og tæpitungulausar sögur úrfórumævintýramannsins og frásagnarsnillingsins Sigurðar Haralz, mannsins sem skrifaði Emigranta og Lassaróna. Fjöldi landskunnra manna kemur við sögu, m.a. Brandur í Ríkinu, Sigurður i Tóbakinu, Þorgrímur í Laugarnesi og þúsundþjalasmið- urinn Ingvar fsdal. FARMAÐUR I fhioi oo stríoi Jóhannes fer hér höndum um sjóferðaminningar Ólafs Tómas- sonar stýrimanns frá þeirri kvöld- stund að hann fer barn að aldri í sína fyrstu sjóferð á Mótor Hans og til þeirrar morgunstundar að þýzkur kafbátur sökkti Dettifossi undir honum í lok síðari heims- styrjaldar. - Hér er listileg frásögn og skráð af snilld. Einn allra mesti fjallagarpur og ævintýramaður heims segir frá mannraunum og hættum. Bók hans er skrifuð af geislandi fjöri og leiftrandi lífsgleði og um alla frásögnina leikur hugljúfur og heillandi ævintýrablær, tær og ferskur eins og fjallaloftið. - Þetta er kjörbók allra, sem unna fjall- göngum og ferðalögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.