Morgunblaðið - 18.12.1976, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976
TKYGGDA
PANTUUA
Þotbjörg
frá Biekkum
Arthur Hailey:
BANKAHNEYKSLIÐ
Nú hefir höfundur metsölubókanna HÓTEL,
GULLNA FARIÐ (AIRPORT) og BÍLABORG-
IN sent frá sér eina af sfnum mest spenn-
andi skáldsögum. Þó hér sé fjallað um
banka í Ameríku, þá er eins og ýmislegt
komi íslenzkum lesanda býsna kunnuglega
fyrir sjónir. Arthur Hailey kann þá list að
gera sögur sínar svo líkar raunveruleikan-
um og jafnframt svo spennandi, að lesand-
inn er sem á nálum meðan á lestrinum
stendur. Og BANKAHNEYKSLIÐ gæti jafn-
vel hafa gerzt í gær. Verð kr. 2.880.
Páll H. Jónsson:
ÚR DJÚPADAL AÐ ARNARHÓLI
Þetta er sagan um aldamótamanninn og
athafnamanninn Hallgrim Kristinsson, fyrsta
forstjóra Sambandsins, sem auðnaðist að
lyfta mörgum Grettistökum fyrir samvinnu-
hreyfinguna meðan hans naut við, en hann
andaðist fyrir aldur fram, aðeins 46 ára.
Þetta er stórfróðleg og vel skrifuð ævisaga,
prýdd fjölda mynda. Verð kr. 3.960.
Sigurd Hoel:
UPPGJÖRIÐ
Ármann Kr. Einarsson:
FRÆKILEGT SJÚKRAFLUG
Hér kemur í nýjum búningi ein af vinsæl-
ustu sögum Ármanns um þau Árna og Rúnu
í Hraunkoti. Látið engar bækur vanta í rit-
safn Ármanns Kr. Einarssonar. — Verð kr.
1.800.
Hreiðar Stefánsson:
BLÓMIN BLÍÐ
Stór og falleg myndskreytt barnabók. Til-
valin handa börnum sem eru að læra að
lesa. Verð kr. 1.440.
Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi:
HUGSA DÝRIN?
I þessari skemmtilegu bók, segir Guð-
mundur Þorsteinsson frá Lundi margar
sögur af samskiptum manna og dýra, og
leiðir sterk rök að því, að dýrin séu ekki
eins „skynlaus" og sumir hálærðir „spek-
ingar" vilja vera láta. Kærkomin bók öllum
dýravinum. Verð kr. 1.800.
Ingibjörg Sigurðardóttir:
BERGLJÓT
Þetta er nýjasta ástarsaga hinnar vinsælu
skáldkonu og sú 17. í röðinni. Flestar fyrri
sögur Ingibjargar eru löngu uppseldar. —
Verð kr. 1.920.
Þessi skáldsaga hins kunna, norska rithöf-
undar, er persónulegust og ristir dýpst af
bókum hans. Þetta er raunsönn ástarsaga,
átakanleg, djörf og spennandi. En Sigurd
Hoel grípur efnið þannig tökum, að lesand-
inn vill gjarnan hafa bókina f bókaskápnum,
bók til þess að grípa til aftur og aftur. Verð
kr. 2.640.
Þorbjörg frá Brekkum:
TRYGGÐAPANTURINN
Það var ást við fyrstu sýn. En þrátt fyrir það
eru mörg Ijón á vegi þeirra Rúnars og Katr-
ínar áður en þau ná endanlega saman. Til-
valin bók handa ungum elskendum. Verð
kr. 1.920.
Bókaforlag Odds Björnssonar
Jenna og Hreiðar:
JÓN ELÍAS
Hann Jón Elías var reyndar rauðhærður og
freknóttur, Iftill cg grannvaxinn, en fullur
af tápi og fjöri. Þetta er kjörin bók handa
yngstu kynslóðinni, prentuð með stóru og
greinilegu letri og fallega myndskreytt. —
Verð kr. 1.440.
Þessi mynd af Pétri Hoffman er
tekin f sumar þar sem flestir
höfuðborgarbúar munu hafa
iabbað fram á hann f góða
veðrinu. Svo sem sjá má skartar
Pétur júnfforminu merka, en það
minnir menn á að Pétur var
sjóhetja.
Ævisaga
Péturs
Hoffmans
PÉTUR Hoffman Salómonsson
leit við hér á ritstjórninni nýlega
og sagðist vilja færa lands-
mönnum þær fréttir að hann
hefði fáein eintök af ævisögu
sinni „Þér að segja“ til sölu.
Sagðist Pétur hafa keypt þau
óinnbundin eintök sem eftir
hefðu verið hjá forlaginu, og
fengið þau sfðan bundin inn í
fallegt band. Hefði hann því til
sölu nokkur eintök á kostaverði,
2000 krónur. Pétur biður fólk sem
áhuga hefur fyrir því að kaupa
eintak af ævisögu sinni að koma
heim til sín, og það biður hann þá
að gera einnig sem pantað hafa
hjá honum eintak, því hann segist
vera farinn að árast og nú í
skammdeginu fyrir jólin eigi
hann erfitt með að ferðast.
Pétur segir það litlum vand-
kvæðum háð að rata á íbúð hans,
sem er í kjallaranum að Berg-
staðastræti 8, þ.e. á horni Berg-
staðastrætis og Hallveigarstágs,
þvl útidyrahurðin er máluð i
fánalitum.
Pétur Hoffman segist auk
hinnar merku ævisögu hafa til
sölu heima hjá sér ýmis fyrsta
dags umslög, minnispeninga
(taflpeningurinn) auk gamalla
bankaseðla.
Aðventu-
stundir
— í Reykjavík
og Hafnarfirði
LAUGARDAGINN 18. desember
kl. 22:15 verður aðventustund f
Frfkirkjunni f Reykjavfk.
Nokkur undanfarin ár hafa
slfkar helgistundir verið haldnar I
Reykjavfk síðasta laugardag fyrir
jól eftir lokun verzlana f umsjá
Kristilegra skólasamtaka og
Kristilegs stúdentafélags. I ár
hefur Æskulýðsstarf þjóðkirkj-
unnar einnig verið með f undir-
búningi og er tilgangur þessara
stunda að minna menn á boðskap
jólanna og gefa þeim tækifæri tl
að koma saman á hljóðri stund f
tilbeiðslu og söng meðan jólaund-
irbúningur stendur sem hæst.
Meðal efnis er almennur söng-
ur, trompetleikur, ritningarlest-
ur, hugleiðing og Kór öldutúns-
skóla syngur.
MANUDAGINN 20. desember kl.
21:00 verður sams konar stund f
Hafnarf jarðarkirkju.
Vonast þau félög sem að þess-
um samkomum standa til þess að
margir finni hjá sér þörf fyrir að
taka þátt f þessum stundum og,
gefi sér tfma til að eiga hálfrar
klukkustundar helgistund f
kirkju við kertaljós rétt fyrir jól.