Morgunblaðið - 18.12.1976, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976
47
KARFAN
KOMIN ÚT
NYLEGA kom út körfuknattleiks-
blaðið „Karfan", en það var 3. tbl.
2. árgangs og er gefið út af nokkr-
um ungum og áhugasömum
mönnum um körfuknattleik. Þeir
hafa gefið blaðið út nú um
tveggja ára skeið og hefur það
tekið miklum framförum á þeim
stutta tíma og er nú i fyrsta sinn
prentað á vandaðan pappir og sett
i dálka og er frágangur allur hinn
bezti. Blaðið prýða margar góðar
myndir auk ýmiss konar fróðleiks
um körfuknattleik bæði inn-
lendan og erlendan.
Þar sem þetta er hið eina blað
um körfuknattleik, sem gefið er
út hér á landi, ættu þeir sem
áhuga hafa á íþróttinni tvimæla-
laust að kaupa blaðið sér til
skemmtunar og fróðleiks.
HG
ÞÆR fregnir berast frá Suður-
Afríku að Gabashane Rakabaele
frá Lesotho hafi unnið þar-
lenzkan meistaratitil i maraþon-
hlaupi fyrir svarta hlaupara á
tfmanum 2:12,33 klst. Sá tfmi
hljómar svo sem ekkert sérstak-
lega fyrir kunnuga, nema það að
hann ber vott um ágætisárangur.
Þegar þó betur er að gáð, þá
kemur í ljós að Rakabaele hljóp
þetta hlaup mjög hátt yfir sjávar-
máli, og er þvi timi hans talinn
vera bezti árangur sem náðst
hefur á þessari vegalengd, þegar
tekið er tillit til aðstæðna, þ.e.
hins þunna lofts. Má til saman-
burðar taka sigurtíma Mamo
Wolde í Mexiko, en hann var
2:20,26 klst., en það hlaup fór
fram við svipaðar aðstæður. Báðir
koma þeir Mamo Wolde og
Gabashane Rakabaele frá land-
svæðum sem liggja hátt yfir
sjávarmáli, og eru þvf vanir slík-
um aðstæðum.
Sérstakur landmælingamaður
var fenginn til að mæla vegalengd
hlaups Rakabaele, og staðfesti
hann að vegalengdin hefði verið
nóg, þ.e. 42.135. km.
Það hefur löngum þótt erfitt að
bera saman árangur i maranþon-
hlaupi, þvi vegna leiðanna, sem
hlaupnar eru, verða hindranir á
veginum alltaf mjög misjafnar.
Af þessum sökum eru ekki stað-
fest nein heimsmet i greininni,
heldur afrekin aðeins „skráð"
eins og það heitir á máli statist-
ikkinar. Beztum árangri sam-
Framhald á bls. 32
Bandarfska háskólaliðið
Guðmundur K. Uuðmundsson
Athyglisvert
hástökk
Á innanfélagsmóti FH sem fram
fór 13. desember s.l. náði korn-
ungur piltur, Guðmundur R.
Guðmundsson, mjög athyglisverð-
um árangri f hástökki, er hann
stökk 1,94 metra. Bezt átti hann
áður 1,86 metra, og þykir það
meira en Iftið að bæta sig um 8
sentimetra milli móta f þessari
fþróttagrein.
Guðmundur er aðeins 17 ára að
aldri og á þvf enn eftir ár f
drengjaflokki. Ætti hann að ráða
við Islandsmet Elfasar Sveins-
sonar f þeim aldursflokki áður en
langt um Ifður, en það er 1,96. Á
sama móti setti Sigurður P.
Guðjónsson Islandsmet f hástökki
án atrennu f piltaflokki, stökk
1,33 metra, en eldra metið átti
félagi hans úr FH, Þorsteinn G.
Aðalsteinsson, og var það 1,31
metri.
Bandarískt háskólalið leikur hér
EINS og kunnugt er mun banda-
rískt háskóialið í körfuknattleik
leika hér þrjá leiki dagana 19., 20.
og 21. desember við úrvalslið
landsliðsnefndar og Njarðvik-
inga. Leikið verður við landsliðið
á sunnudag klukkan 14.00 i
iþróttahúsi Kennaraskólans, við
Njarðvíkinga í Njarðvik klukkan
20.00 á mánudag og á þriðjudag
verður leikið við landslið I
íþróttahúsi Hagaskólans klukkan
20.30.
Erfiðlega hefur gengið að velja
landsliðið og eru margir sem ekki
hafa gefið kost á sér vegna ýmissa
ástæðna, en sennilega verður liðið
sem leikur á sunnudag skipað eft-
irtöldum mönnum:
Jón Sigurðs-
son Ármanni, Kristinn Jörunds-
son ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson
Val, Kári Marfsson UMFN, Guð-
mundur Böðvarsson Fram, Ingi
Stefánsson IS, Birgir Guðbjörns-
son KR, Jón Jörundsson ÍR, Torfi
Magnússon Val, Björn Magnússon
Ármanni og Einar Bollason KR.
Þar sem bandarisku stúdent-
arnir eru með beztu háskólaliðum
Bandaríkjanna ættu leikir þeirra
að verða skemmtilegir og vel
leiknir hver sem úrslit munu
verða, en um þau er afar erfitt að
spá vegna þess hve litið er vitað
um getu þeirra, en vonandi fjöl-
menna áhorfendur á leikina til að
sjá góðan körfukanttleik.
Góð gjöf
frá Hummel
HANDKNATTLEIKSSAM-
BANDI Islands barst nýlega mjög
góð gjöf frá sportvöruframleið-
andanum Hummel. Var þarna um
að ræða tvö búningasett, hvítt og
blátt, æfingatreyjur, og töskur
fyrir allt handknattleikslandslið-
ið.
Bezta maraþonhlaup fyrr og síðar?