Morgunblaðið - 18.12.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976
25
Litið vid á litlu
jólum í Lang-
holtsskóla
Sjö ára böm á litlu jólunum I Langholtsskóla i gær. Ijósm. RAX.
„Göngum vi8 í kringum einiberjarunn. . ." Kennarar og nemendur.
stjórinn, Erling S. Tómas-
son, sýndi okkur vegg-
skreytingar eftir krakkana,
sem þau höfðu málað dag-
inn áður „undir dynjandi
glymskratta" eins og ein-
hver sagði.
Gengið var í kringum
jólatréð og krakkarnir kyrj-
uðu af raust: Göngum við í
kringum einiberjarunn
. . Bráðum koma blessuð
jólin og í Betlehem er barn
oss fætt. Tilhlökkunin
skein úr hverju andliti,
jafnt kennara sem nem-
enda og allir voru augljós-
lega í mesta jólaskapi.
„Siggi er á siðum buxum,
Solla á bláum kjól" er eitt-
hvað í anda við litlu jól
barnanna, og svo stemn-
ingin. Þessi stemning, sem
fylgir jólunum og allir
þekkja eða muna a.m.k. frá
VIÐ litum inn á litlu jólum
sjö ára barna i Langholts-
skóla i gær, þar sem við-
staddur var borgarstjóri,
Birgir ísl. Gunnarsson, og
fræðslustjóri, Kristján
Gunnarsson, og fleiri.
Öll voru börnin mætt
löngu áður en hin eiginlega
skemmtun hófst — prúð-
búin og spennt á svipinn. í
sal gagnfræðaskólans stóð
jólatréð Ijósum skreytt og
beið eftir þvi að börnin
gengju í kringum sig. Það
er eitt af islenzku barrtrján-
um, sem Skógræktarfélag
Reykjavíkur gaf öllum
barnaskólum borgarinnar.
Stefán Jónsson spilaði jóla-
lög um leið og börnin
gengu in i salinn undir
handleiðslu kennara sinna,
m.a. Matthíasar Haralds-
sonar yfirkennara Lang-
holtsskóla og konu hans,
Elinar Ólafsdóttur. Skóla-
eigin barnæsku. Þegar jólin
voru strærsti og hátíðleg-
asti viðburður ársins og
ekkert gat breytt þvi né
komið i staðinn fyrir þau.
Stefán Jónsson lék jólalög á
pianó. . .
Bráðum koma blessuð jólin . . .
Þingfréttir í stuttu máli:
Rannsóknarlögregla
ríkisins samþykkt
— ásamt hliðarfrumvörpum
Ljósmynd Mbl. RAX.
Kór Söngskólans l Reykjavfk á æfingu f Fossvogskirkju
Söngskólinn í Reykjavík:
80 manna kór
og hljómsveit i
Fossvogskirkju
Fjólbreytt efnisskrá á fyrstu
tónleikunum þar
FRUMVARP til laga um
Rannsóknarlögreglu
ríkisins, ásamt fylgi-
frumvörpum um skipan
dómsvalds í héraði og um
meðferð opinberra mála,
vóru samþykkt sem lög
frá Alþingi í fyrradag.
Þá vóru ennfremur sam-
þykkt tvenn önnur lög:
breytingar á almennum
hegningarlögum og lög
um gjaldaviðauka rfkis-
sjóðs.
í fyrradag og I gær vóru og
fjölmörg önnur mál til með-
ferðar, sem hér á eftir verða
lauslega rakin.
TILLAGA UM LAND
HELGISMÁL
% Tillaga til þingsályktunar
um landhelgismál, sem út-
varpsumræða var um nýverið,
var til umfjöllunar í sameinuðu
þingi í gær og var vísað til
utanríkismálanefndar með 39
atkvæðum gegn 7, en flutnings-
menn vildu atkvæðagreiðslu
um tillöguna þegar, án umf jöll-
unar nefndar, svo sem þing-
venja er.
UMFJÖLLUN JARNBLENDI-
FRUMVARPS FRESTAÐ
0 Gunnar Thóroddsen,
iðnaðarráðherra, kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár (um
dagskrá) í neðri deild Alþingis
í gær. Öskaði hann eftir þvl að
stjórnarfrumvarp um járn-
blendiverksmiðju 1 Hvalfirðí
yrði tekið út af dagskrá. Ráð-
herra sagði fáa daga lifa til
þinghlés og fyrirsjáanlegt væri,
að miklar umræður yrðu um
þetta mál í þinginu. Hins vegar
væru allmörg mál, sem nauð-
synlegt væri að afgreiða fyrir
þinghlé. Þvl teldi hann rétt að
bíða með umfjöllun málsins
fram yfir áramót. Hins vegar
mæltist hann til þess við
iðnaðarnefnd deildarinnar að
hún skoðaði málavexti og gögn I
þinghléi, enda þótt málinu
hefði ekki verið vlsað formlega
til hennar.
SÖLUSKATTUR —
OLlUSTYRKUR
Frumvarp tal laga um sölu-
skatt var mjög til umræðu,
bæði I fyrradag og gær.
Frumvarpið gerir ráð fyrir þvl
að eitt söluskattsstig, sem áður
rann beint til olíustyrks (vegna
húshitunar með olíu) gangi nú
til rlkissjóðs. Hins vegar verði
tekin á fjárlög útgjaldapóstur I
sama skyni: 1000 m. kr. til að
flýta hitaveiturannsóknum og
framkvæmdum I þágu þeirra
byggðarlaga, er enn búa að olíu-
hitun, og 700 m. kr. I olíustyrk
eða olíuniðurgreiðslu, eftir
nánari ákvörðun I reglugerð
þar um. Þannig kæmi þetta
fjármagn allt áfram til góða
þeim byggðarlögum einum,
sem hvorki nytu húshitunar frá
jarðvarma eða með raforku,
þótt innheimt væri I formi sölu-
skatts af landsmönnum öllum.
LÖNDUN A LOÐNU
TIL BRÆÐSLU
Stjórnarfrumvarp um þetta
efni gengur út á að auka vald
loðnunefndar um stjórnun afla-
skiptingar og löndunar á
vinnslustaði, til að auðvelda
vinnslu á komandi vertíð, þegar
sýnt er, að Norglobal (norskt
bræðsluskip) fæst ekki leigt I
vetur eins og verið hefur á
næstliðnum vertíðum. Nokkrar
umræður urðu um frumvarpið
— og töldu stöku þingmenn, að
loðnunefnd fengi of mikið
stjórnunarvald með
frumvarpinu.
TOLLSKRÁ
Stjórnarfrumvarp um
tollskrá o.fl. er eitt af viðameiri
málum, sem nú liggur fyrir
Alþingi. Enginn leið er að gera
því skil I stuttri fréttaklausu.
Fjárhags- og viðskiptanefnd
efri deildar þrlklofnaði um
þetta mál. Þrir þingmenn, Hall-
dór Ásgrlmsson, Jón Helgason
og Jón G. Sólnes flytja
allnokkrar breytingartillögur.
Albert Guðmundsson flytur og
á sérstöku þingskjali breyt-
ingartillögur við frumvarpið.
ÖNNUR ÞINGMÁL TIL
UMFJÖLLUNAR I GÆR
Önnur þangmál sem til
umfjöllunar vóru I gær:
Stjórnarfrumvarp um fjöl-
brautaskóla, stjórnarfrumvarp
um Bjargráðasjóð, stjórnar-
frumvarp um dagvistunar-
heimili fyrir börn, frumvarp
um launaskatt, frumvarp um
innflutning á olíuprömmum,
frumvarp um stimpilgjald,
frumvarp um aukatekjur rlkis-
sjóðs, frumvarp um
Framhald á bls. 28
SÖNG SKÓLINN f Reykjavfk
heldur þriðja árlegu tónleika
sfna n.k. sunnudag, 19. des., kl. 5 f
Fossvogskirkju, en þetta er f
fyrsta sinn sem tónleikar eru
haldnir f þeirri kirkju og að sögn
Garðars Cortes söng- og hljóm-
sveitarstjóra, er aðstaða til tón-
leikahalds mjög góð þar.
Flytjendur á tónleikunum eru
kór Söngskólans f Reykjavfk, lið-
lega 40 söngvarar, og Sinfónfu-
hljómsveitin f Reykjavfk með 43
hljóðfæraleikara, en þetta er ann-
að starfsár Sinfónfuhljómsveitar-
innar f Reykjavfk. Báðir þessir
aðilar eru orðnir virkir þátttak-
endur f menningarlffi Reykjavfk-
ur, en Sinfónfuhljómsveitin hélt
II tónleika á í. ári. Garðar Cortes
stjórnar bæði kór og hljómsveit.
A efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Verdi, frumflutningur
hér á landi, verk eftir Sibelius,
Valse Triste og Romance fyrir
strengi en um er að ræða frum-
flutning á þvf verki hérlendis.
Þá er einnig á efnisskránni
verk eftir Sigfús Einarsson, Þor-
kel Sigurbjörnsson, íslenzkt þjóð-
lag i útsetningu Jóns Asgeirsson-
ar og Faðir vor eftir Malotte i
útsetningu fyrir kór.
Verkin sem Sinfónluhljóm-
sveitin leikur sérstaklega eru
Valse Triste, Finnlandia og Rom-
ance fyrir strengi.