Morgunblaðið - 18.12.1976, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 18.12.1976, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976 " Ármúla 1A, Z 325 ' [Electrolux ryksugan hefur if 850 watta mótor. •ft Snúruvindu, ■jr Rykstillir o.fl. o.fl. kosti VERÐ AÐEINS KR 55.400 — HðsK.drild $. 86-112. Matvörudrild s. 86-111, vefnaðarvörud. s. 86-113, heimilistckjadeild s. 81680. VELKOMIIM í VALHÚSGÖGN VALHÚSGÖGN, Ármúla 4. slml 82275. Tilboð Sykur 89 kr. kg. Smjörlíki 135 kr. stk. Egg 390 kr. kg. Nautahakk 895 kr. kg. Nauta Gullas 895 kr. kg. Perur 1/1 dós kr. 298. Coktail 1/1 dós kr. 398. Ferskjur 1/1 dós kr. 315. ís — ístertur. Kerti — Servéttur og allt Ora niður soðið græn- meti á sérstöku verði. Tilboðs verði. OPIÐ TIL KL. 6 í DAG, LAUGARDAG. Hlíðakjör, Eskihlíð 10, sími 11780. EF ÞAÐ ER FRÉTT- 8) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU — Framkvæmd Framhald af bls. 18 vettvangsrannsóknir, meðferð og nýting tæknibúnaðar, spjald- skrárgerðir fyrir tölvuvinnslu, ávana- og fíkniefnarannsóknir og almennir umgengnishættir við :1- menning. 6. Haldin séu námskeið fyrir alla yfirmenn löggæzlu. 7. Námsefni og kennsla sé nægjanlega breytileg á hverjum táma til að mæta breyttum starfs- aðferðum brotamanna og fylgst sé vel með framþróun slfkra mála í öðrum löndum. Löggæzlumönn- um sé gefinn kostur á að kynna sér sérfræðilega þekkingu erlend- is. 8. Fræðsla i skólum og fjölmiðlum varðandi nauðsynlega þætti um meðferð laga og reglugerða. öll slík fræðsla miðist fyrst og fremst við að auka skilning fólks á gildi löggæzlu og dómstóla. Þá ætti slfk samvinna við fjölmiðla að geta stuðlað að gagnkvæmu trausti þessara aðila. Að lokum vil ég segja þetta: Framkvæmd og meðferö dóms- mála nú og á undanförnum árúm hefur oft verið á þann veg, að þjóðin treystir ekki lengur á að- gerðir og réttmæti dómstóla. Svo virðist sem framkvæmdar- og lög- gjafarvaldið hafi óeðlileg og jafn- framt óæskileg áhrif á dómsvald- ið, enda sýnir málsmeðferð dóm- enda ákveðna veikleika f þeim efnum, og stundum virðist manni að 2 gr. stjórnarskrárinnar sé alls ekki í heiðri höfð þar sem segir: „Dómendur fara með dómsvald- ið“. Þá vil ég leggja höfuðáherzlu á þá grundvallarreglu lýðræðis- ins, að stjórnmálavöld eiga ekki að ráða yfir fólkinu í landinu. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU Almenningsálitið hefur alla tíð verið besta aðhaldið til raunhæfr- ar og virkrar stjórnunar og því vopni verður almenningur að beita þegar stjórnmálaöfl bregð- ast skyldu sinni. Ef takast á að lækna og styrkja stoðir dóms- valdsins og losa það við pólitískt siðgæðisleysi, þá verður sterkt og heilbrigt almenningsálit að koma til, sem ekki lætur pólitískt mold- viðri varða leið sína. Sú þjóð sem stendur vörð um að halda f heiðri lög og rétt þarf aldrei að óttast að lýðræðið lfði undir lok. Kristján Pétursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.