Morgunblaðið - 23.01.1977, Blaðsíða 37
— Hrauneyja-
fossvirkjun
Framhald af bls. 19
við Hrauneyjafoss hefjast þó ekki
af fullum krafti fyrr en 1978.
Kostnaður við 140 MW Hraun-
eyjafossvirkjun er áætlaður 14
milljarðir króna án vaxta á bygg-
ingartíma. Var það ódýrasta og
hagkvæmasta virkjunarleiðin,
sem Landsvirkjun átti völ á í
framhaldi af Sigölduvirkjun, að
því er Halldór Jónatansson sagði.
1 kostnaðaráætlun þessari er með-
talin háspennulínán frá tengi-
virkinu á brekkubrúninni vestan
við inntakið í Hrauneyjafoss-
virkjun og að spennistöð Lands-
virkjunar við Geitháls í nágrenni
Reykjavíkur.
Nýtt línustædi
Nýja háspennulínan að austan
kemur til með að liggja utan jarð-
skjálftasvæðisins svokallaða, sem
línurnar frá Búrfelli fara um og
eykur það á öryggið. Liggur hið
fyrirhugaða líriustæði frá Hraun-
eyjafossi í vesturátt með stefnu
að Hvítá og þaðan norður undir
Hlöðufell. Þaðan liggur línan
sunnan Skjaldbreiðs og í Hval-
fjörð.
1 vor verður hafist handa um að
leggja 220 kV háspennustreng frá
Geithálsi til Grundartanga. Þegar
er buið að panta efni í turnana, en
undirstöður verða boðnar út í
febrúarmánuði. Mun það veita
nokkrum tugum manna vinnu i
sumar. Þegar sú lína verður kom-
in í gagnið, verður hægt að flytja
um hana 300 MW. Og um leið
verður hægt að auka rafmagns-
sölu inn á byggðalínuna norður í
land í allt að 50 MW, en til saman-
burðar má geta þess að Kröflu-
virkjun er hönnuð fyrir um 60
MW miðað við tvær vélasamstæð-
ur. Nú er hins vegar ekki hægt að
senda norður nema 10 MW um
byggðalínuna.
Hagstætt veró
á umframorku
1 sambandi við virkjanir Lands-
virkjunar og aukið rafmagns-
framboð, má geta þess, að við
tilkomu Sigölduvirkjunar verður
Landsvirkjun í aðstöðu til að láta
af hendi afgangsorku til meiri
háttar nota svo sem til fjarvarma-
veitna og heykögglagerðar. í sam-
ræmi við það tók Landsvirkjun
hinn 1. þ.m. upp það nýmæli í
gjaldskrá sinni að bjóða afgangs-
orku á mjög hagstæðu verði í
heildsölu. Kr verð þetta 50 aurar
á kWst. Gæðin eru þó ekki sam-
bærileg, því skilyrði til þess að fá
umrædda afgangsorku, er að not-
andinn sætti sig við að Langs-
virkjun geti rofið rafmagnsaf-
hendingu þegar álag er mikið eða
við truflanir að etja. Því er áskil-
ið, að kaupandinn setji upp vara-
afl, til að halda uppi eðlilegum
rekstri, þó rafmagnið sé af honum
tekið. Verður þar að vera um að
ræða aðila, sem að jafnaði notar
svo mikið rafmagn að það borgi
sig að hafa olíuvarastöð. Þessi teg-
und af orkusölu er fyrirhuguð
fyrir milligöngu almennigsraf-
veitnanna, sem hafa nú skilmála
og smásöluverð í athugun.
Aflið þrýtur 1981
Hér hefur komið fram, að
Hrauneyjafossvirkjun þarf að
vera tilbúin til raforkufram-
leiðslu árið 1981, skv. orkuspá.
Hve raun tf er sú orkuspá? Því
svara Landsvirkjunarmenn. Þeir
segja, að árið 1981 verði aflið, sem
Landsvirkjun hefur nú 'yfir að
ráða, þrotið. Raunar fyrr. Þeir
benda á þá staðreynd, sem ekki
megi gleyma, að ætíð þurfi að
vera fyrir hendi varaafl, sem tek-
ur við ef bilun verður, svo neit-
andinn líði ekki fyrir það, ef ein
vél þarf að fara út til viðgerðar.
Almennt segja þeir ekki talið
verjandi að gera ekki ráð fyrir
slíku varaafli i vatnsaflsstöðvum.
Alltof dýrt sé að reiða sig i of
rikum mæli á olíustöðvarnar. Tal-
ið sé, að varaafl þurfi að vera um
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JRargunblabtb
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1977
37
15% af virkjuðu vatnsafli á
hverjum tíma. Erlendis er vara-
aflið víða miðað við stærsta þátt-
inn, eina vél eða háspennulínu,
sem geti farið út. Miðað við 15%
regluna skortir Landsvirkjan 46
MW í afli 1981 og er því stefnt að
því að fyrsta vélasamstæða
Hrauneyjafossvirkjunar mæti
þeim skorti á því ári. A árinu 1982
yrði aftur á móti bæði orðinn afl-
og orkuskortur án tilkomu Hraun-
eyjafossvirkjunar.
Af framangreindum ástæðum
er nauðsynlegt, að ein vélasam-
stæða verði komin í rekstur í
Hrauneyjafossvirkjun á árinu
1981, æskilegt að önnur bætist við
1983 og loks sú sfðasta 1987. Þetta
miðast við aukna orkuþörf al-
menningsmarkaðarins svo og um-
samda orkusölu til járnblendi-
verksmiðjunnar i Hvalfírði og
umsamda 20 MW stækkun
álverksmiðjunnar í Straumsvík.
Þetta er orkuspá Landsvirkjunar,
sem þeir Halldór og Jóhann Már
segja að sé i samræmi við sam-
eiginlega orkuspá fyrir allt land-
ið. sem gerð er i sameiningu af
Orkustofnun. Landsvirkjun. Raf-
magnsveitu Reykjavíkur og Raf-
magnsveitum ríkisins. Við breytt-
ar aðstæður. t.d. ef nýr orkufrek-
ur iðnaðar kamii til mætti flýta
tveim seinni vélasamstæðunum
miðað við framangreindar tíma-
setningar. An slíkrar aukningar
gerir orkuspáin ráð fyrir þvi að
Hrauneyjafossvirkjun yrði full-
nýtt um 1990.
Orkuöflun er sýnilega tíma-
frekt viðfangsefni og dýrt. bæði
forrannsóknir og framkvæmdir
við virkjanirnar sjálfar. Aðdrag-
andi að virkjun Tungnaár við
Hrauneyjafoss var langur og
virkjunarframkvæmdirnar, sem
nú eru að hefjast, munu væntan-
lega taka 4—5 ár.— E.Pá.
Hin öra eftirspurn eftir innréttingum
okkar hefur gert okkur kleift að bjóða
nú ódýrustu eldhúsinnréttingarnar á
markaðnum.
í Haga eldhúsum er hver hlutur á
sínum stað í léttu samræmi lita og
forma. Enda um 283 mismunandi
einingar að velja og fjórar gerðir -
fjórar blómalínur, sem bjóða upp á
marga valkosti um verð, efni og sam-
setningu. Þannig er afar auðvelt að
uppfylla óskir kaupandans, hvort sem
hann er að endurnýja gamla innrétt-
ingu eða flytja inn í nýja íbúð.
Spyrjið, hringið eða skrifið og /
biðjið um litmyndabækling. Við /
tökum mál, skipuleggjum og
teiknum - ykkur að kostn- /
aðarlausu og gerum tilboð /x& $
án skuldbindinga af
ykkar hálfu.
FAfl I
Suðurlandsbraut 6,
Reykjavík.
Sími: (91) 84585.
Verslunin Glerárgötu
Akureyri.
Sími: (96) 21507.
26,
46V'
44*
>
EL1)HISI\ ERU
ÓDÍR4RI