Morgunblaðið - 03.04.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRlL 1977
3
Mikilvægi Islands innan
NATO fer stöðugt vaxandi
- segir Sir Geoffrey de Freitas,
formaður Þingmannasam-
bands Atlantshafsbandalagsins
UNDANFARNA daga hefur fasta-
nefnd þingmannasambands
bandalagsrfkja NATO, Atlants-
hafsbandalagsins, setiS á fundum
f Reykjavfk. Forseti nefndarinnar
er brezki þingmaSurinn Sir
Geoffrey de Freitas og f viStali viS
MorgunblaSiS sagSi hann aS
mikilvægi islands innan Atlants-
hafsbandalagsins færi stöðugt
vaxandi eftir þvf sem Sovétrfkin
styrktu flota ,sinn á NorSur-
Atlantshafi. „Þessa staðreynd
viSurkenna allir innan NATO og
ég sjálfur geri mér Ijóst. aS ísland
er ómetanlegt f þeim kafbátahern-
aSi sem fram fer á NorSur-
Atlantshafi og yfir varnir vest-
rænna lýSræSisþjóSa."
Sir Geoffrey sagði að þingmanna-
samband NATO hefði verið stofnað
1 955 og hefði fsland þá verið eitt af
stofnendum þess og hefði allan tám-
ann átt fulltrúa þar. Fjöldi fulltrúa á
þingum þingmannasambandsins fer
eftir stærð þátttökuþjóðanna
Bandarlkin eiga þvi flesta fulltrúa
eða 36. en tvö minnstu ríkin,
Luxemburg og ísland eiga 3 fulltrúa
hvort. Fulltrúafjöldi annarra þátt-
tökurtkja er mismunandi og allt þar
á milli.
Haldnir eru reglulegir fundir einu
sinni á ári, þar sem rædd eru mál-
efni Atlantshafsbandalagsins og I
haust verður sllkur fundur I Paris.
Þessi fundur, sem haldinn er I
Reykjavlk nú, er til undirbúnings
Parisarfundinum, þar sem allir full-
trúarnir mæta Þá eru einnig haldnir
fundir sérfræðinga, en fundurinn
hér er stjórnunarfundur. Sir
Geoffrey de Freitas sagði að það
væri ekkert vafamál, að ástæðan
fyrir þvi að þíngmannasambandið
þáði boð íslands um að halda þenn-
an fund nú. væri að mikilvægi
íslands bæði innan NATO og fyrir
það fer stöðugt vaxandi Þetta væri
staðreynd, sem allir viðurkenndu og
gerðu sér Ijósa
Á fundinum nú er m a ákveðið.
hverjir skuli flytja erindi á Parisar-
fundinum, sem haldinn verður I
september. Á siðastliðnu ári var
þessi fundur haldinn i Bandarlkjun-
um og þá ávörpuðu þingið dr. Kiss-
inger og Nelson Rockefeller, þáver-
andi varaforseti Bandarlkjanna. Þá
sitja jafnan þessa fundi dr Joseph
Luns, framkvæmdastjóri NATO, og
einn eða tveir háttsettir herforingjar
NATO.
Sir Geoffroy de Freitas.
Sir Geoffrey sagði að allir þátttak-
endur, þingmenn aðildarrikja
Atlantshafsbandalagsins væru
menn. sem sérstakan áhuga hefðu á
vörnum vestrænna þjóða. Þeir eru
allir þingmenn og hann kvaðst gleðj-
ast yfir þvl að fjórir ráðherrar I
islenzku rikisstjórninni hefðu fyrr
verið aðilar að þingmannasamband-
inu. Það væri alls ekki svo litið, þvi
að það væru 50% rlkisstjórnarinnar.
Starfsemi þingmannasambandsins
byggðist þó ekki á þvi, að þátt-
takendur væru frá rikisstjórnunv
landanna, heldur þjóðþingum.
Nefndi hann sem dæmi að Harold
Wilson, fyrrverandi forsætisráðherra
Breta, hefði eitt sinn verið 1 þessum
samtökum Eins og innan Atlants-
hafsbandalagsins sjálfs er enska og
franska hin opinberu mál sambands-
ins og kvað hann það miklu hag-
stæðara en sá háttur, er viðhafður
væri innan Efnahagsbandalagsins,
en þar væru hin opinberu mál
hvorki meira né minna en 6 talsans
Sir Geoffrey kvaðst ávallt hafa fund-
ið mikinn áhuga meðal islenzkra
þingmanna á því starfi, sem innt
væri af hendi innan þingmanna-
sambandsins.
Kjörtlmabil formanns Þingmanna-
sambandsins er venjctlega eitt til tvö
ár. Fyrir 10 árum var Matthias Á
Matthiesen fjármálaráðherra for-
maður og gegndi þvi embætti. sem
Sir Geoffrey gegnir nú, en frá upp-
hafi hefur sambandið aðeins haft
þrjá framkvæmdastjóra
Framhald á bls. 26
Fré fundi fastanefndar þingmannasambands Atlantshafsbandalagsins,
sem haldinn var I Reykjavfk nu f vikulokin.
Heilsuhælið í Hveragerði:
Kristmunda Brynjólfsdótt-
ir heldur þar listsýningu
Hveragerði 31. marz.
KRISTMUNDA Brynjólfsdóttir
heldur sýningu f heilsuhælinu f
Hveragerði um þessar mundir. Á
sýningunni er margt fallegra
muna, málverk, bæði olfu- og
krftarverk, leðurmunir og út-
saumur.
Þarna getur að líta það fegursta
beizli, sem undirritaður hefur
séð, og hafði ég orð á því við
Kristmundu að ég myndi ekki
tfma að nota þaó. — Jú, jú, sagði
Kristmunda, á fínum hesta-
mótum. Ég spurði Kristmundu
hvort hún hefði lært og svarið
kom fljótt, — listin er lærð en
snilldin er meðfædd. Og það er
rétt, snilldarhandbragð er á því,
sem þarna er til sýnis.
Kristmunda er föndurkennari
við Hælið og hefur hún haft þann
starfa í 20 ár. Hún er nú 72 ára
gömul og ber aldurinn vel, þrátt
fyrir það að hún hafi átt við liða-
gigt að stríða frá fjögurra ára
aldri. Árið 1951 kynntist hún
Jónasi heitnum Kristjánssyni
lækni og fer hún ekki dult með
það að Jónasi eigi hún að þakka
það, sem hún er í dag, ásamt
Guðstrú.
Ég vil hvetja fólk til þess að sjá
þessa sýningu, það verður enginn
fyrir vonbrigðum
Georg.
Kristmunda vió verk sfn.
Ljósm. Georg Michelsen.
Kökubasar í TemplarahöU
EIGINKONUR kórfélaga í Lög-
reglukórnum efna til árlegs köku-
basars í Templarahöll^nni i dag
og hefst hann klukkan 14. Til sölu
verða góðar kökur og tertur. í
fyrra seldust allar kökurnar upp
á innan við hálfri klukkustund,
svo að menn eru beðnir að hafa
hraðann á, vilji þeir tryggja sér
gómsætt meðlæti með sunnudags-
kaffinu.
Vor
við Miðjarðarhaf
HagsýnSr velja bezta tímann og lægstu
fargjöldin og
spara helming
Ódýrasti en jafnframt einn bezti ferðatfminn
— þegar allur gróður er ferskur og hitinn
þægilegur.
Páskaferð 6. aprtl. 12 dagar.
Verðfrá kr. 58.200,- Örfé sæti laus.
Vorferð: 1 7. aprfl og 8. mal
3 vikur. VerSfré kr. 58.200 -
VorferS 11. mal — 3 vikur.
Finniö ilm vorsins I rómantlsku
umhvarfi Ítalíu. Ver8 fré kr. 63.400.
VorferB 20. mal. 3 vikur. Fi sæti laus
VerSfré kr. 62 700 -
COSTA DEL SOL
LIGNANO
-GULLNASTRÖNDIN
COSTA BRAVA
Austurstræti 17, sfmi 26611.