Morgunblaðið - 03.04.1977, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977
Kópadrápið við Nýfundnaland
1 augum mót-
mælenda er
þetta grimmdar-
legt athæfi og til
skammar. Fyrir
fiskimennina á
strönd Ný-
fundnalands
hluti af lffi
þeirra og af-
komu. Vertíð er
þar 4 mánuði á
ári, kópaveiðin
á ísnum stendur
einn mánuð,
aðra hluta árs-
ins eru þeir at-
vinnulausir.
Þessi grlnteikning birtist I Daily Mail með textan-
um: „Elskan, hún er dásamleg — hvað kostaði hún?“
Og á merkimiða á kápunni stendur: Ekta selskinn.
f meðfylgjandi grein segir blaðakonan Anthe
Disney: Einn mánuð á ári eru þessir kópar eltir uppi
og drepnir f hundraða þúsunda vfs, svo að skinnin af
þeim megi prýrta bakið á auðugum konum í Bond
Street f London og Avenue Foch f Parfs.
Brigitte Bardot á Reykjavfkurflugvelli á leið til
Nýfundnalands til að mótmæla kópadrápinu á
fsbreiðunni. Ljósm. RAX.
sem Brigitte Bardot ekki sá
Franska kvikmyndastjarnan Brigitte Bardot hefur tvisvar sinnum í
marzmánuði verið fréttaefni í íslenzkum blöðum. Hún birtist skyndi-
lega á Reykjavíkurflugvelli í einkaþotu sinni, ásamt fylgdarliði, 14.
marz, og gaf þá fréttamanni Mbl. í skyn að hún væri á leið vestur um
haf að sinna dýraverndarmálum. Síðan bárust okkur fréttir úr heims-
pressunni um að þokkadísin fræga hefði haldið til Nýfundnalands til
að mótmæla hinu hræðilega kópadrápi sem þar fer fram úti á ísnum
einn mánuð á ári, en á undanförnum árum hafa dýraverndarfélög og
mótmælahópar víða um heim mótmælt ákaft hinni miskunnarlausu
meðferð á kópunum, sem eru rotaðir nýskriðnir úr móðurkviði og
ósjálfbjarga og flegnir snarlega á staðnum varla dauðir. Mánudaginn
28. marz drap Brigitte Bardot og 8 manna fylgdarlið hennar aftur
nióur fæti á Keflavíkurflugvelli á síðkvöldi á heimleió úr mótmæla-
ferðinni, sem vakið hafði heimsathygli og þá um leið dregið athyglina
að kópunum litlu og meðferðinni á þeim.
12 þús. kópar
drepnir fyrsta daginn
í erlendum blöðum hafa að
undanförnu birzt greinar um
ferðalag Brigittu Bardot, um
kópadrápið á ísnum úti af
Nýfundnalandi, um hneyksiun
dýravina og gagnrök loðdýra-
framleiðenda og fiskimanna í
Norður-Atlantshafi, því selurinn
er keppinautur þeirra um fæðuna
— einkum loðnuna. Þarna gætir
margra grasa. Víkjum að Bardot,
eftir að hún kom til Kanada frá
tslandi.
Fréttaritari Daily Express segir
að hún hafi viljað hitta Pierre
Trudeau, forsætisráðherra
Kanada, til að telja hann á að
stöðva kópadrápið. „Allur
heimurinn hefur risið gegn kópa-
drápinu og Kanada hættir á það
að lenda í alþjóðadeilum, ef þessu
linnir ekki,“ sagði hún við
komuna til Kanada. En embættis-
menn i höfuðborginni Ottawa
svöruðu ofur rólega, að ef ung-
frúin vildi hitta forsætisráð-
herrann, þá væri rétta leiðin að
hringja á skrifstofuna hans eða
skrifa honum bréf.
Um þær mundir voru átök
þegar hafin millidýraverndunar-
fólks og selveiðimanna og um 100
kanadískir lögreglumenn voru
komnir til St. Anthony í
Nýfundnalandi til að halda uppi
lögum og reglu. Andspænis mót-.
mælendum stóðu fiskimenn og
aðrir íbúar staðarins, sem sögðu
að á selveiðunum byggðist
afkoma þeirra.
Veiðarnar hófust 15. marz og
fyrsta leyfilega veiðidaginn voru
11.930 kópar veiddir.
Brigitte sat
í hlýrri stofu
og mótmælti
Uti á -ísnum, um 40 mílur frá
strönd Nýfundnalands, þar sem
veiðimennirnir voru önnum
kafnir, rak sterkur vindur saman
ísjakana, sem þegar voru farnir
að bráðna, og frostið herti, segir í
frétt frá blaðamanninum Antheu
Disney frá Nýfundnalandi 18.
marz. Hún segir að ákafir mót-
mælendur séu þá enn að reyna að
fljúga á staðinn.
En í örygginu í hlýrri stofu í
leiguhúsi í þorpinu Blanc Sablon
við fylkismörk Quebecks og
Nýfundnalands hafi leikkonan
Brigitte Bardot og aðrir ákafir
mótmælendur við illri meðferð á
dýrum efnt til illa sótts blaða-
mannafundar. Þar talaði Brigitte
Bardot um grimmdina sem þessir
kópar yrðu fyrir, og um einlægan
áhuga sinn á málefninu. En þegar
að því kom að hún skyldi halda út
á hættulega ísjakana til að sjá
með eigin augum þessar hrylli--
legu aðfarir, þá kom á hana hik.
Hún þorði ekki og enginn getur
láð henni það, segir blaðamaður-
inn. Slík reynsla tekur á
taugarnar, einkum þegar í hlut á
kona, sem vön er lúxuslífi í einka-i
villu í St. Tropez og auðmanna-
íbúð í París. Aftur 'a móti megi
kannski ásaka hana fyrir að nota
frægð sína fremur til að draga
athyglina að Brigitte Bardot en að|
kópunum. Hegðun hennar veki
þeim mun meiri athygli, að önnur
leikkona, Yvette Mimieux, lét sig
hafa það að lenda í hrakningum i
St. Anthony í heila viku,
og hugðist nú takast á hendur
hættulega köfun til að mynda
kópa á sundi, þegar þeir væru
komnir í vatnið.
Meðanmótmælendurhöfðu drif-
ið sig til Blanc Sablon og St.
Anthony, — en frá þessum
tveimur stöðum er hægt að fljúga
í þyrlu út á veiðisvæðið — þá sat
Brigitte Bardot í margra mílna
fjarlægð í Halifax í Nova Scotia.
Þar ræddi hún við embættismenn
um möguleikana á að setja upp
verksmiðju fyrir gerviloðkápur
— svo sem oft hefur verið stungið
upp á. Þá flaug hún til St.
Anthony, og Brian Davies, frá
Alþjóðadýraverndunarsjóðnum,
bauðst til að fljúga með hana út á
ísinn, svo hún gæti séð veiðarnar.
en Brigitte Bardot dvaldist yfir
hádegisverðinum í Víking-
mótelinu — sem ekkert er til að
hanga yfir — svo hún missti af
flugvélinni. Þegar hann kom til
baka, fékk hún flugvélina lánaða
og flaug til Blanc Sablon, þar
sem mótmælahreyfingin
Greenpeace hefur bækistöðvar .
Ef félágar þeirrar hreyfingar
vildu ekkert hafa með hana að
gera.
Bardot hafði verið svo forsjál að
láta einkaþotu bfða til að fljúga
sér til baka til menningarinnar.
En hún hefði ekki áhuga á að
leigja þyrlu hjá flugfélaginu á
staðnum til að iáta fljúga með sig
út til kópanna, segir blaðamaður-
inn. 1 stað þess boðaði hún
blaðamannafund og gaf yfirlýs-
ingu: — Þetta er allt svo illa
skipulagt. Ég er þreytt og vil fara
heim til Parísar!
Og leikkonan Yvette Mimieux
var svo elskuleg að segja við
blaðamenninga: — Hver verður
að fá að hafa sinn hátt á!
Engin kona
vildi kópakápu
En brezka blaðakonan Anthea
Selurinn í NV-Atlantshafi étur
300-500 þúsund tonn af loðnu
NORSKA BLAÐIÐ Fiskaren lagði fyrir
nokkrum dögum orð f belg um selveiðideiluna og
spurði á forsfðu: Hvað segja Brian Davies og
Brigitte Bardot um þetta? Selurinn í Norður-
Atlantshafi etur áriega 8,5 milljón hektolítra af
loðnu. Að auki hundruð þúsunda tonna af öðrum
fisktegundum og rækju.
Blaðið vísar fyfirlit norsku hafrannsóknar-
stofnunarinnar fyrir árið 1977 um auðlindir f
hafinu, þar sem fjallað er um hlutfallið milli
selastofnsins og fiskveiða. í þeirri bráðabirgða-^
skýrslu komi m.a. fram að grænlandsselurinn í
norðvesturhluta Atlantshafsins eti nú 300.000 til
500.000 tonn af loðnu ár hvert, fyrir utan aftnan
fisk. Og í skýrslunni sé því slegið föstu að álíka
mikið magn af fiski fari í selinn í Barentshafi og
Hvítahafi. Ef tölur Hafrannsóknastofnunarinnar
norsku séu lagðar til grundvallar, þá megi gera
ráð fyrir að heildarmagnið sem selurinn tekur í
Norður-Atlantshafi verði 500.000 — 800.000
tonn, sem þá fari í stofninn, eins og hann er nú.
Segir blaðið, að andspænis slikri skattlagningu
á fiskistofna skiljist að selveiðar eigi mikilvægu
hlutverki að gegna f matvælaframleiðslu heims-
ins. Og þegar maður viti hvaða viðkomu selurinn
hafi og hvaða tjóni hann valdi með því að bera
sníkjudýr (orma), sem geri fiskinn ónothæfan til
manneldis, þá skiljist grundvöllurinn undir
þeirri afstöðu, sem tekin er í leiðara blaðsins, þar
sem segir að það sé brot gegn mannkyninu að
þvinga í gegn allsherjarfriðun á sel.