Morgunblaðið - 03.04.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977
15
Disney varð eftir fór út á ísinn og
skrifaði eftirfarandi grein undir
fyrirsögninni: Enga konu, sem
séð hefði það sem ég varð vitni að
í dag, gæti nokkurn tíma framar
langað í selskinnskápu:
Við stóðum á ísnum í 40 mílna
fjarlægð frá landi, beina stefnu
frá St. Anthony á Nýfundnalandi.
Skammt frá okkur var það sem
við vorum komin til að sjá ... hin
árlega selveiði.
Þarna lágu kóparnir hjálpar-
vana á ísnum meðan nýfæddur
líkami þeirra var að venjast því
að hreyfast. Þetta eru það sem
selveiðimenn kalla „hvít-
feldar“, dýrmætar skepnur, sem
verður að veiða innan viku eftir
að þeir fæðast, áður en skinnið á
þeim breytist úr mjúkum hvítum
feldi í matta brúnleita húð. Þetta
eru falleg dýr með stór brún augu
og elskuleg hvolpaandlit.
Á hverju ári eru kóparnir eltir
uppi og drepnir' i hundruða
þúsunda vís. svo að skinnin af
þeim megi prýða bakið á auðug-
um konum í Bond Street í London
og Avenue Foch í París, konum
sem vilja sveipa um sig mjúka
skinninu þeirra, en aldrei hafa
komið nær selveiðum en í
mátunarklefa loðskinnasalanna.
Sjái þær meðfylgjandi myndir og
lesi þessa frásögn, þá yppta þær
kannski öxlum og segja að þetta
komi sér ekki við og halda svo
áfram að efna til hádegisverða í
góðgerðarskyni. Við þær get
ég ekki sagt annað en þetta: Ef
þær einhvern tima skyldu horfa á
veiðarnar, þá mundi þær aldrei
framar langa til að eiga kópa-
skinnkápu. Pels lítur sjálfsagt vel
út á herðatré á Savoy-hótelinu, en
hann er ennþá fallegri á bakinu á
sínum rétta eiganda, þar sem
skinnið á heima.
Hér úti á ísnum er staðurinn,
sem nefndur hefur verið Vig-
stöðvarnar þar sem mestu af vor-
kópunum í veröldinni er slátrað á
stuttum veiðitíma, í marz og apríl.
Vígstöðvarnar er viðeigandi naffl
á þessum blóðuga stað. Þaó eru
engar ýkjur að segja að þessi
mikla ísbreiða, sem teygir sig svo
langt sem augað eygir, likist
mest skurðstofu í sjúkrahúsi þar
sem hópur skurðlækna er orðinn
að morðingjum. Þessi skærhvíta
breiða er Iöðrandi i blóði, með
blóðrauðar slóðir á ísnum á leið
til skipanna, þar sem veiði-
mennirnir stafla skinnunum og
skrokkunum.
Við brutum allar reglur og
lækkuðum flug þyrlunnar, þar til
við vorum nokkra metra frá sel-
veiðimanni að iðju sinni. Hann
stóð á stórum ísjaka, umkringdur
kópum, og mæðurnar geltandi í
kring. Hann nálgaðist einn
kópinn, sem reyndi i örvæntingu
að hörfa. Móðirin baksaði hjálpar-
vana í kring um hann, en flúði i
sjóinn þegar málmbúin kylfa sel-
veiðimannsins skall á enni kóps-
ins.
Á næstu sekúndu var annað
högg greitt og kópnum, sem enn
engdist, var snúið á bakið, hnifs-
blað glampaði i heimskauta-
sólinni og kviður kópsins var rist-
ur. Blóðið spýttist út á ísinn og á
fáum sekúndum að því er virtist,
fláði veiðimaðurinn skepnuna af
mikilli leikni, skar hreifana af og
skildi skrokkinn eftir í valnum,
þegar hann hélt til næsta hóps.
Það er ekki ofsögum sagt að
þessi sjón gerði mann veikan.
Þessu verður ekki með orðum
lýst. Engin orð rnegna að lýsa
þeirri velgju, sem flæðir yfir
mann við að horfa í fyrsta skipti á
kópadráp. Meðan við stóðum
þarna, sáum við selveiðimanninn
binda skinnin á streng, og draga
þau þannig að skipinu, sem beið
hans.
Þannig farast
selveidimennirnir
í þann mund tók ísjakinn að
hreyfast. Skyndilega hafði hvesst
og þetta ískalda Atlantshaf, þar
sem maður lifir varia meira en tíu
sekúndur, falli maður í það, var
farið að mynda öldur undir upp-
brotnum ísnum. Jakinn sem ég
stóð á með ljósmyndara Daily
Mail, Monty Fresco, tók að vagga
hægt. Þá virtist sjóndeildar-
hringurinn leysast upp. Andartak
fannst mér ég sjá ofsjónir, þegar
ísjakana tók skyndilega að reka í
austurátt. Okkur rak i burtu, án
þess að við gætum nokkuð að gert.
Þannig farast selveiðimennirnir.
Margir þeirra hafa stigið út á ís,
og allt í einu haft ekkert lengur
undir fótum. Við vorum heppin.
Létt þyrla beið okkar með spaða á
fullri ferð og flugmaðurinn benti
okkur að fara yfir á hinn endann
á jakanum, þar sem hann gæti
tekið okkur upp.
Fyrir okkur var þetta einstæð
reynsla. En fyrir þessa íbúa
Nýfundnalands er hættan hluti af
llfi þeirra. Þeir hafa stundað sel-
veiðar í mörg hundruð ár, og
finnst þeim lífsskilyrðum sinum
dgnað, af því blaðamenn á borð
við mig, hafa orðið vitni að þessu
skelfilega drápi og alþjóðlegir
mótmælahópar ganga hart eftir.
Dýraverndarmenn halda því
fram að þetta sé tilgangslaust
hópmorð, sem setji selastofninn í
hættu, og það fyrir lítilsverða
lúxusverslun, sem ekki einu sinni
færi Kanada nein umtalsverð auð-
æfi. Varla er hægt að hafa á móti
þessu. Fyrir aðeins nokkrum ára-
tugum kæptu milljónir sela á Víg-
stöðvunum. 1 ár hafa opinberir
eftirlitsmenn komið auga á 300
þúsund kópa. Kanadísku og
norsku selföngurunum, sem
skipta með sér veiðinni, er leyft
Kópana verður að veiða innan viku eftir að þeir fæðast, meðan skinnið er enn hvitt og verðmætt.
að taka mest 170 þúsund kópa. Ef
svo heldur áfram, munu kynslóðir
framtíðarinnar aldrei sjá sel. Teg-
undin verður blátt áfram útdauð.
i ár hefur heimafólk hópast
saman til sinna eigin mótmæla
gegn öðrum mótmælendum. Varla
er hægt að ganga eftir götunni I
þessum litla fiskibæ St. Anthony
og tala við íbúana, án þess að hafa
samúð með málstað þeirra. Þarna
er fjögurra mánaða vertíð á ári,
meðan sjórinn er auður. Þar er
enginn iðnaður, engin verzlun og
70% af íbúunum lifa á atvinnu-
leysisstyrk það sem eftir er
ársins.
Selveidarnar
ekki viðskipta-
mál — heldur
manndómur
— Það eru Nýfundnalandsbúar
sem eiga á hættu útrýmingu, ekki
selurinn, segir Walter Carter,
fiskimálaráðherra fylkisins.
Þarna eru selveiðar ekki bara við-
skiptamál, heldur manndómur.
Þeir tala um karlmennsku, sem
menn hafa vanist á að sýna og
sanna úti á ísnum, og um virðingu
þeirra, sem reynt er að hafa af
þeim. — Við erum engir villi-
menn, og við erum ekki ánægðir
með það hvernig aðrir líta á
okkur, segir 26 ára gamall piltur,
Pearce Cull, sem hefur veitt sel
síðan hann var 14 ára gamall.
Þetta eru okkar lifnaðarhættir og
við ætlum ekki að láta aðra hafa
þá af okkur. Stundum fæ ég 3—4
skinn, þegar ég fer til veiða I
bátnum mínum, stundum fæ ég
Franihald á bls. 40
ADVERTISEMENT
B '
BABY
SEALS
A STATEMENT BY
THE ROYAL SOCIETY
FOR THE PREVENTION OF
CRUELTY TO ANIMALS
FISKIMENNIRN-
IR á Nýfundna-
landi eru látnir I
friði I lffsbasli sínu
11 mánuði á ári,
þegar selveiðin
hefst standa þeir
skyndilega and-
spænis kópunum,
meðan þeir telja
sig vera að verja af-
komu sína.
En í heimspress-
unni er háð annað
strfð, auglýsinga-
strfð mifli Félags
breskra loðfelda-
framleiðenda og
Konunglega breska
dýraverndarfélags-
ins. Báðir aðilar
auglýsa í nákvæm-
lega eins uppsett-
um auglýsingum og
með sömu mynd-
inni af kópi. Báðar
auglýsingarnar
hafa yfirskriftina
Kópar! En f texta
fyrir neðan greinir
aldeilis á.
í annarri auglýs-
ingunni er yfirlýs-
ing frá loðskinna-
framleiðendum,
sem vfsa f greinar
um málið og segja:
Kópaveiðar, sem
sagt hefur verið frá
f blaðinu, fara fyrst
og fremst fram
vegna Iffkerfisins.
Tegundin er langt
frá þvf að vera f
hættu, þvf
Nýfundnalands-
selurinn er talinn
vera um 2 milljón
dýr. Tala þeirra,
sem leyft er að
veiða árlega, er
ákveðin af Norður-
Atlantshafsfi.sk-
veiðinefndinni og
stjórnum Kanada
og Noregs og miða
að þvf að halda
jafnvægi milli fisk-
stofna og sela-
stofna. Selir eru
drepnir á mannúð-
legan hátt, sem
mælt er með af
stjórnum Kanada
og Bandarfkjanna
og af ábyrgum
dýraverndunar-
samtökum. Að lok-
um: Hvft kópa-
skinn eru ekki not-
uð af brezkum loð-
skinnaframleið-
endum til loðkápu-
gerðar eða seld hjá
þeim.
Hinn textinn er
yfirlýsing frá
Konunglega dýra-
verdunarfélaginu
svo hljóðandi:
Þessi tilgangslausa
slátrun á selum,
sem nú fer fram, er
annað dæmi um
eigingjarna rán-
yrkju á dýrarfkinu.
Það er réttlætt með
þvf að það skapi
jafnvægi f Iffkerf-
inu, en tölur sem
beitt er í þvf skyni
eru tortryggilegar.
Sfðan krefst sam-
bandið þess að
veiðunum verði
hætt umsvifalaust
og að Kanadíska
rfkisstjórnin láti
strax fara fram not-
hæfar vfsindalegar
rannsóknir á svo-
kallaðri nauðsyn á
svo grimmdarleg-
um aðferðum. Og f
lokin er spurt hvort
þingmaður les-
andans viti hvað
fram fer og beðið
um styrk, þar sem
sambandið njóti
ekki rfkisstyrkja.
BÁBY
SEALS:
A STATEMENT FROM
THE BRITISH FUR
TRADE ASSOCIATION