Morgunblaðið - 03.04.1977, Page 18

Morgunblaðið - 03.04.1977, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977 „KRAFLA - brautryðjenda- starf við virkjun jarðgufu á íslandi" í MORGUNBLAÐINU í gær birtist fyrri hluti viðtals við dr. Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra um orkumál. f sfðari hluta þessa viðtals, sem hér fer á eftir, svarar ráðherrann spurningum um þá þætti orku- máia, sem mestum deilum hafa valdið sfð- ustu misseri, þ.á m. um Kröflu. Þá komum við að byggðalfnu. Um hana hefur verið sagt f fyrsta lagi, að þú hafir tafið framkvæmdir við hana um eitt ár, í öðru lagi, engin raforka sé fyrir hendi til þess að flytja eftir henni, f þriðja lagi að nauðsyn- fegt hafi verið að leggja annað hvort byggðalfnu eða byggja Kröfluvirkjun en ekki hvort tveggja. Hvað vilt þú segja um byggðalfnuna og þessi gagnrýnisefni? — Það er nauðsynlegt að vinna að því að tengja saman með háspennulínum sem flestar virkjanir og landshluta eftir því sem hagkvæmni og öryggi krefst, segir dr. Gunnar Thoroddsen. Það þarf að flytja raforku til þeirra byggðarlaga þar sem engar virkjanir eru fyrir hendi. Einnig eru tengilínur milli héraða nauðsynlegar af öryggisástæðum og þær auka hagkvæmni í rekstri orkuvera vegna samkeyrslumöguleikanna, sem þær skapa. Það kemur fyrir, að virkjun f einum landshluta er vatnslítil, þegar nægilegt vatn er í annarri. — Ég ætla, að um þetta stefnumark séu allir sammála. Að könnun og undirbúningi slíkrar samtengingar hefur verið unnið á annan áratug. Upphaflega var rætt um að leggja línu yfir hálendið milli Norðurlands og Suður- lands til að flytja rafmagn frá Þjórsárvirkjunum til Norðurlands. Frá þessu var fallið vegna þess, að sú leið þótti ekki nægilega örugg og hún kom heldur ekki að gagni við dreifingu orkunnar um Norðurland og Vestur- land. Þess vegna var ákveðið að leggja svokailaða byggðalínu frá Suðvesturlandi um Vesturland yfir Holtavörðuheiði, um Húnavatnssýslur og Skagafjörð til Akureyrar. Sú ákvörðun var tekin af fyrrverandi ríkis- stjórn 1973—74. I fjárlög fyrir árið 1974 var sett lán- tökuheimild til þess að hefja lagningu þessarar línu. Um sumarið ’74 var ákveðið að nota ekki þessa heimild, en hinsvegar að veita 25 milljónum króna til að halda áfram hönnun verksins. Þetta sama sumar höfðu verið pantaðir staurar i línuna. Við stjórnarskiptin í ágústlok stóðu málin þannig, að hönnun þessarar línu var langt komin og að 1300 staurar voru komnir til landsins, en ekki hægt að leysa þá út vegna þess, að fé var ekki fyrir hendi. Núverandi ríkisstjórn tók þetta vandamál strax til umræðu og meðferðar. Það var ákveðið að halda áfram fyrirhuguðum framkvæmdum vió byggðalínu og fela þær Rafmagnsveitum rfkisins. Ennfremur var afl- að fjár til að leysa út staura og annað efni, sem komið var til landsins. I fjárlagafrumvarp fyrir árið 1975 var tekin nauðsynleg fjárveiting til að hefja framkvæmdir við línuna og halda þeim áfram af fullum krafti. Þaó er því fjarri sanni, þegar fyrrverandi iðnaðarráðherra sakar mig um að hafa frestað og tafið þessa línulögn. Málið var í algeru strandi, þegar hann lét af embætti, ekkert fé fyrir hendi, en staurar á hafnarbakka, sem hann hafði ekki getað leyst út. Allt þetta liggur fyrir í skjölum 1 stjórnarráðinu. Síðan hefur verið unnið af kappi við að leggja þessa línu og fyrir nokkru var hún tengd á Akureyri við Laxárvirkjun. Hins vegar getur hún ekki flutt nægilegt rafmagn enn, vegna þess, að rafstrengur yfir Hvalfjörð hefur ekki næga flutnings- getu. Ný háspennulína frá spennistöð við Geitháls fyrir Hvalfjörð og að Andakílsárvirkjun hefur verið hönnuð og undirbúin og var ætlunin að ljúka þeirri framkvæmd á árinu 1978. Þessi framkvæmd er að mestu á vegum Landsvirkjunar, en að nokkru á vegum Rafmagnsveitna ríkisins. Nú hefur verið ákveðið að flýta þessum fram- kvæmdum þannig, að linan verði tilbúin I lok þessa árs og þá getur byggðalínan eða Norðurlinan, eins og hún heitir nú, flutt um 50 megavött. Þessi flýting er m.a. nauðsynlegt vegna þess, að sæstrengurinn yfir Hval- fjörð er orðinn gamall. Ef hann bilaði gæti það tekió vikur og koma honum í lag og þá væri vá fyrir dyrum i rafmagnsmálum Vesturlands og Norðvesturlands. En þessi Norðurlina til Akureyrar er aðeins hluti af þeirri samtengingu landshluta, sem þarf að koma. Lín- an frá Akureyri til Kröflu er nær fullgerð og næsta stórverkefni er háspennulína frá Kröflu til Austur- lands. Áætlað er að verja 500 millj. kr. til þeirrar línu i ár og að ljúka henni á næsta ári. Þannig verður haldið áfram að tengja saman virkjanir og landshluta eftir því, sem fjármagn og aðrar aðstæður leyfa. — Hvað kostar Norðurlfnan? — Um tvo og hálfan milljarð Verdur of mikil raf- orka á Nordurlandi? — En hvað er að segja um byggðalfnuna og Kröflu. Nú er þvf haldið fram, að Kröfluvirkjun sé langtum of stðr fyrir orkumarkaðinn á Norðurlandi, en jafnframt hefur verið varið 2000 milljónum króna til þess að leggja lfnu, sem flutt getur 50 megavatta orku frá Suðurlandi til Norðurlands. Hvaða skýring er á þessum framkvæmdum, sem sýnast munu valda miklu offram- boði á raforku á Norðurlandi? — Eins og ég kom að í upphafi þessa samtals er eitt af meginstefnuatriðum i orkumálum að aðalvirkjanir landsmanna verði ekki allar á sama svæðinu, heldur verði þeim dreift um landið. Af öryggisástæðum, vegna nýtingar, byggðasjónarmiða og með hliðsjón af því, að aðalvirkjanir landsmanna eru nú á eldvirkum svæðum er nauðsynlegt að dreifa virkjunum. Andstætt því sem haldið hefur verið fram, að byggðalfna og Kröfluvirkj- un hefðu ekki átt að fara saman, bar brýna nauðsyn til að leggja háspennulinu, sem tengdi saman dreifikerfi á Norðurlandi og Vesturlandi, sem þannig gæti flutt og miðlað þeirri orku sem framleidd yrði i Kröfluvirkjun. Hið sama gildir um lagningu háspennulinu frá Kröflu til Austurlands sem áður hefur verið getið. Einnig er rétt að benda á i þessu sambandi að forsenda þess að reist verði stór orkuver annars staðar en á hinum eldvirku svæðum Suðurlands er að til sé dreifikerfi sem flutt geti orku þangað sem hennar er þörf. Að því er varðar stærð Kröfluvirkjunar vil ég víkja að einu meginatriði um ákvörðun að stærð virkjana hér á landi. Þegar við íslendingar virkjum okkar orkulindir megum við ekki vinna út frá því sjónarmiði, að virkjun- in sé fullnýtt um leið og hún tekur til starfa. Með þeim hætti værum við dæmdir til sífells orkuskorts, sem mundi valda öllum almenningi óbærilegum óþægindum og verða fjötur um fót öllum atvinnurekstri sem þarf að nota orku. Fyrirtæki, sem ekki geta treyst á að fá nægilega orku þegar á þarf að halda, verða að leggja á hilluna áform sín um nýja starfsemi eða aukin umsvif, þannig að framleiðsla og atvinna verður minni en ella. Þannig hiýtur orkuskortur að vera hemill á framfarir og hagsæld landsmanna. Þá er það einnig staðreynd, sem ber að hafa í huga, að kostnaður á hverja framleidda einingu lækkar yfirleitt eftir því sem virkjað er í stærri stfl upp að tilteknu marki. Þess vegna hljóta virkjanir óhjákvæmilega að hafa töluvert af ónotaðri orku fyrstu árin eftir að þær taka til starfa. Á árunum eftir 1950 byggðum við nær sam- tímis írafossvirkjun í Sogi og annan áfanga Laxár- virkjunar. Báðar þessar virkjanir voru mjög við vöxt, þær nægðu 6 ár að minnsta kosti en höfðu fyrstu árin töluvert af orku, sem ekki seldist. Þær tvær virkjanir, sem nú eru í byggingu, Sigalda og Krafla, eru af svipaðri stærð miðað við orkumarkað, en þær munu ekki nægja í 6—7 ár. Bæói Sigalda og Krafla verða fullnýttar 1980—81. Við höfum þvf 4 ár til stefnu, til þess að bæta við virkjunum til að fúTlnægja þörfinni. Þó að umframorka verði nú um sinn bæði frá Sigöldu og Kröflu, er vöxtur orkunotkunar slíkur, að samkvæmt þeim orkuspám, sem nýlega hafa verið birtar, verða þessar virkjanir fullnýttar innan fárra ára. Vegna þessa viðhorfs var ákveðið um síðustu áramót að veita virkjunarleyfi fyrir Hrauneyjafossvirkjun, en það er 140 megavatta virkjun. Sú virkjun er nauðsynleg til þess að tryggja næga raforku til almenningsþarfa og atvinnurekstrar eftir að fyrrtaldar virkjanir verða full- nýttar. Þessi virkjun er ekki ákveðin með hliðsjón af stóriðju. Ef ákveðinn yrði þriðji kerskáli í Álverinu í Straumsvík, þyrfti fyrr en ella að bæta við þriðju vél f Hrauneyjafossvirkjun, þannig að hún verði 210 megavött. Um Hrauneyjafoss er rétt að geta þess, að sú virkjun er fullhönnuð og tilbúin til útboðs, og að þvf er stefnt, að framkvæmdir við hana geti orðið f beinu framhaldi af Sigölduvirkjun en það er á margan hátt mjög hagkvæmt og sparar fé. Að því er einnig stefnt að haga útboðum þannig, að íslenzkir verktakar geti i sem ríkustum mæli orðið aðilar að þessum framkvæmdum, en áður hafa framkvæmdir við stórvirkjanir verið í svo stórum áföngum, að íslenzkir aðilar hafa ekki ráðið við þær og útlendir verktakar því orðið fyrir valinu. Krafla — Víkjum þá að Kröflu. Sú virkjunarframkvæmd hefur verið gagnrýnd meira en aðrar opinberar fram- kvæmdir um langt skeið og af ýmsum ástæðum. Þvf er haldið fram, að ekki hafi verið um nægilegar rannsókn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.