Morgunblaðið - 03.04.1977, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977
Úrval af
RADÍO-og gjafavörum
til fermingargjafa
Útvarp, plötuspilari og kasettutæki ásamt hátöl-
urum. — Verð frá kr 91.590 -
IFidelity Radio Limited
sem við erum umboðsmenn fyrir:
Kasettutæki (verðfrá kr: 37.363.-)
Plötuspilarar (verð frá kr: 32.528.-)
Ferðaviðtæki (verð frá kr: 4.356.-)
Gjörið svo vel að líta inn — og kynnist þvi
sem við höfum á boðstólum.
RATSJÁ H/F “a47
POLYFONKORINN
20 ára
Hátídahljónileikar
Efnisskrá. A. Vivaldi: Gloria
J. Bach: Magnificat
F. Poulenc: Gloria
Flytjendur. pólýfónkórinn — Sinfóníuhljómsveit
Einsöngvarar: Ann Marie Connors, sópran, Elísabet
Erlingsdóttir, sópran, SigrFður E.
Magnúsdóttir, alto, Keith Lewis, tenór,
Hjálmar Kjartansson bassi.
Alls 200 flytjendur.
Stiórnandi: Ingólfur Guðbrandsson
Háskólabíóá skírdag, föstud langa og laugard 7 . 8 og 9 april
Aðgöngumiðasalan hafin hjá FERÐASKRIFSTOFUNNI ÚTSÝN, BÓKA
VERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR og HLJÓÐFÆRAHÚSI
REYKJAVÍKUR. Lauaav 96
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM TÓNLISTARVIÐBURÐI.
Arður
til hluthafa
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Verzlunar-
banka íslands h.f. þann 26. marz s.l. verður
hluthöfum greiddur 13% arður af hlutafé fyrir
árið 1976 frá innborgunardegi að telja.Greiðsla
arðsins hefir verið póstlögð í ávísun til hluthafa.
Verði misbrestur á móttöku greiðslu eru hlut-
hafar beðnir að hafa samband við aðalgjaldkera
bankans.
Reykjavík, 1. apríl 1977.
VERZLUNARBANKI ÍSLANDS HF.
tof ®\£
<( MHFB c
GÖTEBORG
tel. 11 77 26 36
EINKA-
UMBOÐSMAÐUR
NU HAR AB í Gautaborg, sem hefur samlagsfélög í 32 löndum,
vill komast í samband við reyndan verzlunarmann, til að veita
einkaumboð fyrir mjög nýstárlega framleiðslu.
Þetta er alþjóðafyrirtæki, sem færir mjög ört út kvíarnar og viljum
við nú fylgja því eftir á íslandi.
Við ræðum við þá, sem hafa yfir að ráða
einbeitni og áhuga
jt góðri þekkingu á íslenska markaðnum
jt 50.000 sænskra króna fjárfestingamöguleikum.
Við bjóðum
jf einstaka ágóðamöguleika
jf fullkomna þekkingu
jf viðræður í Gautaborg (greiðum flugfar og útgjöld)
jf vörumerkjaréttindi
jf útgáfurétt á öllu prentuðu máli, bæklingum skiltum, auglýs-
ingum
jf umbúða- og útstillingarefni, sem við notum
j{ gögn fyrir fréttablöð og vísindalega notkun
sérstæða framleiðslu
Farið verður með viðtöl sem trúnaðarmál
Biðjið um viðtal við forstjóranna Gilmsjö eða Hannerfalk á Hótel
Sögu í Reykjavík,
Sími 20600 á mánudag eða þriðjudag
Skákþing íslands:
Jón L. Árnason
tekur forystuna
ÖNNUR umferö í landsliðsflokki
Skákþings tslands var tefld f
Taflheimilinu við Grensásveg f
fyrrakvöld.
Urslit urðu þau að Jón L. Arna-
son vann Björn Þorsteinsson,
Gunnar Gunnarsson vann Ómar
Jónsson, Gunnar Finnlaugsson
vann Þóri Ólafsson, jafntefli
gerðu Hilmar Karlsson og Þröstur
Bergmann, biðskák varð hjá
Júlíusi Friðjónssyni og Ásgeiri Þ.
Árnasyni, og hefur Ásgeir aðeins
heldur betri tafl. Skák Margeirs
Péturssonar og Helga Ólafssonar
var frestað vegna þess að Helgi
var ókominn frá Bandaríkjunum.
Eftir 2 umferðir er Jón L. Árna-
son efstur með tvo vinninga og
Gunnar Gunnarsson er i öðru sæti
með 1 Vi vinning. Þriðju umferð-
ina átti að tefla síðdegis i gær.
Gúmíbát
stolið
NÝLEGA var stolið gráum
gúmmiblöórubát, sem lá bundinn
við hlið dýpkunarskipsins Grettis,
sem er að störfum í Hafnar-
fjarðarhöfn. Þeir, sem telja sig
geta veitt upplýsingar um bát
þennan, eru beðnir að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna í
Hafnarfirði.
Stakir jakar
og ísspangir
á siglinga-
leiðum
LANDHELGISGÆZLUFLUG-
VÉL fór í ískönnunarflug í gær-
morgun.
Að sögn Þrastar Sigtryggssonar
í stjórnstöð gæzlunnar eru stakir
jakar á siglingaleið frá Horni að
Óðinsboða, á siglingaleið rá
Óðinsboða að Skaga voru ísspang-
ir og stakir jakar, og var sú leið
talin greiðfær i björtu en tafsöm í
dimmu. Frá Skaga og um Gríms-
eyjarsund sunnan vert að Rauða-
núp voru stakir jakar á siglinga-
leið og frá Rauðanúp fyrir Sléttu
að Svinalækjartanga voru ís-
spangir og stakir jakar. Er sú leið
sömuleiðis talin greiðfær í björtu
en tafsöm í myrkri. Stakir jakar
sáust allt að Fonti.
Svanur lék í
Stykkishólmi
Stykkishólmi.
LAUGARDAGINN 19. þ.m. kom
Lúðrasveitin Svanur frá Reykja-
vik i heimsókn til Stykkishólms
og hélt hljómleika í Félagsheimil-
inu í Stykkishólmi við fádæma
fögnuð áheyrenda sem voru
margir. Stjórnandi Lúðrasveitar-
innar var Snæbjörn Jónsson, en
hann er Hólmurum að góðu kunn-
ur, því hann byrjaói feril sinn
sem trompetleikari hjá Lúðra-
sveit Stykkishólms og hefir auk
þess komið hingað síðan og æft
með sveitinni hér.
Um 35 hljóðfæraleikarar voru i
Svönunum. Mikil athygli og aðdá-
un vakti einleikur Guðriðar V.
Gisladóttur sem lék á flautu.
Lúðrasveitin Svanur færði
Lúðrasveit Stykkishólms mynd áf
hljóðfæraleikurunum í Svaninum
og veitti Bjarni Lérentsinusson,
form. Lúðrasv. Stykkishólms,
henni viðtöku, en Árni Helgason
ávarpaði komumenn og færði
þeim þakkir Hólmara fyrir
ógleymanlega kvöldstund.
Fréttaritari.