Morgunblaðið - 03.04.1977, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 03.04.1977, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977 + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma MÁLMFRÍÐUR þórhanna jóhannesdóttir. Eystri-Leirárgórðum lézt I Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 1 apríl 1 977 Guðfinna Einarsdóttir. Adolf Einarsson. Jóhanna Þorgeirsdóttir. Jóhannes B. Einarsson. Ólöf Friðjónsdóttir, Hannes Einarsson, Guðrún R. Einarsdóttir, Sigurður Guðgeirsson. GuSrfSur Einarsdóttir, Horður Ólafsson. barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi GUNNAR BJÖRNSSON, Alfafelli, Hveragerði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5 apríl kl 1 0 30 Inga Karlsdóttir, dætur, tengdasynir og barnabörn. + Jarðarför föður mins, fósturföður, tengdaföður og afa JÓNS ÁRNASONAR. frá Knarareyri á Flateyjardal, sem andaðist 28 marz, fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 5 apríl kl 13 30. Hjördfs Jónsdóttir, Halldór Kristjánsson, Elfsabet Guðjónsdóttir. Baldur Kristjánsson. og barnabörn. Nýkomin styrktarblöð og augnablöð í eftirtaldar bifreiðir. Bedford 5 og 7 tonn augablöð aftan. Datsun disel 70—77 augablöð aftan. Mercedes Bens 1413 augablöð aftan. Mercedes Bens 1413 krókblöð aftan og framan. Mercedes Bens 322 augablöð aftan og framan. Scania Vabis L55 og L56 augablöð aftan. Volvo 375 augablöð framan. 2" og 2V2" styrktarblöð í fólksbíla. Mikið úrval af miðfjaðraboltum og fjaðraklemmum. Smíðum einnig fjaðraklemmur eftir mðli. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Bílavörubúðin Fiöðrin h.f. ,; . • x ,tyQfki '/ - '% .. 1 ** s T; ....Hl| Nýfæddir kóparnir liggja hjálparvana á fsnum og mæðurnar geltandi f kring, þegar veiðimennirnir nálgast. Svo flýja þær, þegar málmbúin kylfa selveiðimannsins skellur á enni kópsins — og hann tekur að flá hann. Þannig geta allt að 170 þúsund kópar týnt lffi á einum mánuði úti á fsnum. Bardot og Kópadrápið ITramlinld af hlc 1 fr W ^ Framhald af bls. 15 80—90 skinn. Og fyrir skinnið fæ ég 10 sterlingspund, en 5 fyrir skrokkinn. — Ég held af stað um sólarupp- rás og kem ekki heim eftir erfiðið fyrr en klukkan 8—9 á kvöldin. Jafnvel þó ég fái ekki sel, þá vil ég halda þessu áfram. Þannig eru mínir lífshættir. Þannig hafa þeir alltaf verið. Þú getur kallað þá sólarauka að vori. Nú í ár braust munurinn á viðhorfi heimamanna og aðkomu- manna, sem vilja stöðva sel- veiðarnar fram í djúpstæðri reiði. Brian Davies, framkvæmdastjóra Alþjóðadýraverndarsjóðsins, var sagt að hypja sig í burtu, eða hafa verra af. Áttatíu lögreglumenn voru kallaðir á vettvang víða að úr Kanada, til að halda uppi lög- um og reglu, og Davies varð ekki fyrir öðru verra en því að menn lögðust niður fyrir framan þyrluna hans, til að koma í veg fyrir að hann færi út á ísinn. íbúarnir þarna eru látlaust, gott fólk, sem hefur ótta af þessu. Það lifir hörðu lífi. Erfiði er ekkert nýtt fyrir þá Þeir eru seig- ir sjálfstæðir einstaklingshyggju- menn, sem ekki vilja lifa á ríkis- styrkjum. Og þeir hafa fullan stuðning Kanadastjórnar, sem ekki hefur bara samúð með þeim, heldur styður þá af stjórnmála- ástæðum. Nýfundaland er vafa- fylki, þar sem bæði íhaldsmenn og frjálslyndir keppast um þessi fáu atkvæði. Þar við bætist óskráður samningur Kanadamanna við Norðmenn um að útlendingum verði leyft að halda áfram selveið- um ef þeir í staðinn virði 200 mílna fiskveiðimörk Kanada. Og þá fer maður að skilja yfirborðið á vandanum, sem er stærr» en íciakamir úti fvrir ströndinni. Að Fermingarúr 15% verðlækkun (vegna tollalækkunar) Handtrekkt úr. Verð frá 1 2.000. Sjálftrekkt úr. Verð frá 1 8.000.- LED tölvuúr Verð frá 13.700,- LCD tölvuúr Verð frá 19.100.- Verð, gæði og útlit fyrir alla 1. árs ábyrgð Úr og skartgripir, Jón og Óskar Laugavegi 70 og Verzlanahöllinni, simar 24910 — 1 7742. Sendum í póstkröfu. auki gengur sá orðrómur að Kana- dastjórn vilji semja við Norðmenn um að þeir veiti þeim evrópska tækniaðstoð við að bora eftir olíu, sem þeir vita af undir ísnum. Það meinlega við þennan erfiða vanda blasir þó ekki við í stjórnarskrifstofunum, heldur hér í St. Anthony, þar sem dýra- verndunarmenn hafa safnað hundruðum blaðamanna, til að horfa á veiðarnar, í þeirri von að þeir fordæmi þær á prenti og vinni málinu fylgi. 1 meira en 11 mánuði á ári eru Nýfundnalands- búar svo látnir í friði og verða að draga fram lífið eins og þeir best geta með hefðbundnum iðferðum. Skyndilega standa þeir andspænis háþróaðri fjölmiðla- tækni, þegar þeir eru að reyna að vernda það sem þeir vilja trúa að sé sinn löglegi réttur. Þyrlur þeytast um og fólk frá París, New York og London biður um snöggsteikta steik með Bernaise sósu hjá ruglaðri þjónustustúlku, sem aldrei hefur borða annað en saltkjöt. Fjár- hæðirnar, hundruð eða þúsundir punda, sem þessir innrásarmenn eyða eru óhugnanlegar borið saman við meðaltekjurnar hér, sem nema um 2000 pundum á ári, fyrir utan atvinnuleysisstyrkina. A'llt í einu gefst fólki eins og mér, sem aldrei hefur séð viðbjóðinn í sláturhúsunum, þar sem drepið er bak við lokaðar dyr, tækifæri til að horfa á opinbera slátrun fallegra dýrategunda í nærmynd og litum. Ég get ekki annað sagt en að margir eru þeir sem verða að drepa kýr og svín til að lifa á. Fáir, utan þessa fólks hér, borða selakjöt eða sælgæti einsog hreifakökur. Hvað sem viðhorfi íbúanna til sinnar menningar og siða líður, þá er fullunna fram- leiðslan af þessari blóðugu slátrun ekkert annað en lúxusgjöf til dekurkvenna langt i burtu frá þessari frosnu auðn. Allir siðir og venjur breytast og deyja. Og svo dapurlegt sem það er fyrir íbúa Nýfundnalands, þá eru þeirra erfðavenjur nú orðnar að alþjóð- legu deilumáli. Hvaða áhrif sem það hefur á þetta fólk, þá verður þessum kópaveiðum að ljúka. Þær tilheyra annarri menningu, og vilji komandi kynslóðir ekki lifa I sálarlausum heimi án slíkra dýra, þá er tími til kominn fyrir íbúa Nýfundnalands að taka upp lifnaðarhætti 20. aldar, segir Anthea Disney í lok greinar sinnar. Meðan Brigitte Bardot sat í hlýrri stofu í leiguhúsi, fór leikkon- an Yvetta Mimieux út á Isinn og lét sig hafa harðræðið I heila viku til að sjá sjálf hvað um væri að vera. + Af alhug þakka ég öllum þeim sem hjálpuðu mér við að framkvæma ósk SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR er lést 1 5 marz s.l , um að verða jarðsett I kirkjugarðinum að Undirfelli I Vatnsdal, einnig öðrum sem heiðrað hafa minningu hennar. Guð blessi ykkur öll Björg Jónsdóttir Dyngjuvegi 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.