Morgunblaðið - 03.04.1977, Side 41

Morgunblaðið - 03.04.1977, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977 — Ræna átti... Framhald af bls. 1. bandi við ránið á leiðtoga kristi- legra demókrata í Vestur-Berlín, Peter Lorenz, fyrir tveimur árum. Engin önnur nöfn voru birt, en samkvæmt áreiðanlegum heimild- um eru Bandaríkjamenn, Austur- rikismenn og Suður- Ameríkumenn meðal hinna hand- teknu. Frú Leijon og Palme báru ábyrgð á framsali fimm vestur- þýzkra hermdarverkamanna sem lögðu undir sig vestur-þýzka sendiráðið I Stokkhólmi 24. apríl 1975. Fyrirhuguð mannrán munu hafa verið hugsuð sem hefnd fyr- ir framsalið á tveggja ára afmæli töku sendiráðsins. — Sjónvarps- gervihnöttur Framhald af bls. 1. áherzlu á mikilvægi þess að hægt verði fyrir sjónvarpsáhorfendur í einstökum löndum að ná dagskrá hinna landanna, þar sem skilning- ur og þekking grannríkisins getur auðveldað skilning og lausn á eig- in vandamálum, auk þess sem það getur styrkt samkennd milli þjóð- anna. í þessu sambandi hefur verið minnst á starf Norðurlandaráðs að samræmingu á stafsetningu Norðurlandanna og fyrirbyggj- andi aðgerðir gegn því að Norður- landamálin fjögur, íslenzka, sænska, norska og danska þróist ekki frekar í gagnstæðar áttir. Var það álit margra ræðumanna að norrænt sjónvarp gæti komið í veg fyrir það. Svíar stefna að þvf að geta byrjað að nota sjónvarps- hnöttinn þegar árið 1980 og geta þá sænskir sjónvarpsáhorfendur annað hvort náð öðrum norræn- um sjónvarpsdagskrám eða sam- norrænu sjónvarpsefni. Að venju er fjöldi tillagna til meðferðar á þinginu. Flestar varða Norðurlönd almennt svo sem tillaga um að Norðurlönd beiti sér fyrir verndun frjálsra siglinga, samstarf um með- höndlun á geislavirkum úrgangs- efnum, samstarf um að gæta hags- muna þróunarrikja I heimsvið- skiptum og samvinnu í byggingar- iðnaði. Aðrar varða aðeins ein- staka hluta Norðurlanda, svo sem samgöngur milli norðurhluta Noregs, Sviþjóðar og Finnlands eða samstarf sveitarfélaga sitt hvorum megin við landamæri. Þá hefur ráðherranefndin mælt með fjölmörgum atriðum við rikis- stjórnir varðandi einstaka þætti efnahags- félags- og menningar- mála. Forsætisráðherrar Norðurland- anna fimm munu halda blaða- mannafund í dag, en i kvöld verður 25 ára afmælishátíð Norðurlandaráðs haldin í Finn- landiahúsinu. Við sama tækifæri tekur finnska skáldið Bo Carpelan við bókmenntaverðlaun- um Norðurlandaráðs. Á sunnudag verður almennum umræöum haldið áfram og mun þá Gylfi Þ. Gíslason tala. Einnig verður haldið áfram afgreiðslu tillagna. Þinginu verður svo slitið seinni hluta sunnudags, en flestir íslenzku fulltrúarnir fara heim á mánudag. Ertu að byggja? Það fyrsta, sem hver húsbyggjandi þarf að hafa í huga er að tryggja sér gott timbur. í meir en 70 ár höfum við verslað með timbur. Sú mikla reynsla kemur nú viðskiptavinum okkar til góða. Við getum m.a. boðið: Móta og byggingatimbur í uppsláttinn og sperrurnar. Smíðatimbur og þurrkað timbur í innréttingar. Réttheflað timbur í skilrúmin. Gagnvarið timbur f veggklæðningar, girðingar og gróðurhús. Viðarþiljur á veggina. Einnig höfum við margar þykktir og gerðir af krossvið og spónaplötum, svo og harðtex, olíusoðið masonite, teak, oregonfuru eða cypress í útihurðir o.fl. Eik og teak til húsgagnasmíði. Efni í glugga og sólbekki. Onduline þakplötur á þökin. Þá útvegum við límtrésbita og ramma í ýmiss konar mannvirki. Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 BINGÓ Málfundafélagið Óðinn heldur stórglæsilegt Bingó, n.k. mánudagskvöld 4. apríl, kl. 20.30. AÐ Hótel Borg Spilaðar verða 14 umferðir. Margir eigulegir vinningar i boði. Aðalvinningur 20 þúsund kr. vöruúttekt eftir eigin vali, eða staðgreitt ef þess er óskað. Stjórn Óðins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.