Morgunblaðið - 03.04.1977, Síða 43

Morgunblaðið - 03.04.1977, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977 43 fclk í fréttum Bíður dauðans + Barbara Hutton, rikasta kona í heimi, sem orðin er 64 ára, er bæði sjúk og óhamingjusöm. Hún hefur nú í næstum hfeilt ár búið i hótelíbúð í Beverly Hills i Los Angeles og allt bendir til að hún endi ævina þar. Hún hefur líflækni sinn stöðugt hjá sér en hann heitir Colin Fraser og hafur verið sambýlismaður henn- ar í 18 ár án þess þó að þau hafi gengið í hjónaband en Barbara hefur átt 7 eigin- menn. Hún setur allt sitt traust á Fraser. Hún gæti keypt sér hvers konar læknishjálp og ótal vini fyrir milljónirnar sínar en hún gerir það ekki. Liggj- andi í rúminu eða sitjandi í hjólastól eyðir hún tím- anum við að lesa glæpa- sögur, og áhyggjum sínum og kvölum eyðir hún með því að drekka áfengi. Hún borðar sjaldan og hefur lést um 46 kiló. Hún treystir engum nemá Colin Fraser og hann verður að smakka á öllu sem hún lætur inn fyrir sínar varir. Hvort sem það er matur eða drykkur. Hún lifir í stöðugum ótta við að einhver reyni að byrla henni eitur. Hinn 48 ára gamli Fraser gerir ai]t sem hann getur til að gleðja sambýliskonu sina en árangurinn er harla litill. Barbara Hutton átti lengi þá ósk heitasta að dvelja hluta af vetrinum í villunni skammt frá Tanger höfuð- stað Marokko. En hún var of veikburða til að ferðast. Hún bíður aðeins dauðans. A myndinni er Fraser að bera Barböru út i bil. Margt er skrítið í kýrhausn- um + Ungar og ólofaðar þjóð- höfðingjadætur eru alltaf vin- sælt fréttaefni. Furstahjónin f Monaco hafa krafist 360 milljóna króna skaðabóta af brasilfska milljónamærings- syninum Francesco Scarpa fyrir að láta sér um munn fara að Caroline furstadóttir sé ekki lengur hrein mey. Og ekki nóg með það, heldur er samkvæmt brasilfskum lögum hægt að dæma hann f 18 mánaða fangelsi fyrir ærumeiðandi fullyrðingar. Þegar Francesco frétti um uppþotið sem þessi fullyrðing hans olli f höllinni við Rivieruna sagði hann að þetta væri allt misskilningur. „Blaðamennirnir spurðu mig hvaða konur ég hefði þekkt og ég taidi upp nokkrar og meðal þeirra var Caroline." Hann hef- ur nú beðið lögfræðing sinn að reyna að komast að samkomu- lagi við furstahjónin og ef málið fer fyrir rétt ætlar hann að krefjast þess að Caroline gangist undir læknisskoðun. En ef ungfrúin reynist ekki hrein mey eru til ráð við því. Plastik-skurðlæknirinn Kohei Marsukubo f Tokio f Japan kippir þvf f lag með smá skurð- aðgerð sem tekur 20 mfnútur. Já, það er margt skrýtið f kýr- hausnum. Seljum á morgun eftirtalda Citroén bíla CX 2000 árg. '75 GS Club 1220 '77 GS Club 1220 árg.'74 GS Club 1015 ðrg. '71 GS Glub 1220 station árg. '75 GS Club 1220 station árg. '74 GS Comfort 1220 árg. '74 Ami 8 árg '75 Ami 8 árg. '73 Ami 8 station árg. '74 2CV 4 (braggi) árg. '71 D Super árg. '74 DS 23 Pallas árg. '73 D Super árg. '73 D Special árg. '71 DS árg. '68 G/obus? Lágmúla 5 sími 81555 Undanfarið hefur þessi frábæra hljómplata verið ein mest selda erlenda platan á íslandi og reyndar vlðast hvar Nú. þegar hafa selst hátt á þriðja þúsund eintök hér, enda ekki furða, þvi að á DISCO ROCKET eru flest vinsælustu lögin á islandi I dag. Má þar nefna: l'll Meet You at Midnight með Smokie — Jeans on með David Dundas — Blinded by the Light með Manfred Mann — Mississippi með Pussycat og Sextán önnur skemmtileg lög DISCO ROCKET — Platan sem allir þurfa aSeiga. Með lögum skal land byggja fÍCÍAAf hf. Dreifing um Karnabæ s: 28155 O. •VV

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.