Morgunblaðið - 26.06.1977, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JUNÍ 1977
Ræðir málefni S.Þ.
yið ráðamenn hér
Forstöðumaður upplýsingaskrif-
stofu SÞ á Norðurlöndum í heimsókn
HÉR Á lande er nú staddur svíinn Birger Halldén,
forstöðumaður upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóð-
anna á Norðurlöndum. Þessi upplýsingaskrifstofa er í
Kaupmannahöfn, en Sameinuðu þjóðirnar starfrækja 60
slíkar skrifstofur um ailan heim.
Skrifstofum þessum er ætlað Halldén kvaðst kominn hingað
tvíþætt hlutverk. í fyrsta lagi eiga til iands tii yiðræðna við yfirvöld
og fjölmiðla um málefni S.Þ. og
ennfremur til að afla upplýsinga
héðan fyrir samtökin. Hann sagð-
ist myndu ræða við utanríkisráð-
herra og við fulltrúa menntamála-
ráðuneytisins og ennfrenur við
sjónvarpið um sýningu kvik-
mynda, sem S.Þ. hafa gert.
Aðspurður um hugmyndir sem
fram hafa komið um staðsetningu
háskóla Sameinuðu þjóðanna hér
á landi, sagði Halldén að hingað
kæmi bráðlega maður frá háskóla
S.Þ. í Tókíó til að kanna þessi
mál, en vel kæmi til greina að
starfrækja hér slikan skóla, sem
þá mundi að mestu helgaður jarð-
vísindum, enda störfuðu slikir
skólar ekki eins og venjulegir há-
skólar heldur væru eins konar
rannsóknamiðstöðvar fyrir þær
greinar vísinda, sem góðar að-
stæður væru til að kanna þar sem
þeir væru staðsettir.
Það er Félag Sameinuðu þjóð-
anna á íslandi sem hefur skipu-
lagt ferð Halldéns og mun hann
dveljast hérlendis fram yfir
mánaðamótin.
þær að veita upplýsingar um
starfsemi Sameinuðu þjóðanna,
en í öðru lagi að safna upplýsing-
um frá þeim löndum sem þær
þjóna.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Halldén á föstudag.
Halldén kvað skrifstofuna i Kaup-
mannahöfn vinna mikið að því
með fjölmiðlum, samtökum og
yfirvöldum, ekki hvað síst i skól-
um, að auka skilning fólks á al-
þjóðavandamálum og mikilvægi
alþjóðasamvinnu til lausnar
þeim. Þar mætti til dæmis nefna
umhverfismál, afvopnunarmál,
aðstoð við þróunarlönd og haf-
réttarmál.
Halldén sagði, að í heiminum
væri nú árlega varið um það bil
360 milljörðum dala til hermála
en 15—20 milljörðum í þróunar-
aðstoð. Sameinuðu þjóðirnar
reyndu eftir mætti að breyta
þessu hlutfalli til batnaðar, en
það væri örðugt þar að fjárlög
stofnunárinnar næmu aðeins 380
mílljónum dala. Halldén sagði
margar ráðstefnur á döfinni hjá
S.Þ. á næstunni, t.d. afvopnunar-
ráðstefnu að ári I New York. Ný-
lega hefði verið samþykkt á ráð-
stefnu í Genf alþjóðlegt bann við
notkun hafsins og hafsbotnsins á
sviði kjarnorkuvopna. Á þessari
ráðstefnu vildu margir fulltrú-
arnir hafa bannið viðtækara, m.a.
vildu þeir að bönnuð yrði notkun
hlerunardufla, en það fékkst ekki
samþykkt.
©
INNLENT
Birger Halldén
Tónlistariðja norræns æskufólks í dag:
Fjölmennasta sinfóníu-
hljómsveit á íslandi
TÓNLISTARHATIÐINNI Ung nordisk musik, Tónlistariðja norræns
æskufólks, lýkur f kvöld með hljómleikum 100 manna norrænnar
sinfónfuhljómsveitar ungs fólks f Háskólabfói og hefjast tónleikarnir
kl. 17. Þá eru einnig fyrirlestrar opnir öllum f dag f Norræna húsinu
kl. 14—16 þar sem George C'rumb mun ræða um verk ungra tónskálda
og kl. 20—22 mun tónskáldið ræða um tónsmfðar.
Á hljómsveitartónleikunum f Háskólabíói munu Per Lyng og Paui
Zukofsky stjórna hljómsveitinni.
Verkin sem verða flutt eru Sommarsvevn eftir Olav Berg, einsöng-
vari verður Elisabet Erlingsdóttir. Þá verður flutt Threnody to the
Victims of Hiroshima eftir Krzysztof Penderecki, Fluktationer eftir
Svend Christiansen, Anagamin eftir Gicinto Scelsi og Echoes of Time
and the River eftir George Crumb.
Olav Berg er fæddur í Noregi 1949. Hann nam hljómfræði og
tónsmíðar og hefur samið nokkur hljómsveitarverk. Hann hlaut I.
verðlaun fyrir strengjakvartett f alþjóðlegri tónsmíðasamkeppni í
Belgíu haustið 1976.
Krzysztof Penderecki er fæddur f Póllandi 1933. Árið 1959 vann
hann þrjú fyrstu verðlaunin í tónsmíðasamkeppni ungra tónskálda, en
hann varð snemma heimsþekktur sem einn af athyglisverðari tónskáld-
um yngri kynslóðarinnar.
Svend er fæddur í Danmörku 1954. Hann leggur stund á tónfræði við
Józka tónlistarskólann.
Georges Crumb er eitt þekktasta tónskáld Bandaríkjanna í dag og
hefur hann samið fjölda tónverka sem leikin eru vfða um heim.
(ieorKes Crumb Olav BerR Krzyszlof Pendereckl Svend Chrisliansen.
Rannsóknarlögreglan
í Hafnarfirði flytur
í endurbætt húsnæði
RANNSOKNARLOGREGLAN í
Hafnarfirði fluttist nýlega í endur-
bætt húsnæði á efri hæð lögreglu-
stöðvarinnar í bænum. Jafnframt
fékk rannsóknarlögreglan sérinn-
gang, en f ram til þessa hefur orðið
að ganga i gegnum afgreiðslu bif-
reiðaeftirlitsins til þess að komast
til rannsóknarlögreglunnar og hef-
ur það verið til verulegs óhagræð-
is.
Nýju húsakynnin eru mjög vistleg
og allur aðbúnaður eins og bezt
þekkist á slikum stöðum. Húsnæði
rannsóknarlögreglunnar er 75 fer-
metrar að stærð, allt teppalagt og
herbergi lögreglumannanna búin
nýjum húsgögnum Þá eru öll her-
bergi og hurðir hljóðeinangrað og
kemur það sér sérstaklega vel þegar
fram fara skýrslutökur. Þá skal þess
sérstaklega getið, að aðstaða tækni-
deildar hefur verið stórbætt og
deildin búin betri tækjum en áður.
Rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði
verður 10 ára í haust en hún hefur
upplýst mörg stór hegningalagabrot
á undanförnum árum, eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum og er
skemmst að minnast gullþjófnaðar-
ins mikla hjá Ulrich Falkner gull-
smið
Með fylgja tvær myndir úr hinum
nýju húsakynnum, á annarri sést
gangur og biðstofa og á hinni mynd-
inni, sem tekin er í skrifstofu lög-
regluforingjans Sveins Björnssonar,
má sjá frá vinstri Skúla Þórðarson
laganema, sumarmann í lögregl-
unni, Svein Björnsson yfirlögreglu-
þjón og Jóhannes Pál Jónsson varð-
stjóra Á myndina vantar Eðvar
Ólafsson, sem er í fríi
x4ðalfundur Skógræktarfélagsins:
Skipting vindlingafjár
Landgræðslusjóðs ákveðin
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
lags íslands var haldinn fyrir
nokkru á Laugarvatni og hefur
áður verið sagt frá fundarstörfum
hér 1 blaðinu. Á fundinuin voru
þeir Oddur Andrésson og Krist-
inn Skæringsson endurkjörnir í
stjórn félagsins, en fyrir 1 stjórn-
inni eru Jónas Jónasson, formað-
ur, Ólafur Vilhjálmsson og
Bjarni Helgason. Einnig voru
endurkjörnir 1 varastjórn Þórar-
inn Þórarinsson frá Eiðum og Sig-
urður Ilelgason lögfræðingur, en
fyrir í varastjórn eru Ilulda
Valtýsdóttir, Brynjar Skarphéð-
insson og Andrés Kristjánsson.
Á fundinum voru gerðar nokkr-
ar ályktanir en aðalverkefni
fundarins var að ganga endanlega
frá reglum um það, hverwig verja
skuli vindlingafé Landgræðslu-
sjóðs, sem ætlað er til skógræktar,
og til hvaða verkefna, og sam-
þykkti fundurinn samhljóða regl-
ur um það. Samkvæmt þessum
reglum á að verja allt að 30% af
fénu til skógræktarfélaga eða fé-
lagsmanna þeirra til að girða og
friða land til skógræktar og land-
græðslu, allt að 20% varið til
gróðursetningar á vegum skóg-
ræktarfélaganna, allt að 30% til
plöntukaupa skógræktárfélag-
anna að fenginni umsókn þeirra
og allt að 20% skal heimilt að
verja til að styrkja skógræktarfé-
lög til viðhalds á girðingum, grisj-
unar og hirðingar ungviðis. Þá er
heimilt að verja fé til fræöflunar
og styrktar við uppeldi trjá-
plantna auk þess að lána til kaupa
á skóglendum eða landi til skóg-
ræktar.
Af öðrum samþykktum, sem
fundurinn gerði má nefna að
þeirri áskorun var beint til
menntamálaráðherra að hann
beiti sér fyrir breytingum á lög-
um um landgræðslustörf skóla-
fólks, er miði að því að lögin verði
auðveldari í framkvæmd. Þá var
hvatt til kynningar á skógrækt í
sjónvarpi, fagnað var skjólbelta-
rækt og skorað var á Náttúru-
Gítar-
tónleikar
MÁNUDAGINN 27. júní næst-
komandi heldur Símon ívarsson
gítartónleika í kirkju Óháða
safnaðarins í Reykjavík kl. 20.30.
Ilinn 29. júní heldur Sfmon tón-
leika f Tónlistarskólanum á Ákra-
nesi og hinn 30. leikur hann á
Selfossi og sfðar á isafirði. Einnig
er Ifklegt að tónleikar verði
haldnir á Akureyri og á Húsavfk.
Símon lauk prófi frá Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar árið
Lionsmenn
mála Sigluvík
Siglufirði, 25. júní.
LIONSMENN hér á Siglufirði eru
nú að mála skuttogarann Siglu-
vfk, en þeir fengu verkið fyrir
ákveðna upphæð, sem síðan
rennur til líknarmála. Það er
margt manna sem málar Siglu-
vikina, eins og t.d. bankamenn,
verzlunarmenn, skrifstofumenn,
lögregluþjónar og að sjálfsögðu
málarar sem eru i Lionshreyfing-
unni hér.
—mi-
verndarráð og náttúruverndar-
nefnd Rangárvallasýslu að friða
Stakkholt og Steinholt. Einnig
lýsti fundurinn yfir andstöðu
sinni við flutning Skógræktar rík-
isins til Austurlands eins og áður
hefur komið fram.
1975 og hefur sfðan stundað fram-
haldsnám við Tónlistarháskólann
i Vinarborg hjá hinum heims-
fræga prófessor í gítarleik, Karl
Scheit. Símon hefur hér á landi
leikið bæði f sjónvarpi og útvarpi.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Bach, Doweland,
Frescqbaldi, Sor, Albeniz, Ponce
og de Falla. Sala aðgöngumiða fer
fram við innganginn.
Símon mun kenna á gítar i júli
og ágúst og geta þeir sem áhuga
hafa haft samband við hann og
hringt í síma 24818 eða rætt við
hann fyrir eða eftir tónleika.
Símon heldur aftur til náms í
Vínarborg i byrjun september.