Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 48
ai'<;lVsin<;asíminn er:
22480
W#rfl»itiblntiiíi
au<;lysin<;asíminn er:
22480
IWoroimbTnbiíi
SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1977
Þörungavmnslan:
Forkastanleg
vinnubrögð...
- segir talsmaður stórkaupmanna um
greiðslutilboð ríkisins á skuldunum
„ÞAÐ ER ákaflega einkennilega að þessu staðið af hálfu rfkisins. IVIér
er kunnugt um að sumar skuldir Þörungavinnslunnar eru hálfs annars
árs og tveggja ára gamlar og nú er rfkið að bjóðast til að greiða
einhvern hluta þeirra, vaxtalausan, og svo er boðið upp á afganginn
eftir ár, vaxtalausan lfka.“ sagði Jón Magnússon, formaður Félags
fslenzkra stórkaupmanna, f samtali við Mbl. f gær, en mikillar gremju
gætir nú f hópi þeirra, sem eiga ógreidda reikninga hjá Þörungavinnsl-
unni, vegna þeirrar aðferðar, sem ríkið hefur gripið til f sambandi við
skuldirnar.
Nú segir rfkið, að Þörungavinnslan sé hlutafélag en ekki rfkissjóður,
en allir vissu að rfkið á 80% f fyrirtækinu og það var aðild rfkissjóðs,
sem skapaði þvf lánstraust, sagði Jón. „Þess vegna tel ég alveg ófært,
að rfkið, sem yfirleitt er nú ekki að bfða með hörkuna í innheimtu
gagnvart fyrirtækjum eða einstaklingum, skuli leyfa sér að koma
svona fram f þessu máli.“
„ELSKU MAMMA. Nú er ég í Reykjavík. Veðrið er gott og mér líður vel. Ég sá svo
sætan strák.. ,en elsku mamma, þú þarft engar áhyggjur að hafa af mér. ..“ Ljósm.
Mbl.: Ól.K.M.
Þingmenn landsbyggðarkjördæma með búsetu í Reykjavík:
Fá hálía dagpeninga og húsa-
leigustyrk yfir sumartímann
ÞINGMENN
landsbyggðarkjördæmanna, sem
búsettir eru í Reykjavík, fá hálfa
dagpeninga eða 1175 kr. á dag og
Sex hvalir
komnir á
land í gær
HVALBÁTARNIR eru nú
farnir að koma að landi með
hvali, þá fyrstu sem veiddir
eru á þessari vertíð og í gær-
morgun voru allir bátarnir
búriir að koma að landi með
afla. Að sögn Eggerts ísaksson-
ar í Hvalstöðinni í Hvalfirði
kom fyrsti hvalbáturinn inn í
fyrrakvöld og hinir komu síð-
an í fyrrinótt og gærmorgun.
Voru þeir með samtals 6 hvali,
5 langreyðar og 1 búrhval.
Sagði Eggert, að skyggni á
miðum hvalbátanna hefði ver-
ið slæmt þann tíma sem þeir
hefðu verið að veiðum.
liðalega 30 þúsund krónur f húsa-
leigustyrk þann tfma sem þing
situr ekki. Skiptir ekki máli þó
þeir dveljist heima hjá sér eða í
Reykjavík verulegan hluta sum-
arsins, en þessar greiðslur eru þó
fyrst og fremst ætlaðar þing-
mönnum þessum ’ til að sinna
kjördæmum sfnum.
Þessir sömu þingmenn fá auk
þessa eins og allir aðrir þingmenn
fyrir utan ráöherra sérstakan
ferðastyrk, sem er um 300 þúsund
á ári og er hugsaður sem eins
konar bílastyrkur. Þeir fá einnig
greiddar samkvæmt reikning þær
flugferðir sem þeir takast á hend-
ur í kjördæmi sín.
Að þvi er Friðjón Sigurðsson,
skrifstofustjóri Alþingis, sagði
Morgunblaöinu þá er rökstuðn-
ingur fyrir framangreindum
greiðslum til landsbyggðaþing-
manna er búa I Reykjavík þær, að
þessir þingmenn þurfi að ferðast
um kjördæmi sín yfir sumartím-
ann til að vera í sambandi við
kjósendur og þeir þurfi þessar
greiðslur til að hafa upp í uppi-
halds- og dvalarkostnaðinn. Sagði
Friðjón að það væri talið að þessi
leið hefði mun minni kostnað í för
með sér en ef það þyrfti að greiða
þingmönnum þessum eftir reikn-
ingi. Húsaleigustyrkurinn væri
rökstuddur með sama hætti.
„ÞETTA ÞYKJA mér góðar fréttir
fyrir skákheiminn." sagSi W.
Dorazil, forseti annars Vestur-
evrópusvæSis AlþjóSaskáksam-
bandsins. þegar Mbl. skýrSi hon-
um frá þvf I gær, aS FriSrik Ólafs-
son hefSi ákveSiS aS gefa kost á
sér til forsetaembættis FIDE. „Ég
mun aS sjálfsögSu stySja FriSrik
til embættisins og ég tel vanda-
laust aS tryggja honum stuSning
allra skáksambandanna á minu
svæSi."
W Dorazil kvaðst ekki i neinum
vafa um. að á framboð Friðriks yrði
litið sem möguleika til að tryggja
sjálfstætt og ópólitískt Atþjóðaskák-
samband ,.Og Friðrik Ólafsson er
góður maður, sem hefur aflað sér
Eins og Mbl. hefur skýrt frá
býður fjármálaráðuneytið upp á
35% skuldar nú og afganginn á
næsta ári, þegar búið sé að veita
til hans fé á fjárlögum. „Það má
nærri geta hvers virði þær krónur
eru miðað við þann tíma, þegar til
skuldarinnar var stofnað," sagði
Jón, „þegar það er haft í huga, að
miðað við vísitölu vöru og þjón-
ustu 100 1974, þá er hún orðin 192
í dag.
Mér finnst siðferðilega rangt af
ríkissjóði að ætla að fara í gang
með þetta fyrirtæki aftur með því
hugarfari að níðast svona á lánar-
drottnum fyrirtækisins. Það er
yfirleitt enginn óvilji hjá okkur
til þess að hjálpa mönnum að
komast á fæturna aftur, en þá
borga þeir auðvitað vexti og verð-
bætur af fyrri skuldum.“
Mbl. er kunnugt um að fyrir-
tæki vildi skuldajafna við ríkis-
sjóð með sköttum, en þvi hafnaði
fjármálaráðuneytið afdráttar-
laust. „Þetta er auðvitað alveg
forkastanlegt," sagði Jón. „Ríkis-
sjóði ætti að vera I lófa lagið að
skuldajafna við fyrirtækin."
Lausaskuldir Þörungavinnsl-
unnar nema um 70 milljónum
króna og dreifast á um 200 kröfu-
hafa. Mjög er þar um misháar
upphæðir að ræða og kvaðst Jón
vita til þess, að fyrirtæki, þar sem
virðingar og trausts I skákheimin-
um."
Þegar Mbl. spurði Dorazil, hvaða
áhrif hann teldi að framboð júgó-
slavneska stórmeistarans Gligoric
hefði á möguleika Friðriks, svaraði
hann þvl til, að enda þótt Gligoric
nyti álits sem góður skákmaður og
skemmtilegur persónuleiki, þá væri
ekki hægt að líta á hann sem sjálf-
stæðan frambjóðanda eins og Frið-
rik „Gligoric mun eiga sitt fylgi
undir kommúnistarikjunum," sagði
W. Dorazil, „og hann getur ekki
hafið sjálfan sig eða FIDE yfir þau
pólitísku tengsl " Slðan bætti Dorazil
þvi við, að það væri ef til vill svo litið
einkennilegt, að hann hefði einmitt
verið að fá boð frá sovézka skáksam-
skuldin var á lægri nótunum
hefði verið boðinn allt að helm-
ingur skuldarinnar nú, en það
hafnaði þessu boði og sagði að það
væri varla fyrir söluskattinum
svo bezt væri að láta málið eiga
sig.
Þá er Mbl. kunnugt um að hjá
einu fyrirtæki var spurt hvað
gerðist, ef kröfuhafar höfnuðu
þessu tilboði fjármálaráöuneytis-
ins. Svarið, sem þá fékkst, var á
þá Ieið, að þá yrðu menn að leita
réttar síns eftir venjulegum leið-
um og rikissjóður tæki ekki neina
ábyrgð á sig.
Líðan drengs-
ins er slæm
LÍÐAN drengsins úr
Garðinum, sem slasaðist
mikið í umferðarslysi
þar í fyrradag var ekki
góð í gærmorgun og var
hann þá vart kominn til
fullrar meðvitundar.
Drengurinn sem er 11
ára gamall slasaðist
mjög mikið á fótum og
liggur hann á gjörgæzlu-
deild Borgarspítalans.
bandinu um að koma til fundar í
Leningrad á morgun, sunnudag ,,Ef
til vill ætla þeir bara að ræða við
mig um auka-aðalþingið I júlí,"
sagði hann svo. „En efalaust ber
forsetamálið á góma líka.
Þess vegna er það gott fyrir mig
að hafa nú fengið fréttir af þvf að
fram sé kominn maður, sem ég get
stutt afdráttarlaust."
Þegar Mbl spurði Dorazil, hvern-
ig hann teldi að landið lægi utan
Evrópu, sagði hann: „Þar er auðvit-
að allt óljóst ennþá En við höfum
líka ár til að vinna að sigri Friðriks "
í Mbl í gær birtist viðtal við H
Golombek, forseta hins Vestur-
evrópusvæðis FIDE, þar sem hann
kvaðst styðja Friðrik heilshugar
W. Dorazil, forseti annars Vesturevrópusvæðis FIDE:
Get tryggt Friðrik stuðning
allra minna skáksambanda