Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 3
MORGUXBLAÐIÐ, SUNNUDACíUR 2(i. ,JU\Í 1977 3 Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands: Heildarvelta félagsins nam rúmum 5,3 milljörðum 1976 AÐALFUNDUR Sláturfélags Suður- lands var haldinn að Hótel Sögu sl. fimmtudag og sátu fundinn 88 full- trúar auk gesta Á þessu ári eru liðin 70 ár frá því að félagið var stofnað en stofnfundur þess var haldinn við Þjórsárbrú þann 28 janúar 1907 og var afmælisins minnzt í tengslum við fundinn. í ræðu stjórnarfor- manns Sláturfélagsins, Gísla Andréseonar, Neðra-Hálsi, kom fram að heildarvelta félagsins á ár- inu 1976 varð rúmar 5,3 milljarðar króna og hafði aukizt um 36% frá árinu áður. Tekjuafgangur af rekstri félagsins á árinu 1976 varð 16,4 milljónir króna og er það heldur hagstæðari afkoma en siðustu ár Jón H Bergs. forstjóri félagsins, gerði grein fyrir starfsemi einstakra deilda og kom fram, að haustið 1 976 var slátrað rúmlega 1 66 þús- and fjár í sláturhúsum félagsins og er það liðlega 1 6 þúsundum færra en haustið 1975 Innvegið kjöt- magn var 2.315,3 tonn og hafði minnkað um 295.5 tonn frá árinu á undan eða um rúm 11%. Meðal- þungi allra dilka f sláturhúsum Sláturfélagsins haustið 1976 var 13,40 kg sem er 0,28 kg eða 2.0 lægri en meðalfallþungi haustið 1975 Jón ræddi riokkuð um erfið- leika á greiðslum fyrir sauðfjár- afurðir á árinu 1976 og sagði á sá vandi hefði stafað af drætti á greiðslu útflutningsbóta Fram kom að Sláturfélagið greiddi vegna fram- leiðslu ársins 1975 9,3 milljónir króna í verðjöfnunargjald, sem nam kr. 2,70 á hvert kiló dilka- og geld- fjárkjöts og kr 1,35 á hvert kfló ær- og hrútakjöts. Jón sagði að 1 júní sl. hefðu birgðir af kindakjöti hjá félaginu numið 650 tonnum og með eðlilegri sölu ættu þessar birgðir að verða seldar fyrir haust- slátrun Af einstökum deildum félagsins varð aukning veltu mest hjá kjöt- vinnslu á sl ári eða tæplega 61% miðað við árið á undan Sá árangur náðist i rekstri kjötvinnslunnar að hráefnisnotkun jókst um 55% á móti tæplega 61% aukningu á sölu- tekjum og sagði Jón að þar kæmu bæði til endurbætur á vélum og húsakynnum auk þess, sem fengist hefði leiðrétting á verðlagsforsend- um framleiðslunnar Fram kom að Gísli Andrósson, stjórnarformaður Sláturfélagsins greinir frá störfum félagsins á sl. ári. miðað við að sameiginlegum kostn- aði sé jafnað niður á deildir félagsins reiknaðist halli kjötvinnslunnar nú 7 milljónir króna á móti tæplega 43 milljón króna halla árið 1 975 Rekstur Sútunarverksmiðju félagsins varð ekki jafn hagstæður á sl. ári og árið á undan og er reiknað með að tekjuafgangur af verksmiðj unni hafi lækkað úr tæplega 22 milljónum króna ánð 1 975 í 3 millj ónir króna ánð 1 976 Kostnaður við hráefni og kaup á hjálparefnum til verksmiðjunnar hefur aukist til muna meira en sölutekjur eða um tæp 83% á móti 44% aukningu á sölutekjum Fram kom hjá Jóni að dregið hefur úr sölu á framleiðslu verksmiðjunnar á innanlandsmarkað á sl ári miðað við fyrra ár og hvatti hann til að leitað yrði leiða til að auka söluna á heimamarkaði Um rekstur matvöruverslana og vörumiðstöðvar félagsins sagði Jón að erfitt væri að gefa einhlítar tölur um afkomu verslunarrekstursins og gilti það sama um aðrar deildir En eftir að sameiginlegum kostnaði félagsins hefði verið skipt þá reikn- aðist honum til að hagnaður af rekstri matvöruverzlana og Vörumið- stöðvar hefði lækkað úr tæplega 1 2 milljónum króna árið 1 975 í rúma ema milljón króna 1976 Jón sagði að vörunotkun hefði á árinu aukist meira en sölutekjur eða um 29.8% en sölutekjurnai jukust um 2 7,4% Ástæðu þessa síqði Jún vera lækkun álagningar n meðalálagn- ing hefði á árinu laTkað um 9,8% í ræðu sinni sagði Jón að mjög svip- uð þróun hefði orðið hér á siðustu árum og víða erlendis en það^er að með breyttum innkaup>avenjum og opnun stærri kjörbúða. hefur hlutur hverfisverzlana sífellt rýrnað Þetta kæmi skýrt fram í verslanarrekstri félagsins þegar borin væri saman veltubreyting milli áranna 1 975 og 1 976, kæmi þá i Ijós, að i minm verzlununum væri hún 25% en i hinum stærri rúmlega 3 1 % Í ræðu Gisla Andréssonar. stjórnarformanns félagsins, kom fram að 107 milljónum var á sl ári varið til ýmissa framkvæmda og er það nokkru lægri upphæð en á undanförnum árum Fram kom hjá Gisla að ákveðið hefur verið að stækkun frystigeymslu félagsins á Hvolsvelli skuli lokið fyrir sláturtið haustið 1977 Fram kom einnig að fastráðið starfsfólk hjá Sláturfélag inu i árlok 1 976 var alls 522 manns og hafði fækkað um 3 7 manns á árinu Flesf varð starfsfólkið í slátur- Framhald á bls, 31 Ljósm. Mbl Ól. K. Mag Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn sl. fimmtudag að Hótel Sögu. Costa Brava 1. og 15. júir Hinir vinsælu gististaðir Útsýnar. íbúðir Zodiac, Hótel Athene. Hótel Gloria. Verð frá kr. 59.100 Lignano 1 3. og 20. júU „ Glæsilegar fbúðir Luna alveg við ströndina. Verðfrá kr. 69.400 Grípiö tækifæin og pantiö Símapantanir: 20100-27232 Skrifstofutími kl. 09.00—17.30. Costa del Sol 3. júir Uppselt — 17. júir Uppselt. — 24. iúll Laus s»ti Gististaðir I sérflokki alveg 6 ströndinni El Remo, Santa Clara, Tamarmdos, Perlas Verðfrá kr. 75.500,- AUSTURSTRÆT117. II. HÆÐ Aðeins kr. í útborgun eftirstöðvar greiðist á 5 mánuðum Þetta sértilboð Utsýnar gildir aðeins I eftirtaldar ferðir: —'Til'----- sólarlanda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.