Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JUNI 1977 23 sfem nú eru teknir við völdum, eru reyndar mótfallnir ófrjó- semisaðgerðum yfirleitt. En þeir gætu ekki, þótt þeir vildu, tekið aftur upp þráðinn þar sem Indira hvarf frá. Þeir eru nefmlega búnir að gera sér svo mikinn mat úr mistökum henn- ar, að þeir hafa ekki efni á því að snúa við blaðinu og endur- taka þau sjálfir. í ágúst í fyrra varð að lögum svonefnt Maharashtra—frum- varp um takmörkun fjölskyldu- stærðar. í þessu frumvarpi var kveðið svo á, að hjón skyldur gerð ófrjó, ef eiginmaðurinn væri yngri en 55 ára og eigin- konan yngri en 45 ára og þau ættu þrjú eða fleiri börn á Iffi. Þessum úrskurði varð ekki hrundið og varð fólk að sæta þessu, nauðugt viljugt. En nú er búið að leggja lög þessi á hilluna, og verða þau örugg- lega ekki tekin fram aftur í bráð Þannig var, að lögum samkvæmt þurfti forseti Ind- lands að samþykkja þau áður en hægt væri að framfylgja þeim. En forsetinn, Fakhruddin Ali Ahmed, sem var sanntrúað- ur múhameðsmaður og mót- fallinn lögunum, dró á langinn að leggja nafn sitt við þau. Það kom svo aldrei til þess, að hann undirritaði þau, því að hann varð bráðkvaddur í febrúar síð- astliðnum. Það virtist jafnvel svo í bar- áttunni fyrir síðustu kosningar, að Indira Gandhi sjálf væri far- in að efast um ágæti ófrjósemis aðgerðanna. Mikil ólga var orð- in í landinu, einkum í Bihar, Uttar Pradesh, Punjab og Haryana. Þótti InHiru bá foks sýnt að Indverjo v. j ekki enn búnir undir y ;rfelldar ófrjósemisaðgerðir. Forystu- menn Kongressflokksins fóru þessvegna að reyna að bjarga því, sem bjargað yrði Vörpuðu þeir nú sökinni á embættis- menn og kváðu þá hafa gengið miklu harðar fram í ófrjósemis- herferðinni en til hefði verið ætlazt. Eru ýmsir stjórnmála- menn enn að vega í þennan knérunn; vilja þannig koma sér vel við nýju stjórnina og bjarga því, sem eftir er af eigin orðstír. Herferðin til að takmarka fjöl- skyldustærð varð illræmd af þvl m.a., að Sanjay, sonur Indiru Gandhi, stjórnaði henni og gerði það af mikilli óvægni. Kongressflokkurinn kennir Sanjay um ófarirnar I kosn- ingunum. Þvl afneitar flokkur- inn nú sem ákafast þeim hug- sjónum, sem hann játaði áður er indóneskir hermenn brenndu heimili þeirra. Svo virðist, að hryðjuverkin gerist verst uppi á hálendinu. Meðal borgarbúa. sem féllu fyrir Indónesum, voru Kínverj- ar fjölmennastir. Morðaldan hófst strax eftir innrásina í árs- lok 1975, en einn flóttamann- anna í Portúgal kunni að segja frá því, að í ágúst í fyrra hefðu allmargir verið skotnir fyrir það að þeir neituðu að taka þátt í hátíðahöldum á þjóðhátfðar- degi Indónesa. Flestir flóttamannanna Itöfðu sögur að segja af stór- felldum nauðgunum, ránum og gripdeildum. Margir tóku til „gegndarlauss hroka og fjand- skapar", sem Indónesar hefðu sýnt Austur-Timorbúum frá því þeir hernámu landið. — BRIAN PIIELAN VERÖLD til að þóknast Sanjay. En það var meðan flest benti til þess, að Sanjay tæki við völdum af móður sinni I fyllingu tímans. Og Indverjum fjölgar áfram um of Offjölgunin leikur efna- hag landsins grátt. Það gildir einu hverjar framfarir verða I landbúnaði og iðnaði — allt ézt upp jafnóðum, og þeim fjölgar jafnt og þétt, sem ekki hafa nóg að bíta. Þeir telja nú 40% þjóðarinnar Hin nýja stjórn áætlar að veita til takmörkunar fjölskyldustærð sjötta hlöta þesS fjár, sem áður var ráð fyrir gert. En því miður virðist stjórnin ekki hafa neina hug- mynd um það, hvernig draga megi úr offjölguninni. Henni hlýtur þó að vera Ijóst, að eitt- hvað verður til bragðs að taka. Indverja eru orðnir 620 millj- ónir talsins. Eins og fyrr var sagt líða 40% þjóðarinnar skort nú þegar. Það hlýtur að enda með skelfingum, ef henni fjölgar lengi áfram um of. En ríkisstjórnin er í klípu. í fyrsta: lagi er hún móttallin skipulég- um ófrjósemisaðgerðum, í öðru lagi þykist hún verða að gera sér eins mikinn mat úr mis- tökurn' Kongressflokksins og hægt sé, og í þriðja lagi er henni urhhugað um að hafa kjósendur góða Hún á sem sé ekki hægt um vik . —SUNANDA DATTA—RAY. MISTOKIN I MICHIGAN Eitrada f ódrid endaði á diski neytandans Nú eru tæp þrjú ár liðin frá því, að uppvíst varð, að bráðeitrað iðn- efni hafði komizt í skepnufóður viða i Michiganfylki í Bandarikj- unum og borizt þannig í mat millj- óna manna. Ekki leið á löngu þar til torkennileg sjúkdómseinkenni fóru að koma fram á fólki i Michigan. Vildu margir kenna þau eiturefninu, sem komst i skepnufóðrið. En yfirmaður heil- brigöismála í fylkinu, Maurice Reisen læknir, bar alla tíð á móti því — þar til nú, að máliö hefur verið rannsakað á nýjan leik. Hef- ur Reisen nú fallizt á það, að „einhverjir kunni að hafa beðiö heilsutjón af því“, að eitrið lenti i skepnufóðrinu. Margir vilja þó kveða fastar að orði um þetta. Það mun hafa veriö um vorið og sumarið 1973 að talsverðu af efn- inu PBB („polybrominated biphenyl") var af slysni blandað i skepnufóður. Þetta varð hins veg- ar ekki uppvíst fyrr en um voriö 1974. Þá kom í ljós, að efnaverk- smiðja í Michigan, MCC, hafði sent kaupfélagi einu talsvert af PBB i stað magnesíumoxíös. Síðar nefnda efnið er haft til næringar- auka í skepnufóðri. PBB er aftur á móti eldvarnarefni... En þegar þetta uppgötvaðist var búið að slátra mörgum þúsundum þeirra skepna, sem étið höfóu eitraða fóðrið og selja þær til manneldis. Og sfðan hafa bændur oröiö aö lóga tugum þúsunda nautgripa, svína og hænsna, er sýkzt höfðu. Nú skömmu eftir áramótin birti Irving Selikoff, yfirmaður vistvís- indadeildar Mount Sinaisjúkra- hússins i New York, skýrslu um rannsóknir sínar á 1029 Michigan- búum, er sýkzt höföu af PBB. Mjög margir höfðu veiklazt ein- hvern veginn á taugum. Kenndi þar margra meina, frá minnistapi til geðtruflana. Auk þess fengu margir meltingarkvilla, beina- og vöðvakvilla. Það eru þegar hafin málaferli vegna eitrunarir.nar. Kúabóndi nokkur er búinn að stefna efna- verksmiðjunni, MCC, og kaup- félaginu, sem dreiföi eiturefninu meðal bænda, og krefst hann milljónar dollara í skaðabætur. Rekur hann málið af mikilli hörku og hefur neitað sættum ut- an réttar. Mál hans er prófmál og veltur mikið á því, hvernig lyktar. Er búizt við dómi einhvern tírna að áliönu sumri. Kontiö er á daginn í réttarhöld- unum, að oft var farið rnjög kæru- leysistega með eiturefni í fyrr- nefndri efnaverksmiðju. Hafa starfsmenn borið það, að ýmis eiturefni hafi hæglega getað kont- izt i önnur, sent notuö voru í mannafæðu og einnig voru fram- leidd í verksmiðjunni. Síðast kom á daginn, aö margumrætt eitur- efni, PBB, var að líkindum sjálft mengað öðrum ef-num framleidd- unt á sama stað! Þaö er þvl alls ekki séð fýrir endann á afleiðing- um fóðureitrunarinnar. Þær kunna að verða enn flóknari og lar.gærri, en nú er talið. — JOÝCE EGLINTON. 107AFHATTUR á íiimum & FRAmKÓUUn LJOSMYNDAVORUVERSLUN LAUGAVEGI 178 SÍMI 85811 SPORTVORUVERZLUN AUSTURVERI H estaft Reiðtygi í mjög fjölbr^^ú;^a^%ýáf Hnakkar —^féiðar —- Gjaroir — Istöð >— Istaðsólar — BeisJr^-ffTaumbeisli — Taumar — ffrinqamél — Stangatmélý -— Múlar — Ganóiar —rJ Skeifur — Fjaðrirí^T^þgir —- Bjöljur — Hóffeitjé'-; ur ó§ - gÉimnjfr Reiðþuxur — ReipstfeVel bæðt Resfnqallar — Rei |il hádegis alla ’fisrun Austurveri Háaleitisbraut 68, S. 84240. Næg Bílastæði. ARABIA baðherbergissett í 7 litum Verð frá kr. 70.000,- með blöndunartækjum fyrir handlaug og baðkar inniföldu. Finnsk gæðavara á afar hagstæðu verði. Gerið verðsamanburð. ''E'iigyinciSii.'öruverzlunin^ , BJÖRNINN Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykjavik L si * 9- U*> * 9 * *»nft ■»** * '* *■ *'!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.