Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 39
39 hann tók við starfi. Má þvi að líkum ráða að beðið var eftir starfsþekkingu hans og reynslu, enda má fullyrða að á þessum tima hafi hann verið einn best menntaði Islendingur I töluvfræð- um. Mjög fljótt vann Einar trúnað samstarfsmanna sinna, svo og við- skiptavina, vegna hæfni og traust- vekjandi framkomu. Þegar Einar hafði gegnt stöðu deildarstjóra hér hjá IBM í tvö ár, óskaði hann eftir að flytja búferl- um til Danmerkur á ný. Tók hann þá við deiidarstjórastöðu hjá IBM i Kaupmannahöfn, sem hánn gegndi, þar til hann var ráðinn forstjóri Reiknistofu bankanna árið 1973, en þá fluttist Einar alkominn til íslands. Því starfi gegndi hann er hið sviplega frá- fall bar að. Reiknistofa bankannna var að- eins tii á pappirum þegar Einar réðst þangað. Kom það þvi I hans hlut að móta starfið frá grunni. Eigendurnir eru margir og því þurfti að samræma margvíslegar þarfir og mörg sjonarmið. Með meðfæddri lipurð og sam- vizkusemi tókst Einari að leysa þetta vandasama hlutverk með miklum ágætum og hefur fyrir- tækið unnið sér verðugt traust. Einar hafði gert margvíslegar áætlanir til lausnar á framtíðar- verkefnum, og má segja að þeir sem við taki komi þar að vel plægðum akri. Stórt skarð. er nú höggvið í hina fámennu frumherja stétt ís- lenskrar töjvutækni og fylgir auk- in ábyrgð samferðamönnunum til að halda áfram þvi starfi sem Einar hefur mótað. Ýmsu er ólok- ið og margvíslegar áætlanir hafði Einar gert til lausnar á framtíðar- verkefnum. Þróun þeirra verður hann nú að fylgjst með á öðrum sviðum. Einar var meðal maður að hæð, vel limaður og bar sig vel. Lundin létt og brosið hlýtt. Dulur um einkamál, eins og títt er um trausta menn. Leiðir skilja að sinni, en minn- ingin um góðan dreng lifir. Hún er traust og huggun ástvina hans i þeirra miklu sorg. Við hjónin sendum eiginkonu og börnum, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Góður maður gengur á guðs vegum, hans gata er greið. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Ottó A. Michelsen. Deyr fé deyja frændur deyr sjálfur ið sama en orðstfr deyr aldrei hveim er sér góðan getur. Elskulegur mágur minn Einar Pálsson lézt í bifreiðarslysi 18. þ.m., aðeins 48 ára að aldri. Mér er tregt tungu að hræra, enda öll orð til einskis gagnvart staðreyndum og lögmálum lífs og dauða. En mig langar til að þakka hon- um hugljúfa samleið. Alla tíð, frá þvi ég kynntist honum fyrst sem ungum skóladreng, einkenndi hann drengileg og falleg fram- koma. Hann var einlægur og hjartahlýr og hafði ánægju af þvi að rétta öðrum hjálparhönd og greiða úr vandamálum samferða- manna sinna eftir mætti. Ég minnist hans siðast þegar ég sá hann þar sem hann lék við litinn son sinn, barnsleg gleiði skein úr augum beggja. Augljós var hamingjan á heimilinu. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÚR 26. JUNÍ 1977 Ég bið, að aivaldur guð gefi konunni hans styrk og þrek til að halda áfram á þeirri braut, sem þau voru byrjuð að marka. Börnin hafa mikið misst, því að góður og ástríkur faðir hefur lok- ið jarðvist sinni. Mættu þau erfa mannkosti föður síns og halda minningu hans þannig á lofti. Blessuð sé minning hans. Eiisabet Hermannsdóttir. Frændi minn og vinur Einar Pálsson lézt skyndilega af völdum bilslyss laugardaginn 18. júní. Það er alltaf mikið áfall þegar góður drengur hverfur á braut svo snögglega og fyrirvaralaust, sem í þessu tilviki. Þó eru áhrifin alltaf sárari, þegar ljúflingur eins og Einar er skyndilega hrifinn brott, maður stendur eftir ráð- þrota og dofinn og vitund manns neitar hreinlega að taka svona fregn til greina. Við Einar þekktumst vel, bæði frá þvi er við vorum drengir á Siglufirði, þótt ég væri nokkuð miklu eldri, og síðar er störf okk- ar lágu saman hjá Flugfélagi íslands. Einnig rækti Einar vel frændsemi sína við föður minn og fjölskyldu, þegar hann var í Menntaskólanum íá Akureyri. Var hann nánast eins og einn af systkinum heima og batzt tryggðaböndum við okkur. Hin síðari ár voru samfundir okkar ekki eins tíðir, en þó skorti ekkert á einlægnina og vináttuna þegar við hittumst. Einar var fæddur 9. apríl 1929 á Siglufirði. Foreldrar hans voru Páll Ásgrímsson, föðurbróðir minn, og kona hans Sigríður Ind- riðadóttir, er Sigriður látin en Pálllifir enn, en heilsan er farin að gefa sig. Einar varð stúdent frá M.A. 17. júni 1950. Árið 1953 hóf hann störf hjá Flugfélagi íslands og starfaði hjá F.í. á íslandi, i Nor- egi og Danmörku til ársins 1965. Þá réðist hann til starfa hjá IBM í Danmörku til ársins 1973, tvö af þessum árum var Einar á íslandi fyrir IBM. Árið 1973 flutti Einar alkominn til íslands, vann að stofnun og uppsetningu Reikningsstofnunar bánkanna og veitti henni forstöðu til þess er hann lézt. Einar átti fjögur börn: Sigrúnu, Stefán, Margréti Heiði og Einar örn. Eftirlifandi kona hans er Matthildur Haraldsdóttir. Hjónaband Einars og Matthild- ar var mjög hamingjusamt og þarf ekki að tiunda þann harm og þann sára missi, sem hún hefur orðið fyrir. Ég þekki hana vel úr starfi minu hjá F.í. en þar er hún starfandi flugfreyja. Ég votta henni sérstaklega og allri fjöl- skyldu Einars hryggð mína og innilega samúð á þessari erfiðu stund í lífi þeirra. Þótt dauðinn sé bitur og ekkert lif án dauða má þó ekki gleyma þeirri von er felst i þvi að engin dauð er án lífs. Jón A. Stefansson. Þegar menn á miójum starfs- aldri falla skyndilega í valinn, minnir það okkur áþreifanlega á hversu oft er skammt á milli lifs og dauða. Dauðinn er furðuleg ráögáta, sem mönnum gengur iila að skilja. Óskiljanlegastur þó, þegar fólk í blóma lífsins er hrifið burtu frá mikilvægu hlutverki. Kynni okkar Einars Pálssonar hófust er hann kom til íslands árið 1967, eftir að hafa dvalið nokkur ár i Danmörku, en tvö þau siðustu starfaði hann hjá tölvu- fyrirtækinu IBM við nám og undirbúning fyrir þann starfs- vettvang sem hann síðan helgaði starfskrafta sina. Ekki var dvöl Einars löng hér á landi i það sinn, því hann fór aftur til Danmerkur árið 1969 og hóf störf aftur hjá IBM þar í landi. Þegar íslensku bankastofnan- irnar ákváðu að stofna til sam- eiginlegrar tölvumiðstöðvar, var það ljóst að árangurinn af þeirri stofnun yrði mjög svo undir þvi kominn hvernig til tækist með val á forstöðumanni. Til þessa starfs var Einar Pálsson valinn. Aðrir munu bera vitni þvi frábæra starfi, sem hann þegar hefur unn- ið þar, og sem svo miklar vonir voru bundnar við að héldi áfram. Leiðir okkar Einars lágu saman i störfum fyrir Skýrslutæknifélag íslands, en árið eftir að Einar kom heim frá Danmörku var ósk- að eftir að hann tæki að sér vara- formennsku I þeim félagsskap. Formennsku gegndi hann svo ár- in 1975—1977, en á siðasta aðal- fundi félagsins óskaði hann eftir að vera leystur frá störfum for- manns. Vegna eindreginna óska félagsmanna tók hann þó að sér störf varaformanns i núverandi stjórn. Á þessum vettvangi vann Einar mikið og óeigingjarnt starf við að efla fræðslu og kynna nýj- ungar á sviði gagnavinnslu hér á landi. Nú á undanförnum misserum áttum við Einar Pálsson náið sam- starf um sameiginléga hagsmuni þeirra stofnana sem við störfum við. Unnið var að þvi að taka i notkun ýmsar nýjungar á sviði gagnavinnslu. Okkur, sem stóðum að þessu starfi, var ljóst að hlutur Einars var mikill og bundum við mikiar vonir við áframhaldandi þátttöku hans. Það er þungt áfail i okkar fá- menna þjóðfélagi, þegar slíkir hæfileikamenn eru brott kvaddir, langt um aldur fram. Orð mega sín lítils við sviplegt fráfall eigin- manns og föður. Fyrir hönd okkar sem áttum samstarf við Einar Pálsson á sviði gagnavinnslumála og þeirra starfsmanna Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavikurborgar, sem sam- skipti áttu við hann, færi ég hon- um þakkir fyrir samfylgdina og bið eiginkonu hans og börnum blessunar guðs. Sigurður Þórðarson. Stefán Bjarnason —Minningarorð F. 18. október 1915. D. 18. júni 1977. Á morgun verður til moidar borinn vinnufélagi okkar, Stefán Bjarnason. Hið sviplega fráfali hans bar að með svo skjótum hætti, að við trúum þvi naumast enn, að Stefán verði ei meðal okkar framar i þessu lifi. Stefán ólst upp á Esjubergi á Kjalarnesi. Vann hann við bú- skap, sem venja var, á uppvaxtar- árum sinum, en er hann komst á legg, vann hann ýmis störf utan heimilisins. 1955 réðst hann sem fastur starfsmaður á bílaverkslæði Mjólkursamsölunnar og vann þar æ síðan. Stefán skilur eftir sig stórt skarð í hópi okkar vinnufélag- anna, þótt ekki færi mikið fyrir honum í daglegri umgengni, þvi hægari, hógværari og trygglynd- ari mann var ekki hægt að hugsa sér. Verkin hans kannast þeir við, er til þekkja. Hvort það var að hella á könnuna eða vandasamar bifreiðastillingar. Við kveðjum Stefán með trega, en þiikkum jafnframt að fá að kynnast honunt. Eftirlifandi konu hans, Helgu Eiríksdóttur, og dóttur Margréti, biðjunt við guð að styrkja í þeirra Ef til vill er okkur fyrst nú miklu sorg. ljóst, hve stór Stefán var í hæg- læti sínu. Viniiufélagar Krautarholti 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.