Morgunblaðið - 26.06.1977, Page 35
MOKGUNBLAÐIÐ, SUN'NUDAGUR 26. JUN’I 1977
35
inu í Borga.rnesi og Jón lék á trommur
í gömludansahljómsveit. Þeir Guð-
mundur og Jón voru einnig postular í
uppfærslu Leiffélagsins á Súperstar —
og tóku þá sóló utan sviðs, að eigin
sögn.
Leiðir þeirra fjögurra lágu síðan
saman í Öldutúnsskólanum og út-
koman varð Randver Þeir segja, að
tilviljun hafi ráðið því að þeir fóru að
skemmta fólki, og því spurði Slag-
brandur: Hvað um framhaldið?
,,Við höldum áfram," svara þeir ,,í
fyrsta lagi er félagsskapurinn svo góð-
ur og í öðru lagi höfum við hvarvetna
fengið góðar undirtektir Fólkið kann
að meta íslenzkt efni."
Og talið beinist aftur að stefnu Rand-
vers:
,,Við ætlum ekki að reisa neinn
minnisvarða. Við viljum bara skemmta
fólki og skemmta okkur. Við erum
nákvæmlega eins og fólkið í salnum og
fólkið skemmtir sér með okkur. Við
höfum alltaf lagt áherzlu á að fá fólkið
til að syngja með okkur og við höfum
ekki ennþá verið á dauðri skemmtun.
Annars máttu skila kveðju frá okkur til
menntskælinga á Laugarvatni Þar var
öðlingsfólk — bezti salur sem við
höfum fengið síðan við gáfum nýju
plötuna út."
Skyndilega heyrðist skarkali úr einu
horninu, en þegar að er gætt reyndist
hávaðinn koma frá frystivél, sem er að
fara í gang. Randversmenn láta þetta
ekki á sig fá og halda áfram:
,,En þó að við leggjum áherzlu á
skemmtitónlist, þá er ekki þar með
sagt að hún sé léleg Það er mikið
atriði að skemmtitónlistin sé vönduð
og við reynum það sem við getum til
að vanda tónlistina. En við erum allir í
fullu starfi og þetta er aðeins tóm-
stundaiðja og þess vegna finnst okkur
það ekki sanngjarnt, þegar verið er að
leggja sama mælikvarða á verk okkar
og atvinnumannanna. En við vöndum
okkur og platan ber þess merki, þar er
ekkert hálfsoðið."
Heyrðist nú enn skarkali og inn
gengur Tómas Tómasson og veifar
stórum íslenzkum fána.
„Kemur góður þá getið er," segja
Randversmenn. Tómas var nefnilega
hægri hönd þeirra við gerð nýju plöt-
unnar, stjórnaði upptökunum og
raunar æfingum líka
,,Við nutum frábærrar aðstoðar
Tómasar," segja þeir „Hann æfði með
okkur og tók raddirnar í gegn. Síðar
bættist Ragnar Sigurjónsson í hópinn
á æfingum og þegar í ^túdíóið kom, þá
var unnið markvisst " *
Áfram er rætt um plötuna og það
kemur fram. að þetta kvöld hafi einn
gestur danshússins komizt þannig að
orði við þá Randversmenn „Það er
voðalega þreytandi að þurfa alltaf að
hlusta þannig á músík, að maður sé að
pæla í botn."
Randver er ekki að óska eftir neinum
pælingum, bara að fólk skemmti sér.
En ekki er hægt að gera öllum til
hæfis:
„Það er ákveðinn hópur fólks sem
þolir ekki að við reynum að vera
skemmtilegir Það álítur að ef eitthvað
er skemmtilegt, þá geti það ekki verið
gott." segja þeir Randversmenn Og
fleiri eru þeir sem ekki eru ánægðir
með það efni sem Randver flytur, en af
öðrum ástæðum „En við ætlum að
bæta úr því á næstu plötu og leika átta
sovézkar etýður af fingrum frám." Og
Randver skellihlær
En Slagbrandur spyr að bragði Er
eitthvað ákveðið með næstu plötu?
Þeir svara því neitailWi. en segja þó
að þeir hafi áhuga á að koma fram með
meira af frumsömdu efni Á nýju plöt-
unni er aðeins eitt frumsamið lag. eftir
Jón Jónasson, en hann hefur samið
fjölmörg lög og segja félagar hans, að
þau eigi fullt erindi á plötu.
Enn heyrist skarkali í frystivélinni og
fara menn nú að ókyrrast. Slagbrandur
ákveður því að bjóða Randversmönn-
um upp á þetta klassíska Nokkuð að
lokum?
Og þeir þiggja boðið
„Við erum ekki að þessu brölti til að
græða peninga, við erum bara áhuga-
menn. Við viljum vera skemmtilegir og
fá fólk til að skemmta sér. Við erum
ekki að framkvæma tónlist til að pæla
•.....en ef sinfóníuhijómsveitin vildi
bjóða okkur að leika með sér, þá erum
við reiðubúnir — þó að við séum aftur
og nýbúnir." — sh.
Steinka
Bjarna
á útopnu
plötu, komst í sviðsljósið og fór að
syngja á skemmtunum víða um land
og einnig í sjónvarpi Raunar var hún
kunn gamanvísnasöngkoma frá því á
blómaskeiði revýanna í gamla daga, en
unga kynslóðin þekkti hana ekki einu
sinni af afspurn, einungis sem Stínu
stuð
Nú hefur hún sungið inn á stóra
plötu, fjórtán lög Þá vaknar sú spurn-
ing hvaða markaði sú plata sé ætluð
Ef Steinunn ætlar sér að ná til gömlu
ádáendanna frá revýutímabilinu, þá
gæti vel svo farið, að hún hitti í mark
Hún syngur mörg gömul og góð lög,
sem feður og mæður ungu kynslóðar-
innar kyrjuðu á sínum yngri árum og
kunna sjálfsagt vel að meta enn í dag
En ef Steinunn ætlar sér að ná til ungu
kynslóðarinnar, þá tel ég ekki mikla
von til þess. Þó skyldi maður aldrei
segja aldrei. Undirleikurinn sem
Jakob Magnússon stjórnaði, og útsetn-
ingarnar, sem Jakob á einnig mestan
heiður af, eru í hæsta gæðaflokki og
mikill sigur fyrir Jakob Sýnist mér
hann einna líklegastur yngri hljóm-
listarmannanna til að komast í útsetn-
ingalandsliðið ef hann heldur þessu
striki En varla nægir undirleikurinn
einn til að hrífa ungu kynslóðina.
Kannski gera textarnir það Nokkrir
þeirra eru í anda sveitaballa- og hvíta-
sunnudrykkjustemmningarinnar sem
allstór hópur ungs fólks setur öðru
ofar Kannski kaupir það fólk þessa
plötu. Steinunn hefur sjálf samið
nokkra texta og hefði betur látið aðra
um það Raunar eru fæstir textarnir
rismikill skáldskapur og það grunar
mig, að revýuhöfundarnir, sem lögðu
Steinunni til Ijóðin f gamla daga, hefðu
ekki viljð leggja nafn sitt við margt á
þessari plötu
Og þá er það söngur Steinunnar.
Fáar eru þær söngkonurnar sem leggja
fyrir sig poppsöng eftir að þær hafa
náð fimmtugsaldrinum — röddin ber
oflast merki aldursins og hentar betur í
einfaldan visnasöng eða þjóðlögin Og
því miður á þetta við um söng Stein-
unnar á þessari plötu Alloft verður
hann harla skrækur og lítið eyrnayndi
Betur tekst henni upp á lágu nótunun
og minnir þá á Hallbjörgu systur sina
íslendingar hafa á undanförnum ára-
tugum kunnað vel að meta svonefndar
kerlingabækur, sveitalifsrómantik með
kaffibragði. eins og bókasöfn og bók-
salar vitna um En hvort íslendingar
kunna að meta kerlingaplötur. sveita-
ballarómantík með brennivínsbragði.
úr því verður tíminn að skera — sh.
abecito
strandfatnaður
r
I
miklu
úrvali:
Stuttbuxur
Pils
Blússur
Toppar
Bikini
Sundbolir
Meó stærra og rúmbetra húsnæói er okkur unnt aó veita mun betri
þjónustu en áöur.
Verió velkomin, lítió inn eöa hringió, símanúmerin eru þau sömu
24460 & 28810
Bílaleigan GEYSIR