Morgunblaðið - 21.07.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júlí 1977
Skátar að Úlfljóts-
vatni í sól og blíðu
SKÁTAMÓTINU aó Úlf-
ljótsvatni var framhaldið í
gær og var þá að mestu
lokið við dagskrá sem hófst
i fyrradag. Arnfinnur
Jónsson sagði, þegar
Morgunblaðið ræddi við
hann að Úlfljótsvatni, að
mótið hefði heppnazt ein-
staklega vel það sem af
væri og gætu menn þakkað
veðurguðunum mikið, en
um miðjan dag í gær var 20
stiga hiti í forsælu á móts-
svæðinu. Kvað Arnfinnur
skáta hafa gengið létt-
klædda til leikja og starfa í
gær og andinn hjá fólkinu
hefði þá verið einstakur.
Siglufjörður:
Loðnudælur SR komnar
HINAR nýju loðnudælur sem
nota á við löndun i Sildarverk-
smiðjum rikisins hér á staðnum
komu hingað í dag. Eru þetta svo-
kallaðar þurrdælur, tvær talsins.
Með dælunum kom hingað sér-
fræðingur frá framleiðandanum i
Noregi og starfsmenn frá Héðni.
Vinna þeir af krafti við að ganga
frá dælunum.
Sigluvík landaði hér í dag 110
lestum af fiski, allt þorski. Er
þessi fiskur mjög stór.
—mj.
Þó
ekki
sól....
ÞAÐ á ekki
a8 verða
beinlínis
sóldýrk-
endaveður
hér á su8-
vesturhorn-
inu í dag a8
sögn
VeSurstofu,
en þó mjög
bnrilegt
veður.
FrnSing-
prnir lofuSu
meira a8
segja allt
upp a8 15
stigum hér
í höfuS-
borginni.
NySra töldu
þeir aftur &
móti a8
yrSi svalt.
„Gerum okkur vonir um að end-
urvinnsla holanna beri árangur
— segir dr. Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra
um Kröflu - Byrjað á að kanna fóðringar í holum
„VIÐ gerum okkur vonir um að
endurvinnsla borhola á Kröflu-
svæði gefi nokkurn árangur, þó
það sé engan vegin öruggt, en
endurvinnsla holanna er það
atriði sem dr. Gunnar Böðvarsson
leggur mikla áherzlu á t skýrslu
sinni til Orkustofnunar, „sagði
Grænbylting
á Tjöminni
Hafrannsókn leggur Umhverfismálaráði lið
BORGARBUAR hafa veitt þvt at-
hygli að undanförnu að mikið er
um grænt slý á Tjörninni og þyk-
ir ýmsum, sem „græna byltingin“
svokallaða, sé farin að verða helzt
til áberandi.
Það er Umhverfismálaráð borg-
arinnar, sem hefur með Tjörnina
að gera, og leitaði Morgunblaðið í
gær til Eiínar Pálmadóttur, for-
manns Umhverfismálaráðs og
spurði hverju þetta sætti. Sagði
Elin að þessir grænþörungar
hefðu áður sézt á Tjörninni, en nú
væru þeir óvenju miklir og kæmi
þar vafalaust margt til. Tveir
starfsmenn Hafrannsóknastofn-
unarinnar, Þórunn Þórðardóttir
og Konráð Þórisson, hefðu nýlega
tekið sýni úr Tjörninni og greint
þessa þörunga sem vatnaskúf.
Myndu þau gera grein fyrir rann-
sóknum sínum á fundi með Um-
hverfismálaráði á föstudaginn og
yrði málið þá rætt.
Sagði Elin að oft hefði verið
rætt um þær hættur, sem steðj-
uðu að Tjörninni af ýmsum orsök-
um. M.a. hefði hún farið grynnk-
adi með hverju árinu við það að
leðja safnaðist á botn hennar og
yrði tæpast hjá því komizt öllu
lengur að grafa upp úr henni. Nú
í vor hefði verið grafið upp úr
Þorfinnstjörn og væri sennilega
heppilegasta lausnin við uppgröft
úr Tjörninni að taka ákveðin
svæði fyrir í einu. Ef öll Tjörnin
væri tekin í einu væri fuglalíf
Tjarnarinnar í aukinni hættu. Þá
Leiðrétting
I FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um sölu á hörpudiski til Spánar
stóð, að hluti hörpudisksins væri
frystur hjá Særúnu h.f. á
Bolungarvík, sem ekki er rétt.
Særún h.f. er á Blönduósi og þar
er hörpudiksurinn frystur. Eru
viðkomandi beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
sagði Elín að það ylli miklum
áhyggjum að með uppþurrkun i
Vatnsmýrinni vegna bygginga og
lóðar Háskólans yrði breyting á
því vatnasvæði, sem veitti vatni í
Tjörnina.
— Margt kemur sjálfsagt til að
vatnaskúfurinn er svo áberandi i
Tjörninni núna, sagði Elín og
benti á að óvenju lítið vatn hefði
verið alls staðar í Reykjavik i ár
og kæmi það einnig niður á Tjörn-
inni. — Þar sem'mikill vöxtur
þessa grænþörungs stafar trúlega
afnæringarefnamengun, getur
ein ástæðan verið siaukinn áburð-
Framhald á bls 22.
dr. Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra I samtali við Morgun-
blaðið I gær, en eins og fram kom.
þá I blaðinu hefur verið ákveðið
að endurvinna þær holur sem fyr-
ir eru og ekki hafa gefið árangur.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur hins
vegar aflað sér, mun vera nokkuð
mikill ágreiningur milli iðnaðar-
ráðuneytisins og Orkustofnunar
um framhald framkvæmda á
Kröflusvæði vegna gufuvinnslu,
en iðnaðarráðherra og aðrir yfir-
menn iðnaðarráðuneytis ásamt
ríkisstjórn hafa ákveðið, eins og
fyrr segir að endurvinna holurn-
ar, og mun vera gert ráð fyrir að
vinna fyrir kringum 100 millj. kr.
Það var iðnaðarráðherra sem átti
frumkvæðið að því að dr. Gunnar
Böðvarsson kom til landsins síð-
ari hluta vetrar, og var Orkustofn-
un falið að bjóða honum.
„Ég tel dr. Gunnar okkar reynd-
asta og færasta mann i gufu-
öflunarmálum og hefur hann
lengi fengizt við þessi mál víðs
vegar um heim. Þá kynntist ég
honum sem borgarstjóri á sínum
tíma, er hann var yfirmaður
jarðborananna. Dr. Gunnar
Böðvarsson samdi mjög rækilega
skýrslu um Kröflusvæðið og gerði
tillögur og á því byggist okkar
ákvörðun," sagði iðnaðarráð-
herra.
1 samtalinu við Morgunblaðið
sagði dr. Gunnar Thoroddsen, að
ákveðið væri að kanna útfellingu
í holunum og að sínu mati hefði
það dregizt of lengi að kanna
hvort um útfellingu væri að ræða
eða ekki. Borinn Jötunn yrði
notaður næstu vikur til að ná
fóðringunum upp en ekki væri
vitað hvernig það verk myndi
ganga, þar sem slíkt hefði ekki
verið gert áður hér á landi. Hins
vegar hefði það tekizt á Nýja Sjá-
landi, og hefði þetta verk átt að
hefjast í gær.
Ætla í
próf-
kjörið
segir Björgvin
Guðmundsson
„ÞETTA segir ekkert
um það að ég hyggist
ekki gefa kost á mér í
prófkjörið", sagði Björg-
vin Guðmundsson, borg-
arfulltrúi Alþýðuflokks-
ins, en í auglýsingu í Al-
þýðublaðinu um próf-
kjör vegna borgarstjórn-
arkosningar kemur fram
að framboð skulu send
formanni fulltrúaráðs-
ins í Reykjavík, sem er
Björgvin Guðmundsson,
eða ritara fulltrúaráðs-
ins. „Ég ætla að gefa
kost á mér í prófkjörið“,
sagði Björgvin svo.
Björgvin Guðmundsson
sagði að venjan væri að fram-
boð væru send formönnum
fulltrúaráða eða kjördæma-
ráða og þannig hagaði til að
hann væri formaður fulltrúa-
ráðsins í Reykjavik. „En vegna
þess að ég á sjálfur hlut að
máli þá var það ákveðið af
stjórn fulltrúaráðsins að menn
gætu einnig sent framboð til
ritara þess.“
o
INNLENT
Lítið finnst af loðnu
LtTIL sem engin veiði
mun hafa verið hjá loðnu-
skipunum síðustu tvo
sólarhringa.
Andrés Finnbogason,
starfsmaður Loðnunefnd-
ar, sagði í viðtali við Mbl. í
gærkvöldi, að hann hefði
þá undir kvöldið haft sam-
band við Baldvin Þor-
steinsson skipstjóra á Súl-
unni EA. Samkvæmt því
sem Baldvin hefði sagt
væri veiðin mjög lítil, og
skipin fundið sáralítið af
loðnu. Það sem þau hefðu
fundið hefði svo staðið
mjögdjúptísjó.
Að sögn Andrésar hafa
loðnuskipin nú fært sig
nokkru austar en þau voru,
á svæðið sem þau héldu sig
mest á í fyrrasumar. Þar
voru þau að leita í gær og
voru fjögur þeirra komin
með smáslatta.
Fremur ber að leggja áherzlu
á gufuleit á nýju borsvæði
— en aðgerðir á
óhjákvæmilegar,
„Nú er borsvæðið frá 1976 að-
eins lltill hluti jarðhitasvæðisins
við Kröflu og þvf er ekki rétt að
draga of vfðtækar ályktanir út frá
þvf. Ekki er á þessu stigi málsins
ástæða til að ætla annað en að
finna megi betri gufuvinnslu-
eiginleika á öðrum hlutum
Kröflusvæðisins. Það verður að
leita að þeim. Það verður einung-
is gert með frekari borunum á
öðrum hlutum Kröflusvæðisins“.
Svo segir f tilkynningu frá Orku-
stofnun f gær og einnig segir að f
endurskoðuðum tillögum stofn-
unarinnar sé gert ráð fyrir að
leita aðeins á einu svæði annars
staðar á Kröflusvæðinu f sumar
sökum þess hve áliðið er, en einn-
ig fólu þær tillögur f sér aðgerðir
á eldri holum. Eins og fram kem-
ur I frétt á baksfðunni sagði
holum frá í fyrra
segir orkustofnun
iðnaðarráðherra, Gunnar Thor-
oddsen, f samtali við Mbl. að ekki
yrði um nýjar boranir að ræða við
Kröflu.
Tilkynning Orkustofnunar fer
hér á eftir í heild:
Orkustofnum sendi Iðnaðarráðu-
neytinu hinn 18. þ.m. breyttar til-
lögur um Kröfluboranir 1977.
Meginatriði þeirra er eftir-
farandi:
1. Lagt er til að boraðar verði
tvær holur í suðurhlíðum Kröflu i
ár. Þetta svæði er um það bil 1
km. austan við stöðvarhúsið.
2. Lagt er til að gerðar verði að-
gerðir á holum, sem boraðar voru
i fyrra til að kanna orsakir tregs
rennslis úr þeim.
3. Lagt er til að mælingar á yfir-
borði á jarðhitasvæðinu við
Kröflu verði nokkuð auknar frá
því sem áður var ákveðið. Hér er
um að ræða ýmis konar jarðeðlis-
fræðilegar mælingar.
I marz sl. gerði Orkustofnun
tillögur um borun á alls fimm
holum á þremur borsvæðum, þar
af tveimur innan jarðhitasvæðis-
ins við Kröflu og einu við Náma-
fjall. Suðurhliðar Kröflu er eitt af
þessum svæðum.Ráðuneytið féllst
á tiliögurnar um borun á svæðun-
um tveimur við Kröflu.
Vegna þess að kostnaður við
boranir 1976 og framkvæmdir við
gufuveituna fóru fram úr þvi sem
búizt var við þegar gengið var frá
fjárlögum og lánsfjáráætlun fyrir
yfirstandandi ár, þurfti að útvega
viðbótarfjármagn til þess að unnt
væri að framkvæma borunartil-
lögur stofnunarinnar frá þvi í
marz. Það mál er enn ekki endan-
lega afgreitt, og hafa boranir þvf
enn ekki hafizt.
Nú er orðið það áliðið sumars að
útilokað fer að verða úr þessu að
tillögurnar frá þvi i marz séu
framkvæmanlegar að fullu á
þessu ári, og var því nauðsynlegt
að endurskoða þær. Ennfremur
liggja nú fyrir meiri upplýsingar
um rennsli úr borholum frá 1976
en fyrir lágu í marz þegar tillög-
urnar voru gerðar. Þróunin síðan
hefur verið sú, að rennslið úr
holunum er minna en þá var.
Brýnt er að freista þess að
kanna orsakir þessa trega rennsl-
is. A slíkri könnun eru hinsvegar
margvísleg vankvæði. Aðgerðir á
holum, sem eru í blæstri gerir það
nauðsynlegt að kæla þær niður,
en það getur haft i för með sér
skemmdir á fóðurrörum og, ef illa
tekst til eyðileggingu holunnar.
Þessa áhættu verður að meta móti
þeim ávinningi sem vænst er af
aðgerðunum.
Það var mat Orkustofnunar, er
hún gerði tillögur sinar, að frém-
ur bæri að leggja áherzlu á gufu-
Framhald á bls 22.