Morgunblaðið - 21.07.1977, Side 37

Morgunblaðið - 21.07.1977, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júlí 1977 37 m w /s VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL. 10—11 , FRÁ MANUDEGI hvort þær séu yfirleitt mjög hent- ugar. Við vitum öll af þeim miklu og hörmulegu slysum sem stund- um hafa orðið við gangbrautir og ekki er hægt að bæta. En ég held að það megi til með að gera fólki betur grein fyrir hvernig nota skal þessa hvftu bletti á akbraut- unum. Þegar ég segi fólki þá á ég bæði við gangandi fólk og öku- menn. Minn skilningur á gangbraut er sá, að þegar fólk biður við gang- braut beri ökumanni að stöðva ef hann er ekki kominn of nálægt og getur með góðu móti stöðvað bif- reið sina. En fólk má ekki fara út á gangbraut og trey.sta því að öku- maður geti stöðvað, með öðrum orðum gangbrautin er engin „aðalbraut" gangandi fólks. Mér finnst gangandi fólk ekki alltaf vara sig á þvi, það treystir of oft á að ökumenn stöðvi og veður út á gangbrautina. En nú er komið að öðru vanda- máli og það snýr að ökumönnum. Oft hefur hvarflað að manni að stöðva við gangbraut til að hleypa fólki yfir, börnum eða fullorðn- um. Maður litur í spegilinn og sér bíl fyrir aftan, hægir á sér og hyggst stöðva og sér þá að bfllinn fyrir aftan fer yfir á hina akrein- ina og ætlar framúr. Hvað á þá að gera? Stöðva og treysta þvf að annað hvort stöðvi hinn öku- maðurinn líka eða vona að fólkið fari ekki af stað út á götu? Ég held að ekki verði það nógu mikið brýnt fyrir ökumönnum og gang- andi fólki að sýna fyllstu varúð á og við gangbrautir og þess vegna set ég þessi orð á blað. Gang- brautarslys eru óþörf eins og mörg önnur slys, sem stafa af of litilli aðgæzlu. „Gangbrautarsinnaður" ökumaður." Þetta eru sjálfsagt timabærar hugleiðingar um gangbrautir og rétt er það að ekki er of oft bent á nauðsyn aðgæzlu í umferðinni hvort heldur er i þéttbýli eða dreifbýlinu. Það er nóg af hætt- um, sem þarf að varast. 0 Hver þátturinn öðrum betri „Heill og sæll Velvakandi! Lengi hef ég ætlað að skrifa og þakka þér fyrir ágæta pistla, sem oftast vekja mann til um- hugsunar í önnum dagsins. Við erum fljót að rísa upp og kvarta yfir því sem miður fer, en seinni að þakka fyrir það sem vel er gert. Eftir að hafa hlustað á störan hluta dagskrár Ríkisútvarpsins sunnudaginn 17. júlí sl. langaði mig að koma á framfæri þakklæti til þeirra góðu útvarpsmanna, sem þar áttu hlut að máli. Hver þátturinn var öðrum betri alveg til dagskrárloka og bætti þetta mikið upp þennan þungbúna rigningadag hér sunnanlands. Góðir útvarpsmenn! Haldið áfram á sömu braut og þið þarna á sjónvarpinu takið þetta ykkur til fyrirmyndar. Þorsteina.“ Þessir hringdu . . . # Fylgjandi nýjum Gullfossi Sjóari: — Eg sá í Velvakanda fyrir- stuttu bréf frá einhverjum sem var með þá uppástungu að feng- inn væri til landsins nýr Gullfoss er hæfi siglingar milli landa með farþega og væri e.t.v. hægt að nota sem hótel á vetrum einhvers staðar, annað hvort 'suður í höfum eða sem skiðahótel á Isafirði eins og gert var með gamla Gullfoss um páskana. Eg vil endilega taka undir þá hugmynd að slíkt skip verði fengið til landsins og þykist ég vita að marga fýsir að taka sér far með slíku skipi í skemmtisigl- ingu, svona á svipaðan hátt og þessi miklu skemmtiferðaskip, sem hingað koma á hverju sumri, bjóða uppá. Það þarf ekki að ótt- ast svo mjög að rekstur slíks skips gangi erfiðlega, því íslendingar eru það nýjungagjarnir að þeir myndu án efa vilja fara svona SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson 1 sveitakeppni sovézkra unglinga, sem nú er nýlokið, kom þessi staða upp í skák þeirra Eljvest (Eistlandi) og Kasparovs, (Azerbadjan), sem hafði svart og átti leik: 40. ,.Ddl+! og hvítur gafst upp. Þessi skák er gott dæmi um bæði áhrifaríkar og áhrifalausar lepp- anir. Sveit Grúsíu varð sigurveg- ari á mótinu. Meðal annarra í sigursveitinni var Maja Chiburdnidze, en hún vann sér nýlega þátttökurétt í fjórðungsúr- slitum áskorendamóts kvenna í skák. terðir sem tilbreytingu frá öðrum sólarferðum. Ef Eimskipafélagið myndi ekki vilja eða leggja út i svona fyrirtæki fyndist mér rétt að athuga með stofnun almenn- ingshlutafélags er sæi um reksturinn og það mætti kannski lika beina þeirri spurningu til einhverra ferðaskrifstofanna að þær þreifuðu fyrir sér með þetta. Að lokum vil ég fara fram á að einhverjir fróðir menn gerðu grein fyrir því i blöðum hvernig rekstur svona skips gæti farið fram og hvort þetta eru órar hjá okkur, sem höfum þessa hug- mynd, eða hvort þetta gæti verið á einhvern hátt raunhæft. HÖGNI HREKKVÍSI Hvur and ... Forskot á gamlárskvöld? matar L?' /' grillið nuna flliLar I auft Nautagrillsteik Nautabógsteig Lambagrillkótelettur Kðlfakótelettur Kálfahryggir Kálfasnitchel Kálfahakk Ær hakk Kindahakk Saltkjötshakk Nautahakk 1 0 kg. nautahakk Svínahakk Ódýru sviðin útsala Hangikjötslæri ^ngikjötsframpartar Utb. hangilæri Útb. hangiframp. Svínalifur Nautalifur Lambalifur Lambanýru Lambahjörtu Nýr lax V2 og 1 /1 Nýr lax sneiðar Nýr svartfugl Okkar Leyft verð verð 730.- TTO,- 730.- 7TO,-| 878- 545- 450- 1250- 580- 580- 685- r«L5- 685- f2*5- 870- 770- T2S4- 990- T5S4- 380- TJS*. 990- TYoa 750- *»64r 1790- 2-WO- 1390- TO50- 290- &4S. 300- 880- 583- 583- 1400- 1700- 200 stk. 'Úrval af grænmeti og ávöxtum. Líttu inn, það verdur gaman að sjá þig Í3000Í Opið til kl. 7 föstudaga| Lokað á laugardögum KTv^TTöOT®©Tr(o)®a[Rí] LaugalesK 2. REYKJAVIK. Simi 3 So 2o fo 19 21 AUG 76Form 31

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.