Morgunblaðið - 21.07.1977, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júlí 1977
Vígslugestir við nýja húsi8 sem gerbreytir allri aSstöSu til félagsiSkana I sveitinni
Ljúfíeikur íHálsa-
koti íJökulsárhlíd
Hlíðarmenn vígðu nýtt félagsheimili sitt
með tveggja sólarhringa dagskrá
fyrirhöfn úr því sem komið
væri.
.,Eg á heimtingu á þvi, úr
því að þú ert að taka efni hér",
sagði karl þá
„Ég skal greiða þér sér-
staklega fyrir þinn þátt í því ef
þú skrifar reikning", svaraði ég,
,,en blaðið skaltu panta sjálfur
ef þú hefur áhuga á Fjaraði
svo fárið út, en þegar ég var
búinn að mynda talsvert komu
til mín menn og spurðu hvort
ég gæti ekki útvegað Tímanum
myndir frá athöfninni. Ég
spurði hvort Tíminn væri orð-
inn svona seinn, en svaraði
þeim aðeins með Ijúfum hlátri.
Stefán Bragason frá Surts-
stöðum, aðaldriffjöðrin í bygg-
ingu Hálsakots og formaður
Ungmennafélagsins Vísis, flutti
ávarp í upphafi dagskrár undir
borðum, bauð gesti velkomna
til þess að njóta veglegra veit-
inga og vinagleði. Fóru síðan
fram ræður, söngur stúlkna og
almennur söngur, Ijóðaflutn-
ingur, gamanvísur og sitthvað
fleira, hin bezta skemmtun.
Heiðraðir voru þeir Guðmundur
Björnsson bóndi á Hrafnabjörg-
um, Orri Hrafnkelsson frá Egils-
stöðum og Eiríkur Einarsson
bóndi i Hlíðarhúsum. Söng
Stjórnaði Svavar Björnsson
Háafelli. Meðal dagskráratriða
var flutningur Djáknans á
Myrká, lesari Stefán Geirsson
með söng stúlkna. Ræður utan
dagskrár fluttu þeir Sveinn
Guðmundsson oddviti, Sel-
landi, Geir Stefánsson hrepp-
stjóri, Sleðbrjót, en hann flutti
nýtt Ijóð eftir sig í tilefni vígls-
unnar og Orri Hrafnkelsson
framkvæmdastjóri Trésmiðju
Fljótsdalshéraðs, en hún sá um
byggingu hússins.
Að lokinni 6 stunda dagskrá
innan húss var haldið til leikja
utan húss. Fóru menn þar í
reiptog, pokahlaup, naglaslátt,
saumnálaþræðingu, kúluvarp,
kringlukast og sitthvað fleira í
góða veðrinu. Nutu menn
góðrar stundar, en síðla kvölds
hófst dansleikur í Hálsakoti og
stóð hann með dunandi fjöri
fram eftir nóttu við tónleik Völ-
andarmanna.
I ræðu Stefáns Bragasonar
þarsem hann rakti byggingar-
sögu hússins, kom fram að
Hlíðarmenn hafa rekið sig á
mörg horn í kerfinu við bygg-
ingu þessa húss, en þar sem
byggingarræðan er þeim sér-
stöku kostum gædd að vera
bráðskemmtileg þá birtum við
hana hér, því hún lýsir miklu
átaki í fámennum hreppi,
Jökulsárhlíð, sem ereinhver
harðbýlasta sveit landsins Þar
vantaði hús til félagsiðkana,
bjart, rúmgott og hlýtt, og það
er nú risið til notkunar og getur
rúmaðalla íbúa hreppsins, um
1 30 að tölu. Kostnaður er um
6 millj. kr. í dag „líklega sú
upphæð sem teikningarnar ein-
ar hefðu kostað, ef málið hefði
farið í gegn um kerfið " sagði
einn bóndinn við mig.
Á sunnudeginum var síðan
íþróttadagskrá fyrir börn og
unglinga í Hlíðinni og ungl-
ingadansleikur um kvöldið,
þannig að vigsluhátíðin stóð í
tvo sólarhringa.
Taxti myndir: Ámi Johnsen.
Ungar atúlkur úr hópi HlWarmanna taka lagiS á vigsluhétlSinni.
heita Hálsakot." Þannig mælt-
ist Svavari Björnssyni skóla-
stjóra á Háafelli er hann til-
kynnti niðurstöðu dómnefndar
um nafn á nýja félagsheimilið,
sem var vígt 1 6. júlí 1 977,
tæplega tveimur árum eftir að
ungt fólk í Jökulsárhlið hafði
ákveðið að byggja félagsheimili
án tafar.
Þorri Hliðarbúa var mættur i
blíðskaparveðri við Hálsakot.
Dagskráin hófst eftir hádegi.
íslenzki fáninn blakti við hún
og fólk var í hátiðarskapi. Á
hlaðborð i félagsheimilinu voru
konur úr sveitinni búnar að
raða óteljandi tegundum af
krásum með kaffinu, súkkulað-
inu og mjólkinní, en áður en
gengið var til sæta röbbuðu
karlar saman úti undir hús-
vegg Þeim fáu gestum sem
voru utan sveitar var vel tekið,
en þó tók ég skjótt eftir þvi að
einn úr hópi eldri manna var
búinn að setja miðið á mig. Allt
i einu veik hann sér að mér og
spurði hvað ég væri að gera
þarna fyrir Morgunblaðið. Ég
minnti hann á að þar sem eitt-
hvað væri við að vera, væri
Morgunblaðjð til þess að vinna
spegilmynd af þjóðlifinu. „Það
get ég nú ekki skilið að þið
skuluð vera hér, Morgunblaðið
fer bara á örfáa bæi af þeim 24
sem hér eru", sagði karl þá.
Ekki kvaðst ég geta talið það
okkar vandamál, það væri
þeirra verkur.
„ Þ ú gætir kannski sent mér
blaðið með greininni", sagði
karl þá hinn ákveðnasti.
Ekki kvaðst ég hafa áhuga
á því, það yrði að vera hans
„í þann mund er hús þetta
var að risa, leið hér litið nafn
um sveitina. Það var likt og
þjóðsaga. Enginn vissi hvaðan
það kom eða hvert það myndi
lenda Það er hlýlegt orð í
vissum skilningi og svo er hér
lika fagur háls fyrir ofan.
K ot hefur ekki þótt stórt orð
á íslandi, en oft er það í koti
karls, sem kóngs erekki i ranni
og einu gildir úr hvaða koti gott
kemur. Enn syngjum við Fyrr
var oft í koti kátt og minnumst
um leið góðskáldsins úr kotinu.
Þetta nafn mun vekja Ijúfar
endurminningar og eftirvænt-
ingu hjá yngri kynslóðinni og
minna hina eldri á fortíðina og
fagurt landslag Hús þetta skal
NeSri myndin birtist é bakslSu MorgunblaSsins I júli 1975, en myndina tók
fréttamaSur Mbl. é fyrsta fundi um byggingu félagsheimilisins sem nú er
risiS. Fundurinn hófst i heyvagni úti é hlaSi. en félagsaSstaSa var þé engin.
Fré vinstri: SigurBur Sigurjónsson, Eysteinn Geirsson, Guttormur Sigurjóns-
son, Kristjén Björnsson, Jón Eiriksson, SigurSur Stefénsson standandi,
GuSrún Eirlksdóttir. GuSmundur Eiriksson, Hli8ar Eiriksson og Örn Steféns-
son. y
Efri myndin var tekin s.l. laugardag af sama fólkinu og me8 nýja félagsheimil-
i8 i baksýn. en hins vegar höfSum vi8 endaskipti é röSuninni og Stefén
Bragason höfuSpaur byggingarframkvsamda er kominn í miSja mynd.