Morgunblaðið - 21.07.1977, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júli 1977
27
Mengun hef ur eydilagt
þúsundir veiðivatna í
Skandinavíu
SVRUMENGUN, einkum af völd-
um brennisteins hefur orðið þess
valdandi að þúsundir veiðivatna I
Skandinavíu hafa eyðilagst. Þetta
kom fram á þingi Norræna stang-
veiðisambandsins, sem haldið var
í Finnlandi dagana 4.—5. júní í
sumar. Samþykkti þingið ályktun
þar sem skorað er á Norðurlanda-
ráð og rfkisstjórnir Norðurlanda
að beita sér fyrir stórauknum
mengunarvörnum bæði á Norður-
löndum sjálfum og einnig á al-
þjóðlegum grundvelli. Segir f
ályktun þingsins að rúmar 4
milljónir manna stundi sport-
veiði á Norðurlöndum og beri yf-
irvöldum skylda til að sporna
gegn þeirri þróun að almenning-
ur geti ekki notið hvfldar þeirrar
og útiveru sem sportveiði veiti.
Norræna stangveiðidambandið
er samtök félaga stangveiði-
manna á Norðurlöndum. A þing-
inu i Finnlandi var Hákon Jó-
hannsson kosinn form:ður sam-
bandsins og ritarastörf félagsins
voru falin Landssambandi ís-
lenskra stangveiðifélaga fyrir
næstu þrjú ár, en Finnar önnuð-
ust áður þau störf.
Þingið fjallaði einnig um fjár-
hagsleg og félagsleg vandamál,
sem efst eru á baugi og skipulags-
erfiðleika í sambandi við stang-
veiðar á Norðurlöndum.
I ályktun þingsins í Finnlandi
er þess farið á leit við rikisstjórn-
ir Norðurlanda að þær veiti því
stuðning að notað sé kalk til
mengunarvarna og komið verði á
tilrauna- og rannsóknasamstarfi i
þessu sambandi. Að lokum segir í
ályktuninni að Norræna stang-
veiðisambandið mælist til þess að
Norðurlandaráð beiti sér fyrir
virkri samstöðu, með það fyrir
augum að efla baráttuna gegn
menguninni og orsökum hennar.
Friðrik Sigfússon ritari (t.v.) og Hákon Jóhannsson formaður Nor-
ræna stangveiðisambandsins.
Árni Garðar við eitt af málverkum sfnum.
Ámi Garðar sýnir í
Bjarkarlundi og Flókalundi
A föstudaginn 22. júlf opnar
Árni Garðar málverkasýningu f
Hótel Bjarkarlundi f Reykhóia-
sveit og Hótel Flókalundi f Vatns-
firði.
Arni Garðar lærði listmálun
fyrir röskum 35 árum, en lagði
pensilinn á hilluna, þegar hann
gerðist auglýsingastjóri Morgun-
blaðsins, en það hefur hann verið
í rúm 30 ár. Fyrir þremur árum
gekk Árni í Myndlistarklúbb Sel-
tjarnarness og byrjaði þá aftur að
mála, en klúbburinn hefur haft
kennara á sinum vegum frá upp-
hafi. Hefur Arni tekið þátt f
þremur samsýningum klúbbsins,
en þetta er í fyrsta skipti, sem
hann sýnir einn.
Bjarkarlundur og Flókalundur
eru i þjóðbraut og kemur þar
fjöldi fólks, sem leggur leið sina
um Vestfirði, auk þess sem marg-
ir dvelja þar um lengri eða
skemmri tfma yfir sumarmánuð-
ina.
Sýningin stendur til 10. ágúst.
Svíar fram-
selja Japana
Stokkhólmi, 19. júlf. Reuter.
SÆNSKA stjórnin framseldi f
dag 42 ára gamlan prófessor, að
nafni Takemoto Takahashi, sem
grunaður er um að véra for-
sprakki skæruliðahreyfingar er
nefnir sig Rauða herinn. Sænskur
öryggislögreglumaður fylgdi
prófessornum flugleiðis til Tókýó
f kvöld og skilar honum þar f
hendur japönsku lögreglunnar,
að sögn sænskra yfirvalda.
Takahashi var handtekinn fyrir
viku i námunda við fundarstað
olíumálaráðherra OPEC-rfkjanna,
en lögreglan hafði grunsemdir
um að skæruliðaárás væri yfirvof-
andi. Takahashi var á „svörtum
Iista“ sænsku lögreglunnar yfir
hryðjuverkamenn. Lögreglan seg-
ir likur benda til þess að erindi
Takahashi til Svíþjóðar hafi verið
að koma þar á laggirnar skæru-
liðahóp og séu tengsl á milli hans
og félaga úr Baader-Meinhof
hópnum, sem handteknir voru í
Svíþjóð vegna áforma um rán á
fyrrverandi ráðherra sænsku
stjórnarinnar.
Samkvæmt upplýsingum
japönsku lögreglunnar var
Takahashi visað frá Frakklandi
árið 1973 eftir að þar voru hand-
teknir félagar í „Rauða hernum".
I sambandi við mál þetta lýstu
yfirmenn sænsku lögreglunnar
því yfir i dag, að athygli alþjóð-
legra skæruliða beindist nú í
auknum mæli að Svíþjóð sem
griðlandi fyrir slíka starfsemi,
þar sem þeir telji mun auðveldara
að komast til Norðurlanda óséðir
en til annarra Evrópulanda.
Fékk 750
þúsund
í sekt
DOMUR var kveðinp upp f Vest-
mannaeyjum á þriðjudagsmorg-
un f máli skipstjórans á Andvara
VE 100. Skipstjóri viðurkenndi
iandhelgisbrot og hlaut 750 þús-
und króna sekt og afli og veiðar-
færi að verðmæti 803 þúsund
krónur voru gerð upptæk.
Dómsforseti var Júlfus Georgs-
son og meðdómendur Angantýr
Elfason og Steingrfmur Arnalds.
s
<§>
Philco
slær tvær f lugur í einu höggi
Philco
býður þurrkara sem getur staðið ofan
á þvottavélinni. Þannig nýtist gólf-
rýmið til fullnustu og handhægt, út-
dregið vinnuborð milli vélanna auð-
veldar notkun þeirra. Já — allt sem
til þarf eru einfaldar festingar og
tvær flugur eru slegnar í einu höggi.
Philco þurrkarinn
tekur 5 kg af þurrum þvotti — sama
magn og þvottavélin. Hann er auð-
veldur í notkun — með fjögur sjálf-
virk þurrkkerfi sem henta öllum teg-
undum af þvotti og allt að tveggja
klst. tímarofa.
Philco þvottavélin
tekur inn heitt og kalt vatn, vindu-
hraðinn er 850 snúningar á mínútu,
sem þýðir mun styttri þurrktíma.
Tvær stillingar eru fyrir vatnsmagn,
ullarkerfið er viðurkennt og einfalt
merkjamál er fyrir hvert þvottakerfi,
svo að allt sé á hreinu!
Er það furða þó að fleiri og fleiri velji Philco
m
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655