Morgunblaðið - 21.07.1977, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.07.1977, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júlí 1977 viw MORötlK/ MrnNU Ég vissi ekki hvað góður matur var fyrr en ég kynnt- ist konunni minni, en þá var það bara orðið of seint! Gættu þín — þrepið er hátt! BRIDGE Umsjón: PéH Bergsson SÖKN varnarspilaranna var sagn- hafa mjög f hag f spili dagsins. Hann vann sitt spil umhugsunar- lftið. En vandvirkni var þörf hefði vörnin verið spiluð á yfir- vegaðri hátt. Allir í hættu, gjafari vestur. Norður S. 7 H. A1086 T. G 10972 L. D76 Austur S. Á10932 H.G3 T. 6543 L. K3 Suður S. K64 H. KD972 T. AD8 L. 105 Vestur S. DG85 H. 54 T. K L. AG9842 Þetta er fágætur gripur — þessi gamla klukka. Þegar vfsarnir sýna þrjú, slær hún 22 högg og þá er klukkan hálf átta. Skortur á gangbrautum? „Ágæti Velvakandi. Undirritaður er íbúi við Klepps- veg í Reykjavík, en Kleppsvegur er ein af lengstu og fjölbýlustu götum Reykjavikur og ein af mestu umferðargötum höfuð- borgarinnar. Þar er einstefnu- akstur, gatan er tvöföld og þreföld. Eftir þessari götu er ekið með ofsahraða. Að vísu eiga þar ekki allir hlut að máli. Hræddur er ég um að þeir séu færri ökumennirn- ir sem aka þarna um eftir lög- boðnum hámarkshraða, sem mér er sagt að sé 50 km á klst. Strætis- vagnar fara um götuna og eru mikið notaðir og viða eru strætis- vagnabiðstöðvar. Er nú komið að aðalerindinu, sem var ætlunin að fjalla um, en það eru hvitu strikin yfir umferðargötur. Þau merkja að á þeim bletti eigi gangandi fólk griðland og beri öllum að virða rétt þess göngufólks sem þarna fer um. Við Kleppsveginn vantar þessi hvitu strik alveg. Ég undir- ritaður skora á þau yfirvöld, sem með þessi mál fara að bæta úr þessu með hvítu strikin og það fyrr en seinna. A.Þ.O.“ Þessari ósk íbúans við Klepps- veg er hér með komið á framfæri og þvi beint til viðkomandi yfir- valda að gangbrautir verði merkt- ar séu þær ekki þegar fyrir hendi. I framhaldi af þvf er ekki úr vegi að birta smá-pistil um gangbraut- ir: % Réttur gang- brautarfólks „Ég hef oft verið að velta þessu með gangbrautirnar i Reykjavik og nágrenni fyrir mér, Sagnirnar gengu þannig: Vestur Norður Austur Suður Pass Pass Pass 1 H Dobl 4 H allir pass Austur var i erfiðri aðstöðu eft- ir hækkun norðurs i fjögur hjörtu. Það var heldur ósennilegt, að fjórir spaðar stæðu eftir pass vesturs í upphafi og hann var ekki heldur viss um, að þeir félag- ar næðu fjórum slögum í vörn. En hann kaus að verjast. tJtspilið var spaðadrottning, sem austur tók með ás og skipti i laufkóng. En vestur lét tvistinn og austur skipti aftur um sóknar- lit. Hann spilaði tigli. Sagnhafi tók auðvitað eftir þessu öllu og var með á nótunum. Vörnin var greinilega að sýna honum hvar háspilin voru. Aust- ur gat ekki átt tigulkóng auk spaðaáss og laufkóngs. Og þar að auki var lauftvisturinn dálítið áberandi spil. Hann tók þvi á tígulásinn og fékk ellefu slagi. Eftir að spaðadrottning kemur út á sagnhafi að vinna spilið. Hvers vegna? Jú, vestur á senni- lega ekki bæði laufás og kóng úr þvi hann spilar ekki út laufi. Og það þýðir að hann á tigulkónginn. En það væri eðlilegt að tapa spil- inu kæmi út laufás, skipt i spaða- drottningu og austur spilaði sfðan tígli. RETTU MER HÖND ÞÍNA Framhaldssaga eftir GUNNAR HELANDER Benedikt Arnkelsson þýddi Ný framhaldssaga 1 dag hefst ný framhaldssaga hér f blaðinu. Hún heitir RÉTTU MÉR HÖND ÞlNA og er eftir sænska rithöfundinn Gunnar Heland- er. Sagan gerist að miklu leyti I Suður-Afrfku. Alltaf öðru hverju birta fjölmiðlar fréttir af kynþáttavandamál- um I suðurhluta Afrfku. Svo virðist sem enn sé langt frá þvf, að þessi erfiðu sambúðarmál kynflokkanna f þessum heimshluta verði leyst. Höfundur framhaldssögunnar, Gunnar Helander, gerir þessum málum skil f sögu sinni. Byggir hann söguna á eigin athugunum, enda er hann gjörkunnugur öllum staðháttum og aðstæðum þar syðra. Sagan RÉTTU MÉR HÖND ÞlNA segir frá sambúð ungrar svissneskrar konu og Indverja f Suður-Afrfku. Aðalpersónan er þó ungur og bjartsýnn Svfi, sem hefur kynnzt hjónunum f Englandi og fer til Suður-Afrfku. Fullur af hugmyndum um auðvelda iausn allra vandamála. En hann kynnist þar nýjum heimi, og fer jafnvel svo, að hann fær óbeit á þeldökkum mönnum. Réttlætiskennd hans býður honum þó að Ifta til Iftilmagnans, og mikil togstreita hefst innra með honum. Hann hittir sænskan kristniboða og fer með honum um „unaðs- Iönd“ frumstæðra svertingja — og kemst ekki hjá þvf að fhuga, hvort kristniboðið eigi rétt á sér eða geti jafnvel bent á leið út úr ógöngunum. 1 UMRÆÐUR I MEADOW COLLEGE Við erum stödd f Selly Oak, útborg Birmingham. Það er hráslagalegt febrúarkvöld. Blárri birtunni frá götuijós- kerunum tekst með naumind- um að þrengja sér gegnum þok- una. Draugaleg lest tveggja hæða sporvagna skröltir af stað. Vagnarnir eru fullir af óhreinum, fremur lágvöxnum verkamönnum. Þeir eru á leið heim úr Austinhflaverksmiðj- unni. Flestir hafa þeir ullar- trefil um hálsinn. Þeir eru órakaðir og með snjáðar der- húfur á höfði. Margir eru með Navy Cut sfgaréttur hangandi úr munninum. A endastöðinni spúa vagnarnir út úr sér svörtum straumi af mönnum. Verka- mennirnir læðupokast þegj- andi á „pöbbinn“, krána, þar sem þjónustustúlka með svart- ar sorgarrendur undir nögl- unum réttir hverjum og einum hálfan skammt af öli upp á borðið. A meðan bfða frú Smith eða frú Jones eða frú Brown með mörg börn f einu herbergi og eldhúsi heima f dimmu bak húsi. Virkur dagur verkamanna f Englandi. Deyfð. Orðfæð. Lág- þoka. En aðeins steinsnar frá göt- unni, inni í dagstofunni á Meadow College, rfkir ailt ann- að andrúmsloft. Þar eru mcnn tunguliprir, skrýtlurnar vekja kátfnu, og þar eru rædd spenn- andi vandamál. Fjórir stúdent- ar sitja þarna. Þeir eru full- trúar fjögurra þjóða og þriggja kynþátta. Að vfsu er veggfóðrið farið að láta á sjá, lýsingin er dauf og fjaðrirnar í hæginda- stólunum farnar að slakna. Samt virðast fjórmenningarnir kunna vel við sig fyrir framan opinn arininn, þar sem illa logar í steinkolunum. Það er að segja, hans kon- unglega hátign, hinn kolsvarti prins Fasul frá Vestur:Afrfku,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.