Morgunblaðið - 07.09.1977, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
198. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ekki hægt
að stytta sér
leið” segir
Callaghan
Blackpool, 6. september. —
Reuter.
„ÞAÐ ER ekki hægt að stytta sér
leið“, sagði James Callaghan, for-
sætisráðherra Breta, er hann
ávarpaði alþýðusambandsþingið I
Blackpool í dag og lýsti þvf yfir
afdráttarlaust, að verkalýðsfélög-
in yrðu að stilla launakröfum sfn-
um f hðf enn um hrfð ef takast
ætti að sigrast á verðbólgunni.
Ræðu forsætisráðherrans hafði
verið beðið með nokkurri eftir-
væntingu, og greinilegt var að
þingfulltrúar, sem eru á tólfta
hundrað talsins, hlýddu á hana
með mikilli athygli.
I ræðu Callaghans kom
fram að hömlur undangenginna
tveggja ára hafa borið þann ár-
angur að stjórnin telur senn tíma-
bært að gera ráðstafanir til að
efla atvinnu- og efnahagslífið í
landinu „en efnahagsbatinn verð-
ur að vera til frambúðar, en ekki
tímabundin þensla eða kosnings-
sprettur". Callaghan sagði enn-
fremur að hagvöxturinn þyrfti
nauðsynlega að aukast bæði fyrir
og eftir kaosningarnar, sem í síð-
asta lagi yrðu f árslok 1979. Hann
lýsti ánægju sinni með samvinnu-
vilja verkalýðsfélaganna undan-
farin tvö ár. Hann sagði að
tímar rýrnandi lffskjara væru nú
liðnir, um leið og hann lagði
áherzlu á að menn skyldu ekki
gera sér vonir um að hægt yrði að
bæta upp það sem tapazt hefði í
launum, heldur yrði að byggja á
þeim grundvelli, sem nú hefði
verið lagður. Hann lagði að þing-
fulltrúum að samþykkja launa-
málastefnu stjórnarinnar fyrir
næstu 12 mánuði, en hún væri
nauðsynleg til að takast mætti að
koma í veg fyrir að verðbólgu- og
kaupgjaldskapphlaupið hlypi með
Breta í gönur að nýju.
••
T'T |r\T \T Lögregla kemur á morðstaðinn þar sem fjórir menn liggja í valnum en hryðjuverkamen
rVV/JUl\ Shleyer, forseta v-þýzka vinnuveitendasambandsins, á brott með sér.
Krafa mannræningjanna:
Símamynd AF
nirnir hafa haft
14 hryðjuyerkamenn í
skíptum fyrir Schleyer
Hans-Martin Schleyer.
Hægri öfgasinnum bann-
að að mótmæla á Spáni
Madrid, 6. sept. Reuter.
SPÆNSKA stjórnin bannaði I
dag, að hægri sinnaðir öfgamenn
efndu til mótmælaaðgerða til
stuðnings lögreglunni, sem liggur
undir ámæli fyrir að hafa lagt
hendur á einn þingmann
Sósfalistaflokksins. Það var
stjórnmáiaflokkurinn „Hið nýja
afl“, sem ætlaði að skipuleggja
mótmælaaðgerðirnar, sem bann-
aðar voru á þeirri forsendu að
formgalli hefði verið á umsókn
um leyfi til samkomunnar.
Stjórnmálafréttaritarar eru þó á
einu máli um að hin raunveru-
lega ástæða fyrir þessari ákvörð-
un yfirvalda hafi verið sú, að
stjórnin vilji ekki styggja
Framhald á bls 18.
Bonn, 6. september — Reuter — AP.
MANNRÆNINGJARNIR, sem í gær skutu fjóra menn til bana í Köln
og rændu formanni v-þýzka vinnuveitendasambandsins, Ilanns-Martin
Schieyer, hafa krafizt þess að í skiptum fyrir gíslinn verði 14 hryðju-
verkamenn í fangelsum í Vestur-Þýzkalandi látnir lausir. Kröfubréfið,
sem barst lögreglunni síðdegis, að því er áreiðanlegar heimildir
herma, hefur verið afhent ríkisstjórninni. 1 framhaldi af því boðaði
Schmidt kanslari til fundar með ríkisstjórn sinni, formönnum þeirra
stjórnmálaflokka, sem eiga fulltrúa á þingi, ríkissaksóknara og fleiri
meiriháttar valdamönnum í landinu. Af opinberrri hálfu hefur ekkert
verið látið uppi um fundinn eða til hverra ráðstafana verður gripið
vegna þessa máls. Þá voru í dag handteknir tveir menn í sambandi við
ódæðið, en ekki er enn vitað hvern hlut þeir eiga að málinu.
A fréttamannafundinum lét
Rebmann í ljós þá skoðun að þetta
hryðjuverk öfgamanna kynni að
tengjast morðinu á forvera hans í
embætti, Siegfried Buback, sem
framið var i Karlsruhe i apríl-
mánuði s.l. Hefðu tóm skothylki á
morðstaðnum i gær verið sömu
gerðar og þau, sem fundust þar
sem Buback var ráðinn af dögum.
Helmut Schmidt kanslari hélt í
morgun fund ásamt samstarfs-
mönnum sínum til að ræða hvern-
ig brugðizt yrði við þessu síðasta
áhlaupi óaldarflokka, sem nú
hafa um langa hríð herjað i
Vestur-Þýzkalandi. Ekkert bendir
til þess að stjórnin hyggist láta
undan kröfum hryðjuverkamann-
anna, og af harðorðri yfirlýsingu
Schmidts i sjónvarpi í gærkvöldi
mátti ráða að aðgerðir stjórnar-
innar til að halda aftur af slikum
hópum sem hér um ræðir,' yrðu
enn umfangsmeiri hér eftir en
hingað tii. „Þessi blóðuga ögrun
er okkur öllum hvatning", sagði
kanslarinn um leið og hann hét
Uppþot, íkveik ja og mikil átök í
Tékkóslóvakíu
Svar mótmælafólks við aðgerðum
lögreglu var að þar færi- „Gestapo
Praií, 6. seplcmber. — Rcuter.
IIUNDRUÐ ungmenna lentu í meiriháttar átökum við lögreglu
og báru eld að járnbrautarlest eftir að yfirvöld höfðu á síðustu
stundu aflýst rokk-tónleikum í Kdyne i Tékkóslóvakíu, rétt við
landamæri V-Þýzkalands, að því er andófsmenn í Prag greindu
frá í dag. Um 100 unglingar særðust í viðureigninni og um 200
voru teknir til yfirheyrslu eftir að lögreglunni hafði tekizt að
kveða niður óeirðirnar. Segja sömu heimildarmenn að enn séu 13
í haldi af þeim sem handteknir voru, þar á meðal Viktor nokkur
Groh, sem er 23 ára lásasmiður, en hann var einn þeirra, sem
undirrituðu Mannréttindaskrá ’77.
í frásögn andófsmannanna af
þessum atburði kemur fram, að
alls hafi um 1200 manns verið
komnir á staðinn þar sem tón-
leikarnir skyldu haldnir, þegar
því var lýst yfir að ekkert yrði
af þeim þar eð ekki væri unnt
að tryggja að þeir færu friðsam-
lega fram. Hefði þeim sem
kröfðust þess að fá miða sína
endurgreidda verið safnað sam-
an fyrir utan tónleikahúsið þar
sem þeir héldu áfram að
itreka kröfu sína. Hafi lögregl-
an þá beitt táragasi og gúmmí-
kúlum til að reyna að dreifa
þvögunni, og hafi lögreglu-
hundum auk þess verið sigað á
fólkið. Svar mótmælafólksins
við þessum aðgerðum lögregl-
unnar hafi verið grjótkast og
brigzlyrði um að þar færi
„Gestapo". Við svo búið hefði
lögreglan leitað skjóls í húsi
gagnfræðaskóla bæjarins.
Sögðu heimildarmennirnir
ennfremur, að skömmu eftir að
mannfjöldinn dreifðist og
kyrrð var að komast á að nýju,
hafi hópur unglinga náð á sitt
vald heilli lest á járnbrautar-
stöðinni og kveikt i einum
vagninum. Þegar svo var komið
hafi foringi lögregluliðsins gef-
ið skipun um að menn hans
legðu niður vopnin og létu
unglingana afskiptalausa i þvi
skyni að binda enda á óeirðirn-
ar.
Eignatjón af völdum þessa
uppþots er talið skipta miklum
fjárhæðum, auk þess sem að
minnsta kosti sjö lögreglumenn
munu hafa verið fluttir i
sjúkrahús eftir átökin. Þá
herma andófsmenn að sumir
þeirra 200 unglinga, sem hand-
teknir voru, hafi verið þvingað-
ir til að standa uppréttir i sjö
klukkustundir, og hafi þeir,
sem urðu lémagna og féllu við,
verið barðir með kylfum.
því að stjórn hans mundi beita sér
fyrir auknum varúðarráðstöfun-
um til að tryggja öryggi borgar-
anna.
Það var í mesta umferðaröng-
þveítinu síðdegis i gær að hópur
manna, sem talið er að hafi verið
um fimmtán talsins, gerði atlögu
að bifreið Schleyers, þar sem
hann var á leið heim til sin að
loknum starfsdegi. Skothríð var
hafin á bifreið Schleyers og
lögreglubifreið, sem var í fylgd
með honum, með þeim afleiðing-
um að þrír öryggislögreglumenn
og bifreiðarstjóri Schleyers létu
lifið.
Talið er vist, að vinstri sinnaðir
öfgamenn standi að mannráni
þessu, á sama hátt og slíkir hópar
hafa að undanförnu rænt öðrum
áhrifamönnum i landinu.
V-þýzkir fréttamiðlar hafa í
gær og í dag fengið fjölda upp-
hringinga og bréfa þar sem
ábyrgð á mannráninu hefur verið
lýst yfir i nafni hinna ýmsu
vinstri öfgahópa. í einu simtalinu
var sagt, að Schleyer yrði myrtur
kl. 17.15 í dag ef foringjar hryðju-
verkamanna Baader-Meinhof
hefðu þá ekki verið látnir lausir.
Skömmu síðar hringdi maður,
sem kvaðst málsvari hreyfingar-
innar „Rauður morgunn", og hót-
aði hann að Schleyer yrði myrtur
Framhald á bls 18.
V-þýzkur verka-
lýifeleiðtogi ákærð-
ur fyrir njósnir
Karlsruhe, 6. sept. Reuter
EINN helzti forystumaður málm-
iðnaðarmanna i Vestur-
Þýzkalandi, Heinz DUrrbeck, var i
dag ákærður fyrir njósnir i þágu
Austur-Þýzkalands. Rannsókn
þessa njósnamáls hefur staðið
undanfarin tvö ár en Durrbeck er
gefið að sök að hafa látið Austur-
Þjóðverjum í té skýrslur og skjöl
um Samband málmiðnaðarmanna
og heildarsamtök verkalýðsins á
timabilinu 1957—1975.