Morgunblaðið - 07.09.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977
13
Heimilið ’77:
Mikið um nýj-
ungar í raf-
tækjaiðnaði
1 sýningarbás Heklu h.f. hitti
Morgunblaðið fyrir Ólaf Þðrar-
insson, verzlunarstjðra I raf-
tækjadeild fyrirtækisins, og var
hann beðinn að segja lítillega frá
þvf sem ber fyrir augu hjá þeim.
Herna í Heklubásnum erum við
eingöngu með vörur frá raftækja-
deild fyrirtækisins, þ.e.a.s. hræri-
vélar, kæliskápa og fleira þess
háttar. Okkar helzta djásn hér á
sýningunni er ný rafeindahræri-
vél, sem hefur 15% kraftmeiri
mótor heldur en allar eldri teg-
undir sem verið hafa hér á mark-
aði. Einnig er hún með sérstöku
útsláttaröryggi sem gerir það að
verkum að ef hún reynir of mikið
á sig slær hún út, en verður ekki
fyrir skemmdum, eins og áður var
hætta á.
Svo erum við auðvitað með ýms-
ar tegundir kæliskápa, og mætti
nefna að á einum þeirra erum við
með sjálfvirkan affrysti. Einnig
mætti nefna að nú er að koma á
markaðinn ný tegund tauþurrk-
ara sem eru mun fyrirferðaminni
og léttari en áður tíðkaðist.
Gildi sýninga sem
þessarar er mjög mik-
ið fyrir þátttakendur
— Það er örugglega hægt að
segja að innlendir húsgagna- og
innréttingaframleiðendur standa
alveg jafnfætis hinum erlendu í
samkeppninni um verð og jafnvel
framar hvað varðar gæði, sagði
Stefán Stefánsson hjá Tréval er
Morgunblaðið ræddi við hann á
heimilissýningunni Heimilið ‘77.
Hvað eruð þið með hér til sýnis
Stefán? — Við erum aðallega með
ýmiss konar húsgögn og innrétt-
ingar og höfum sérhæft okkur i
smíði baðborða, klæðaskápa og
eldhúsinnréttinga. Við höfum nú
aðeins verið í þessu i f jögur ár, en
það má segja að þetta hafi gengið
mjög vel.
Hvað segir þú um þátttöku í
slíkri sýningu sem þessarri? —
Ég tel þetta vera alveg nauðsyn-
legan þátt í íslenzku þjóðlífi og ég
held aó allir sem hér eru séu
sammála. Vi vorum hér t.d. á sið-
ustu sýningu 1975 og við tökum
örugglega þátt i þessu áfram ef
okkur býðst það, ságði Stefán að
lokum.
Sýningardeild Trévals á heimilissýningunni.
Kynnir nýja
tegund
snyrtivara
Sigrún Sævarsdóttir, snyrtisér-
fræðingur, kynnir á Heimilissýn-
ingunni nýja tegund snyrtivara,
„Jean d’Avéze", sem hún hefur
nýlega hafið innflutning á.
Sigrún sagði að þessi tegund
hefði verið framleidd í Frakk-
landi siðan Srið 1957, og væri nú
framleidd i 75 löndum. Upphaf
þessara snyrtivara hefði verið að
læknar hefðu fundið út að hægt
væri að nota virk náttúruleg efni í
krem meira en áður. Fyrst hefðu
verið grædd ýmis sár s.s. bruna-
sár eða ör eftir bólur. Siðan hefðu
þessi krem orðið snyrtivörur og
væru þau fyrst og fremst til þess
að halda húðinni heilbrigðri.
Utsölustaðir „Jean d’Avéze"
eru i Glæsibæ, Ócúlus, snyrtistof-
unni Utliti, Elínu í Hafnarfirði og
Stjörnuapótekinu á Akureyri.
KERFIÐ INNHVERF ÍHUCUN
TR4MSCENDENT4L MEDITATION PROGRAMM E
Almennur kynningarfyrirlestur
verður haldinn að Hverfisgötu 1 8 (beint á móti Þjóðleikhúsinu) i kvöld kl. 20.30.
Tæknin er auðlærð og krefst engrar einbeitingar. Iðkun tækninnar eykur andlegan
þroska og styrkir taugakerfið Sýndar verða visindalegar rannsóknir, sem staðfesta
notagildi hennar.
ÖLLUM HEIMILL AÐGANGUR jslenska ihugunartélagj8
Maharishi Mahesh Yogi
Vióerum .xV.0ýv
hinumegin vtO"
Örskammt frá horninu, þar sem Málarinn var í
Bankastræti, höfum við opnað nýja og stór-
glæsilega málningarvöruverzlun, — að Ingólfs-
stræti 5. __ ___
SÍRSTAKT TILBOD ™
I tilefni af opnun verzlunarinnar
bjóðum við yður að kaupa:
HRAUN
á verksmiðjuverði!
í 4 og 11 ltr. pakkningum
í mörgum litum
Málningarvörur, munu gera sér far um
að bjóða sem mest og best af áhöldum,
efni og þjónustu.
Við bendum sérstaklega á D Y P P
húsgagnalakkið frá Dyrup,
sem við eigum í margvíslegum litum.
Komið við og lítið á litina!
MALNINGAR
VORUR
INGOLFSSTRÆTI 5 sími 29660