Morgunblaðið - 07.09.1977, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 07.09.1977, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977 29 ■c wrrr VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10 — 11 FRÁ MÁNUDEGI mikið á að koma upp, hefur alls ekkert verið notaður t tvö ár, hann var aðeins notaður I nokkr- ar vikur, sfðan ekkert meira. Aðalástæðan fyrir þessu er sú að mölin á vellinum þykir of gróf og í staðinn fyrir það að unga fólkið reyni að koma þessu í lag, þá bíður það með óþreyju eftir þvi að þeir sem eldri eru geri það, eins og reyndar flest annað. Það er alveg tilgangslaust hjal hjá Sig- fúsi og fleirum að heimta þetta og hitt vitandi það að fjárhagur iþróttasambandanna er mjög slæmur og ekki sizt Frjálsiþrótta- sambandsins. Að lokum má nefna að það væri ánægjulegt að heyra eitthvað frá forystumönnum iþróttahreyf- ingarinnar um þau mál, sem rætt hefur verið um hér í Velvakanda að undanförnu. 1730—6804 “ Undir það getur Velvakandi tekið, að fengur væri að enn frek- ari umræðu um þessi mál hér í dálkunum og víst munu þeir enn um sinn standa opnir umræðu um iþróttamálin ef menn vilja eitt- hvað til málanna leggja. Ekki er vist að Sigfús Jónsson vilji taka þessum skoðunum hér þegjandi og verður gefið tækifæri til and- svara af hans hálfu ef hann óskar þess. Þessir hringdu . . 0 Hirðuleysi um verðmæti? Björn: — Ég var fyrir stuttu á ferð i Bláfjöllum og sá þá meðal annars togbrautina þar og fannst ekki nógu vel um hana hirt. Liggur hún niðri á 2—3 stöðum og Iiggja vélarnar á hlið og hefur hún sjálf- sagt legið svona síðan i vor, er hætt var að nota hana. Ekki hefur verið nein hugsun á því að koma vélunum i hús eða rétta þær við þarna og breiða yfir þær, svo að hætt er við að eitthvað þurfi að lagfæra þær er gripa á til þeirra að hausti. Það er ekki nóg að biðja um dýra hluti og fá þá, það verður einnig að gæta þess að hirða al- mennilega um þá, því þetta eru vissulega mikil verðmæti. 0 Svona eiga útvarps- þættir að vera Og sami Björn heldur áfram: — Þá vil ég nefna að á dagskrá útvarpsins að undanförnu hefur verið mjög góður þáttur sem ber heitið Lifið fyrir austan. Er þetta gott dæmi um hvernig útvarps- þættir eiga að vera og hefur stjórnandanum, Birgi Stefáns- syni, tekizt mjög vel upp. Þarna flytur hann frásagnir, greinir frá staðháttum og ýmsu fyrir austan og vonandi verða fleiri svona þættir á dagskrá áfram. SKAK Umsjón: Margeir Pétursson 1 síðustu umferð IBM mótsins i Amsterdam varð Miles að sigra til þess að tryggja sér einum efsta sætið á mótinu. Hér eru lok skák- arinnar. IVIiles hefur svart og á leik, en hvitu mönnunum stjórnar argentínski stórmeistarinn Quinteros. % Fljótar fréttir — ekki nákvæmar? Sjónvarpsáhorfandi: — Ég vil fá að þakka sjónvarp- inu fyrir það hversu fljótt við fengum að sjá leikinn við Hol- lendinga nú fyrir helgi og þakka Bjarna Felixsyni fyrir góða um- sögn með honum. Það er gaman að fá að sjá þetta svona fljótt, en hins vegar höfðum við fengið þær fréttir er leiknum var lýst og í öðrum umsögnum að Istendingar hafi átt seinni hálfleikinn, en okkur sem sátum við sjónvarpið fannst nú bið á því og það eigin- 28... Hxg2! 29. Dxg2 — (Eftir 29. Dxh5 — Hxgl+ 30. Kh2 — H6g2 er hvítur mát) Hxg2 30. Hxg2 — Bf8, 31. Hxa7 — De2, 32. Hgl — Rxe3, 33. fxe3 — Dxe3, og lokst hér gafst hvitur upp. HÖGNI HREKKVÍSI S) V"’n+ Hann hefur líklega komizt í grút. Þormóður Run- ólfsson — Minning lega alls ekki vera svo. Hins vegar var það rétt sem Bjarni sagði að þetta var nokkurs konar varnar- leikur af hálfu íslendinganna og við verðum að viðurkenna að Hol- lendingarnir voru miklu sterkari og betri, rétt eins og við mátti búast. Þetta var algjör varnarleik- ur fyrir utan örfá upphlaup.— Þetta voru orð sjónvarpsháhorf- andans og vera má að leikurinn hafi komið þeim er sáu hann úti öðru visi fyrir sjónir en hinum, sem sáu aðeins sjónvarpið, eða að minnsta kosti er það oft svo að við greinum hlutina ekki á sama hátt. bæjarfulltrúi, Siglufirði. F. 9. oktöber, 1931 D. 30. ágúst, 1977. Mér varð ónotalega hverft við, er ég frétti þau hörmulegu tíð- indi, að félagi minn í bæjarstjórn Siglufjarðar, Þormóður Runólfs- son, hefði orðið bráðkvaddur við laxveiðar í Fljótá þriðjudaginn 30. ágúst s.l. Svo válegum tíðind- um er erfitt að trúa og örðugt að sætta sig við sem staðreynd. Þormóður Runólfsson var fædd- ur á Kornsá i Vatnsdal og voru foreidrar hans hjónin Alma Jóhannsdóttir Möller og Runólfur Björnsson, bóndi á Kornsá. Var Þormóður næstyngstur af 9 systkina hópi. Þormóður ólst upp á Kornsá hjá foreldrum sínum, en haustið 1945 settist hann i gagnfræðaskólann á Siglufirði og stundaði nám bæði þar og við héraðsskólann á Laugarvatni næstu vetur. Arið 1949 hóf Þormóður búskap á Kornsá, en það ár kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Gerðu Edith, fædd Jáger, sem þá hafði ráðizt sem kaupakona að Kornsá. Þau Gerða og Þormóður gengu í hjónaband hinn 19. sept. 1951 og bjuggu þau á Kornsá fram til 1957, er þau fluttust til Siglu- fjarðar. A Siglufirói starfaði Þormóður fyrst sem vörubifreiðastjóri, en réðist síðan til sjós á Siglufjarðar- togarana Elliða og Hafliða. Einnig starfaði hann sem sjómaður á kaupskipum um skeið. Um 1967 hætti Þormóður sjómennsku og starfaði næstu árin sem netagerð- armaður í landi, en um 1970 hóf hann störf hjá Skattstofu Norður- landsumdæmis vestra og næstu árin vann hann þar hálft árið en hálft árið við netavinnu, eða þar til í lok síðasta árs að hann var fastráðinn sem bókari og gjald- keri hjá Rafveitu Siglufjarðar. Hjónaband þeirra Gerðu og Þormóðs hefir reynzt hið farsæl- asta og hafa þau eignast fjögur börn, sem eru hvert öðru mann- vænlegra, en þau eru þessi: 1. Páll Herbert. f. 1.1. 1951, flug- virki í Luxembourg, kvæntur Ingibjörgu Jónsson. 2. Birgir Jóhann f. 4.8 1952, rafvirkjanemi á Sauðárkróki, kvæntur Elínu Þorbergsdóttur og eiga þau einn son. 3. Alfhildur f. 9.5 1955, húsmóðir á Siglufirði, gift Birni Birgissyni, rennismið, og eiga þau tvö börn, son og dóttur. 4. Alma Aðalheióur. f. 5.3 1961, nemandi í gagnfræðaskóla Siglu- fjarðar, enn í foreldrahúsum. Kynni okkar Þormóðs hófust með sameiginlegu starfi að félags- málum Sjálfstæðisflokksins í Siglufirði. Var hann þar mjög áhugasamur auk þess að vera prýðilega ritfær, enda komst hann fljótt í forystusveit. Skrifaði hann töluvert i málgagn flokksins á Siglufirði, blaðið Siglfirðing, og ennfremur nokkuð reglulega greinar í Morgunblaðið um árabil. Veturinn 1973—74 tók hann svo að sér ritstjórn Siglfirðings og hafði hana á hendi með miklum sóma til dauðadags. Er það út af fyrir sig afrek, þvi að fæstir geta gert sér grein fyrir því, hvað erf- itt er að standa fyrir reglulegri blaðaútgáfu i litlu bæjarfélagi. Vorið 1974 var Þormóður kosinn í bæjarstjórn Siglufjarðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en kjörtíma- bilið þar á undan hafði hann verið fyrsti varafulltrúi flokksins i bæjarstjórn. Síðan hann kom í bæjarstjórn hefir hann m.a. alla tið átt sæti í bæjarráði, sem er aðalframkvæmdanefnd bæjarins, og látið fjölmörg mál til sín taka af áhuga og dugnaði. Einkum hafa honum verið hugleikin skipulagsmál og gatnagerðarmál, og hafði hann unnið mikið að und- irbúningi framkvæmda á þeim sviðum á síðustu mánuðum. Allar horfur eru á, að þau stórhuga áform verði að veruleika á næstu árum, en óskiljanleg örlög hafa nú valdið því, að Þormóður lifir ekki að sjá þessa drauma sina rætast. Þormóður Runólfsson var dulur Framhald á bls. 22. Skrifstofuhúsnæði Til leigu að Suðurlandsbraut 14 skrifstofuhús- næði á 2. hæð ca. 220 fm. á 3. hæð ca. 500 fm. Húsnæðið er fullinnréttað með fundarherbergj- um, skjalageymslu, kaffistofu og sér stigagangi á milli hæða. Leigist allt í einu eða í smærri einingum frá og með 1 . desember n.k. Allar nánari upplýsingar veitir Gísli Guðmunds- son á skrifstofu vorri. T'VVTfN Biireiðar & Landbiinadarvélarhi. SuOiirliindsliraul 14 - Hnkj<iiik - Simi ntUMMI G3P S\GeA V/öGA £ 'íiLVtRAW %) AVKÖ-bT/N MAV/ Vl//VNV<A9 ÖVI Núii Wm n\ö mw \ <d\9/ist/i V/4N0M. V/AVA/VOll- A9 Vú miz 4 XLÓ'btfm m au.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.