Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 3 900 km. „rally” FYRSTA október n.k. hefst á veg- um B ifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur keppni í rally, sem er um 900 km að lengd. Verður þetta í fyrsta skipti á tsiandi, sem íslenzkir rally-ökumenn keppa að hluta til í myrkri. Fyrirhugað var að halda rally-kcppni í kringum landið á vegum klúbbsins, en sök- um fyrirsjáanlegrar lélegrar þátt- töku var fallið frá því. Keppnin, sem stendur fyrir dyrum, hefst á Hótel Loftleiðum og er ætlunin að ekið verði alla nóttina og að Bikarúr- slit í dag í MORGUNBLAÐINU í gær urðu þau mistök er greint var frá úrslitaleik 1 bikarkeppni KSl, að sagt var að hann ætti að fara fram á laugardegi en hið rétta er að Ieikurinn fer fram á Laugardalsvellinum í dag og hefst kl. 14.00. Valur og Fram leika þá til úrslita, og að leik loknum mun borgar- stjórinn í Reykjavík, Birgir tsl. Gunnarsson, afhenda sigurvegurunum hinn eftir- sóknarverða verðlaunagrip. 1 leikhléi munu svo tslands- meistarar Akraness taka við sigurlaunum sínum í tslands- mótinu í knattspyrnu. Búizt er við miklum fjölda áhorfenda á leikinn, enda má búast við jöfnum og skemmtilegum leik. henni Ijúki við Loftleiðahótelið um þrjúleytið á sunnudeginum. Öllum er heimil þátttaka í keppn- inni, en þátttökugjaldið er kr. 30.000.-. Skv. upplýsingum frá stjórn Bifreiðaiþróttaklúbbsins er hér um að ræða keppni í skipulags- hæfileikum, áætlanagerð, ná- kvæmni og skjótri hugsun, ratvísi og aksturstækni, en ekki i kapp- akstri í venjulegum skilningi. Leiðin sem ekin verður er fær öllum venjulegum fólksbílum og hvetur stjórnin konur og karla á öllum aldri til þátttöku. Upplýs- ingar um keppnina liggja frammi á skrifstofu félagsins. Torfæruakstur við Grindavík BJÖRGUNARSVEITIN Stakkur efnir i dag til torfæruaksturs- keppni í námunda við Hagafell við Grindavík. Keppnin hefst kl. tvö og er að vanda efnt til hennar til fjáröflunar til viðhalds og end- urnýjunar á tækjabúnaði sveitar- innar. Nonnahús á Akureyri fær góða gjöf: Messusöngbók sem Nonni notaði síðustu æviárin FYRIR nokkru barst Nonnahúsinu á Akureyri vegleg og skemmtileg gjöf. Það var messusöngbók sem Nonni notaði sfð- ustu ár ævinnar, þegar hann var aldurhniginn og sjóndapur orðinn. Slfkar messusöngbækur eru jafnan mjög vandaðar og fagrar að allri gerð, bundnar inn í dýrmætt skinn og gylltar í sniði. Sú útgáfa, sem hér um ræðir, er sérstaklega gerð fyrir sjóndapra presta og aldraða, sett stóru og greinilegu letri í tveimur litum og fagur- lega gerðum grallarnótum. Þessi skemmtilega messu- söngbók er prentuð í Regens- burg árið 1921 og er 4. útgáfa hennar. Hún nefnist Missale cæcutientium og er með áeltruninni: Nonni 1944, Eschweiler, en þangað var hann fluttur ellihrumur og veikur þegar regla hans var á stríðsárunum hrakin frá heim- kynnum sinum i Valkenburg i Hollandi. Frá Eschweiler var Nonni siðan fluttur til Kölnar, þar sem hann andaðist svo sem kunnugt er hinn 16. október 1944. Séra Tophinke, yfirmaður Jesúítaklaustursins í Köln, sem annaðist um Nonna siðustu ár- in sem hann lifði, fann þessa messusöngbók ekki alls fyrir löngu og taldi hana best varð- veitta á æskuheimili hans á Akureyri, Nonnahúsi. Afhenti hann siðan bókina dr. Otto Loeffler, íslenzka ræðis- manninum í Köln, og bað hann koma henni áleiðis til Akureyr- ar. Dr. Loeffler tók þátt í ræðis- mannafundinum, sem haldinn var hér fyrir nokkru og notaði þá tækifærið til þess að af- henda Nonnahúsinu þennan skemmtilega og verðmæta grip. Var það gert við hátiðlega at- höfn og var myndin, sem hér fylgir með tekin við það tæki- færi. Sést bókin mjög vel en með dr. Loeffler er stjórn Zontakvenna á Akureyri þær Guðriður Eiríksdóttir hús- mæðrakennari, formaður, Edda Eiríksdóttir skólastjóri, vara- formaður, Ingibjörg Björns- dóttir ljósmóðir og Jóhanna Jóhannesdóttir fyrrv. verzl- unarstjóri meðstjórnandi. Milljóna- tjón í fisk- fanni KOMIÐ hefur í ljós að verulegt tjón hefur orðið á farmi Hofs- jökuls, hins nýja skips Jökla hf„ f fyrstu ferð skipsins til Banda- ríkjanna með frystan fisk en þessi farmur er hinn verðmætasti sem farið hefur vestur um haf í einu skipi. Skemmdirnar komu i ljós þegar skipið losaði i þremur höfnum í Bandaríkjunum, en bar þó mest á þeim þegar skipið kom til Cambridge, þar sem eru verk- smiðjur Coldwater Seafood Corp. i Bandarikjunum. Hafði sjór komizt gegnum kælikerfi skipsins og valdið svo miklum skemmdum, að tjónið ef talið nema milljónum króna. Skipið ex nú komið aftur hingað til lands og viðgerð er hafin, en sjópróf vegna þessa tjóns fara fram nk. þriðjudag. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Gisli Ólafsson, að Hofsjökull væri smíðaður 1973 en hefði síðan verið endúrbyggður 1976—77 og hefðu þá allar lestir skipsins verið endurnýjaðar. 16 þúsund borgarbörn sáu borgar- leikhúsið ÍSLENZKA brúðuleikhúsið hélt alls 128 sýningar í sumar á leik- völlum borgarinnar og sáu alls liðlega 60 þúsund gestir sýning- arnar, eða um 16 þús. einstakling- ar, sem sáu fjórar sýningar hver, samkvæmt upplýsingum Jóns E. Guðmundssonar. íslenzka brúðu- leikhúsið sýnir í Grindavík á sunnudag kl. 3 í Festi, en þar verða fluttir ýmsir þættir fyrir Samið við Pólverja Undirritaður hefur verið samning- ur milli íslands og Póllands um vis- inda- og tæknisamvinnu á sviði sjáv- arútvegs. Samninginn undirritaði fyrir íslands hönd Einar Ágústsson utanríkisráðherra og fyrir Póllands hönd E. Wisniewski vararáðherra fyrir viðskipta- og siglingamál, for- maður pólsku samninganefndarinn- ar. Gert er ráð fyrir að samningsaðilar hafi samvinnu og samráð og skiptist á upplýsingum um vísindarannsóknir er snerta lifandi auðævi hafsins og einnig um veiðiaðferðir og tækniatriði er varða veiðarfæri, byggingu fiskiskipa og geymslu, flutning og vinnslu sjávar- afurða Stofnuð verður samstarfsnefnd sem mun fjalla um framkvæmd samnings- ins og gera áætlanir um samvinnu | Tekið er fram í samningnum að hann sj^uli ekki hafa áhrif á skoðanir aðila í málum sem til meðferðar eru á Hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna. Samningurinn tekur strax gildi, en hvorum aðila um sig er heimilt að segja honum upp með 6 mánaða fyrir- vara. Viðræður við Pólverja hófust á fimmtudag, en i íslensku samninga- nefndiqni voru Pétur Thorsteinsson sendiherra, formaður, Jón Arnalds ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneyt- isins, Már Elisson fiskimálastjóri, Jón Jónsson forstjóri Hafrannsóknastofn- unarinnar, dr. Björn Dagbjartsson for- stjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- ins og Guðmundur Eiriksson aðstoðar- þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneyt- isins. í pólskusamninganefndinni voru auk formannsins E Wisniewski vara- ráðherra, A Szymanowski sendifulltrúi Póllands á íslandi, P Anders frá viðskipta- og siglingamálaráðuneytinu, A. Ropelewski frá sjávarútvegsstofnun- inni í Gdynia og J. Sprus frá Fiskimála- ráðinu. í Szczecin GLASGOW HELGARFERÐIR TIL GLASGOW 3. DAGAR Brottför: Sept. 16. og 30. Okt. 14. og 28. Nóv. 4 11.18. og 25. Des. 2. og 9. Ver8 frá kr. 46.100.- Flugfar. gisting Vi fse8i og flugvallarskattur SPANN Costa del Sol Sept 18. — 6'sæti laus Sept. 25. laus sæti Okt 9 laus sæti Heimferð um London. Ferðaskrifstofan AUSTURSTRÆTI 17, II HÆÐ SIMI 26611 - 20100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.