Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 Kveðja: ----- r Gunnar Olafsson vörubifreiðarstjóri Fæddur 15. ágúst 1904. Dáinn 4. september 1977. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þannig hefur hið skyndilega fráfall Gunnars afa míns verkað á okkur sem nú syrgjum brottför hans úr okkar hópi. F'jölskyldan hefur alltaf ver- ið samrýnd þvi fjölskylduböndin eru sterk en nú hefur annar stóri hlekkurinn brostið vegna brott- farar afa. Afi minn fæddist í Reykjavik þann 15. ágúst 1904 og voru for- eldrar hans hjónin Þorgerður Gunnarsdóttir frá Skálahnjúk i Skagafirði og Ólafur Þórarinsson múrari er ættaður var úr Biskups- tungunum. Ólafur og Þorgerður eignuðust 6 börn, 4 dætur sem allar eru látnar og 2 syni og er sá yngri Gunnlaugur einn á lífi nú eftir lát afa. Elzta barn þeirra hjóna var S:ra en hún lézt 18. desember 1976 en næstelztur var afi’og er stutt á milli þeirra syst- kina. Afi var vörubifreiðarstjóri í nærri hálfa öld og stundaði hann ætið sina vinnu af samvizkusemi og eljusemi. Hann fékk lömunar- veiki er hann var á öðru ári og bjó hann við þá lömun alla ævi. Þessi fötlun hans var mikil en aldrei heyrðist afi kvarta vegna hennar heldur vann hann störf sín af krafti sem vel hefði sæmt full- frískum manni. Skaplyndi hans hefur án efa átt stóran þátt í þessu því lund hans var létt og alltaf var hann i góðu skapi og gleði hans verkaði sterkt á aðra og áður en varði tókst honum að gleðja þá er hjá honum voru. Afi kvæntist ömmu minni Helgu Oddsdóttir (B Jenssonar og K.h Guðrúnar Kristjánsdótt- ur) sem ættuð er úr Dalasýslu. hinn 1. júní 1929 og eignuðust þau þrjú börn, tvo syni og eina dóttur. Öll börn þeirra hafa stofn- að heimili og eru gift. Afi var mikill vinur dýranna þótt borgarharn væri, og hafa amma og hann átt hesta í 50 ár. Þessa ferfætlinga annaðisl afi með astúð sem börn hans væru. Barnabörn afa eru sex og er undirrituð elzt. Öll geymum við í t KATRÍN KRISTJÁNSDÓTTIR frá Syðra Langholti, Rauðarárstíg 28, sem lést 2 september s I verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, þriðjudagmn 1 3 september kl 3 00 siðdegis Systur hinnar látnu. FALLEGT ÚRVAL AF STEINSTYTTUM PÓSTSENDUM OPIÐ 12 — 6 Kirkjufell, Ingólfsstræti 6. huganum minningar um samveru- stundir sem aldrei verður hægt að endurtaka þótt öll værum við að vilja gerð. Endurminningarnar munu lifa alla okkar ævi. Afi var góður við okkur afabörnin og allt- af var hann reiðubúinn að hugga okkur í sorgum okkar og greiða úr vandamálum á þann hátt er hann bezt gat. Afí og amma voru alltaf samhent um allt er gera þurfti og hjónaband þeirra varð rúm 48 ár. í fjögur ár bjó ég hjá afa min- um og ömmu á heimili þeirra að Hrísateig 9 en þar áttu þau heima i 30 ár. Á heimili þeirra naut ég umhyggjusemi þeirra og ástar og þakka ég fyrir það veganesti er ég fékk þar. Það mun endast ævi- langt. Og þótt ég fiytti á brott héldu þau sömu verndarhendi yf- ir mér og áður og er það ómetan- legt. Litla systir mín, sem er aðeins átta ára, kveður lika afa sinn og þakkar fyrir þau ár er þau áttu en voru allt of fá. Að lokum sendi ég minar sam- úðarkveðjur til ömmu sem misst hefur mann sinn, til móður minn- ar sem misst hefur föður sinn, og til móðurbræðra minna tveggja. Hvíli afi í friði. Helga Erlendsdóttir. Hin sviplegu fráföll koma mönnum oft mjög á óvart, þótt allir viti að dauðinn gerir sjaldan boð á undan sér, og að „hvenær sem kemur kall, kaupir sig eng- inn fri“. Sérstaklega á þetta við um nánustu vini og venzlamenn. Kynni okkar Gunnars voru stutt, aðeins fárra ára samstarf. Á æskuárunum lamaðist hann nokk- uð vegna mænusóttar og varð sú lömun til æviloka. Það hefir þvi vissulega verið mikil þrekraun að verða að ganga í hvaða erfiðis- vinnu sem var, sem öil var mjög þug handaflsvinna á þeim tima. Síðar gerðist hann vörubifreiðar- stjóri og gegndi því starfi þar til fyrir þrem árum að hann lét af þvi starfi vegna þverrandi krafta. Gunnar kvæntist eftirlifandi konu sinni 1. júni 1929. Þau byrj- uðu búskap blásnauð eins og flest alþýðufólk varð að gjöra á þessum tíma, en með dugnaði, sparsemi og ráðdeild tókst þeim með sam- stilltu átaki að skapa sér og börnunum fagurt heimili og góða afkomu. Börnin eru þrjú, öll upp- komin, harðduglegt ágætisfólk. Gunnar var léttlyndur og skemmtilegur í viðkynningu, ætíð boðinn og búinn til hjálpar þar sem þörf var. Og það má segja að með gleði og söng hafi hann kvatt þetta líf, og ég er viss um að með gleðisöng hefir onum verið tekið handan við huliðstjald himinsala. Hjartkærar saknaðarkveðjur frá konu hans, börnum og barnabörn- um. Ég vil votta öllum nánustu að- standendum innilega samúð. Sér- staklega bið^ ég Guð að styrkja eiginkonuna sem eftir lifir. Þar er breytingin svo snögg eftir langa, farsæla sambúð. Ég kveð Gunnar og þakka hon- um hjartanlega fyrir margar skemmtilegar samverustundir og ég vona að við munum vinna sam- an í fyrirheitna landinu, sent við flytjumst öll til að lokum. Ingjaldur Tómasson. + Maðurinn minn SIGUROUR ÞÓROARSON frá Laugabóli er látinn Ásta Jónsdóttir + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför dóttur okkar og barnabarns ÞÓRU BALDURSDÓTTUR, Fornuströnd 4. Þórunn Ólafsdóttir, Baldur G. Ásgeirsson, Jarþrúður Jónsdóttir, ÁsgeirM. Ásgeirsson. og aðstandendur. + Móðir okkar, GUÐRÚN S GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Guttormshaga, sem andaðist á Vifilsstaðaspitala, 2 september verður jarðsungin frá Hagakirkju í Holtum þriðjudaginn 1 3 september kl 14 Börnin. + Utför fóstursystur okkar, GUÐRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR Melhaga 13, fer fram frá Neskirkju mánudaginn 12. september kl 15 Blóm vinsamlegast afþökkuð Ólafia Jochumsdóttir, Guðrún Petersen. + Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát fóstru okkar MARGRÉTAR VALDIMARSDÓTTUR, Guðrúnargötu 7, Reykjavik Steinunn M. Lárusdóttir, Jón Þór Einarsson, Hilmar Einarsson, Sigriður Helga Einarsdóttir. + Eiginkona mín móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA RÓSA MAGNÚSDÓTTIR. Álftamýri 2, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 14 sept kl. 1 0 30 fh Fyrir hönd barna, tengdadóttur og barnabarna, Bjöm Egilsson + Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, CHARLOTTU KRISTJÖNU JÓNSDÓTTUR fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 1 3. sept kl. 1 30 e h Björn Magnússon, börn, tengdabörn og barnabörn. + Útför SIGURLÍNAR KRISTÍNAR DAVÍÐSDÓTTUR frá Ásbúð Hafnarfirði fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1 3 september kl 1 3:30 Vandamenn, + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför MÁLFRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR. Frímann Jónasson Ragnheiður Frimannsdóttir Ove Krebs Birna Frímannsdóttir Trúmann Kristiansen Jónas Frímannsson Margrét Loftsdóttir Bamabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.